Þjóðviljinn - 26.11.1977, Qupperneq 15
Laugardagur 26. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Nýjar bækur
Fjórða bindi
Afburðamanna og
örlagavalda komið
(Jt er komið hjá Ægisútgáfunni
fjórða bindi Afburðamanna og
örlagavalda sem Bárður Jakobs-
son hefur ritað. Með þessu bindi
hafa þá birst i safninu æviþættir
80 manna sem allir hafa markað
djUp spor I veraldarsögunni.
í þessu bindi eru sagðar sögur
þeirra Vilhjálms sigursæla,
Gengis Khan, Machiavelli, Karls
V., Kalvins, Elisabetar I.,
Richelieu, Cromwells,
Rembrandts, Napóleons
Bónaparte, Tómasar Paine,
Talleyrands, J.S. Bachs, H.C.
Andersens, Stanleys, Freuds,
Bismarks, Georgs Bernhard
Shaw, Nansens og Einsteins.
Ný bók eftir
Jóhann J. E. Kúld
(Jt er komin bókin „I stillu og
stormi” eftir Jóhami J.E. Kúld,
ogþað er Ægisútgáfan, sem gefur
bókina Ut. I bókinni rifjar Jóhann
upp minningar frá uppvaxtarár-
um sinum, við ýmis störf til sjós
og lands. Bókin er 166 bls. að
stærð.
I stillu
Og
stormi
Frá Skóla-
vörðustíg að
Skógum
í Öxarfirði
„Frá Skólavörðustfg að Skóg-
um i öxarfirði” nefnast minning-
arþættir eftir Þórunni Elfu
Magnúsdóttur, sem Ægisútgáfan
hefur sent frá sér. A bókarkápu
segir að i þessari bók leiti skáld-
konan til upphafs sins og að ef til
vill sé i þessari bók að finna svar-
ið við þvi hvers vegna skáldið
Þórunn Elfa varð til.
Skölavðrðustlg
að Skógum
I öxarfirðl
<<*«*« «*»*. kysrdóA «<s» intíw botyn
Ný bók eftir
Bodil Forsberg:
Eldheit
ást
Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
gefið út niundu bókina eftir
sænsku skáldkonuna Bodil Fors-
berg. Bókin heitir Eldheit ást og
fjallar um unga stúlku sem
dreymir um aö verða fræg ljós-
myndafyrirsæta.
Skúli Jensson þýddi bókina sem
er 181 bls. Prentun og bókband er
unnið i Prentverki Akraness.
Hilmar Þ. Helgason gerði kápu-
teikningu.
Rauðvín og reisan mín
Rauðvin og reisan min nefnist
ný bók eftir örlyg Sigurðsson.
Bókin er nýlega komin i bóka-
verslanir.
Bókina gefur höfundur út á eig-
in forlagi sem nefnist „Geðbót”.
Er þetta fimmta bók höfundar, en
þær fyrri eru Prófilar og pamfil-
ar, Þættir og drættir, Bolsiur frá
bernskutið og Nefskinna.
Bókin Rauðvin og reisan min
skiptist i þrjá kafla: Upp, upp
min sál og allt mitt geð, Farið um
Frans, Veislan á Vesturbrú. Hana
prýða margar teikningar eftir
höfundinn, en alls er bókin 144
siður.
Ad loknu iðnkynningarári
Láti ég hugann reika yfir liðið
ár verður mér á að staldra við
ýmsa hluti og athuga hvernig
saman fara orö og athafnir þeirra
visu manna sem valist hafa til að
stjórna landi og þjóð. Eins og að
likum lætur hefur sumt tekist vel,
annað miður, og er ég ekki dóm-
bær um það hvaða eftirmæli árið
fær sem heild i annálum sögunn-
ar. Það á timinn eftir að leiða i
ljós.
Einn er þó sá hlutur sem ég
held að eigi eftir að marka dýpri
spor en menn gera sér grein fyrir
idag, en það er árás verðlagsyfir-
valda á stéttir iðnaðarmanna, og
átti ég sist von á þvi.að okkur yrði
færð sú gjöf á iðnkynningarári.
Það er nú svo að maður freistast
til að halda aö athafnir fylgi orð-
um þegar blásið er i lúðra og
bumbur barðar, stigið á stdrk og
heitstrengingar fram fæðrar að
fornumsið. Nú skal risið úr ösku-
stónni og kolbitarnir látnir sýna
hvað i þeim býr, en þó með einu
skilyrði-.undirstöðugrein alls iðn-
aðar skal haldið niðri hvað sem
það kostar, þar má engin fram-
þróun eiga sér stað, annars er
voði á ferðum að dómi verðlags-
yfirvalda og sjálfsagt annarra
ráðamanna einnig.
Til skamms tima og e.t.v. enn
árið 1977 hafa ráðamenn þjóðar-
innar talið sér sæma að lita á iðn-
að sem tvær aðskildar greinar,
aðra allsgóðs maklega sem sjálf-
sagt sé að kynna að a.m.k. i orði
og að nokkru leyti á borði meðal
annars með niðurfellingu tolla og
litilsháttar fyrirgreiðslu á öðrum
sviðum. Það eru þær greinar iðn-
aðar sem bera heitið framleiöslu-
iðnaður. En svo er önnur tegund
iðnaðar, sem nefnist á finu máli
þjónustuiðnaður. Sú tegund iðn-
aðar á ekki aldeilis uppá pall-
borðið hjá þeim visu landsfeðrum
og/eða staðgenglum þeirra og
ráðgefendum i stjórnarstofnun-
um, sem um þessi mál f jalla. Það
er furðuleg fáfræði sem kemur
fram hjá þeim mönnum sem
halda þvifram i fullri alvöru bæöi
i orðum og athöfnum að málm-
iðnaöur og byggingaiðnaður séu
eins konar snikjudýr á þjóðarlik-
amanum, það sé eðlilegt og sjálf-
sagt að skammta þeim svonaum-
an skerf með úreltum og röngum
aðgerðum i verðlags- og skatta-
málum að þeim sé nánast gert
ókleift að starfa hvað þá að
byggja upp lifvænleg atvinnu-
tæki, sem þó eru að dómi þeirra
sem eitthvað hugsa um framtið
landsins þær greinar sem hafa
hvað mesta möguleika til að taka
viö stórum hluta þess fólks, sem
kemur á vinnumarkaöinn á næstu
árum. En til þess hlýtur að verða
að koma til stefnubreiting vald-
hafa og þó einkum verðlagsyfir-
valda frá þvi sem nú er. 1 öllum
iðnvæddum þjóðfélögum er
málmiðnaður talinn undirstaða
annarra greina iðnaðar, bæði viö
uppbyggingu viðhald og nýsmiði
véla og annan búnað sem verk- -
smiðjuiðnað varða. A Norðurlönd-
um sem við sækjum mest til af
fyrirmyndum á ýmsum sviðum
er nú svo komið, aö þar er unnið
að löggjöf a.m.k. bæði i Noregi og
Sviþjóðtilað efla rpálmiðnað svo
hann geti verið þungamiðja at-
vinnulifs þessara landa. A sama
tima gerist það á Islandi að
málmiðnaður er neyddur tii aö"
heyja opinbert striö við verðlags-
yfirvöld til að halda liftórunni,
hvað þá að skilningur sé fyrir
hendi til að hann fái færi á að
efla og bæta aðstööu sina til átaka
fyrir betri lifsskjörum starfs-
manna sinna og um leið þjóö-
félagsins i heild.
Undanfarin 6 ár hef ég verið i
nánu samstarfi við hin Norður-
löndin i minni starfsgreinn sem
meðlimur i stjórn Norðurlanda-
sambands blikksmiðameistara
og núverandi forseti þess. Ég
verð að segja að það er ekki létt
verkað útskýra fyrir þeim hvern-
ig þessum málum er háttað hér
og*held helst að þeir áliti mig
einskonar skáldsöguhöfund þegar
ég er að lýsa fyrir þeim raun-
veruleikanum hér, en þeir sem
taka mig alvarlega spyrja: Vita
stjórnmálamenn á Islandi ekkert
um málmiðnað eða hafa þeir
enga ráðgjafa, sem þekkingu
hafa á þessum málum? Ég játa
að mér verður svarafátt við slik-
um spurningum, en vona fastlega
að verðlagsyfirvöld hafi vitkast
örlitið áður en ég tek á móti kol-
legum minum frá hinum norður-
löndunum hér heima sumarið
1979.
Sveinn A. Sæmundsson
m m
Nesval
sími
Melabraut 57 Seltjarnarnesi
20785
Mjólk, brauð. Allar mat- og nýlenduvörur.
Opiö alla daga i fj| kl. 22.00
Einnig um helgar.
| Dalver
Dalbraut 3 — simi 33722
Mjólk, mjólkurvörur, brauð, kjöt, fiskur og
allar algengar nýlenduvörur.
Opið kl. 9-12.
Kaupgarður
Smiðjuvegi 9 — Kópavogi — sími
86740
Mjólk og nýlenduvörur
Opið kl. 9-12.
| Fiskbúðin
| Víðimel 35
Sími 17499
NS Þar sem gæðafiskurinn og úrvalið er.
S&i Opið kl. 10-12.
I
12691
Opið kl. 9-12
Grensáskjör
Grensásvegi 46 sími 36740
Mjólk, mjólkurvörur, S
gengar nýlenduvörur.
Ath. Fiskbúð i versluninni.
Opið kl. 9-12.
Húsgagnaverslun |
Reykjavíkur hf. |
Brautarholti 2 — simar 11940 og %
I
Mjólk, mjólkurvörur, brauð, kjöt og allar al- §§
I
1
I
Breiðholtskjör |
Arnarbakka 4-6 — símar 74700 og s§
74746 ^
Allar mat- og nýlenduvörur, brauð, mjólk og
mjólkurvörur. SS
Torgið I
Austurstræti 10 — simi 27211
Opið á öllum hæðum kl. 9-12
I
Opið kl. 8.30 — 12.00