Þjóðviljinn - 29.11.1977, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 29.11.1977, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 29. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Þad eru þvi i reyndinni fámennir hópar, sem ráöa ferðinni og framboði til Alþingis, hvað sem öllum prófkjaraleik liður. Þetta kerfi er þvi ekki virkt lýðræði Árni Björnsson: Vald og virðing Alþingis Margir virðast hafa áhyggjur af þvi, að ofannefndir eiginleik- ar séu á fallanda fæti. Eðlilegt er, að þingmönnum sjálfum þyki sú þróun iskyggileg, eink- um þeim sem forkláraðir á svip nota orðin „virðing Alþingis”, en meina í rauninni „virðing min”. Oðrum sem misnota vilja Al- þingi hefur komið til hugar að hafa meiri stássbrag yfir setn- ingu þess og öðrum ytri birt- ingarformum svo að þjóðin gleptist fremur af viðhöfninni. Þetta er i þeim anda skrumaug- lýsinga, sem yfir gengur og læt- ur m.a. á sérkræla i prófkjörum svonefndum. Þessar raddir voru orðnar svo háværar, að Kristján forseti sá ástæðu til að gera þær að umtalsefni og snú- ast gegn þeim i siðustu þing- setningaft-æðu. Það er í rauninni engin furða, þótt vald og virðing Alþingis hafi sett ofan siðustu áratugi. Fólk almenntgerir sér orsökina ekki ljósa, þótt það skynji hana e.t.v. óbeint. Hún er sú, að Al- þingier bandvitlaustsaman sett sem löggjafarsamkunda þjóðarinnar og æðsta fram- kvæmdavald. A Alþingi sitja nefnilega full- trúar nokkurra stjórnmála- flokka, sem aðeins litill brota- hluti af þjóðinni er virkur i. Það er engin virkni fólgin i þvi að kjósa frambjóðendur flokks á nokkurra ára fresti. Stjórnmálaflokkar eru i reyndinni hagsmunasamtök. Allt skraf þeirra um stefnur og hugsjónir er hégómi miðað við þetta meginatriði. Fulltrúar þeirra, sem hagnast höfðu á þjóðfélagslegu óréttlæti for- tiðarinnar, -stofnuðu á sinum tima thaldsflokkinn, sem seinna breytti nafni sinu i Sjálfstæðis- flokkinn og er höfuðsamtök þeirra, sem hagnast á óréttlæti nútiðarinnar. Bændur og verka- lýður stofnuðu að sinu leyti Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn. Báöir þessir flokkar hafa siðan úrkynjast, annarsvegar sem aðalkeppi- nautur Sjálfstæðisflokksins um skiptingu umframgróðans i þjóðfélaginu og hinsvegar eink- um sem einskonar bitlingaaðall. Alþýðubandalagið er sá stjórn- málaflokkur, sem nú getur helst talist hagsmunasamtök launa- mana.og eru þar þó mörg smá- borgaraleg öfl að verki. Sam- takanna get ég að engu. Einsog áöur sagði er ekki nema litill hluti þjóðarinnar bunflinn i þessum flokkum hvaö þá virkur eða stefnumótandi. Fólk nennir almennt ekki að starfa i stjórnmálaflokkum, heldur lætur ,,þá þarna” um það. Það eru þvi i reyndinni fá- mennir hópar, sem ráða ferð- inni og framboði til Alþingis hvað sem öllum prófkjaraleik liður. Þetta kerfi er þvi ekki virkt lýðræöi. Það er reist á af-' skiptaleysi almennings. Það þarf þvi engan að undra, þótt vald Alþingis reynist stundum takmarkað, þegar til kastanna kemur i efnahagsmálum, og öfl utan Alþingis gripi i taumana: „aðilar vinnumarkaðarins”. Eðlilegast væri auðvitað, aö þau hagsmunasamtök, sem nær öll þjóðin er óhjákvæmilega bundin i, byðu fram og ættu beina fulltrúa á Alþingi. Hin fjölmennustu þeirra eru nátt- úrulega Alþýðusamband Is- lands, Stéttarsamband bænda, og BSRB. Af fámennari sam- tökum má nefna Vinnuveit- endasamband fslands, Far- manna- og fiskimannasam- bandið, Kaupmannasamtökin, Bandalag háskólamanna og Bandalag islenskra listamanna. Spurning er, hvort samtök námsmanna ættu ekki að eiga sérstaka fulltrúa á þingi, þar sem ekki er ætið ljóst i hvaða skúffu þeir lenda. Vist væri mikið réttlæti i þvi fólgið, að áðurnefnd samtök kysu úr sinum hópi fulltrúa til Alþingis i hlutfalli við höfðatölu. Það gæti aukið á virka þátttöku hins almenna felagsmanns. Ef ASI réði t.d. 30 þingmönnum af 60, þá hlytu menn að vilja sjá til þess, að hinir ýmsu hópar innan þess ættu sina fulltrúa: verka- menn, sjómenn, iðnaðarmenn, verslunarmenn, iðnverkamenn o.s.frv. Auk þess hlyti skipting eftir landshlutum að koma inn i myndina. En kannski þætti þetta ekki nógu mikið valfrelsi og þvi rétt að leggja þau framboð undir dóm alþjóðar. E.t.v. vildi fyrr- verandi bóndi kjósa lista sfns gamla stéttarsambands, þótt hann væri orðinn húsvörður I rikisstofnun. Likt gæti verið að segja um eftirlaunafólk. Og máski einhver verkamaður treysti betur frambjóðanda at- vinnurekendasambandsins en sins eigin stéttarfélags. Enn- íremurgætisumum fundist sem tillitættiað taka til þess, hversu einstakar stéttir legðu mikið til þjóðarbúsins, t.d. að sjómenn mættu eiga hlutfallslega fleiri fulltrúa en skrifstofufólk. Og svo er það sá fjöldi kvenna, sem þvi miður er enn ekki sjálfstæð- ir limir í neinum hagsmuna- samtökum. Það er langt siðan kosninga- fyrirkomulag þessu likthefði átt að leysa núverandi form af hólmi og auka með því virka þátttöku kjósenda. En á sinum tima voru stjórnmálaflokkar eðlilegir framboðsaðilar, með- an stéttasamtök voru litt mótuð eða lauslega skipulögð, einsog var langt fram á þessa öld. Nú eru þeir löngu orðnir óþarfir milliliðir og kosningalýðræðinu til trafala. Ekkert mælir hinsvegar á móti þvi, að stjórnmálaflokkar störfuðu eftir sem áður, þótt þeir ættu ekki beina fulltrúa á Alþingi. Þeir yrðu bara að gjöra svo vel að vinna sinum „hug - sjónum” fylgi meðal stéttasam- takanna, ef þærættu að fá fram- gang á Alþingi. En það er hætt við, að hug- myndirþessu likar komist seint i framkvæmd. Stjórnmála- flokkarnir, sem nú ráða lögum og lofum á Alþingi, mundu ein- faldlega ekki fallast á þær. Nema það yrði bylting I riki út- valdra. En þá væri lika von til þess, að vald og virðing Alþingis ykist að nýju. Minning Halldór Gunnlaugsson verkamaður 1 dag er til moldar borinn Hall- dór Gunnlaugsson verkamaður Alftamýri 44 Reykjavik. Halldór fæddist á Isafirði 27. desember 1930. Foreldrar hans voru Anna Guðrún Jónsdóttir fædd i Reyk'ja- vik 29. júli 1909 og Gunnlaugur Halldórsson fæddur á Bildudal 28. nóvember 1906. Arið 1952 hóf Halldór störf hjá Bæjarútgerð Reykjavikur og starfaði þar til dauðadags. Fyrir skömmu varð Halldór fyrir slysi á vinnustað og var hann á Land- spitalanum er hann lést aðeins tæplega 47 ára að aldri. Við starfsfélagar hans héldum að hann yrði aðeins nokkrar vikur frá vinnu og kæmi siðan til okkar aftur til starfa,en dauðinn fer ekki eftir vonum eða óskum hvers og eins og þvi kom fráfall hans okkur mjög á óvart. Hjá Bæjarútgerð- inni er stórt og vandfyllt skarð þvi að Halldór var sérstaklega sam- viskusamur i starfi og áreiðan- legur svo af bar. Það eru svona karlar og konur sem eru kjölfesta allrar atvinnustarfsemi og þeirra störf eru aldrei metin til fulls hvorki af hálfu atvinnurekenda né samstarfsfólks. Halldór kvæntist eftirlifandi konu sinni Sigrúnu Guðrúnu óskarsdóttur, sem fædd er i Reykjavik 2. ágúst 1935. Þau áttu sex börn: Óskar, f. 20.2. 1959, Petrea Guðrún f. 31.3. 1961, Gunn- laugur Halldór f. 13.11. 1962, Sig- riður Guðlaug f. 11.3. 1966, Anna Jóna f. 24.7. 67, Ósk Maria f. 23.4. 1970. Þarna sést hversu stórt heimili Halldórs var og mikið hef- ur þurft i aðra hönd til þess að sjá svo stórum hópi farborða. Þar gildir ekkert nema vinna og aftur vinna og hana stundaði Halldór svikalaust. Steinn Steinar segir i kvæði sinu Leiðarlok: Að lokum eftir langan þungan dag er leið þiri öll. Þú sest á stein við veginn og horfir skyggnum augum yfir sviðið eitt andartak. Og þú munt minnast þess, að eitt sinn, eitt sinn, endur fyrir löngu lagðir þú upp frá þessum sama stað Ég vil fyrir hönd starfsfélaga Halldórs þakka honum samfylgd- ina á liðnum árum. Við vitum að þar sem góður maður fer eru guðs vegir. Við sendum konu hans og börnum og öðru venslafólki hans okkar innilegustu samúðarkveðj- ur og vonum að minning um góð- an dreng verði þeim nokkur huggun i miklum harmi. Kristvin Kristinsson Galdramaöurinn - ný unglingabók Fundur hjá MFIK nú í kvöld MFIK efnir til fundar i dag, 29. nóvember, kl. 20.30 i MlR-saln- um, Laugavegi 178. A dagskrá eru fyrst félagsmál, en siðan flytur Agnes Löve erindi sem hún nefnir Vordagar I Var- sjá. Það fjallar um friðarráð- stefnu i Varsjá fyrr á þessu ári. Sýnd verður þekkt frönsk kvik- mynd, Varsjá lifir. 1 kaffihléi verður jólabasar með nytsömum munum á hag- stæðu verði. Að lokum verður sýnd pólsk Agnes Löve. kvikmynd. Fundurinn er öllum opinn. (Frá MFIK) Iöunn hefur sent á markað ungl- ingabókina Galdram anninn eftir kunnan höfund að nafni Ursula K. Le Guin. Þýðendur eru Guðrún Bachmann og Peter Cahill. A kápusiðu segir frá bókinni á þessa leið: „Aðalsöguhetjan, Gjafar, hefur öðlast kunnáttu og þekkingu sem ókunn er i heimi venjulegra manna. En þrár hans og metnaður knýr hann æ lengra uns þar kemur að hann þarf á allri sinni visku og þrótti að halda til að komast heill á húfi til sins raunverulega heims. Sagan er i sennfögurog spennandi, ævintýri sem hvarvetna hefur heillað jafnt unga sem aldna.” Höfundur bókarinnar var þekktastur fyrir visindaskáldsög- ur sinar, en bækurnar um galdra- manninn og þann ævintýraheim, sem hann hrærist i, hafa borið nafn hans enn viðar um heim og koma nú út á hverju tungumálinu eftir annað. Bókin er 184 bls. að stærð. Prentun og bókband annaðist Prentsmiðjan Edda h.f. Vinsælustu lög „Lonlí blú bojs” á hljómplötu Hljómaútgáfan hefur gefið út safnplötu með lögum „Lonli blú bojs”. Á plötunni eru öll vinsæl- ustu lög piltanna i hljómsveitinni. Má þar nefna lög eins og „Heim I Búðardal”, „Hamingjan”, „Stuð, stuð, stuð” og fl. Fyrsta plata þeirra félaga i „Lónli blú bojs” kom út á árinu 1974. Þá hófst frægðarferill þeirra, sem stóð óslitið til ársins 1976, er þeir bundu enda á skemmtunina með hljómleika- ferðalagi um landið. 1 „Lónli blú bojs” voru þeir Engilbert Jen- sen, Björgvin Halldórsson, Gunn- ar Þórðarson og Rúnar Júliusson. Islenskar dulsagnir Skráðar af Guð- mundi Þorsteins- syni frá Lundi Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri hefur sent frá sér nýja bók sem heitir Islenskar dulsagn- ir og hefur Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi skrásett. Bókin er 157 bls. og eru margar sagnirnartengdarsögumanni eða sálrænum eiginleikum Guðlaugar konu hans.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.