Þjóðviljinn - 03.12.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.12.1977, Blaðsíða 3
* f * 1 2 OTA( »>• \ ir i t-hiíJ V' '' l' W k Laugardagur 3. desember 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 3 Leikfélag Akureyrar: Sér fram á lokun vegna fjárskorts ,,Við vonum það besta. Við höfum gert allt sem i okkar vaidi stendur til að knýja á og auka skilning almennings og hins opin- bera á starfsemi okkar. Og ef augun opnast ekki þá er ekki um annað að ræða fyrir okkur en að loka leikhúsinu”, sagði Brynja Benediktsdóttir, leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar, i samtali við Þjóðviljann um starfsemi Leikfélagsins. Sjálfboðavinna i atvinnu- leikhúsi Astæðan fyrir þessum fjár- hagsörðugleikum er fyrst og fremst sú að fjárveiting til Leik- félagsins helst engan veginn i hendur við þarfir þess. Þó að Leikfélag Akureyrar hafi 'verið gert að atvinnuleikhúsi þá er það aðeins i orði en ekki á borði. Enn- þá byggist mikið af starfi Leikfél- Spasskí bað um frest BELGRAD. Sjöttu skákinni 1 einvigi þeirra Kortsnojs og Spasskis var frestað til mánudags að beiðni Spasski. Hann er kvef- aður. Kortsnoj hefur tvo vinninga fram yfir andstæðing sinn. agsins á sjálfboðavinnu og er all- ur kostnaður i algjöru lágmarki, m.a. er engin yfirvinna greidd. Þrátt fyrir fyrirsjáanlegan gifurlegan fjárskort er allt i full- um gangi hjá okkur i von um að úr rætist, sagði Brynja. Sunnu- daginn 3. desember er fyrirhuguð siðasta sýning á söngleiknum Lofti og er það 13. sýning að með- talinni forsýningu sem var á leiknum fyrir nemendur mennta- skólans. Sú sýning var á undan frumsýningunni og er slikt nýj- ung hér á Akureyri. Tvö barnaleikrit i uppsigl- ingu 1 æfingu eru nú þrjú verkefni. Snædrottningin barnaleikrit byggt á ævintýri eftir H.C. Andersen, leikstýrt af Þórunni Sigurðardóttur. Annað barnaleik- rit, eftir Baldur Georgsson, er einnig i uppsetningu. Það leikrit hefur ekki enn hlotið endanlega nafngift en gengur sem stendur undir nafninu Töfrabrögð og trúð- leikur. Leikstjóri er Erlingur Gislason og með honum vinnur höfundur leikritsins. Fyrirhugað er að ferðast með þetta leikrit um allt norðurland til að auðvelda fólki að njóta leiklistarinnar. Þriðja leikritið sem verið er að æfa er Alfa-beta, eftir Whitehead, i þýðingu Kristrúnar Eymunds- Framhald á bls. 18. Höfundar „9. nóvember 1932" ólafur R. Einarsson og Einar Karl Haraldsson ásamt átgefanda bókar innar, örlygi Hálfdánarsyni (i miðið). Gúttóslagurinn og stéttaátökin 1932 Innlegg í verkalýðssögu samtimans eftir Ólaf R. Einarsson og Einar Karl Haraldsson Út er komin hjá Bókaútgáfunni Erni og örlygi bók um Gúttóslag- inn 9. nóvember 1932 eftir Ólaf R. Einarsson og Einar Karl Har- aldsson. i bókinni bregða höfund- ar upp stigmögnun stéttaátak- anna baráttuárið 1932 mitt i heimskreppunni en þau ná há- marki i Gúttóslagnum 9. nóvem- ber. Þá börðust atvinnuleysingjar úr öllum stjórnmálaflokkum við iögregiulið Reykjavikur og iögðu það að veili i orðsins fyllstu merk- ingu. Atburðirnir 9. nóvember þetta ár áttu sér bæði aðdraganda og eftirmál og eru þau rakin i bókinni. Aðferðina sem höfundar nota við samningu verksins nefna þeir blaðamennskusagnfræði og gera þeir sér far um aö láta heimildir, svo sem blaðafrásagnir, réttar- skjöi og brot úr bókmenntum og viðtöl við gamla baráttumenn tala sem mest sinu máli. 1 bókinni er þvi lýst hvernig at- vinnurekendur og forráðamenn rikisfyrirtækja reyndu árið 1932 að knýja fram kauplækkanir viða um land. Meðal annars er sagt frá hinni hatrömmu deilu á Siglu- firði þar sem Sveinn Benedikts- Framhald á bls. 18. ' ' ' ' ' ' N -S -V • ' ■ ■ ■ - HÍPiP ■ Éta I Sg á Ibúðíiini heimsökn i Litaver margborgar sig --■ '•:■: I ióðum við t.d. á aðeins kr. 970,- pr. fer Kork gólfflisar standa ávallt iu á fallegan og látlái . s ....... " munstrum. 1.400,- pr. fermeter, Allir finna loftplötúr úr korki við sitt hæfi, en< Nýtt vinyl veggfóður er komið i verslúhín£ V. ‘ ib^ Grensásvegi 18 — Simi -'.,S S>' •>'' r §;pvJ ■ ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.