Þjóðviljinn - 26.11.1977, Page 14

Þjóðviljinn - 26.11.1977, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. nóvember 1977 Slakir Ungverjar sigruðu slakari Valsmenn léttOega Evrópudraum Vals endanlega lokið Heildarmarkatalan 60-45 Honved í vil Áhorfendur sárafáir Það vakti athygli manna hvursu fáir áhorfendur voru að leiknum. Litil sem engin stemmning var i salnum og likara þvi að verið væri að kveðja látinn vin en að fram færi handbolta- leikur og það i Evrópukeppni meistaraliða, þriðja umferð. Furðulegt hvað aðsóknin að handknattleiknum hefur farið hraðminnkandi eftir þvi sem liðið hefur á veturinn. Eru menn að mótmæla vinnubrögðum lands- liðsnefndar HSÍ? Leikinn dæmdu þeir Huseby og Anthonsen frá Noregi og dæmdu þeir frábærlega i alla staöi. SK. Það fór eins og margan grunaði. Valsmönnum tókst ekki að vinna upp 16 marka forskot ungverska liðsins Honved er iiöin mættust öðru sinni i Evrópu- keppni meistaraliöa í Laugar- daishöll i gærkvöldi. Leiknum lauk með öruggum sigri Honved sem skoraði 25 mörk gegn 22 mörkum Vals. Það fór aldrei á milli mála hvort liðiö væri sterkara. Ung- verjarnir sýndu samt mjög dauf- an leik, og virtist áhugi þeirra fyrir leiknum ekki vera mikill. Nánast formsatriði að ljúka hon- um. Það var Þorbjörn Guðmunds- son sem skoraði fyrsta mark leiksins með glæsilegu langskoti. í kjölfarið fylgdi annað mark frá Jóni Karlssyni og Valsmenn höfðu náð tveggjamarka forystu. Þeir höfðu siðan yfirhöndina all- an fyrri hálfleik, þar til nokkrar mlnútur voru eftir til leikhlés að Ungverjunum tókst aö komast yf- ir, en Valsmenn gáfu sig hvergi, og i leikhléi var staðan jöfn 11:11. I siðari hálfleik höfðu gestirnir alltaf yfir og létu forystuna aldrei af hendi. Mestu munaði fjórum mörkum 22:18, en valsmönnum tókst að rétta sinn hlut, og leikn- um lauk eins og áður sagði með þriggja marka sigri Ungverj'anna 25:22. Hjá Honved bar einna mest á risanum Konács, og skoraði hann mörg mörk með glæsilegum upp- stökkum. Einnig var markvörð- urinn Bakos Pál góöur og varði vel á afdrifarikum augnablikum. Þorbjörn Guðmundsson átti einna bestan leik valsmanna að þessu sinni. Skoraði mörg mörk og bar greinilega litla virðingu fyrir snillingunum i Honved. Einnig var Jón Karlsson friskur, en þeir Jón Pétur, Steindór Gunn- arsson og Þorbjörn Jensson voru allir með daufara móti. Þó má geta frammistöðu Björns Björns- sonar sem átti ágætan leik og er vaxandi leikmaður. Mörk Honved: Szabó Isnán, Konács Péter og Kocsis PáL'.allir 5 mörk, Kovács Mihály 4 , Kenyeres József 3 og Makai2sigmond,ZuberTitvcs og Tifinger Alajos eitt mark hver. Mörk Vals: Þorbjörn Guðmundsson 8, Jón Karlsson 5, Jón Pétur Jónsson 3, Þorbjörn Jensson 2, og þeir Björn Björnsson, Bjarni Guðmundsson og Gisli Blöndal og Steindór Gunnarsson allir eitt mark. Eftir frábæra llnusendingu frá Jóni Pétri skorar Steindór Gunnarsson glæsilega f leiknum við Honved f gærkvöld. Við viljum enga slátrara eða b ensínaf greiðslumenn” — segir Sigurður Bragi Stefánsson formaður knattspyrnudeiídar Breiðabliks „Við höfum haft samband við tékkneska sendiráðið I Reykjavik og beðið það að grennslast fyrir um góðan tékkneskan þjálfara fyrir næsta keppnistfmabil,"sagði Sigurður Bragi Stefánsson for- maður kna ttspy rnudeilda r Breiðabliks er við inntum hann frétta af ráðningu þjálfara.„Við teljum að með ráðningu tékk- nesks þjálfara muni okkur takast að halda þeim og bæta við þann léttleika sem einkennt hefur Breiðabliksliðið. Ég held að ensk- ur þjálfari myndi allt að þvf eyði- leggja liðiö”. Taka verðurundirþau ummæli Sigurðar að meiri likur eru á að þjálfari frá Evrópu henti Breiöa- bilksliðinu en t.d. enskur. Gott dæmi um þetta er Valsliðið, sem ekki leikur ósvipaða knattspyrnu og Breiðablik. Meira um samspil leikmanna á milli en „kýlingar” og hlaup. Aður en að Júri Ilitsjof tók við Valsliðinu I seinna skiptið, þjálfaði það skoskur þjálfari að nafni Joe Gilroy. Arangur liðsins þá var ekki til að hrópa húrra fyr- ir. En strax árið eftir tók Júri llitsjov við liðinu að nýju, og ekki var að sökum að spyrja, liðið komst á toppinn aftur og hefur verið þar siðan. Að sögn Sigurðar eru likurnar á að tékkneskur þjálfari komi til Breiðabliks, en þeir eiga nú ein- hvern næstu daga von á endan- legu svari. ,,Við viljum fá góðan þjálfara ekki slátrara eða bensinaf- greiðslumann/’sagði Sigurður ennfremur. Breiðabliks vegna vonum við að af þessum samningi verði, en að sögn Sigurðar hafa þeir einnig rætt við Júri ílitsjov og sagði Sigurður að til hans yrði leitað ef annað brysti. Af öðrum liðum 1. deildar er það að frétta að aðeins eitt lið, Fram, hefur ráðið þjálfara fyrir næsta keppnistimabil. Guðmund- ur Jónsson „Mummi” mun þjálfa liðið.og vænta Framarar mikils af störfum hans. v FH-ingar gegn snillingum 1 Höllinni á morgun Jón yfir- gefur Lugi Siðari leikur bikarmeistara FH gegn a-þýsku bikarmeisturunum A.S.K. Vorwárts fer fram í Laug- ardalshöllinni á morgun og hefst hann klukkan 15.30. Að sögn FH-inga sem töpuðu fyrri leiknum meö 30 mörkum gegn 16 er hér um algera galdra- menn að ræða. Þar fara saman hraði og harka samfara ótrúlegri leikni. Aðai liðsins eru hraðupp- hlaupin og hafa þjóðverjarnir unnið marga leiki á þeim. Mark- varsla liösins er einnig mjög góö en markið ver Jochen Bassler sem I dag er talinn einn af bestu markvörðum heims. Margir aörir frábærir leikmenn leika meö lið- inu og má þar nefna leikmenn eins og Josef Rose og Ðletmar Schmidt,en báðir þessir leikmenn eru góðkunningjar okkar úr landsleikjum landanna. 1 liði FH eru margir af betri handknattleiksmönnum okkar s.s. Geir Hallsteinsson, Þórarinn Ragnarsson og Birgir Finnboga- son. Ef FH-ingar ná að sýna sitt besta er ekki að efa að þeir standa i leikmönnum ASK Vorwárts. En til þess að svo megi verða, riður á miklu að áhorfendur láti sig ekki vanta og hvetji FH-iðiö sem mest þeir mega. Leikinn dæma þeir Huseby og Anthonsen frá Noreg^en þeir hafa oft dæmt hér áður og yfirleitt mjög vel. SK. Geir Hallsteinsson besti maður FK-iiðsins. Hvað gerir hann gegn ASK VortwSrts. Jón Hjaltalln Magnússon, sem af mörgum er talinn skotharðasti leikmaður sem Island hefur átt, hefur ákveðið að hætta spila- mennsku hjá sænska liðinu Lugi sem leikur I 1. deild. Jón hyggst taka þátt I undir- búningi landsliösins fyrir heims- meistarakeppnina I Danmörku.og hljóta allir velunnarar hand- knattleiksins hér á landi að fagna þessari ákvörðun hans. Lið hans Lugi er nú á keppnisferðalagi I Rúmeniu,en að lokinni þeirri ferö hyggst kappinn halda heim á leið. SK.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.