Þjóðviljinn - 26.11.1977, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 26.11.1977, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. nóvember 1977 Málgagn sósíalisma, verkalýdshreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Ctgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar Gestsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann. Auglýsingastjori: Clfar Þormóösson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Sfðumúla 6. Slmi 81333. Prentun: Blaðaprent hf. Áróðursleikur stjórnar- flokkanna Báðir stjórnarflokkarnir telja stöðu sina veika um þessar mundir. Upplausn rikir innan Sjálfstæðisflokksins þar sem Geir Hallgrimssyni hefur mistekist herfilega að halda merki flokksins á lofti; þannig hefur hann nú glutrað niður þeirri grund- vallarafstöðu Sjálfstæðisflokksins til þessa, að ekki skuli tekin leigugjöld fyrir herstöðina i einu eða öðru formi. Hlaut landleigustefnan — aronskan — fleiri at- kvæði i prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik en sjálfur forsætisráðherrann og formaður flokksins. Þá kom fram i prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik sjóðandi óánægja með rikisstjórnina, enda bentu allir efstu þátttakendurnir i prófkjörinu á að svo væri. Ástandið i Framsóknarflokknum er einnig ákaflega bágborið. Framsóknar- flokkurinn lýsti þvi yfir á öllum framboðs- fundum og i blöðum sinum fyrir siðustu kosningar að þingmenn hans berðust fyrir vinstristjórn. Þess vegna fékk Fram- sóknarflokkurinn þá mörg atkvæði vinstrimanna. Eftir að Framsóknarflokk- urinn fór i rikisstjórn með Sjálfstæðis- flokknum hafa þessir vinstrisinnuðu kjós- endur snúið baki við Framsóknarflokkn- um hver af öðrum og sést vonleysissvipur- inn ákaflega greinilega á skrifum Timans um þessar mundir. Frammi fyrir þessum staðreyndum er einnig ljóst að þriðji stærsti stjórnmála- flokkur landsins, Alþýðubandalagið, er i sókn og möguleikar þess eru miklir. Þetta vita áróðursmeistarar stjórnarflokkanna ákaflega vel og þess vegna reyna þeir allt hvað þeir geta til þess að sanna kjósend- um að þeir vildu i rauninni helst af öllu vinna með Alþýðubandalaginu i rikis- stjórn. Þessi undarlega hringekja ástar- innar birtist skýrast i leiðurum Timans og Visis undanfarna mánuði. En þegar betur er að gáð kemur i ljós að þessir flokkar hafa engan áhuga á þvi að framkvæma nein stefnumál Alþýðubandalagsins. Ahugi þeirra beinist að þvi einu að reyna að verða sér úti um vinsældir með þvi að gefa i skyn að þeir gætu hugsað sér að starfa með Alþýðubandalaginu i rikis- stjórn! Þessi fáránlegi áróðursleikur er ákaf- lega gagnsær og engin ástæða til þess að taka hann alvarlega vegna þess að hér er um hreinan loddarahátt að ræða og ekkert annað. Staðreyndirnar liggja fyrir: Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðis- flokkurinn eru að framkvæma stefnu sem er þveröfug við það sem Alþýðubandalag- ið gæti fallist á. Þessir tveir flokkar festa hernámið i sessi með stórauknum fram- kvæmdum i Miðnesheiði, þeir halda áfram viðræðum við Alusuisse um áætlun ,,integral”, þeir beita sér fyrir stóraukn- um gróða milliliðanna, heildsalanna og verðbólguspekúlantanna, þeir vanrækja algerlega skipulega uppbyggingu islensks iðnaðar, stefna þeirra i raforkumálum er handahófskennd, og siðast en ekki sist er stefna þeirra gagnvart verkalýðshreyf- ingunni og launafólki almennt allt önnur en sú sem Aþýðubandalagið fellir sig við og hefur raunar beitt sér fyrir i verki i tveimur vinstristjórnum. Þar er um grundvallarmun að ræða. Aþýðubandalaginu er ekkert keppikefli að komast i rikisstjórn til þess eins að fá ráðherrastóla undir forystumenn sina. Al- þýðubandalagið mun i næstu kosningum leggja stefnu sina i heild undir dóm kjós- enda. Verði flokkurinn mun sterkari en hann er nú að afloknum þeim kosningum hefur það þau áhrif að staða launafólks og sjálfstæðisbaráttunnar i heild styrkist. Hvort sem flokkurinn er þá innan stjórnar eða utan gætu hann og verkalýðshreyfing- in i sameiningu haft úrslitaáhrif á efna-_ hagsstefnuna i landinu eftir kosningarnar. Það liggur fyrir að það er ætlun forystu- manna þessara flokka að starfa saman eftir kosningar; áróðursleikaraskapurinn i sambandi við hugsanlega stjórnaraðild Aþýðubandalagsins er aðeins ætlaður til þess að breiða yfir hinn raunverulega tiÞ gang stjórnarflokkanna: Að halda stjórnarsamstarfinu áfram eftir næstu kosningar. —s. hringa af þvi tagi sem Alusuisse er að þeir kaupa sér stjórn- málaáhrif og jafnvel stjórn- málamenn. Ein aðferö þeirra er sú að sjálfsögðu að hafa áhrif á það hverjir eru i framboði, þvi aðsá slagur er auðveldari en sá sem heyja yröi eftir á. Besta að- ferðinerþess vegna augljóslega sú að dæla peningum I kosn- réttara að kenna einstaka þing- menn við fyrirtækin en kjör- dæminþarsem þeir eru kosnir: Háttvirtur 1. þingmaður Alus- uisse eða 2. landskjörinn þing- maður Elkem tekur til máls! Hér er á ferðinni alvörumál en ekki gamanmál. Það er aug- ljóst hverjum manni aö svona geta stórfyrirtækin keypt sér ingabaráttu einstaklinga i próf- kjöri. Meö þessum hætti geta auðfélögin haft veruleg áhrif — þau eignast þingsætin og þing- mennirnir verða bandingjar stórfyrirtækjanna. Þannig gæti svo farið að innan skamms væri vinsældir meö margvislegum hætti. Hvað er þá oröið okkar starf ef erlend auöfélög fara aö kaupa þingmenninaeinn af öðr- Nákvœmir reikningar verði birtir Þjóðviljinn vill hér meö bera fram þá kröfu að þegar i stað Hver skyldi verða háttvirtur 1. þingmaður tslenska álfélagsins? veröi birtir nákvæmir reikning- ar yfir kostnað i prófkosningum Sjálfstæðisflokksins og Alþyðu- flokksins. Þar þarf að koma fram nákvæmlega til hvers féð var notað,en umfram allt hvað- an það var komið, nákvæmlega sundurliðað. Veröi reikningar prófkosninganna ekki birtir verða dregnar af þvi viðeigandi ályktanir: Leyndin kemur upp um skuggalegan tilgang, varpar ljósi inn i skúmaskot spillingar- innar. Neiti frambjóðendur i prófkjörunum að gefa upp tæm- andi yfirlit yfir tilkostnaö og tekjur er ljóst að lslendingar verða þá næst aö setja lög um þessi efni — svipað og nú er tiðkaðí Bandarikjunum, þó með misjöfnum árangri sé. Hér verður að stemma stigu við ósómanum. Vissulega verður það þvi aðeins gert aö ekki verði fleiri slikum verksmiðjum hleypt inn i landið og henni lok- að þegar samningstiminn við auðhringinn er runninn Ut. Inni á gafli Þegar sammngarnir voru gerðir við álhringinn á sinum tima benti Þjóðviljinn á þá hættu sem stafað gæti af áhrif- um auðhringsins i islenskum stjórnmálum. Þá benti blaðiö á þá hættu sem áhrif þessa auð- hrings gætu haft i för með sér fyrir samskipti verkafólks og atvinnurekenda, t.a.m. með þvi aö álverksmiðjan geröist aðili aö Vinnuveitendasambandi ts- lands.Nú er álfurstinn sestur að á þeim bæ — ekki frikkar ftokk- urinn. Þar með er þessi auð- hringur kominn inn á gafl at- vinnurekendasambandsins; — innan Sjálfstæðisflokksins ganga þær fregnir manna á meðal að hann hafi einnig keypt sér frambjóöanda. 2. landskjörinn þingmaður Isals Það er alsiða meðal auö- Innan Sjálfstæðisflokksins gengur eftirfarandi milli manna um þessar mundir: Friörik Sófusson, einn þátt- takenda i prófkjöri Sjálfstæöis- flokksins i Reykjavik, hafði merkilega mikiö fjármagn milli handanna i kosningabaráttunni gegn skoðanabræðrum sinum. Hann notaði tugi sima til þess að smala fólki til kosninga, hann og stuðningsmenn hrns höföu sam- band við ellefu þúsund manns og þeir dreifðu bæklingi ótæp- lega i hvert einasta hús i Reykjavik. Kostnaðurinn við kosningabaráttu Friöriks Sófus- sonar nam 3 miljónum króna. Þessirpeningar eru m.a. fengn- ir frá formanni Stjómunarfé- lagsins, Ragnari Halldórssyni, framkvæmdastjóra álverk- smiðjunnar i Straumsvik, eða með öðrum orðum frá Alusuisse. Friðrik Sðfusson er framkvæmdastjóri Stjórnunar- félagsins. Undirritaöur hefur enga til- raun gert til þess að fá þetta staðfest; sé sagan sönn telur höfundur þessa pistils i rauninni afar leitt að einmitt Friörik Sófusson skuli hafa oröið fyrir slíku óláni. En hvað sem þvi lið- ur er hitt ljóst aö af þessu þarf að draga lærdóma. ísal í prófkjörið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.