Þjóðviljinn - 03.12.1977, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. desember 1977.
AF RÁÐHERRAGÁFUM
Þó að íslendingar séu í alþjóðaskýrslum
taldir til vanþróaðra þjóða, vita landsmenn
betur. Hvert mannsbarn á íslandi veit að hér
er við lýði blómleg hámenning, sem nær
hámarki í svokölluðum vísindaiðkunum hinna
ýmsu vísindastofnana, sem reknar eru í land-
inu af almannafé. Um langan aldur hef ur það
verið viðtekin skoðun vitmanna að ,,vísindin
efli alla dáð" og hefur það því verið draumur
hugsjónamanna að nota vísindin til að hafa vit
fyrir heimskum og illa lesnum valdhöfum
sem stundum, eða oftast þurfa að taka
ákvarðanir um málefni sem þeir ekki bera
skynbragð á. Þannig var það von manna að
sjávarútvegsráðherra gæti verið heimskur og
illa lesinn sveinn án þess að valda með því
teljandi skaða, ef hann færi að ráðum sér vit-
urri og lærðari manna, og mun Rannsóknar-
stofnun sjávarútvegsins hafa verið stofnuð
með það fyrir augum að hafa vit fyrir þeim
valdhafa, sem ekki hrasaði um gáfur og
þekkingu. Þannig hef ur verið gengið frá hnút-
unum í landbúnaði, að landbúnaðarráðherra
getur að skaðlausu verið kjáni, því hann getur
ef í nauðirnar rekur ausið úr viskubrunni
vísindalegra sérfræðinga Rannsóknarstofn-
unar landbúnaðarins. Þekkingar og vitsmuna-
legur öryggisventill iðnaðarráðherra eru
margar vísindastofnanir eins og til dæmis
Rannsóknastof nun iðnaðarins, Rannsókna-
stofnun f iskiðnaðarins og Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins og undir hverja deild
heyra svo margar aukastofnanir svo að
enginn skaði væri skeður þótt iðnaðarráðherra
væri algerlega ,,gú-gú" eins og krakkarnir
segja.
Þannig hefur hver ráðherra sérstaka
vísindastofnun skipaða hálærðum vísinda-
mönnum hverjum i sinni grein til að hafa vit
fyrir sér. Og ef einhver ráðherranna yrði nú
einhvern tíman alveg glórulaus (þetta er að
vísu aðeins fræðilegur möguleiki) má benda á
síðustu Rannsóknastofnunina í simaskránni,
en það er Rannsóknastofnun vitundarinnar
Bergsstaðastræti 13.
Af þvi sem að framan er skráð mætti ef til
vill ætla að ekki sé mikil kúnst að vera
ráðherra, en málið er því miður ekki svo ein-
falt. Það er lítill vandi að vera heimskur og
illa lesinn ráðherra, en málið tekur að vandast
þegar í ráðherrastólana veljast menn, sem eru
vitsmunaverur og það i svo ríkum mæli að þeir
vita betur en ráðgjafarnir, þótt þeir hafi eytt
árum og áratugum í það að afla sérfræði-
legrar þekkingar hver í sinni grein. Um þessar
mundir ber íslenska þjóðin gæfu til þess að
eiga á að skipa ráðherrum, sem ekki aðeins
vita allt, sem sérf ræðilegir vísindamenn hinna
ýmsu rannsóknastofnana vita, heldur vita
þeir betur. Þess vegna kvaka vísindamenn og
sérfræðingar fyrir tómum eyrum, þegar þeir
reyna að láta skoðanir, sem varða alþjóðar-
heill, í Ijós, skoðanir sem byggðar eru á ára-
löngum rannsóknum. Nöldur sérfræðinganna
er hjal, sem ástæðulaust er að taka mark á.
Þegar svona er komið, fer ósjálfrátt að
f lökra að ýmsum, að ef til vill væri réttast að
leggja hinar ýmsu rannsóknastofnanir niður
og treysta alvísum ráðherrum, en ekki er það
þorandi, vart er hættandi á að treysta þvi, að
endalaust veljist í ráðherrastólana sömu
gáfnaljósin og þar sitja nú.
Það líður varla svo dagur, að sjávarútvegs-
ráðherra vefengi ekki niðurstöður fiski-
f ræðinga. Þegar það á dögunum var orðað.að
banna tiltekið veiðarfæri vegna hættu á óhóf-
legri rányrkju, vissi hann að sjálfsögðu betur
einsog endranær og sagði, að það væri þá eins
vel hægt að banna dýptarmælinn, og verður
sennilega ofaná að banna hvorugt. Hvers
vegna ætti lika Matthías að vera að sækja ráð
til annarra? Hann rak um árabil djúpbátinn
Fagranes, sem bæði flutti fólk og mjólk um
inndjúp ísafjarðar. Þessi reynsla aflaði
honum að sjálfsögðu staðgóðrar reynslu í
málefnum sjávarútvegsins. Nú, landbúnaðar-
ráðherra hefur sjálfur verið bóndi og þess
vegna þarf ekki að segja honum neitt um það
hvort sauðfé eigi að vera háfætt eða lágfætt.
Orkumálaráðherra ætti að vita allt um ris og
sig Hann er lögf ræðingur. Og óhætt er að slá
því föstu að menntamálaráðherra viti meira
um byggingarmál en Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins. Það sannaði hann ótví-
rætt með athyglisverðri grein í Tímanum f yrir
nokkru, þar sem hann varpaði fram þeirri
kenningu að með hliðsjón af þeirri náttúru
vatns að renna niðurímóti, ættu hallandi þök
fremur að halda vatni en flöt.
Ráðherrarnir gætu sem hægast allir í einum
kór sungið gömlu góðu vísuna:
Ef að betur að er gáð,
ætlum vér megi sannast,
að visindin efla enga dáð,
ættu þvi að bannast.
Flosi
Bókaverslun
Snæbjarnar
fímmtíu ára
Nú um þessar mundir á Bóka-
verslun Snæbjarnar hálfrar aldar
afmæli en hún var stofnsett 3.
desember árið 1927.
Upphafsmaður og stofnandi
verslunarinnar var Snæbjörn
Jónsson, skjalaþýðari, og rak
hann verslunina allt til ársins
1947. Snæbjörn reyndi frá upphafi
að reka bókaverslun sina sem
menningarfyrirtæki með þvi að
reyna eftirfremsta megniað hafa
aðeins þær bækur á boðstóium
sem eitthvert gildi höfðu og sem
hann talöi vera til aukinnar
menningar.
Jafnframt bóksölunni vann
Snæbjörn ötullega að útgáfu
nokkurra ágætra bóka og má þar
nefna Ljóðmæli Grims Thomsens
og Númarimur Sigurðar Breið-
fjörð og fleiri merkar og vandað-
ar bækur.
Þegar Snæbjörn hætti bóksöl-
unni seldi hann verslunina þeim
Ólafi Bergmann Erlingssyni,
prentsmiðjustjóra og Gunnari E.
Kvaran, stórkaupmanni. Arið
1953 var svo stofnað hlutafélag
um bókasöluna og gerðist þá Ingi-
mar Brynjólfsson, stórkaupmað-
ur, meðeigandi, og nokkru siðar
Steinarr Guðjónsson.
Snæbjörn hafði á sfnum tima
umboð fyrir Oxford University
Press i London, sem er stærsti
bókaútgefandi i Bretlandi og i
gegnum árin hefur fyrirtækið tek-
ið að sér umboð margra annarra
stórra bókaútgáfa og ennfremur
dreifingu bóka fyrir ýmsar al-
þjóðastofnanir.
1 dag leggur fyrirtækið mesta
áherslu á að hafr, sem best ogfjöl-
breyttast úrval bóka frá Bret-
landi, Bandarikjunum, Norður-
löndunum, Frakklandi, Spáni og
Italiu svo og islenskar bækur.
Bókaverslun Snæbjarnar er nú til
húsa að Hafnarstræti númer 4 og
9 og i tilefni að 50 ára afmælinu
Þessir munir ásamt mörgu fleiru verða til sölu á jólabasar Sjálfs-
bjargar . félags fatlaðra i dag iaugardaginn 3. desember ki. 13.30 f
Lindarbæ.
Enn fremur verður úrval jóiaskreytinga, kökur og hiö vinsæia
skyndihappdrætti, með fjölda góðra vinninga.
Aö HafnarsL4 eru bæöi isienskar og erlendar bækur. I ensku versluninni að Hafnarstræti 9.
hefur verið gerð gagnger breyt-
ing og stækkun á innréttingu
ensku bókaverslunarinnar í
Hafnarstræti 9 til þess að gefa
bókaunnendum tækifæri til að
fylgjast enn betur með þvi besta i
bókaútgáfu i fremstu menningar-
löndum heimsins.
Stjórn fyrirtækisins skipa Bogi
Ingimarsson, hrl. Einar G. Kvar-
an, framkvstj. og Steinarr Guð-
jónsson.
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði
Starfsfólkid fái full-
trúa í útgerðarráði
A alnieniuim félagsfundi i þarf samráðs félagsins ef taka á lagsins að fá fram leiðréltingu i
Verkamannafélaginu HHf i Hafn- upp bónuskerfi, og felur stjórn fé- þvi máli.
arfiröi i sl. viku var samþykkt að
skora á bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar og sainþykkja tiliögu Ægis Sig-
urgeirssonar um setur fulitrúa
starfsfólks Bæjarútgerðar Hafn-
aríjarðar i útgerðarráði.
Á fundinum var ennfremur
gerð þessi samþykkt:
Fundur haldinn i Verkamanna-
félaginu Hlif fimmtudaginn 24.
nóv. 1977, telur orðalag á um-
sóknareyðublöðum sem notuð eru
þegar sótt er um vinnu hjá Bæjar-
útgerð Hafnarfjarðar, brot á
gerðum samningum við Verka-
mannafélagið Hlif, þar sem leita
Þroskaþjálfaraskólinn:
Nemendur halda basar
Nemcndur Þroskaþjálfaskóla
islands halda basar i Miðbæjar-
skóianum i dag, laugardaginn 3.
desember.
A basarnum verða margir fal-
legir, handunnir munir, leikföng
prjónuð og hekluð, mussur (engar
tvær eins), jóladúkar, jólahengi,
póstpokar, dúkkuföt, blómahengi
og margt fleira. Ekki má gleyma
heimabökuðum kökum, sem þar
verða einnig til sölu. Kaffi með
góðu islenzku meðlæti verður selt
á staðnum.
Allur ágóði af basarnum rennur
i námsfararsjóð nemenda
skólans.
Bæjarbúar eru hvattir til að
fjölmenna i Miðbæjarskólann
strax og opnað verður, kl. 10 um
morg uninn.