Þjóðviljinn - 19.07.1977, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 19. júll 1977
Heimsókn HELMUTS SCHMIDT til GEIRS:
Töluöu lítið um fisk |
en því fleira um Nató i
Á blaðamannafundi, sem
haldinn var á laugardaginn i til-
efni opinberrar heimsóknar
Schmidts, kanslara Vestur-
Þýskalands, kom m.a. fram, aö
fiskveiöimál höföu frekar lltiö
komiö viö sögu i viöræöum Hel-
muts Schmidt viö Geir Hall-
grfmsson. Þeim mun meira
haföiGeir hlustaö á útskýringar
kanslarans á viöhorfum Efna-
hagsbandalagslanda til utan-
rikismála og viöskiptamála.
Kanslarinn og Geir kváðust
hafa talað 6-7 minútur um fisk-
veiðimál i viðræðum sinum,
sem heföu verið vinsamlegar.
Þeim mun meira töluðu þeir um
vestrænt samstarf, Nato, sam-
búð austur og vesturs og þar
fram eftir götum. Kanslarinn
sagöi, að samningagerð við Is-
lendinga um fiskveiðar væri nú
i höndum Efnahagsbandalags-
ins en ekki vesturþýskra stjórn-
valda, en hann kvaðst hafa skil-
ið áhyggjur Islendinga af
verndun fiskistofna, sem nú sið-
ast koma fram i ráöstöfunum til
Helmut Schmidt
aö takmarka þorskafla Islend-
inga sjálfra. Geir Hallgrimsson
sagði, þegar spurt var um
hugsanlega endurnýjun fisk-
veiðisamkomulags viö Vestur-
Þjóðverja, að þar yrði að vera
um „samning um fiskvernd” að
ræða.
Hannelore Schmidt
Schmidt sagði, aö i viðræum
viö Geir 'Hallgrimsson hefði
verið talað um framtiö við-
skiptatengsla landanna og þá
hvernig hægt væri að „stuðla að
frekari eflingu islensk-þýskra
samskipta á sviði viöskipta
milli einkaaöila”, eins og það
var orðað. Hér væri fyrst og I
fremst um aö ræða, hvernig
stjórnvöld gætu gert ramma I
þann, sem viðskiptum er settur, 1
hagstæðari. I þessu samhengi I
lét Schmidt þess getið, að hann |
hefði boðið Geir Hallgrimssyni i ■
opinbera heimsókn til Þýska- I
lands og hefði þaö heimboö ver-
iö þegið.
■
Schmidt kvaðst einkar
ánægöur meö heimsókn sina
hingað, sem hann hefði mjög '
hlakkað til. Hann lét þá i ljós i
sérstaka ánægju með Vest-
mannaeyjaförina, en þar kvaðst
hann hafa séð gott dæmi um *
hvernig atorka og samstaða I
geröi fólki kleift aö yfirstiga I
mikla örðugleika, og átti þá við I
uppbygginguna þar i Eyjum '
eftir gosið. Schmidt kom hingað I
úr Norðuramerikureisu og hafði I
talað við Carter forseta og Tru- ■
deau forsætisráðherra Kanada I
áður en hann hitti að máli Geir
Hallgrimsson.
Hvad er Hjálparsjódur
æskufólks?
Hjálparsjóður æskufólks. Hvaö
er það? kann einhver aö spyrja,
en I annarra eyrum mun nafniö
láta kunnuglega. Já, þessi sjóður
er til og hefur verið það á annan
áratug. Það var Magnús heitinn
Sigurösson, skólastjóri við Hliða-
skólann, sem stofnaði hann og
mun hann einnig hafa átt fyrstu
hugmyndina að honum.
Magnús var á margan hátt
óvenjulegúr maður. Hann hafði, i
sambandi við störf sin viö skóla
og aö barnaverndarmálum,
kynnst margvislegum erfiðleik-
um barna og unglinga og óhugn-
anlegu heimilisböli á ýmsum
stööum bæði hér i borg og viöar
um landið. En MagnUs Sigurðs-
son var ekki maður þeirrar gerð-
ar, er lætur sér nægja að sjá og
skilja; hann vildi einnig reyna að
bæta og laga. Hann sannfærðist
um, aö alloft væru byr junarerfið-
leikar þess eðlis, aðúr mætti bæta
með fjárhagsaðstoð, ef fé væri
fyrir hendi án mikillar tafar eða
umsvifa, þegar mest lægi á.
Magnús hafði átt mikinn þátt i
stofnun drengjaheimilisins i
Breiöuvik og i sambandi við
störfin þar látið gera kvikmynd,
sem hlaut nafnið Cr dagbók lifs-
ins. Mynd sú var fyrst sýnd i
Reykjavik 1963 en siöan um allt
land á næstu árum. Agóðinn af
sýningum þessum var stofnfé
Hjálparsjóðs æskufólks. En þar
sem Magnús hafði að mestu leyti
kostað gerð kvikmyndarinnar og
ferðaðist kauplaust með hana um
landið, má lita svo á að þetta fé
hafi verið gjöf frá honum. Þessu
fyrsta framlagi fylgdi gjafafé frá
fólki, sem ritað hafði nöfn sin i
bókþá, sem nefnd er Réttiöhjálp-
arhönd og var látin fylgja kvik-
myndinni út um landið.
I skipulagsskrá Hjálparsjóð„
æskufólks segir svo:
„Markmið sjóðsins er að
styrkja eða aöstoða munaðar-
laus, vanrækt eða nauðstödd börn
eða æskufólk.” Eftir þessu hefur
sjóðurinn starfaðá annan áratug.
Fjárhagurinn var vitanlega
þröngur, en Magnús var óþreyt-
andi að finna leiðir til fjáröflunar
og fylgja þeim eftir af mikilli elju
og fórnfýsi.
Samkvæmt skipulagsskrá
sjóðsins á stjórn hans að vera
skipuð þrem mönnum. Sé einn
þeirra tilnefndur af Barnavernd-
arráði Islands, annar af Sam-
bandi islenskra barnakennara, en
hinn þriðji af biskupi, segir enn-
fremur i greinargerö frá sjóðn-
um. Magnús var formaður frá
upphafi, en við fráfall hans 1974
var um hrið nokkuð á reiki um
setu manna i stjórn, óvanir menn
þurftu við að taka, en i stjórninni
nú eru Ingi Kristinssón, Eiríkur
Stefánsson og Guðmundur Óskar
Ólafsson. Siðan segir i greinar-
gerð stjórnarinnar:
Þess höfum viö stjórnarmenn
orðið varir, að sumir vinir
Magnúsar heitins, einkum útum
land, hafi fundið breytingu, sem
þeim féll ekki. Nú kom enginn i
fjáröflunarferð fyrir Hjálparsjóð
æskufólks. Ekki mundi hann lengi
verða starfi sinu vaxinn, ef ekki
væri reynt að auka hann og efla.
Þetta var okkur I stjórn sjóðsins
ljóst, en það lá einnig i augum
uppi, að f járöflunaraöferðir
Magnúsarvoru engum okkar fær-
ar, og bar margt til, þótt ekki
verði hér greint. Hins vegar var
litast um eftir nýjum leiðum, en
þá gerðist það, sem öllum kom á
óvænt, að Hjálparsjóöur æsku-
fólks hlaut arf. Mun verðmæti
hans vera milli 11 og 12 milj. kr.
Sá, sem arfleiddi, var einhleypur
maður, að nafni Guðmundur Guð-
jónsson. Meö arfleiösluskrá hafði
hann ánafnað Hjálparsjóði æsku-
fólks 40% af eign sinni. Bókfærð
eign sjóðsins er nú rúml. 24 milj.
kr.. Má það teljast allgott sem
stendur, en nú eru verðbólgutim-
ar og mun þvi vandséð, hvort
tekst að láta sjóðinn halda fullu
gildi jafnframtþví sem hann ræk-
ir skyldur sinar samkvæmt
skipulagsskrá.
Ekki eru likur til þess að aftur
verði tekin upp f járöflunaraðferð
Magnúsar með ferðum viös vegar
um landiö, en Hjálparsjóöur
æskufólks þiggur fúslega og með
þökkum f járhagsaðstoð frá öllum
þeim, sem vilja honum vel og
meta hjálparstörf hans, hvort
heldur það eru gjafir i sérstöku
tilefni, áheit eða i einhverju öðru
formi. Má geta þess hér, að
stundum hafa borist gjafir alveg
óvænt. Var hin stærsta frá 10 ára
stúdentum M.R. vorið 1974. Nam
sú gjöf 320 þús. kr.
Rétt er aö láta þess getið.hér,
að Magnús lét eitt sinn gera
minningarkort fyrir sjóðinn og
dreifði þeim viðs vegar um land-
ið. Voru það einkum bókaverslan-
ir, sem fengu þau til sölu. Enginn
listi hefur fundist yfir þaö, hvar
þessi korthafa lent, og mun ekki
hafa borist uppgjör eða skilagrein
frá þeim — ekki öllum a.m.k..
Væri vel, ef úr þvi yrði bætt fyrr
en síðar.
Siðast liðin tvö ár hafa einkum
borist beiðnir um aðstoö i sam-
bandi við skólanám unglinga, þar
sem einhverjir verulegir erfið-
leikar hafa veriö i vegi. Höfum
jVÍÖ vissu fyrir þvi að sú hjálp,
sem þar hefur verið veitt, hefur i
mörgum tilfellum skilað góöum
árangri, ef svo má að orði kom-
ast. En aðstoð i mörgum öðrum
tilfellum kemur einnig til greina.
Ekki er ætlunin að Hjálparsjóö-
ur æskufólks komi i stað lögboð-
innar opinberrar aðstoðar, heldur
þar sem slika aðstoö er ekki að fá
eða hún fullnægir ekki. Hins veg-
ar má ekki lita svo á, að þessum
sjóði beri skylda til að gjalda já-
kvæöi við hverri beiðni um að-
stoð. I hverju einstöku tilfelli
verður stjómin að meta kringum-
stæður og kemur þar margt til
greina.
Umsóknir um styrk úr þessum
sjóði þurfa að berast stjórninni
með nokkrum fyrirvara og þeim
þarf að fylgja umsögn og með-
mæli barnaverndarnefnda, fé-
lagsráögjafa, skólastjóra eða við-
komandi presti. Ofteru það þess-
iraöilar, sem senda umsóknirnar
ásamt með nánari skýringum.
Enda er nauösynlegt að gera
ljósa grein f yrir þörf þess, er æsk-
ir aöstoðar, og ástæöum öllum.
Fræðslustjórum útum landiö hef-
ur verið kynnt starfsemi sjóðsins
og getur i mörgum tilfellum verið
heppilegt að hafa samband við
þá.
1 reikningum sjóðsins fyrir s.l.
áreru bókfærð hjálparframlög til
ýmissa, 477 þús. kr„ en áreiðan-
lega verður það drjúgum meira á
þessu ári.
Eiríkur Stefánsson.
Laust embætti er
forseti Islands veitir
Prófessorsembætti i jarðeðlisfræði við
eðlisfræðiskor verkfræði- og raunvisinda-
deildar Háskóla íslands er laust til
umsóknar. Prófessornum er einkum ætlað
að starfa að eðlisfræði fastrar jarðar auk
almennrar kennslu i eðlisfræði.
Umsóknarfrestur er til 1. september 1977.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsækjendur um prófessorsembætti
þetta skulu láta fylgja umsókn sinni ræki-
lega skýrslu um visindastörf þau, er þeir
hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo
og námsferil sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið
15. júlf 1977.
Evrópu-
meistara-
keppni
íslenskra
hesta í
Danmörku
Dagana 19.-21. ágúst I sumar
veröur Evrópumeistaramót i
keppni islenskra hesta haldiö i
Skiveren á Norður-Jótlandi. Búist
er við því að eigendur íslenskra
hesta viða á meginlandinu komi
með gæðinga sina til keppni og i
Skiveren verði samankomið
mikið úrval gæðinga.
Mótstaðurinn, Skiveren, er
skammt frá Hirtshals. Þar er
þegar hafinn undirbúningur aö
mótinu með gerð keppnisvallar
og sérstaks æfingavallar á
ströndinni. Þar verða sett upp
veitingatjöld meö matsölu og auk
þess „grillbar”.Tjaldbúðir verða
skipulagðar þvi reiknað er með,
að f jöldi mótsgesta muni gista i
tjöldum.
Samvinnuferðir hafa ákveðið
að skipuleggja hópferö á hesta-
mannamótið. Flogi verður 15.
ágúst til Alaborgar, og fariö
þaðan með hópferðabifreiðum til
Skiveren. Heimferð hefur ekki
ennþá verið endanlega ákveöin,
en upplýsingar um ferðina eru
gefnar hjá Samvinnuferðum i
sima 2-70-77.
(Heimild: Freyr)
—mhg
Beðiö um
ferða-
frelsi
OXFORD Reuter — Hópur vis-
indamanna.sem setið hafalá þingi
i þrja daga til heiðurs sovéska
visindamanninum Benjamin Le-
vits, sendi i gærkvöld bænaskrá
til Leonids Bresnéf, leiðtoga
Sovétrikjanna.
Var þar farið fram á að Benja-
min Levits yrði veitt ferðafrelsi
og jafnframt var harmað að hon-
um skuli vera bannað að laka þátt
i alþjóðlegum þingum og gefa út
verk sin. Benjamin Levits hefur
reynt i fimm ár að fá leyfi til aö
flytja til Israels, þar sem sonur
hans býr, og hafa sovésk yfirvöld
bannað honum að fara út úr
Sovétrikjunum. Fékk hann ekki
að fara á ráðstefnuna sem haldin
var honum til heiðurs.
Háskóla-
menn fá
hækkun
Bandalag háskólamanna hefur
samið við fjármálaráðuneytið um
7,5% hækkun júnilauna. Aður
hafði BHM fengið um 11% hækk-
un kaups og verðlagsbætur frá
fyrsta mai og er hér alls um að
ræða 19,3%. BHM hafði farið
fram á 14% hækkun ofan á þau
11% sem fyrr voru nefnd.
Banaslys
af raflosti
BORDEAUX Reuter — Hollensk
kona lét lifið og maður hennar
særðist illilega þegar mastrið á
snekkju þeirra snerti rafmagns-
linu skammt frá Bordeaux. Hjón
þessi voru i sumarleyfi á tjald-
búðasvæöi á suðvesturströnd
Frakklands og voru þau að flytja
bát sinn frá stöðuvatni að drátt-
arbraut þegar málmmastriö
snerti 23.000 volta raflinu.