Þjóðviljinn - 03.12.1977, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 03.12.1977, Blaðsíða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. desember 1977. Hátiöarsamkoma í Þjóðleikhúsi; Minnst full- veldis Finna Á þriðjudaginn kemur (>. desember minnast finnar «0 ára (ullveldis sins. Af þvi tilefni held- ur Suomifélagið — samtök finna og Finnlandsvina á tslandi — há- tiðasamkomu i Þjóðleikhús- kjallaranuin og hefst hún kl. 31.15. Þar flytur formaður félagsins frú Barbro Þórðarson ávarp. Há- Eero og Risto skemmta á hátfð félagsins Suomi RAFAFL framleióslusamvinnu- félag iðnaóarmanna Skólavörðustig 19. Reykjavík Símar 217 00 2 8022 tiðarræðu heldur Matti Reinilá, sendiráðsfulltrúi finna á Islandi með aðsetri i Oslo. Þá syngur karlakórinn Fóst- bræður undir stjórn Jónasar Ingi- mundarsonar. Fram verður borinn léttur kvöldverður. Siðan syngja og leika finnsku listamennimir Eero Piirto og Risto Ala-Ikkálá. Þessir listamenn eru hingað komnir i boði Suomifélagsins og norræna hússins.Báðir eru þeir úr Austur- botnum ættaðir. Eero er bóndi og þjóðlagasöngvari. Hann hefur ferðast viða og kynnt list sina m.a. i Austurriki og á Englandi. Til Ameriku hefur hann farið tvisvar sinnum til hljómleika- halds ásamt félaga sinum Risto, sem hér er lika kominn með harmonikurnar sinar. Hann leik- ur bæði einleik og undirleik og er kunnur af list sinni heima i Finn- landi sem og viða erlendis. Samkomunni lýkur svo með dansi. Verði aðgöngumiða er mjög i hóf.i stillt að venju kr. 2000,- og er maturinn innifalinn i verðinu. A undan hátiðarsamkomunni kl. 19.30 er finnsk leikdanssýning á vegum Þjóðleikhússins á stóra sviðinu. Þekktur leikdansflokkur „Raatikko” gerir hér stuttan stans á leið til Ameriku. Hann sýnir leikdans eftir Mario Kuu- sela sem byggður er á skáld- verki hins kunna finnska verð- launahöfundar Váinö Linna „Fólk án valds” og fjallar um Þióðfrelsisbaráttu finna. Sunnudaginn 11. des. kl. 14.00 halda finnsku konurnar i félaginu basar á vegum félagsins i Glæsibæ. (Frá Suomifélaginu). WASHINGTON 2/12 Rcuter — Verkamálaráðuneyti Bandarikj- anna tilkynnti i dag að yfir 92 miljónir manna hefðu nií vinnu i Bandarikjunum, eða fleiri en nokkru sinni fyrr. Aðeins litið dró þó lilutfallslega úr atvinnuleysinu i landinu i nóvemberlok. Er at- vinnuleysið i Bandarikjunum nú 6.9% og eru 6.8 miljónir manna atvinnulausar, samkvæmt skrán- ineu. Styrktarmenn Alþýðubandalagsins eru minntir á að greiða framlag sitt til flokksins fyrir árið 1977 hið fyrsta. Alþýðubandalagið á Akureyri — Félagsfundur Félagsfundur verður haldinn I Eiðsvallagötu 18 þriðjudaginn 6. desem- ber kl. 21. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Sagðar fréttir af landsfundi. 3. Bæjarmál og undirbúningur bæjarstjórnarkosninga: Soffía Guðmundsdóttir. — Stjórnin. Alþýðubandalagið i Kópavogi Myndakvöld Mánudaginn 5. desember verður myndakvöld i Þinghól kl. 20.30. Þeir sem eiga myndir úr Strandaferðinni i sumar — vinsamlega takið þær með. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. — ferðanefndin Alþýðubandalagið i Borgarnesi Fundur um hreppsmá! efní verður haldinn mánudaginn 4. desember kl. 20.30 að Klettavik 13 (hjá Eyjólfi). Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Hreppsmálefni; Halldór Brynjðlfsson hefur framsögu. 3. Afstaða tekin til þogarakaupa á vegum hreppsfélagsins. 4. Skemmti- nefnd gerirgrein fyrir störfum sinum. 5. Onnur mál. — Stjórnin. Aðalfundur kjördæmisráðs i Suðurlandskjördæmi. Aðalfundur kjördæmisráðsins verður haldin að Bárugötu 9 i Vest- mannaeyjum laugardaginn 3. desember og hefst kl. 17. Farið verður með Herjólfi frá Þorlákshöfn. Dagskrá: I. Venjuleg aðaifundarstörf. 2. Kosið i fastanefndir. 3. Fram- boðsmál. 4. Æskulýðsmál. 5. önnur mál. — Stjórnin. Happdrætti Norðurlands Miðar fást i bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18 og á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3 og hjá sfmavörðum Þjóðviljans. Vinningur: Kinaferð fyrir 2 að verðmæti 600.000 kr. Dregið 7. desem- ber. Ekkja Guðmundar Einarssonar frá Miðdal, Lydia Pálsdóttir, gaf iþróttahúsinu tvær höggmyndir. Myndirnar gerði Guðmundur vegna Olympiuleikanna i Hel- sinki 1952 og hlutu þær 1. verðlaun þar. íþróttahús vígt ad Varmá Á morgun, sunnudaginn 4. des. kl. 16 fer fram vigsluhátið iþróttahúss að Varmá i Mosfells- sveit. Salur hússins er nú tilbúinn til notkunar en hann er 25x45 m að flalarmáli. Búningsherbergin eru i kjallara sundlaugarinnar en þar er innangengt á milli. t tilefni af vigslunni hefur Ung- mennafélagið gefið út blað með ýmsum upplýsingum um húsið, sveitina og félagsstarfið. Það ætl- ar ennfremur að sjá um móttöku gesta á vigsluhátiðina en henni mun stjórna Jón Baldvinsson sveiarstjóri. Skólanemendur munu fara i hópgöngu, lúðrasveit leikur, sr. Birgir Asgeirsson flyt- ur bæn, karlakórinn Stefnir syng- ur, Jón M. Guðmundsson flytur ræðu og fleiri ávörp verða flutt. Þá eru á dagskrá handknattleik- ur, knattspyrna, fimleikar og blak. Auk sérstakra gesta er öll- um ibúum Mosfellssveitar boðið til vigslunnar. —GFr Athugasemd Framhald af 16. siðu. „launajöfnunarstefna” þverbrot- in án afskipta Verðlagseftirlits rikisins sem virðist hafa tekið að sér að sjá um framkvæmd launa- jöfnunar á þann hátt að upp- mælingartaxtar fái sérstaka fyrirgreiðslusamkvæmtfrásögn i fréttagrein Jóns Sigurðssonar. Af þvi sem hér hefur verið rakið er ljóst að fullyrðingar Jóns Sigurðssonar i fréttagrein Tim- ans frá I. des. eru með öllu ósann- ar og hljóta að byggjast á van- þekkingu eða andúð á launþegum i málmiðnaði og skipasmiðjum. Hér fylgir með kauptaxti málm- iönaðarmanna og skipasmiða sem gildir frá 1. des. 1977 sem vér óskum sérstaklega eftir að verði birtir. 2. desember 1977 Guðjón Jónsson járnsmiður Smiöa Framháld af bls 8. varahlutalager verið aukinn mjög, starfsmenn verið sérþjálf- aðir til þessara viðgerða, og eins og áður segir, nýjar vélar og áhöld fengin til að geta veitt betri þjónustu við viðgerðir og viðhald. Rekstur Landssmiðjunnar gengur mjög vel og eru forráða- menn hennar afar bjartsýnir á framtiðina. Undanfarin ár hefur smiðjan skilað verulegum hagn- aði, enda hefur verið fyrir komið margskonar hagkvæmni i rekstri hennar. -S.dór. Gúttóslagur Framhald af bls. 3>. son og Guðmundur Skarphéðins- son, formaður Verkalýðsfélags- ins, koma við sögu. Ýtarlega er og greint frá atvinnuleysisslagn- um i Reykjavík 7. júli. Lýst er fangelsunum upp á vatn og brauð og sagt frá einu konunni á Islandi, sem afplánað hefur fangelsisdóm fyrir pólitiskar sair. Þá er mann- lifinu á kreppuárunum gerð skil i sérstökum kafla. 1 lok bókarinnar eru raktir þeir þræðir sem liggja frá 9. nóvember 1932 og árinu 1932 til verkalýðsbaráttu seinni ára. I bókinni er fjöldi ljósmynda og teikninga, og meðal þeirra eru frábærar teikningar Tryggva Magnússonar úr Speglinum frá þessum árum. Bókinni fylgir itarleg heimilda- skrá og nafnaskrá, og eru til- vitnanir prentaðar neðanmáls á hverja siðu. Bókin er 296 siður, prentuð i Prentsmiðjunni Eddu. Kápugerð annaðist Hilmar Helgason. I eftirmála komast höfundar svo að orði: „Islendingar hafa sinnt samtimasögu sinni, ekki sist verklýðssögu, ósæmilega illa. Hafi höfundum tekist að kynda undir áhuga á að sinna þessum þætti betur er tilganginum náð.” Bókaútgáfan örn og örlygur hyggst halda áfram að gefa út bækur um pólitisk átök úr sam- timasögunni, en i fyrra kom út hjá útgáfunni bókin 30. mars. Leikfélagið Framhald af bls. 3. dóttur. Leikendur eru aðeins tveir, þau Erlingur Gislason og Sigurveig Jónsdóttir en leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. Þaö gerast víðar merkileg- ir hlutir en i Reykjavík. Það má með sanni segja að Leikfélag' Akureyrar standi atvinnuleikhúsunum i Reykjavik fyllilega á sporði bæði hvað snert- ir fjölda verkefna i uppfærslu og aðsókn að sýningum. Frum'sýn- ingar eru 6 á ári og fjöldi leikhús- gesta um 13.000. Þó er fjárveiting til L.A. mörgum sinnum minni en til leikhúsanna i Reykjavik sem vafalaust hafa úr of litlu að spila. Aðspurð um ástæðuna fyrir þvi að fjárveiting væri svo miklu minni til L.A. taldi Brynja einkum vera þá að það tæki svo geysilega lang- an tima að koma fólki i skilning um að viðar gerðust eftirtektar- verðir og merkilegir hlutir en á höfuðborgarsvæðinu. Öllum sagt upp. Málin standa þannig hjá Leik- félaginu nú að allt er i fullum gangi eins og áður segir en þó hef- ur öllum verið sagt upp störfum frá og með 1. desember og er upp- sagnarfresturinn 6 mánuðir. Útlitið er þvi ekki gott en við von- um það besta sagði Brynja. #WÓÐLEIKHÚSIfl RAATIKKO Finnskur ballettflokkur — gestaleikur Frumsýning i kvöld kl. 19.30 Verkefni: Valdalaust fólk 2. og siðasta sýn. miðvikudag kl. 20 Verkefni: Salka Valka GULLNA HLIPIÐ aukasýning föstudag kl. 20 Siðasta sinn. DÝRIN í HALSASKÓGI laugardag kl. 15. TÝNDA TESKEIÐIN laugardag kl. 20 Litla sviöið; FRÖKEN MARGRÉT fimmtudag kl. 21. Miðasala 13,15-20. LHlKFElAC', RKYK|AVlKUR " SKJALDHAMRAR i kvöld kl. 20.30 Miðvikudag kl. 20.30 GARY KVARTMILJÓN Sunnudag kl. 20.30 Fimmtudag kl. 20.30 Næst siðasta sinn SAUMASTOFAN Þriðjudag kl. 20.30 Föstudag kl. 20.30 Siðasta sýningarvika fyrir jól Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30 Simi 16620 BLESSAÐ BARNALAN Miðnætursýning i Austur- bæjarbiói i kvöld kl. 20.30 Næst siöasta sýning á þessu ári. Miðasala i Austurbæjarbiói kl. 16-23.30 Simi 11384 Gautaborg Framhald af 1 gerði það auðveldara fyrir um allar athuganir. Þá hefur og mörgum létt vegna þess, að tala þeirra sem saknað er hefur mjög lækkað. Samkvæmt opinberum tölum i gærkvöldi var þá tólf manna enn saknað, en fáeinum klukkutimum siðar var trlkynnt að sú tala væri komin niður i fjóra. Komið hefur i leitirnar 13 ára gamalt skjal frá jarðfræðingum, þar sem kemur i ljós að jarð- fræðingarnir höfðu þá varað við þvi að byggt yrði á þesu svæði. Hefur sú uppgötvun að vonum vakið mikla ólgu. Gautaborg er að miklu leyti byggð á fyrrver- andi sjávarbotni, þar sem er leir lag sem safnar i sig miklu va,tni i rigningum. Sérstaklega eru svæðin meðfram Gautelfi, sem skiptir sér i margar kvislir er dregur nær ósnum, og þverám sem þar falla i hana talin hættu- leg. Hefur það raunar lengi verið álitið. Enn er talin mjög mikil hætta á áframhaldandi skriðuföllum. Mikill fjöldi manna vinnur að björgunarstarfi. I þvi sambandi hefur það orðið nokkurt vanda- mál að fólk hefur farið inn á svæðið og stolið úr yfirgefnum húsum, og hefur það orðið til þess að valda lögreglunni, sem þarna vinnur ásamt með öðrum að björgunarstarfinu, nokkrum töfum. Yfirvöld hafa verið þögul um það, hverjir það séu sem staðnir hafi verið að hnuplinu. Jólakaffi Hringsins Komist i jólaskap og drekkið eftirmiðdagskaffi hjá Hringskon- um að HÓTEL BORG sunnudaginn 4. desember kl. 3. Þar verður einnig á boðstólum: jólakort Hringsins, jólaplattar Hringsins, skyndihappdrætti með fjölda góðra vinninga, m.a. ferð til Kaupmannahafnar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.