Þjóðviljinn - 03.07.1977, Page 15
Sunnudagur 3. júli 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
A
PÁUL
WEBER
áKjarvals-
stöðum
Þessa dagana er á Kjarvals-
stöðum sýning á verkum þýska
grafiklistamannsins A. Paul
Weber, sem þýska bókasafniö og
félagið Islensk grafik efna til. A.
Paul Weber, sem er 83ja ára
gamall, á að baki langan lista-
mannsferil. Elsta myndin á
sýningunni, frá árinu 1932, er hin
fræga og spámannalega mynd,
sem ber heitið Hitler — þýsk
örlög, og aflaöi listamanninum
strax frægðar á sinum tima.
Paul Weber er nú vel þekktur i
Paul Weber.— Sjálfsmynd.
Karlmennska („Herrar sköpunarverksins”)
Kærkomin tilbreyting
heimalandi sinu fyrir bóka-
skreytingar sinar. Mörg verk á
sýningunni eru lika frummyndir
að bókaskreytingum og eru bæk-
urnar sjálfar til sölu á staðnum.
Þetta verður að nægja um ævi-
feril listamannsins, þvi að
upplýsingar um hann voru af
skornum skammti, þar sem engin
sýningarskrá hefur verið gefin út.
Fyrir vikiö veröur sýningin óað-
gengileg og einnig má ætla að
marga langi til að vita nokkur
deili á þessum sérstæða lista-
manni.
I stað þess að gefa út sýningar-
skrá hefur veriö brugðið á það ráð
að láta gera miða við hverja
mynd með heiti hennar á þýsku
ásamt íslenskri þýðingu, sem I
nokkrum tilfellum er alls ekki
nógu nákvæm og jafnvel
villandi eins og þegar Die Herren
der Schöpfung er útlagt Karl-
mennska svo að tint sé til eitt
dæmi. Það bætir hins vegar
nokkuð úr skák að sýningin er vel
og skipulega uppsett og verk-
unum raðað saman eftir
viðfangsefnum og fyrir bragðið
verður hún aðgengilegri en ella
hefði verið.
Gömul hefö
í grafíklist
Lita má á verk Paul Weber sem
anga af þeirri hefð, sem hinir
miklu meistarar grafíklistar-
innar, spánverjinn\ Goya, og
Frakkinn Daumier, lögðu grund-
völl aö, en i verkum þeirra er oft
að finna napra ádeilu á tiðar-
andann og þjóðfélagið, sem þeir
bjuggu við. Það er margt i list
Weber sem minnir á verk þessara
gömlu meistara. Kjarninn I
verkum hans er sömuleiöis ádeila
og beiskt háð. Útkoman verður
hins vegar nokkuð ólik, þar sem
verk Weber eru sprottin upp úr
þýsku þjóðfélagi. Allir þekkja
hina blóðidrifnu sögu Þýskalands
á 20. öld og þvi skyldi engan
undra þó að hryllingur og
óhugnaður séu oft nálægir i
verkum listamannsins.
Víðtæk ádeila
Paul Weber hóf snemma að
Guöbjörg
Kristjánsdóttir
skrifar um myndlist
beina skeytum sinum að
hernaðaranda landa sinna. Hann
gaf út skopmundir i formi flug-
rita, tók þátt i útgáfu andspyrnu-
blaös gegn stuðningsmönnum
Þriðja rikisins og hiaut áö laun-
um fangelsisvist.
I sumum verka sinna tekst
Weber prýðis vel aö sýna anda
nasismans eins og til dæmis i
myndinni „Riickgrat raus!” eöa
Burt meö dálkinn!, þar sem
herjansmikill slátrari með hnif i
kjaftinum sker hrygginn úr
mannverum sem marsera upp-
réttar i beinni röð aö skurðar-
borðinu, en skriða siðan hrygg-
lausar burt. 1 öðru verki, sem
nefnist Die Herren der Schöp-
fung, sýnir listamaðurinn tvo
hermenn berjast i návigi um-
kringda áhorfendum, sem eru
dýr. Fagurt fordæmi hjá þeim
sem litu á sig sem eins konar æðri
kynstofn, höfuð sköpunar-
verksins.
En Weber nemur ekki staðar
við ættland sitt og list hans veröur
að eins konar heimsádeilu. Hann
deilir á hernað utan sins eigin
lands og annar snar þáttur i
sýningunni er myndflokkur um
mengun, sem i meðförum Weber
verður ekki siður ógnvekjandi en
striöið. Ahorfandinn þarf ekki að
fara i neinar grafgötur meö það
hvert stefnir, þvi að i myndum
Weber er honum rækilega sýnt
fram á að mannkynið er á góöri
leið með að tortima sjálfu sér
með skeytingarleysi sinu um
náttúruna.
Enn aðrar myndir fjalla um
manninn sjálfan og ýmsa bresti
hans eins og forvitni og
menningarsnobb en i þessum
myndum kemur skopskyn lista-
mannsins hvað hreinast fram.
Weber er gæddur mjög auðugu
Ljótur leikur
imyndunarafli. Stundum er eins
og hann vilji setja sér ákveðnar
skoröur með þvi að gefa sér fast
myndefni eins og i skák-
myndunum, þar sem leitmótifið
eru tveir menn að tafli. Skákin
gefur tilefni til að sýna marg-
vísleg svipbrigði og látbragö og
jafnframt má kalla fram i huga
áhorfandans ákveðna atburði
með þvi að leiða saman vissar
persónur til leiks eins og hers-
höfðingja i riddaraliðssveit og
indiána eða Napóleon og persónu-
gervingu hins rússneska vetrar,
svo að eitthvað sé nefnt.
Listrænt gildi
Aðalatriðið I listsköpun Weber
hlýtur að vera, aö boöskapurinn
komist til skila og hann veki
áhorfandann til umhugsunar. Þvi
má spyrja, hvert sé listrænt gildi
verka hans. Weber vinnur myndir
sinar i steinprent eða lithografiu
og geta sýningargestir fengið
nokkra hugmynd um þessa
aðferð, þvi að einn steinn er
hafður til sýnis. Þótt lista-
maöurinn noti steinprent er
teikningin samt sterkasta
tjáningarmeðal hans. Hann
ræður yfir mjög fjölbreytilegum
teiknistil, allt frá smágeröri og
nosturslegri teikningu yfir i ein-
faldar myndir, sem dregnar eru
meö fáum, léttum og hröðum
strikum. Weber virðist hins vegar
leggja miklu minna upp úr bak-
sviöi mynda sinna, sem oft er
dálitið grunnt og illa útfært i
samanburði við mannamynda-
teikningarnar. En þrátt fyrir það
að 'einhverja myndbyggingar-
galla megi finna á sumum mynda
Weber gerir hinn fjölbreytilegi
teiknistill hans það að verkum, að
sýningin verður lifandi og langt
frá þvi að vera tilbreytingarlaus.
I heild má segja að sýningin sé
skemmtileg og auðskilin. Hún er
kærkomin tilbreyting frá þeim
sýningum, sem hér hafa verið að
undanförnu. Þvi er full ástæða til
að hvetja fólk til að sjá hana.og ég
held að óhætt sé aö segja að flestir
muni hafa nokkurt gaman af.
Guðbjörg Kristjánsdóttir