Þjóðviljinn - 29.11.1977, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 29.11.1977, Blaðsíða 10
XO SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 29. nóvember 1977 TÓNLISTARIMÁM Ellsabet Ragnarsdóttir býr sig undir að spila lagið FarAu að skammta mamma mln. Gfgja Jóhanns- dóttir leiöbeinir (Ljósm.:-eik>. Stefán Edelstein skólastjóri Omissandi þáttur í almennri menntun Loksins eftir 25 ára starf er Barnamúslkskólinn, sem heitir nú Tönmenntaskóli Eeykjavikur kominn i húsnæöi sem kalla má viðunandi. Hann hefur fengiö á leigu hjá Reykjavikurborg hiö gamla og glæsilega timburhús sem lengi hefur gengiö undir nafninu Lindargötuskólii en var upphaflega reist af Fransmönn- um fyrir spitala. I tilefni af þess- um timamótum bauö skóiinn til blaðamannafundar og skýröi Stefán Edelstein skólastjóri þar starfsemi skólans, tiigang hans og markmiö, skipulagsform og inntak. Hér á eftir fer frásögn af fundinum. Nafnbreytingin. Eins og fyrr sagði var i haust ákveöið að breyta nafni skólans i Tónmenntaskóli Reykjavikur. Astæöurtilþessvoruýmsar, m.a. að orðið barnamúsikskóli er vill- andi að þvi leyti aö fólk gæti hald- ið að hér væri verið að kenna og iðka barnamúsik en ekki „alvöru- músik”. Akveöið var að nota orð- ið tónmenntir (sem fleirtöluorð, sbr. bókmenntir) sem uppistööu i nýrri nafngift, enda er sú grein í grunnskólanum, sem áður nefnd- ist söngur, nú kölluð tónmennt. Saga skólans. Barnamúsikskólinn óx á sinum tima upp úr barnadeildum sem starfræktar höfðu verið i Tónlist- arskólanum i Reykjavik allt frá strlðslokum. Það var dr. Heinz Edelsteinsemstofnaðiskólann og stýrði honum til vors 1956. Næstu 6árin voruýmsirskólastjórar svo sem dr. Róbert Abraham Ottós- son, Ingólfur Guðbrandsson og Jón G. Þórarinsson, en frá árinu 1962 hefur Stefán Edelstein stýrt skólanum. Skólinn hefur yfirleitt verið i húsnæðishraki alla sina tfö. Hann hefur verið starfræktur á ýmsum stöðum i borginni, t.d. uppi á lofti i Austurbæjarskólanum, í Vals- heimilinu, i húsi Jóns Loftssonar við Hringbraut, og i u.þ.b. 20 ár i Iðnskólanum við Skólavöröuholt, uppi á 5. hæö. útibú i Breiðholti. Fyrir utan starfsemina viö Lindargötu rekurskólinn nii útibú i Fellahelli i Breiðholti sem þjón- ustu við íbúa þess hverfis. Það sparar börnunum löng ferðalög en þess má geta að börnin sem sækja skólann við Lindargötu þurfa mörg að fara yfirhættulega umferöargötu, Hverfisgötuna, og hafa skólayfirvöld sóttum þaö til borgarinnar að göngubraut verði sett yfir hana við Frakkastlginn þar sem þau þurfa að fara yf ir en þeirri beiðni verið synjað. Þríþætt hlutverk. Hlutverk og tilgangur Tón- menntaskólans er þriþætt: 1. Hann er tónlistarskóli fyrir börn og unglinga á grunnskóla- aldri (6-15 ára) 2. Hann er tilraunaskóli sem reynir ýmsar nýjungar i tón- i menntum. 3. Hann er æfingaskóli fyrir kennaraefni i Tónmenntakenn- aradeild Tónlistarskólans. Inntökuskilyrði — nám Nemendur eru teknir i skólann á aldrinum 5-9 ára inn i hinar mismunandi forskóladeildir. 1 undantekningartilfellum er einn- TónmennUskóli Reykjavfkur ig tekið við 10 ára byrjendum. í forskólanum er eingöngu um hópkennslu aö ræða, 10-15 nem- endur I einu, og fá nemendur 2 tima vikulega kennslu. Eftir að forskólanámi lýkur velja nem- endur sér hljóöfæri og fá tvo hálf- tima á viku einkakennslu á þetta hljóðfæri. Jafnframt þessu heldur hópkennslan áfram meö einni kennslustund á viku. Kennt er á pianó, fiðlu, selló, gitar, blokk- flautu, þverfiautu, klarinett, saxófón og ýmis málmblásturs- hljóðfæri. Þegar nemendur eru farnir að kunna svolitið meira á sin hljóð- færi, gefst þeim kostur á að iðka kammermúsik, þ.e. samspil á ýmis hljóðfæri. Allfjölmenn nljómsveit er starfrækt fyrir strengjaleikara og tréblásara auk samspils á málmblásturshljóð- færi (lúðrasveit). Auk þess er starfræktur kór. 1 skólanum eru I vetur rúmlega 400 nemendur að meötöldu Breið- holtsútibúinu. Þessir nemendur eru.einsogfyrrsegir, á aldrinum 6-15 ára. Um það bil 130 börn eru i forskóla, en 280 i eldri deildum. Flestir læra á pianó, eöa um 140, en strengjahljóðfæri eru einnig eftirsótt,50nemendurlæra á fiðlu og 10 á selló. Blástursnemendur eru alls 60 og gitarnemendur 20. Við skólann starfa alls 22 kennar- ar i vetur. Nýjungar t hópkennslunnier lögð rækt við alhliöa tónlistarþjálfun svo sem sikig, blokkflautuleik, heyrnar- þjálfun, hrynþjálfun og leikni i hlustun. Lögð er áhersla á að gera nemendur virka í námi og koma i veg fyrir að kennslan og náms- efnið lendi I föstum farvegi og staðni. Tónmenntaskólinn er stöðugt að fitja upp á nýjungum. Sem dæmi má nefna að mjög ungum nemendum (4-6 ára) ernú kennt á fðlu og einnig er flautusmiöi kennd. Þá er kennsluáætlun i gangi nú, sem sagt var frá i Þjóð- viljanum á laugardag. Tónverk pöntuð I tilefniaf 25áraafmæli skólans hefur hann pantað 3 tónverk hjá jafnmörgum islenskum tónskáld- um, þeim Atla Heimi Sveinssyni, Jóni Asgeirssyni og Þorkeli Sigurbjörnssyni. Tónverkin eru fyrir hljómsveit skólans, og ef þau veröa ekki of erfið og timinn til æfinga nægilegur, munu þau verða flutt á tónleikum i vor. SU nýjung er nU i starfi skólans að foreldrum er boðið að koma i tlma og hlusta á kennsluna og ræða við kennarana. Ómissandi þáttur i al- mennri menntun Stefán Edelstein sagði að ldi- um: Við trúum þvi hér, að tónlistar- nám sé ómissandi þáttur I al- mennri menntun hvers einstak- lings, hvort sem hann er sérstök- um tónlistargáfum búinn eða ekki. Þeirri spurningu er enn ósvarað, hvað tónlistargáfa yfir- leitt er. Þaö sem er mest um vert, er að örva tónlistaráhuga nem- enda, efla tónskyn þeirra, gefa þeim tækifæri til aö tjá 'sig sem flytjendur tónlistar og til að skapa tónlist. Meö öílu jiessu er verið að vinna aö sama megin- markmiði: að gefa nemendum innsýn i heim tónlistarinnar, þroska fagurskyn þeirra og gera þá betur i stakk búna til að velja og hafna samkvæmt eigin gildis- mati. —GFr SKÝRT FRÁ STARFSEMI TÓNMENNTASKÓLA REYKJAVÍKUR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.