Þjóðviljinn - 03.12.1977, Side 7

Þjóðviljinn - 03.12.1977, Side 7
Laugardagur 3. desember 1977. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Hér er fjallað um jöfnun félagslegs aðstöðumunar sem nú ríkir á milli stritvinnufólks i sveitum r annarsvegar og i höfuðborg Islands hinsvegar Hjalti Kristgeirsson Um forréttindi sveita- fólks og ný mid verkalýösbaráttu Vinna og verkstjórn A margan hátt er sveitafólk forréttindafólk i landinu. Þaö fæst viö skapandi störf i sam- spili viö lifandi náttúru. Bein og augljós tengsl eru á milli þess sem hver leggur fram i vinnu og þess sem hann (eöa hún) upp- sker i afuröum eöa umbun. Skipulagning vinnutimans sprettur upp af gagnsæju eðli verkanna hvern ársins dag og allan ársins hring. Verkstjórnin býr þvi hiö innra með hverjum þeim sem kann til verka. Fyrirmæli til fulloröinna eru óþörf. Svo fagurlega má lýsa striti islenskra einyrkja og skylduliös þeirra þegar viðmiöunin er launavinna verksmiöjufólksins. Hér er hinsvegar ekkert fullyrt um það, hvernig störf slita likamsþreki. Ytri nauöung af hálfu náttúru og samfélags er vitaskuld hvarvetna aö verki. Ekki skal því heldur neitað aö sveitalifið geti klætt fólk harö- neskjuhjúpi, svosem Tryggvi Emilsson lýsir. Hér var ein- ungis vakin athygli á einum afmörkuðum þætti, þætti vinnu- staöar og vinnuferlis, þar sem menn gangast undir harla mis- munandi kvaðir eftir þvi hvort menn búa sjálfum sér i sveit ellegar vinna öðrum viö sjó. Samskipti og menntun Fleiri eru forréttindi sveita- fólks. Nefna mætti lif laust viö meingun af hálfu verksmiðja, steinryks, útblásturs frá bilum, umferöarhávaða og allskyns streituhraða sem angrar okkur þéttbýlisfólk. — Auðvelt er aö hafa uppi andmæli við þessu tali. Sveitamaðurinn fer ekki út á næsta götuhorn og kaupir i matinn með litlum fyrirvara. Kjör fólks mæld i peninga- tekjum eru siöri til sveita. Ýmsir mundu og nefna yfir- buröa aðstööu borgarbúans til heilsugæslu, skólagöngu og skemmtana, en ekki er nú allt sem sýnisti þeim efnum. Maöur er manns gaman, og segja má aö þaö eitt sé menntun aö kunna aö vera meö mönnum. Borgar- búinn er að visu alltaf i nálægö viö aöra menn, en þaö er ekki þarmeð sagt aö hann sé návistum viö þá. Kem ég nú enn aö auöugum lifskostum sveita- manna andspænis umkomuleysi verkalýösins á mölinni. Félag skapar manninn t þeim sveitum þar sem ég þekki til er fjölskrúöugt félags- lif. Félagssviðin eru flest þess eölis aö þátttaka veröur eðlileg afleiöing búsetunnar og sveita- starfanna. Enginn kemst hjá þvi að vera i hreppsfélaginu með meira eöa minna virkum hætti. Hvert lögbýli á sina aðild aö búnaðarfélagi og þarmeð að tvennum hagsmunasamtökum landbúnaðarins á landsmæli- kvarða. Svotil allir búendur eiga hlut að samvinnufélagi, á Suöurlandi visast þremur i senn. Ungmennafélagið, kvenfélagið og kannske hestamannafélagiö koma viö sögu á hverju heimili. bá eru ótalin félagsstörf i sam- bandi við kirkjusókn, sönglist, leiklist, skógrækt og aðra þá uppbyggilegu iðju sem menn hafa i hjástundum til aö skapa sér annan heim i þessum heimi, annaö lif i þessu lifi. Nú hvaö er þetta! er kannske sagt. Getið þið þéttbýlisbúar ekki haft ykkar félög og sam- starf við annað fólk? Ekki þurf- ið þið aö feröast langan veg til að hitta nágranna og tengjast við þá böndum félagsskapar. — Satt er oröið aö visu, viö getum þaö en gerum ekki. Aö minnsta kosti er þaö höfuöregla hjá okkur hér á mesta þéttbýlis- svæöi landsins. Hér eru vita- skuld fjölmörg félög, en féla'gs- lifinu i heild er haldið uppi af til- tölulega fáum einstaklingum. Allur fjöldinn stendur fyrir utan eða er óvirkur, enda eru félögin ekki innbyggö i lifshættina. Það eru ýmist félög um áhugamál sem hægt er aö kynnast utan þeirra, ellegar þau eru mynduö utanum skrifstofurekstur sem gengur án félagslifs. I stað félagsþátttöku kemur fjöl- miölun. I staö þess aö fólk smiöi sjálft sina gerviveröld, kaupir það hana aö i formi afþreyingar eða efnishluta. Grið i skjóli uppreisnar Hér þarf að finna ráö til aö gera borgmenningu okkar mennska á borö viö þaö sem við sjáum þrifast i sveitum. Aftur- hvarf til náttúrunnar? Nei, ekki er þaö ráðiö, hvorki I formi neinskonar bindindissemi á lifs- gæöi né I merkingu einhvers- konar rómantiskrar endur- gerðar fyrri lifnaöarhátta. Llfs- og félagsform sveitanna veröa ekki endurreist i borginni, þaö væri ósvinna eða að minnsta kosti fákænska að ala á vonum um þaö. Astæöan fyrir þvi var reifuö hér aö framan: i borginni rikir launavinnan yfir öðrum tengslum milli fólks á vinnu- stað, en utan vinnustaðarins rikir heimur vörunnar yfir hinum manngerða heimi óháöra samskipta. Athugum það aö sveitin er ekki griðland vegna þess að hún er afskekkt i sam- göngum. Hún ér það vegna þess aö fólk reis upp gegn ráðs- mennsku peningavaldsins. Ein- yrkjarnir létu einstaklings- hyggjuna ekki hlaupa með sig i gönur, heldur bundust félags- samtökum um betri búskap, betri verslun og betri verö- lagningu á búsafurðum. Hið margbrotna félagskerfi landbúnaöarins á sér sam- svörun i þéttbýlinu. Sú sam- svörun er fólgin i verkalýðs- félögum og öörum stéttar- félögum launavinnufólks. Hér i þessum dálkum hefir oft veriö minnst á hlutverk þessara stéttarfélaga, meöal annars af þeim sem þetta ritar. Við ætlum verkalýðsfélögum mikinn og vaxandi hlut i umbreytingu þjóöfélagsins til siömenntaöra horfs. Viö metum mikils þann árangur sem verkalýðs- hreyfingin hefir þegar náð, en viö vitum um leið aö allt er þaö hverfult á meöan pólitiskum samtökum vinnandi fólks hefir ekki tekist að ráöa niðurlögum sundurvirkra afla i efnahags- grundvelli þjóöfélagsins. Að efla samvirkni Ekki efa ég aö sitthvað hafi veriö hæpið eöa jafnvel ósann- gjarnt i framangreindum samanburði minum á sveit og borg. Ég hefi leyft mér að ganga nokkuö þvert á venjur, eða þekkist ekki enn sá ósiður að borgarbúar tali heldur óvirðu- lega um hugarheim sveita- manna, en ibúar strjálbýlisins mikli fyrir sér lifsgæöi þétt- býlisfólksins? Hérlendis hefir þó sem betur fer tekist að jafna mjög efnisleg lifskjör þessara hópa, en þaö er trúa min aö varðandi félagslega lifshætti sé þaö okkarborgarbarnaað læra af frændum okkar á lands- byggöinni, ekki öfugt. Til aö skýra þaö hefi ég teflt fram nokkrum atriöum I aðstæðum sveitafólks gegn því sem gerist á samsvarandi sviöum til- verunnar hjá okkur. Meö þessu vildi ég renna stoðum undir hugmyndir um þaö, hvernig hagsmunafélög okkar, verka- lýðsfélögin, gætu brugöist við vandanum. Ég á viö aðgeröir launavinnufólks til aö ná auknum áhrifum á vinnustað og efla á þann hátt félagsskap og samheldni i hverjum starfs- mannahóp. Sigursæl framganga á þeim vettvangi mundi að minni hyggju skapa okkur borgarbúum álika sjálfstraust og svipaðan félagsanda og nú tiðkast best meðal sveita- manna. Útfærsla samningsheiginnar Aðalverkefni verkalýösfélaga er að fást við gerð og fram- kvæmd kjarasamninga, og þungamiðja hverra samninga er vitaskuld kaupiö sjálft. En litiö draga kaupgjaldsákvæöin nema þeim fylgi tryggingar um aöbúnaö, vinnutima og vinnu- skilyrði, félagsleg réttindi, orlof og aukagreiöslur. Ahersla á þetta er á réttum stað hjá verkalýðshreyfingunni, og samanlagt skapar þetta verka- fólki og samtökum þess mikiö áhrifavald i þjóðfélaginu. Gailinn er hinsvegar sá aö þegar sleppir þvi félagslega átaki sem eitt megnar aö knýja atvinnurekendur til samnings- gerðar, þá hvilir framkvæmd samningsákvæöanna meir á skrifstofu viðkomandi verka- lýðsfélags heldur en á sam- virkni félagsmannanna sjálfra. Eðlilegt framhald á kröfugerð verkalýösfélaganna i vinnu- deilum er þaö, aö áhrifasviö kjarasamnings væri vikkað frá þvi sem nú er varðandi daglegt lif fólks á vinnustaö og mögu- leika þess til beinnar mótunar á vinnuskilyrðin. Þarna mundu sjálfsagt ekki vinnast nema smáir áfangar i fyrstu og mats- atriöi hvað tekiö væri i hverjum. Hér væri um 3 nátengd sviö að ræöa: Itök i verkstjórn en þaö þýðir að eigandi fyrirtækis og fulltrúar hans eru ekki lengur einráðir um þaö, hvernig fólki er skipaö til vinnu, hvernig verkefnum er skipt niður, hvernig húsnæöi, vélar og tæki eru nýtt. Aðild aö yfirstjórn fyrirtækis sem fæli i sér raun- veruieg áhrif og bein boð á milli verkalýösfulltrúanna og starfs- mannahópsins. Engar veru- legar breytingar mætti gera á starfsmannahaldi og fram- leiöslusniöi án atfylgis þessara fulltrúa. Innsýn i fjárhagsstööu fyrirtækis og eigenda þess til jafns við skattyfirvöld og viöskiptabanka væri skilyröi fyrir þvi aö verkalýðsfélagiö gengi frá kjarasamningi. Aö sjálfsögðu gæti starfsmanna- hópur skotiö á fundi hvenær sem væri til að ræöa framkvæmd á þessum sérstöku samráöa- ákvæöum kjarasamningsins., Sjálfvirk kvaðning Þessar hugmyndir þykja eftilvill harla óraunhæfar. En þaö hafa kröfur verkalýðsfélag- anna lika þótt á öllum timum, en samt riáö fram að ganga hægt og sigandi. Og ekki er ég upphafsmaður að þeim ramma sjáífstjórnar er ég rissaöi hér upp. En auðvitað er þetta spurning um það, hvaða mark- mið menn vilja setja sér, og hvaða viljastyrk menn hafa til aö fylgja þeim fram. — Sé fólk nú búiö aö ná föstum félags- legum tökum á verkefnum sinum á vinnustað, þá mun fleira á eftir fylgja. Þá er fólk nefnilega á sjálfvirkan hátt kvatt til félagslegra verkefna, og það er ekkert um það að ræða aö draga sig i hlé nema þvi aöeins að maður vanræki vinnu sina um leið. En þaö, er einmitt þessi samþætting vinnu og félagsstarfs sem er undirstaðan að öllu félagskerfi sveitalifs og landbúnaöar, svo að aftur sé til þess visað. Ekki stjórnunartækni Stundum er kvartað yfir þvi andrúmslofti deyföar og afskiptaleysis sem riki á vinnu- stööum. Lækningin við þessu verður ekki sótt i tæknibúr stjórnunarfélagsins. Sjúkdóm- urinn liggur nefnilega i tvi- hverfu launavinnunnar, yfir- vald/undirgefni, en einmitt hana er stjórnunartækninni ætlað að festa i sessi. Vinnugleði er hverjum manni ásköpuö ef ytri skilyröum er fullnægt, en þau eru aö maöur hafi sjálfstæð tök á viðfangsefninu og um leiö mótandi áhrif á eigið umhverfi og lif. Aðeins stjórnmálaöfl verkalýðshreyfingarinnar megna aö breyta aðstæðum i grundvallaratriöum, þannig aö sjálfstjórn komið i stað annar- legrar og framandi stjórnunar. Ekki geri ég þvi skóna aö það geti gerst i núverandi markaðs- þjóöfélagi. Hinsvegar á að vera hægt aö búa i haginn með þvi aö finna félagsformin og efla félagsandann. Og eigum viö ekki aö vera svo bjartsýn að halda, að þaö sé á valdi verka- lýðsfélaganna hér og nú? Hjalti Kristgeirsson Landhelgisplattinn fjölskyldufélag landhelgis gæslumanna gefur út veggskjöld i minningu áfanga í landhelgismálum Félagiö Ýr, sem er fjölskyldu- félag landhelgisgæslumanna, stofnaö 8. mai ’76, hefur gefiö út landhelgisplatta, veggskjöld, til þess að minnast þeirra áfanga sem orðiö hafa i stækkun land- helginnar við Island. A skildinum er mynd af merki Landhelgisgæslunnar ásamt myndum af fjórum varðskipum og einni flugvél. Þar eru „gamli” Ægir, Þór og öðinn eins og þau skip voru ’68 og ’72, þegar fært var Ut, og ,,nýi” Ægir og flugvél- ■ in Syn, Eirikur Smith, listmálari, teiknaöi veggskjöldinn og er hann unninn á þýskt Kaiser-postulin i leirmunageröinni Gieri og postu- lini I Kópavogi. Verö skjaldarins er kr. 4000.-. Hann er ekki til sölu i verslun- um.en hægt er aö panta hann hjá fjórum félagskonum i Ýr. Þær eru: Jóna M. Guðmunds- dóttir, simi 66400, Stóriteigur 8, Mosfellssveit, Elin Skeggjadóttir, simi 41830, Alfhólsvegur 39, Kópa vogi, Edda Þorvarðsdóttir, simi 72763, Vesturberg 100 Rvik. og Gyða Vigfúsdóttir, simi 52399, Hjallabraut 3, Hafnarfirði. Einn- ig má leggja inn pantanir i Póst- hólf 5015, Reykjavík. Fyrlr nokkrnm dögum tók Pétur Sigurðsson. forstjóri Landhelgis- gæslunnar, viö fyrsta eintakinu af Landheigisplattanum Ur hendi for- manns ÝRAR Elinar Skeggjadóttur, en meö henni á myndinni eru Edda Þorvarðsdóttir og Jóna M. Guðmundsdóttir lengst til vinstri. r ASI skorar á mennta- málaráöherra: Fram meö frumvarpid um fullordinsfrædslu Sambandsstjórnarfundur ASI, sem haldinn var i ölfusborgum 25.-26. f.m. skoraði á mennta- málaráðherra að leggja fram á yfirstandandi Alþingi frumvarpiö um fulloröinsfræöslu og lagöi jafnframt áherslu á samþykkt þess sem allra fyrst. A ályktun um þetta mál segir: ,,Ef frumvarpið veröur hins- vegar ekki lagt fram fyrir næst- komandi áramót, er nauösynlegt viö afgreiöslu fjárlaga 1978 aö stórauka framlag ríkisins til full- oröinsfræöslu.” ♦

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.