Þjóðviljinn - 26.11.1977, Side 18

Þjóðviljinn - 26.11.1977, Side 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN 1 Laugardagur 26. nóvember 1977 Fellibylurinn í Andhra Pradesh: 25.000 kunna að hafa farist VIJAYAWADA, Indlandi 24/11 Reuter — Embættismenn i borg þessari nálægt svæðinu á suð- austurströnd Indlands, sem fellibylurinn mikli lagði í eyði, sögðu i dag að þeir teldu að yfir 15.000 manns hefðu farist i fylkinu Andhra Pradesh á s.l. laugardag, þegar fellibylurinn gekk þar yfir. Ýmsir aðrir telja að yfir 25.000 hafi farist, en likur benda til þess að báðar þessar tölur byggist að miklu leyti á ágiskunum og að dánartalan geti verið enn hærri. betta eru mannskæðustu nátt- úruhamfarir, sem Indland hefur fengið að kenna á i öld. Frétta- maður, sem flaug yfir svæðið, sá fólk viða hirast undir beru lofti og umhverfis það lik og hræ hús- dýra, sem farist hafa þúsundum saman. A einu svæðinu höfðu rok og flóðöldur jafnað á fjórða tug þorpa gersamlega við jörðu, og var loftið þar mengað rotnunar- daun. Margir óttast að farsóttir kunni að koma upp vegna rotnunar dauðra manna og dýra, og orð- rómur er þegar á kreiki um að kólerufaraldur sé kominn upp. Ráðamenn segja náttúruhamfar- irþessar mikið áfall fyrir landið í heild og hvetja landsmenn til að leggjast á eitt um að bæta skaðann. Fellibyljir hafa einnig nýlega valdið miklu tjóni i fylkj- unum Tamilnadú, fyrir sunnan Andhra Pradesh, og Kerala syðst á vesturströndinni. Styrktarmenn Alþýðubandalagsins eru minntir á að greiða framlag sitt til flokksins fyrir árið 1977 hið fyrsta. Alþýðubandalagið i Reykjaneskjördæmi Sunnudaginn 27. nóvember verður sfðari áfangi forvals til alþingis- kosninga,og hafa þar flokksmenn kosningarétt. Forvalsstaðir verða þessir: Garöabær: Gagnfræöaskólinn vib Lyngás Hafnarfjöröur: Skúlaskeið 20 (efri hæö hjá Sigrúnu) Kjósarsýsla: Geröi (hjá Kunólfi) Kópavogur: Þinghóll Seltjarnarnes: Félagsheimiliö (niöri) Keflavfk: Vélstjórasalurinn Forvalsstaöir veröa opnir frá 11-22 en utankjörstabakosning veröur á fimmtudag I Þinghól (kl. 18-21) og á föstudag í Vélstjórasalnum Kefla- vfk (kl. 18-21) Egilsstaðir Fundur f P.arnaskólanum á Egilsstööum laugardaginn 26. nóvember kl. 16. Rætt um framboö Alþýöubandalagsins til sveitastjórnarkosninga 1978. Félags-og stuöningsmenn, fjölmenniö og takiö þátt í undirbún- ingsstarfinu. Alþýðubandalagið ísafirði, efnir til funda um bæj- armál. Almennur fundur um fræöslumál veröur f Sjómannastofunni sunnu- daginn 27. nóvember kl. 4. Frummælendur: Hallur Páll Jónsson kennari, Valdimar Jónsson skólastjóri. Allt Alþýöubandalagsfólk og aörir er áhuga hafa á bæjarmálefnum eru hvattír til að koma á fundinn. Alþýðubandalagið Akranesi og nágrenni Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 28. nóvember kl. 20.30 í Rein. Dagskrá: 1. Fréttir af landsfundi. 2. Rætt um blaöaútgáfu. 3. Kosning árshátföarnefndar. — Kaffi. — Mætum vel og stundvislega og greiöum happdrætti Þjóðviljans. —Stjórnin. Happdrætti Norðurlands Miöar fást I bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18 og á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3 og hjá símavörðum Þjóðviljans. Vinningur: Kínaferö fyrir 2 að verðmæti 600.000 kr. Dregið 7. desem- ber. Alþýðubandalagið i Reykjavik Starfshópur félagsins um atvinnumál i Reykjavík kemur saman n.k. þriðjudag 29. nóvember kl. 20.30 að Grettisgötu 3. Herstöðvaandstæöingar Herstöðvaandstæðingar Smáíbúðarhverfi, Mýrar, Leiti og Hlíðar. Fundur verður haldinn f Tryggvagötu 10, mánudaginn 28. nóvember kl. 21.00. Tómas Einarsson flytur erindi um Chile. Kosning tengla. Happdrætti Samtaka herstöðvaandstæðinga. Gerið skil. Dregið verður f happdrætti Samtaka herstöövaandstæöinga 15. desember n.k. Vinningar eru 250 talsins og verö hvers miöa aöeins kr. 250. Umboösmenn eru hvattir til aö gera skil sem allra fyrst. Annaö tveggja á giró 30309-7 eða á skrifstofu samtakanna, Tryggvagötu 10 I Reykjavlk, sími 17966. Ný ljóðabók — eftir Sigfús Dadason Helgafell hefur gefið út ljóðabók eftir Sigfús Daðason. Þetta er þriðja bók skáldsins: sem nefnist ,,Fá ein ljóð”. Þetta er þriðja bók skáldsins: Sigfús byrjaði ungur að yrkja, en hefur ekki raskað ró ljóðavina nema brýn þörf krefði— ljóðhanshafa þótt þeim mun meiri tiðindum sæta þegar þau hafa birst. „Hendurog orð” næstsiðust bók Sigfúsar kóm út 1959. Um þessi átján ljóð á 34 blað- siðum segir Kristján Karlsson á þessa leið i bókarkynningu: „Meðal sinnar kynslóðar stendur Sigfús Daðason sér fyrir þaö, hvernig ljóð hans sameina heim- spekilega hugsun og myndir klassiskum skýrleik í máli. Oll ljóð hans bera vitni miklu vand- læti um sannleiksgildi máls, og um leið benda þau lesanda, stundum beinum orðum, á það hvernigeigiekkiað segja hlutina. Opið hús hjá SÁÁ á morgun SÁA.samtök áhugamanna um áfengisvandamálið, hafa opnað fræðslu- og leiðbeiningastöð fyrir alkóhólista og aðstandend- 12 daga Framhald af bls. 1 lýsingar. Það var ekki hægt að samþykkja þessa ósk á meðan bretar stunduðu veiðar i fisk- veiðilandhelginni, enda tel ég að hún hafi verið óraunsæ og órökstudd. Það sannar tillaga sömu aöila um 275 þúsund tonna þorskafla á þessu ári og þvi næsta þrátt fyrir um 350 þúsund tonna afla árið 1976. Þetta er það sem ég hefi leyft mér að segja aö beri ekki það svipmót, sem á að fylgja visindalegum rökum. Það getur engum dulist að vinna þarf að frekari takmörkun á þorskveiðum og ég er sammála Hafrannsóknastofnuninni um að stefna beri að þvi, þó deilt hafi verið um leiðir. Þaö fer ekki milli mála aö hrygningarstofninn er of litill og að byggja verður hann upp — það sýnir aflaleysið hér á Suövesturlandi”. —S.dór Daggjöld Framhald af bls. 20 næði og olia til hitunar, væri full- nóg fyrir „þetta fólk”. Hann kall- aöi kröfur foreldrafélagsins „framfærslubetl” og leikskóla- vistina „einskonar fátækrafram- færslu”. Sveitarstjórinn var beðinn að gera samanburð á hallarekstri leikskólans og kostnaöi viö að leggja varanlegt slitlag á götur kauptúnsins. Var hann ófeiminn að telja það i sentimetrum, hversu mikið væri hægt að leggja á göturnar fyrir árlegan halla af rekstri leikskólans. Virðist greinilegt að hreppurinn ber hag bileigenda meira fyrir brjósti en hag yngstu þegnanna. Foreldrafélagið hefur reiknað það út, samkv. tölum frá sveitar- félaginu og Félagi opinberra starfsmanna á Suðurlandi, aö ef leikskólinn eigi að bera sig veröi daggjöld i nóvember 30.000 kr. og 35þúsund i desember. Virðist þvi augljóst að dagheimilið verði ein- göngu fyrir börn efnafólks, öfugt við þaö sem stefnt er að annars staðar á landinu. — eös Varar við Framhald af bls. 3. Ródesiu sjálfri. Sagði talsmaður- inn að allir þeir ródesiskir blökkumenn, sém döðruðu við óvinina, yrðu af hálfu skæruliða skoðaðir fjandmenn skæruliða engu siður en menn Smiths sjálf- ir. Föðurlandsfylkingin er banda- lag stuðningsmanna Nkomos og Roberts Mugabe, en liðsmenn þess siðarnefnda hafa griðland i Mósambik. Tilboði Smiths, sem felur i sér fyrirheit um jafnan kosningarétt fyrir alla landsmenn, er einungis beint til blökkumannasamtaka sem stjórn hans leyfir að starfa i Rhódesiu, en ekki Föðurlands- fylkingarinnar. ur þeirra að Lágmúla 9 i Reykjavik. Þangað hefur Áfengisvarnadeild Reykja- vikurborgar einnig flutt sig og munu þar starfa 3 menn. Stöðin verður opin milli 9 og 18 hvern virkan dag til að byrja með, en stefnt er að þvi að hafa hana opna um helgar og á kvöldin þegar frá liður. SÁA mun einnig í næstu viku opna afvötnunarstöð að Reykja- dal i Mosfellssveit, þar sem verður aðstaða fyrir 22 sjúk- linga. Þar eiga menn kost á að vera i eina viku, en á frétta- mannafundi i fyrradag sagði Hilmar Helgason formaður SAA að venjulega biðu um 30 manns eftir sliku plássi hér i höfuð- borginni. Þjóðviljinn mun skýra nánar frá starfsemi og fyrirætl- unum SAÁ á þriðjudag. —AI. Kjarnavopn Framhald af bls. 2. • hann teldi vörnum landsins vera vel borgið ef kjarnorkuvopn væru geymd þar. Aðrir fundarmenn væru einnig vitni að þessum um- mælum og þessi „leiðrétting” Hannesar einungis ómerkileg lygi. Þá benti Hallur Páll einnig á að engin mótsögn væri fólgin I þvi að litlar sem engar raunveru- legar varnir væru á tslandi og aö kjarnorkuvopn væru geymd á Keflavikurflugvelli. Miklu frekar stuðluðu þau að varnarleysi tslands þar sem það yrði þá frem- ur skotmark i styrjöld. Heilsuhringur Framhald af bls. 2. félög og félagasamtök i Skandi- naviu, Finnlandi og Danmörku. Aðalstjórn Heilsuhringsins- skipa Marteinn Skaftfells kenn- ari, Helgi Tryggvason yfirkenn- ari og Kristinn Sigurjónsson prentsmiðjustjóri, Elsa Vil- mundardóttir jarðfræðingur og Loftur Guðmundsson rithöfund- ur. Stofnfélagar teljast allri, sem ganga i félagiö fyrir áramót. Notuð Framhald af 13. siðu. Bók þessi er þegar komin út á islensku og nefnist Tónmennt og er að koma út i Bandarikjunum. Með bókinni er ætlunin að ná fram fjölbreytni i kennsluefni, aðferöum og inntaki og gefa hverjum kennara hámarksfrelsi og svigrúm. Gefur hún eiginlega hverjum kennara kleift að semja sina eigin kennsluáætlun. Tilraunakennsla eftir bókinni er nú hafin aö hluta i Tónmennta- skólanum i samvinnu við Mela- skólann i Reykjavik en i Ames er þessi tilraunakennsla mun stærri i sniðum og nær til allra nemenda skólakerfis borgarinnar, frá for- skóla til menntaskóla og einnig til tónmenntakennaranáms við há- skólann þar. Tilraunin mun standa i 4 ár og verður náið sam- band á miili Reykjavikur og Am- es, skipst verður á upplýsingum og kennsluefni og gagnkvæmar heimsóknir skipulagðar. —GFr | ÍiÞJÓOLEIKHÚSIfl STALIN ER EKKI HÉR 4. sýning i kvöld kl. 20.00. Upp- selt. Græn aðgangskort gilda. DVRIN 1 HALSASKÓGI sunnudag kl. 15.00. Tvær sýn- ingar eftir. TÝNDA TESKEIÐIN. Sunnudag kl. 20.00. GULLNA HLIDIÐ miðvikudag kl. 20.00. Siðasta sinn. LITLA SVIÐIÐ FRÖKEN MARGRÉT sunnadag kl. 21.00. Miðasala 13.15 — 20.00. Simi 11200. íj-;ikfeiac; lil REYKJAVlKLJR SKJALDHAMRAR i kvöld kl. 20,30 Miðvikudag kl. 20,30 GARY KVARTMILJÓN Sunnudag kl. 20,30 Fimmtudag kl. 20,30 Fáar sýningar eftir. SAUMASTOFAN Þriðjudag kl. 20,30 Föstudag kl. 20,30 Fáar sýningar eftir. Miðasala i Iðnó kl. 14-20,30 Simi: 16620. BLESSAÐ BARNALAN Miðnætursýning i Austurbæj biói i kvöld kl. 23,30. Miðasala i Austurbæjaríói kl. 16-23,30. Simi 1-13-84. Selfyssingar — nágrannar Alþýðuleikhúsið sýnir Skollaleik á Selfossi í kvöld kl. 21.00 Miðasala frá kl. 20.00 Mjölnir tekinn í bakaríið Ileildarkeppni Skáksambands tslands er nú nýhafin. Þetta er i fjórða skipti sem keppnin er haldin og hefur hún alltaf verið bæði hörð og spennandi.ekki sist eftir að Mjölnir bættist I hóp þátttökuliða. Siðastliðin< sunnu dag fór fram 2. umferð deildar- keppninnar og áttust þá við m.a. TR og Mjölnir. Er ekki óliklegt að úrslit þessarar keppni reyn- ist afgerandi þegar frammi sækir, þvi Mjölnir var algerlega ofurliði borinn, enda stilltu Tafl- félagsmenn upp kanónum á borð við Guðmund Sigurjónsson og Inga R. Jóhannsson. Urslitin urðu 7:1 Guðmundur Sigurjóns- son vann Jónas Þorvaldsson, Ingi R. Jóhannsson vann Ingvar Asmundsson,- Jón L. Arnason vann Magnús Sóimundarson, Stefán Briem tapaði fyrir Björgvin Viglundssyni og var það jafnframt eina skákin sem Mjölnir vann i keppninni. Mar- geir Pétursson vann Benóni Benediktsson, Asgeir Þ. Arna- son vann Braga Halldórsson, Jónas P. Erlingsson vann Har- ald Haraldsson og Björn Þor- steinsson vann Magnús Gfsla- son. Eins og áður segir er þetta i fjórða skipti scm keppnin fer fram. TR vann fyrst ’74—75. Mjölnir sem þá var nýstofnað taflfélag vann ’75—76. TR vann svo keppnina '76—77.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.