Þjóðviljinn - 03.07.1977, Blaðsíða 13
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. júli 1977
Sunnudagur 3. júll 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
ÖSKJUHLÍÐ
Býður
uppá
möguleika
fjölbreytts
útivistar-
svæðis
oskjuhlíöin hefur lengi
verið heimur ævintýra,
ekki síst í hugum barna.
Fyrir 20-30 árum þegar
borgin var minni lögðu
flest börn leið sína þangað
— einhvern tfma — jafnvel
þó að langt væri að fara.
Þar eru klettar, gjár, laut-
ir, hvammarog lundir. Þar
var hægt að fara í stríðs-
leik eða feluleik. Þessi
tröllslega jökulsorfna hæð
varð að töfraveröld sem
örvaði hugmyndflugið og
ekki spilltu dularfullar
stríðsminjar frá heims-
styrjaldarárunum fyrir.
Þarna voru og eru enn að
hluta gömul vígi, niður-
grafnir tankar, jarðhús og
f leira sem passaði vel inn i
ævintýrið. Og enn er
öskjuhliðin vettvangur
barna. Tré hafa verið
gróðursett um alla hlíð og
eru sums staðar orðin að
skógi. Og fullorðna fólkið
sækir lika hingað. öskju-
hliðin er eftirsótt útivistar-
svæði.
Þrjár hetjur I ævintýraheimi.
Á sóJardögum eru ótal
staðir.
A sólardögum laumast fólk hér
og hvar inn i skógarlundi, ofan i
grasbolla og á milli stórgrýtis til
aö dýrka hina dásamlegu sunnu.
Hægt er að finna ótal staöi til aö
vera i friöi. Viö fót hliöarinnar er
Fossvogur meö litt spilltri fjöru
og Nauthólsvik, gamla baðstaðn-
um. Út i vikina rennur heitur læk-
ur og á voginum skriða skútur.
Milli hliöar og sjávar er grösugt
svæöi meö melum á milli og á
kyrrum kvöldum er hér hljótt og
friösælt nema þegar spói vellur.
Hraðbraut kemur eins og
skratti úr sauðarlegg
Oskjuhliö er eitt fegursta og á-
kjósanlegasta útivistarsvæöi
Reykjavikur og býöur upp á
mikla möguleika ásamt Fossvogi
og Nauthólsvik. En borgaryfir-
völdum er annaö gefiö en frum-
leiki. og skipulagsyfirvöld miöa
starf sitt viö að á næstunni veröi
einn einkablll á hverja tvo Ibúa i
Reykjavik. Þaö er vist það há-
mark sem náöst hefur i verstu
kapitalistalöndunum. Þess vegna
á aö irjúfa svæöiö meö hraöbraut,
svokölluöum Hliöarfæti, sem á aö
leggja neðan Hliöar meöfram
Fossvoginum. Hún kemur eins og
skratti úr sauöarleggnum inn i
þessa friösælu veröld. Svo á aö
reisa flugstöðvarbyggingar við
Nauthóisvik skv. skipulagi.
Veitingahús á hitaveitu-
geymum
Efst á öskjuhliö tróna hita-
veitugeymar. Einu sinni sáust
teikningar af miklu veitingahúsi
ofan á geymunum og var þaö ekki
vitlaus hugmynd að setja þaö þar
sem sér vitt um borg og fjalla-
hringur allur. En þetta var bara
hugmynd einhvers, en ekki
borgaryfirvalda, enda geröist
ekkert i þvisa máli.
Pottar og smáfossar nið-
ur alla hlfð
Heiti lækurinn I Nauthólsvik
hefur oöiö bitbein manna á
undanförnum misserum og hafa
þær umræður leitt til þess aö nú á
aö lagfæra lækinn og jafnvel hafa
þar vörslu og búningsklefa.
Eins og kunnugt er sprettur
lækurinn af yfirfallsvatni úr hita-
veitugeymunum. Hvilika mögu-
leika býöur hann ekki upp á?
Hægt væri aö leiöa kvíslir úr hon-
um niöur um skóglendiö i Oskju-
hliðinni og gera þar heita potta og
smáfossa niöur alla hliö meö
margs konar tilbrigöum. Þá fyrst
færi aö veröa gaman I hliöinni.
Flotgirðing út í voginn
Einnig hefur komiö upp hug-
mynd aö giröa fyrir þar sem heiti
lækurinn rennur til sjávar með
flotgiröingu og halda þannig
menguöum sjó Fossvogsins utan
viö, en innan við væri volgur sjór
til aö synda i. Nú er stranglega
bannaö aö baöa sig á einu baö-
strönd reykvikinga, og er þaö eft
ir ööru.
Herminjar krydd í úti-
vistarsvæðinu
Veriö er aö brjóta niður gamla
geyma frá striösárunum. Enn eru
þó eftir töluveröar minjar þarna
uppfrá frá hernámi Islands. Þeg-
ar undirritaöur var aö alast upp i
höfuöborginni varö ekki þverfót-
aö fyrir striösbröggum og hvers
kyns hermannvirkjum um borg
og bi. Nú eru braggar teljandi á
fingrum annarrar handar og svo
er um annaö striösgóss. Liklega
eru flestir sammála um aö striðs-
árin séu eitthvert mesta örlaga-
og umbyltingaskeið i sögu þjóöar-
innar og þvi beri aö geyma eitt-
hvaö smávegis til minja um þau.
Virkin sem enn standa i öskju-
hliðinni eru tilvalin til þessa
brúks og gætu verið dálitiö krydd
i útivistarsvæðinu þar.
Merk skeljalög i Fossvogi
Innst I Fossvogi eru merk
skeljalög i bergi sem visa til i
jarösögu tslands og hafa þau ver-
iö friöuð. Þau gætu tilheyrt þessu
stóra útivistarsvæði.
Ungmeyjar að hreinsa til
Blaöamaöur og ljósmyndari
Þjóöviljans gengu um öskjuhllð-
arsvæöið góöviðrisdag fyrir
skemmstu og þá var hópur föngu-
legra ungmeyja aö hreinsa það.
Sögöust þær vera i vinnu hjá
Reykjavikurborg en ekki i ungl-
ingavinnunni^Nota bene. Gengu
þær um með gráa poka og tindu
plast, sigarettustubba og flöskur.
Sums staöar i skóginum eru ryög-
aöar ruslatunnur og sæma þær
ekki umhverfi. Þarna þurfa aö
vera snyrtilegar tunnur sem
reglulega væru hreinsaöar.
Minningar úr hvítsterku
sólskini
Viö gengum um svæöiö. Smá-
strákar skutust á milli steina eöa
undan grein, og upp i hugann
komu gamlar endurminningar
frá æskuárum, minningar úr
hvitsterku sólskini. Teygja um
buxnaskálm, gúmmiskór, fölblá-
ar skyrtur eöa sterkrauököflótt-
ar, burstaklipping og freknur á
nefi. Hrekkisvin úr Pólunum gátu
setið fyrir manni, jafnvel viga-
legar strákahjaröir úr óvinagöt-
um gátu fyrirvaralaust runniö á
mann meö herópum. Stundum
var skriöið á fiöringsmaga meö
önd I hálsi undir furu til aö gægj-
ast á stelpu og strák sem voru aö
kyssast eöa elskast. Yfirgefnar
skotgrafir og djúpar gjár vöktu
grun um einhver myrkraverk.
Svo var hlaupið meö brugönu
sveröi I gervi Roy Rogers eöa
Gunnars á Hliöarenda, en skraut-
búin skip sigldu fyrir Iandi.
Stundum létu hetjurnar sig falla i
grasið og golan þaut I eyrum og
hundasúrur og njólar báru viö
himin. Stundum lentu flugbátar i
Nauthólsvik og þá var hlaupiö of-
an og einkennisklæddir menn
komu gangandi upp bryggju og
klöppuöu strákum á kollinn.
örþreyttir komu þeir heim til
mömmu aö kvöldi og sofnuöu
fljótt inn i nýja töfraveröld.
— GFr
Föngulegar ungmeýjar voru aö hreinsa hllöina.
Hraöbrautin Hlföarfótur mun rjúfa þessa friösæld. Ryögaöar ruslatunnur prýöa ekki. ótal Iautir, hvamma og lundier aöfinna iöskjuhlfö. Striösminjar þarf aö varöveita. t,r gjdnni.
Þangaö hverfurfólk á sólardögum.