Þjóðviljinn - 07.09.1977, Síða 5
a/ eriendum vettvangi
MiOvikudagur 7. september 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Húa Kinaformaður og Vance utanrikisráðherra Bandarlkjanna
heilsast. Kinverskir ráðamenn hvetja bandariska til harðsnúnari
afstöðu gegn Sovétrikjunum.
Þegar demókratastjórn Carters tók við af repú-
blikanastjórn skúrksins Nixonsog dugleysingjans Fords
var svo að heyra á mörgum, að þeir teldu að tímamót —
og það til hins betra — væru mörkuð í sögu Bandarikj-
anna og heimsins alls. Notre Dame-ræðu Carters, þar
sem hann vísaði kommúnistahræðslunni á bug og lýsti
f rati á kalda stríðið, var jafnvel líkt við f jórtán púnktana
hans Wilsons sem uppskrift að nýjum og betri heimi. Nú
eru þessir hveitibrauðsdagar Carter-stjórnarinnar
greinilega á enda. Ot á við er stefna stjórnar hans —
hvort sem það er með vilja hans sjálfs eður ei — á góðum
vegi með að leiða til nýs kalds stríðs, og i samræmi við
það mætir hann vaxandi gagnrýni og ásökunum — ekki
sist á innlendum vettvangi. Margir bandarikjamenn,
bæði til hægri og vinstri við Carter, eru jafnvel farnir að
sakna Kissingers og hans kaldrifjuðu og hundingjalegu
uppskiptapólitíkur, byggðri á erfðinni frá Bismarck og
Metternich.
Nýtt kalt strið í uppsiglingu?
„I Bandarlkiunum eru bó nokk-
uð margir aðilar að stofnunum
demókrata um utanríkismál
farnir að bollaleggja um það,
hvort hann (Carter) sé raunveru-
lega fær um að gegna embætti
sinu,” segir bandariska vikuritið
Time. „Stöðugt fleiri komast á þá
skoðun,” heldur blaðið áfram,
,,aö heildarsamræmi vanti i
stefnu hans (I utanrikismálum)
og að sumar aðferða hans hafi
gagnstæð áhrif viö það sem til er
ætlast. 1 innanrlkismálum hefur
það sýnt sig, að Carter virðist
halda að áhrifamiklar yfirlýsing-
ar um eitthvert markmið jafn-
gildi þvi að gera eitthvað til að
nálgast það. 1 utanrikismálum er
hegðun hans á sömu lund.”
„Næstum öll hugsanleg
glappaskot..."
Þróun sú i samskiptunum við
Sovétrikin, sem stefna Carters
hefur valdið, vekur mesta gagn-
rýni. George Kennan, þekktur og
dálltiö broslegur kommúnista-
hatari frá Truman-timanum en
jafnframt einn af þrautreyndustu
diplómötum Bandarikjanna og
með kunnugustu mönnum þeirra
um sovésk málefni, veittist þann-
ig harölega að Carter i blaðagrein
i júli. Stjórnin hefur, skrifar
Kennan, „gert næstum þvi öll þau
glappaskot, sem hugsanlegt var
að láta sér verða á,” i viðræðun-
um við Kremlarbændur. Kennan
undirstrikar hneykslun sina enn
betur með þvi að segja, að Carter-
stjórnin „hafi haft að engu allan
þann lærdóm, sem viö höfum
dregið af samningaumleitunum
við Sovétrikin frá þvi eftir siðari
heimsstyrjöld.”
Spjótin beinast ekki sist aö
Zbigniew Brzezinski, aðalráö-
gjafa Carters i öryggismálum,
sem er evrópumaður eins og
fyrirrennari hans Kissinger. US
News and World Report, málgagn
þekkt fyrir hægrisinnuö viöhorf,
hefur eftir sumum fremstu so-
vétsérfræðinga Bandarikja-
stjórnar, aö Brzezinski virðist
beinlinis „hafa nautn af þvi að
ergja rússana.” 1 þvi sambandi
er það dregið fram i dagsljósið að
Brzezinski sé af pólskum aðals-
ættum, sem sagt afkomandi ein-
hverrar hrokafyllstu stéttar i
Evrópúsögunni, fólks sem hafði
andúð og fyrirlitningu á rússum
sem eina sina helstu erfðavenju.
Slökunarstefnan á förum?
Athyglisvert er aö slökunar-
stefna (Detente, sem til skamms
tima var mikið tiskuorð jafnt
vestan tjalds sem austan, virtist
nú orðið nánast bannorð i innsta
hring bandariskra ráðamanna.
Fyrirmæli um stefnumótun I ör-
yggismálum, sem Carter nýlega
gaf varnarmálaráðherra sinum
og New York Times birti kjarn-
ann úr (þrátt fyrir að skjalið átti
að vera „algert túnaðarmál”),
eru til vitnis um þetta. 1 skýrslu,
sem er til grundvallar fyrirmæl-
um forsetans stendur svart á
hvitu að „heimurinn sé nú i öðr-
um þætti kalda striðsins.” Varla
er hægt að túlka þetta öðruvisi en
svo, að Bandarikjastjórn sé orðin
fráhverf slökunarstefnunni.
Við þvi má búast að með þessu
færist nýtt fjör i vígbúnaðar-
kapphlaupiö. Bandarikin hafa
fitjað upp á nýjum tryllitækjum i
þvi sambandi, beitieldflaugum
(cruise-missiles), nifteinda
(newtrónu)-sprengjum og Mark
12-A-eldflaugaroddum. Talið er
að þessar nýjungar muni á mikil-
vægum sviöum tryggja Banda-
rikjunum hernaðarlega yfirburöi
framyfir Sovétrikin. Enginn vafi
leikur á þvi, að Sovétrikin munu
svara i sömu mynt. Hætt er við aö
þetta leiði til þess, að umræður
risaveldanna um takmörkun
kjarnorkuvigbúnaðar komist i al-
gera sjálfheldu.
Lífseig kredda
Carter hlaut á sinum tima mik-
ið lof fyrir eindregin ummæli
gegn ániðslu á mannréttindum i
Sovétrikjunum og vlðar. Þaö
framtak hafði að minnsta kosti
þau jákvæðu áhrif að auka um-
ræöur um þau mál. En nú virðast
æ fleiri hallast að þvi, að þessi
mannréttindabarátta Carters
hafi fyrst og fremst verið hugsuð
sem skrautfjööur i hattinn og sið-
ferðisleg stæling fyrir banda-
rikjamenn eftir Vietnamstriðið
og Watergate-skandalana. Meira
að segja heyrist þvi haldiö fram,
að á bak við þessa mannréttinda-
baráttu leynist tilhneiging til
sóknar gegn þjóðfélagskerfi So-
vétrikjanna og bandalagsrikja
þeirra. Raunar hefur þaö veriö
kredda i bandariskri utanrikis-
pólitik lengst af frá þvi að bolsé-
vikar tóku völdin i Rússlandi, að
stöðug og friösamleg sambúð viö
Sovétrikin kæmi vart til greina,
nema þvi aðeins, að grundvallar-
breytingar yrðu á stjórn- og efna-
hagskerfi Sovétrikjanna. Þvilik-
um draumórum visaði Þjóöverj-
inn Kissinger að sjálfsögðu á bug.
Viðvörun Brandts
Vist er um það aö sovéskir
ráöamenn lita svo á, að i mann-
réttindasókn þeirra Carters og
Brzezinskis felist afturhvarf til
þessa sérstaka ameriska draums.
Og sovétmenn eru ekki einir um
þá skoðun. Áhrifamestu valda-
menn Vestur-Evrópu, Giscard
d’Estaing i Frakklandi og sósial-
demókratar i Vestur-Þýskalandi,
eru ekkert yfir sig hrifnir af
mannréttindapólitik Carters. Af
hálfu vesturþýskra valdhafa
kann að liggja að baki öðrum
þræði sú ástæða, að þeir séu ekk-
ert hrifnir af umræðum um
mannréttindamál yfirleitt, sem
er' skiljanlegt meö tilliti til þess,
að sjálfir niðast þeir kappsam-
lega á mannréttindum i sinu
heimalandi. En fleira Ijemur til.
Willy Brandt, fyrirrennari Hel-
muts Schmidt i rikisskanslara-
embætti, hefur nýlega lagt
áherslu á, að góður árangur slök-
unarstefnunnar sé forsenda fyrir
þvi, að einhver árangur náist i
mannréttindamálum, og bent á
að sú stefna hafi ekki upphaflega
verið mótuö með þaö fyrir aug-
um „að steypa kommúniskum
rikisstjórnum frá völdum.” Hér
er greinilega um að ræða aðvörun
til bandarikjamanna, og telja má
vist að Brandt tali hér ekki siður
fyrir munn vesturþýsku
stjórnarinnar en sjálfs sin. Vest-
ur-Þýskaland, sem er i enn bráð-
ari hættu en Bandarikin ef til
risaveldastriös kæmi og leggur
auk þess áherslu á vaxandi við-
skipti viö Austur-Evrópu, er ekk-
ert hrifið af hinni nýju tóntegund
frá Washington.
Herská
bjartsýni
Á bak viö þennan nýja tón
virðist meöal annars liggja stór-
aukin bjartsýni á mátt og mögu-
leika Bandarikjanna sem stingur
mjög i stúf við það þunglyndis-
kast, sem menn þar voru haldnir
eftir hrakfarirnar i Vietnam og
Angólu. Vaxandi vopnaskak
bandariskra ráðamanna stafar
að þvi er virðist ekki af ótta viö að
sovétmenn séu að komast fram úr
þeim i vigbúnaöarkapphlaupinu.
Þvert á móti virðist sú trú nú al-
menn i höfuðstöðvunum vestra
að sovétmenn séu þar langt á eftir
bandarikjamönnum, samanber
nýja CIA-skýrslu um þau mál. En
i krafti þessara yfirburða virðist
ýmsa áhrifamikla bandariska
stjórnmálamenn og hers-
höfðingja nú dreyma um, að á
þessum grundvelii sé nú tækifæri
til að láta kné fylgja kviði gagn-
vart Sovétrikjunum. Það heyrist
að stefnt sé beinlinis að þvi að
knýja sovétmenn til aukins vig-
búnaöarkapphlaups i þeim til-
gangi aö valda þeim efnahagsleg-
um þrengingum. Þessi herskáa
bjartsýni sumra bandarikja-
manna virðistganga svo langt, aö
þeir kváðu telja aö Bandarikin
komist innan skamms i svipaða
aðstöðu gagnvart Sovétrikjunum
og i lok siðari heimsstyrjaldar,
þegar Bandarikin gátu ráöið lög-
um og lofum um mestan hluta
heimsins og héldu Sovétrikjunum
og fylgirikjum þeirra raun-
verulega i hernaðarlegri og efna-
hagslegri herkvi.
Mekka
hægriöfgamanna
Vináttan viö Kina er mikið atr-
iði i þessum endurnýjaða viga-
móöi frá Truman-timanum.
Vance utanrikisráðherra Banda-
rikjanna var nýlega i opinberri
heimsókn i Kina, en hann er ekki
nema einn af mörgum banda-
rikjamönnum, sem þykja þar
góðir gestir nú um stundir. Kina
litur á Sovétrikin sem höfuðand-
stæðing sinn i heimsmálum og
virðist reiðubúið til bandalags við
svo aö segja hvern sem er gegn
þeim. Það hafa albanir, trygg-
ustu vinir kinverja um langt
skeið, gagnrýnt þá fyrir. Ekki
eru mörg ár siðan valdhafar Kina
voru óbótamenn af versta tagi i
augum bandarikjamanna, en nú
minnast bandariskir ráðamenn
aldrei á Kina ööðruvisi en með
lotningu sem „alþýðulýðveldið
Kina.” Peking er orðin sannköll-
uð Mekka fyrir bandariska
hægriöfgamenn, einkum þá, sem
nátengdir eru hernum og stór-
iðnaðinum, sem framleiöir fyrir
herinn, og mega auðvitaö ekki
heyra minnst á að dregið sé úr
vopnaframleiðslu.
Hugleysinginn Kissinger
Einn slikra, fyrrverandi yfirað-
miráll Bandarikjanna Elmo
Zumwalt („vitur maður og góö-
gjarn,” sagði Hannibal Valdi-
marsson, þegar bandarikjamenn
buðu honum vestur i tiö „vinstri-
stjórnarinnar” siðari), ræddi ný-
lega i Peking við Li Hsiennien,
varaforsætisráðherra Kina, og
Húang Húa utanrikisráðherra. Að
sögn Zumwalts gagnrýndu þessir
viðmælendur hans Bandarikin
opinskátt fyrir að þau sýndu of
mikla sáttfýsi gagnvart Sovét-
rikjunum og lögöu áherslu á
aukna samstöðu Bandarikjanna
og Kina gegn rússneska „isbirn-
inum”, eins og þeir orðuðu það. Li
kvaö Kissinger hafa verið alltof
linan gagnvart sovétmönnum og
sagði: „Hann er ákaflega hrædd-
ur við Sovétrikin. Ég held að
Bandarikin ættu að vera harö-
snúnari gegn Sovétrikjunum.”
Þetta var eins og talað út úr
hjarta Zumwalts, sem ennfremur
kvað kinverja lita svo á, aö so-
vétmenn legðu meiri áherslu á að
auka áhrif sin i Evrópu en I öör-
um heimshlutum.
Endurnýjun „umsáturs-
ástands"?
Þrátt fyrir kærleikana milli
ráðamanna i Washington og Pek-
ing ber þeim þó enn ýmislegt á
milli, til dæmis eru Bandarikin
enn ekki reiöubúin að offra skjól-
stæöingum sinum, eftirlegukind-
um Sjang Kaiséks á Taivan. Ekki
er ljóst hvaö það atriði er mikil
hindrun i vegi náinnar samstöðu
með þessum tveimur stórveldum,
sem fyrir ekki nema áratug voru
óvinir mestir i heimi. Hinsvegar
er ljóst, að kinverskir ráðamenn
og margir áhrifamenn i Banda-
rikjunum hafa i huga myndun nýs
og voldugs bandalags gegn Sovét-
rikjunum og bandalagsrikjum
þeirra, bandalags sem Bandarik-
in, Kina og Vestur-Evrópa yrðu
meginaðilarnir i. Þessu banda-
lagi gæti verið innanhandar að
koma Sovétrikjunum i samskon-
ar „umsátursástand” og þau
voru i fyrstu árin eftir heims-
styrjöldina siðari og voru raunar
þar áður i lengst af frá bylting-
unni i Petrógrad. Hætt er við að
slikur gangur mála myndi leiöa
af_ sér kaldastriðsástand, hliö-
stætt þvi sem var á eftirstriðsár-
unum, en að þessu sinni yrði þaö
miklu hættulegra, vegna gifur-
legra framfara i framleiðslu
hverskyns múgmoröstækja og
margfalt meiri vopnabirgða i
höndum risaveldanna og annara.
Siðastliöinn hálfan annan áratug
munu vopnabirgðir heimsins hafa
fimmtánfaldast aö magni, og
kunnáttumenn á þvi sviði halda
þvi fram, að vigbúnaöur risaveld-
anna sé komin á það stig, að ráða-
menn þeirra hafi ekki lengur
möguleika á gera sér viöhlitandi
grein fyrir stærð hans og mætti,
hvað þá aðrir.
dþ.