Þjóðviljinn - 18.12.1977, Síða 15
Sunnudagurinn 18. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Hvad er ad frétta úr
sovésku skáklífi?
Eftir ALEXANDER ROSJAL
Bandarikjama&urinn Edmon-
son, sem sæti á i stjórn Alþjóöa-
skáksambandsins (FIDE), lýsti
þvi yfir, aö Anatoli Karpov væri
sannur heimsmeistari og hei&urs-
maður, er hann hreyföi ekki mót-
mælum viö reglum sem settar
voru á FIDE-þinginu i Caracas i
Venezuela um komandi heims-
meistaraeinvfgi, þótt þær feli i
sér aö sá réttur, sem heims-
meistarinn hefur haft, sé skertur
aö nokkru.
Um afstööu sina til þessa máls
segir Karpov:
„Ég kom til Caracas eftir
aö hafa tekið þátt I sterku
skákmóti i Tilburg I Hollandi þar
sem ég hlaut fyrsta sæti. Ég
varö þess strax áskynja, aö
flestir erlendu fulltrúarnir
vildu aö fjöldi skáka I heims-
meistaraeinviginu yröi ótak
markaöur upp aö ákveönum
fjölda vinninga. Ég er ekki þeirr-
ar skoöunar, aö einvigi, sem tak-
markaö er viö 24 eöa 30 skákir
muni snúast upp i langa röö jafn-
tefla, en ég mætti þinginu á miöri
leiö þar sem ég skil hve mikill
ávinningur keppni bestu skák-
manna heims er fyrir skáklifiö i
heiminum. Þaö er rétt, aö þessar
nýju reglur svipta heims-
meistaranna þeim heföbundna
ávinningi aö halda titlinum, ef
keppendur skilja jafnir. Að sinu
leyti veitti FIDE titilhafanum
aftur rétt til nýs einvigis innan
árs, ef hann tapar hinu fyrra. Aö
sjálfsögöu lét þingiö mina hags-
muni ekki ráöa i þessu máli,
heldur var það vilji þess aö gefa
skákáhugamönnum um heim
allan kost á aö fylgjast meö nýj-
um, áhugaverðum skákviöburöi I
formi endurtekins einvigis, ef svo
stendur á. Ég vona þó, aö til þess
þurfi ekki að koma.”
aranafnbótar og skaut þar aftur
fyrir sig sumum sem fengu stór-
meistaratitil FIDE um leið og
hann, m.a. Alburt, sem hafnaði I
þriðja sæti.
Lev Alburt frá Odessa, sem oft
hefur oröið Okrainumeistari, er
aöeins ári eldri en Georgadze,en
hefur þegar keppt tvivegis I
fyrstu deild Skáksambands
Sovétrikjanna. Það er aö visu
rétt, aö 1977 þurfti hann aö taka
þátt I úrtökumóti, sem háö er
samkvæmt svissneska kerfinu
svonefnda, til þess aö komast
þangaö. Alburt náöi fyrsta sæti af
64 þátttakendum og fluttist úr
annarri deild upp I fyrstu deild
aftur.
Jevgeni Svesjnikov er 27 ára
frá Tsjeljabinski i Cral. Hann er
alkunnur bæöi fyrir árangur sinn
i keppni og fyrir hvassan og dálit-
ið skeytingarlausan skákstil sinn.
Hann er einnig kunnur fyrir
„tsjeljabinska” afbrigðið svo-
nefnda af sikileyjarvörn. Jevgeni
hefur náð góðum árangri á
heimsmótum stúdenta, en hefur
nú skilað þvi hlutverki i hendur
yngri skákmanna, og þar gegnir
Kotsjiev ekki minnsta hlutverk-
inu.
Alexander Kótsjiev, stúdent frá
Leningrad, sem varö Evrópu-
meistari unglinga 1975, en nú
ásamt Anthony Miles frá Eng-
landi og Larry Christiansen frá
Bandarikjunum yngsti stór-
meistariheimsIdag (þeireru allir
21 árs.). Sérfræðingar furöa sig
raunar á hinu næma stöðumati
Kotsjievs og þroskaöri hernaöar-
listhans á skákmótum. Hann tap-
ar sjaldan skák. Mesta afrek hans
til þessa er aö vinna sig upp I
fyrstu deild. Af 18 veröugum
keppendum deildi hann 5.-6 sæti
meö hinum þrautreynda Vladi-
mir Bagirov.
Karpov; hann og FIDE mættust á
miöri leiö.
Færast úr annari deiid i
fyrstu deiid
Kotsjiev haföi reiknaö rétt: Sex
efstu sætin i annarri deildar
keppninni þýöa, aö þeir sem þau
skipa færast upp i fyrstu deild.
bækur
Haciendas/ Plantations
and Collective Farms
Agrarian Class Societies —
Ciuba andPeru. Juan Martinez-
Alier. Library of Peasent Studies
No 2. Frank Cass 1977.
Mismunandi rekstrarform
landbúnaðar er inntak bókar
Martinez Aliers, sem er Spán-
verji. Hann stundaði nám i Ox-
ford og hefur starfað þar, milli
þess sem hann hefur rannsakað
búnaðarhagi i Suður-Ameriku.
Efni bókarinnar er samanburö-
ur á viðhorfum, bæði efnahags-
legum og pólitiskum, bænda og
landeigenda til stórbúskapar eins
og hann er og var rekinn á stórum
fjárbúum i Perú og á sykurekrum
Kúbu. Höfundurinn ræðir einnig
nýbreytni varðandi skiptingu
stórjaröa og skiptingu afrakstrar.
Akuryrkja og sykurrækt I stór-
um einingum, rekið á kapitalskan
hátt er oft talin mun aröbærari og
heppilegri en annað rekstrar-
form, aðkeypt vinna á vissum
árstimum er talin grundvöllurinn
undir gróðanum. Afleiðingarnar
verða þær að „bændum” fækkar
stórlega. 1 Perú eru stór sauðfjár-
bú rekin viða með vinnuafli hálf-
frjálsra Indiána og ýmsir telja að
öðruvisi verði þau ekki rekin
vegna takmarkaðra markaðra
fyrir vöruna eða að gróðamynd-
unin verði engin ef breytt er um
rekstrarform. Höfundurinn telur
megingalla fyrra formsins vera
þann, að árstiðabundin upp-
skeruvinna veiti þeim sem að
henni vinna rýrari tekjur þvi
stærri sem einingarnar verði og
hann telur að arðrán hinna hálf-
frjálsu Indiána verði fjarri þvi að
vera jafn mikið á stórum sauð-
fjárbúum i Perú, og það verður
meðal þeirra sem annast upp-
skeruvinnu á plantekrunum.
Höfundurinn rekur pólitiskar
Hvað Gennadi Kúzmin varöar,
þá þýöir fyrsta sætiö i þessari
keppni aö hann hefur aö nýju
skipað sér i fremstu röð. Eftir aö
hann hafði lagt fram sinn skerf til
þess aö sovézka skáksveitin hlaut
gullverðlaun á Olympiuleikunum
i Nice i Frakklandi 1974, þá hvarf
Kuzmin úr sviðsljósinu um hriö.
Það er ánægjulegt, að hann hefur
aftur haft velgengnina meö sér,
þvi hinn frumlegi sóknarstill hans
nýtur aðdáunar margra.
Karpov lét eitt sinn þau orö
falla um stórmeistarann Valdi-
mir Tukmakov, að velgengni
hans byggðist of mikið á þvl,
hvernig hann væri fyrir kallaöur.
Að þessu sinni var skákmeistar-
inn frá Odessa vel upp lagöur og
árangurinn var fimm sigrar I röö
á úrslitastigi keppninnar.
bótt þaö sé venjan aö lita á
stórmeistara sem úrvalið, þá eru
sumir sovéskir meistarar einnig
mjög sterkir skákmenn. Tökum
sem dæmi Karen Grigorjan, fyrr-
um Moskvumeistara, sem enn
hefur ekki tekið þátt i neinu móti
erlendis, en er þó hagvanur I
fyrstu deildinni sovésku, sem
jafngildir þátttöku i sterkustu
alþjóðamótum.
Nálega allir bestu skák-
meistarar Sovétrikjanna taka nú
þátt i fyrstu deildar keppninni
sovésku, sem hófst i Leningrad
28. nóvember sl., m.a. sigur-
vegararnir i annarri deildar
keppninni, skákmenn sem aö
undanförnu hafa tekiö þátt I
keppninni um heimsmeistara-
tignina, svo og nokkrir aöstoðar-
menn þeirra. (apn)
ástæður til hugmynda um rekstr-
arform landbúnaðar og telur að
hugmyndirnar hafi meira og
minna verið aðlagaðar pólitisk-
um þörfum vissra afla og þvi séu
þær meira og minna skekktar og
ekki i samræmi við raunverulegt
ástand. Það var t.d. talið stað-
reynd, að arðrán hálffrjálsra
Indiána i Perú, væri algjört og þvi
ættu þeir að keppa að þvi að vinna
á búum, þar sem laun væru
greidd fyrir árstiðabundna vinnu
og læra spænsku, svo að þeir yröu
þar hlutgengir. Þaö voru ekki aö-
eins róttæk öfl sem heimtuðu
breytt rekstrarform og studdu
það stundum skekktum hug-
myndum um raunverulegt ástand
i pólitiskum tilgangi, heldur ekki
siður stórkapitalisk öfl, sem
hugðu á frekari gjörnýtingu
vinnuafls og lands i gróðaskyni.
Sumar greinarnar hafa birst áöur
i ársritum og timaritum.
Nýir stórmeistarar
Stjórn FIDE hefur tilkynnt
únefningu 40 nýrra alþjóðlegra
skákmeistara og 10 nýrra alþjóö-
legra stórmeistara, en réttinda-
nefnd FIDE haföi áöur fjallaö um
tillögur aö þessari réttindaveit-
ingu. Nýju alþjóölegu stór-
meistararnir eru: Amador
Rodriguez, Kúbu, Lev Alburt,
Jevgeni Svesjnikov, Alexander
Kotsjiev og Tamaz Georgadze,
allir frá Sovétrikjunum, Jevgeni
Jermenkov, Búlgariu, Larry
Christiansen, Bandarikjunum,
Dusan Rajkovic, Júgóslaviu,
Roman Dzjindzjikjasjvili, Irael,
og Michael Stean, Bretlandi.
Skákáhugamenn hafa nokkrar
áhyggjur af „offjölgun” alþjóö-
legra skákmeistara I heiminum.
Sovétrikin hafa gert eigin ráö-
stafanir til þess að halda fjölda
þeirra niðri. Héðan i frá mun t.d.
veiting stórmeistaratitils FIDE
verða annað tveggja atriða, sem
þarf til þess að hljóta titilinn
sovéskur stórmeistari I skák.
Af nýjustu stórmeisturum
Sovétrikjanna mun Tamaz
Georgadze minnst kunnur erlend-
is. Þessi þritugi skákmeistari frá
Tbilisi er þriðji stórmeistarinn (á
eftir Bukjuti Gurgenidze og
Eduard Gufeld) i hópi karla, sem
Sovét-Georgia eignast.
Georgadze var áöur aöstoðar-
maöur núverandi heimsmeistara
kvenna, Nonu Gaprindasjvili,
en slikur ráögjafi þarf aö hafa
mikla þekkingu á skákfræöi.
Lengi vel sigraöi Tamaz einkum
á skákmótum utan Sovétrikjanna
en nýveriö varð hann jafn
stórmeistaranum Tatmir
Kjolmov I efsta sæti i sterku
alþjóðlegu skákmóti hér
heima. Með þvi uppfyllti
Georgadze skilyröi til stórmeist-
NYJAR BÆKUR FRA
VÍKURÚTGÁFUNNI
Gunnar Dal
Kastið ekki steinum eftir
Gunnar Dal. Héildarsafn af
Ijóðutn skáldsins. Jóhannes Helgi
rithöfundur segir m.a. íformáls-
orðum: ,,Þetta safngeymirfurðu-
mörg Ijóð sem eru svo áleitin, að
menn lesa þau oftar en tvisvar og
þrisvar. “ I Dagblaðinu skrifar
Bragi Sigurðsson um bókina og
kemst að orði m.a. ,,Það sjald-
gcefa hefur skeð - komin er Ijóða-
bók, sem maður leggur ekki frá
sér. “
Ltfið er saltfiskur. Ævi-
minningar Elíasar Pálssonar yf-
irfiskimatsmanns skráðar af
Ragnari Þorsteinssyni. Hér er á
ferðinni hreinskilin og sönn frá-
sögn af cevi manns, sem hefurfrá
mörgu að segja á langri cevi.
Mestur hluti cevi hans var
tengdur sjósókn ogfiski og í árs-
byrjun 1947 var Elíasi falið
yfirfiskimat á saltfiski, sem
hann gegndi árum saman. Bók
sem vekja mun óskipta athygli.
Lífið eftir lífið eftir Ray-
mond A. Moody, Jr. Hér eru á
ferðinni frásagnir manna, sem
hafa lifað líkamsdauðann. Bók-
in kom fyrst út í Ameriku í
nóvember 1975 og í febrúar á
þessu ári hafði hún veriðprentuð
fjórtán sinnum, auk þess sem hún
hefur verið þýdd á mörg tungu-
mál. Lífið eftir lífið er bók,
sem allt hugsandi fólk tekur
tveim höndum.
heioi oo jorg zink
BÖRNIN
OKKAR
UTUR SIGURVEGARAR
Börnin okkar - litlir sigur-
vegarar eftir Heidi og Jörg
Zink í þýðingu Maríu Eiríks-
dóttur kennara. Jörg Zink er
kunnur rithöfundur og sjón-
varpsprestur í heimalandi sínu
og hafa bcekur hans talist til met-
sölubóka síðustu ára. Hörður
Zophaníasson skólastjóri skrifar
formála fyrir bókinni. Það er
óhcett að hvetja alla, sem um
uppeldismál hugsa að kynna sér
þessa bók.