Þjóðviljinn - 24.01.1978, Qupperneq 3
Þriðjudagur 24. janúar 1978. ‘ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Begin ásakar Egypta um
andgydinglegan áróöur
JERUSALEM, 23/1 Reuter —
Begin forsætisráðherra tsraels
ásakaði I dag egypska fjölmiðla
um að reka andgyðinglega her-
ferð og hann sagði, að það væri
,,til einskis og niðurlægjandi” að
taka upp friðarviðræður á ný i
sliku andrúmslofti. En hann lét I
ljós þá von, að egypska stjórnin
mundi „á næstu dögum” þagga
niður i þessum andgyðinglega
áróðri og skapa betra andrúms-
loft fyrir viðræður.
Begin sagði þetta er hann
ávarpaði Israelsþing til aö lýsa
stöðunni i friðarsamningunum,
eftir að fundur utanrfkisráðherra
tsraels og Egyptalands leystist
upp i siðustu viku.
Einkum réðst hann á egypska
dagblaðið A1 Akhbar fyrir aö tala
um hann sem „Shylock”. Hann
vitnaði einnig i aðrar greinar i
egypskum blöðum, t.d. i grein i
Al-Ahram þar sem sagði: „Gyð-
ingurinn prúttar jafnvel við engil
dauðans.”
Begin lýsti þvi yfir, að þetta
væru ekki aðeins alræmdar and-
gyðinglegar setningar, heldur
endurtekning á þvi sem Gyðingar
hefðu mátt lesa i Die Stiirmer,
dagblaði nasista. t sliku and-
riimslofti haturs gegn þjóð Gyð-
inga og riki þeirra væri það niður-
lægjandi og til einskis fyrir sendi-
nefnd tsraels að fara tíl Kairo til
að taka þátt i fundum hermála-
nefndarinnar.
Egyptar hafa samþykkt að
fundur hermálanefndarinnar i
Kairo haldi áfram. En tsraelar
hafa hingað til neitað að senda
varnarmálaráðherrann Ezer
Weizman þangað.
Bresjnef
Bresnef:
Varar við
nifteinda-
Allt bendir tíl
sjálfemorða
segja sérfrœðingar um lát Baader,
Jan Carl Raspe og Gudrun Ensslin
STUTTGART, 12/1 Reuter —
Tveir sérfræðingar i réttar-
læknisfræði frá Belgiu og Sviss,
sögðu i dag að öll læknisfræðileg
sönnunargögn bentu til þess, aö
hinir þrir leiðtogar Baader-Mein-
hof borgarskæruliðanna hafi
framið sjálfsmorð i fangaklefum
sinum i október sl.
Sérfræðingarnir tveir, Armand
Andre frá Liege i Belgiu og
Hans-Peter Hartmann frá Zurich
i Sviss, sem framkvæmdu lik-
skoðun á skæruliðunum i boði
vesturþýskra stjórnvalda, báru
vitni fyrir rannsóknarnefnd
þingsins i Baden-Wutrttemberg.
Báðir sögðu þeir að ekkert
styddi þá ásökun sumra stuðn-
ingsmanna hópsins að Andreas
Baader, Jan Carl Raspe og Gud-
run Ensslin hefðu verið myrt i
Stammheim-fangelsinu I Stutt-
gart.
Vesturþýski sjúkdóma-
fræðingurinn Joachim Rauschke
sagði rannsóknarnefndinni að
hann áliti að fjórði skæruliðinn,
Irmgard Möller, hefði lika gert
tilraun til sjálfsmorðs.
Opinberir embættismenn hafa
haldið þvi fram, að fjórmenn-
ingarnir hafi ákveöið að fremja
sjálfsmorð stuttu eftir að þau
komust á snoöir um að vestur-
Fundur Vesturlanda um
stríðið Eþíópa og Sómala
WASHINGTON 20/1 Reuter —
Fimm áhrifamestu ríki Vestur-
landa, Bandarikin, Bretland,
Frakkland, Vestur-Þýskaland og
Italia, munu halda fund með sér i
Washington i næstu viku og ræða
striöið milli Eþiópiu og Sómali-
lands, að sögn sendiráðsmanna.
Talið er að rikin muni senda að-
stoðarutanrikisráðherra sina á
fundinn.
Sómalir hafa snúið sér til þess-
ara rikja og beðið þau um vopn, ,
en þau hafa neitað þeim tilmæl-
um til þessa. Vaknar þvi sú
spurning hvort umræddur fundur
marki einhverja breytingu á
þeirri afstöðu rikjanna.
Auglýsiö 1
Þjóöviljanum
þýskir hermenn höfðu bjargað
áhöfn og farþegum Luft-
hansa-f lugvélar á Moga-
dishu-flugvelli i Sómaliu 18. októ-
ber sl. en flugvélarræningjarnir
gerðu kröfu um að þau yrðu látin
laus úr fangelsinu.
Fyrir viku neitaði Möller við
yfirheyrslu fyrir þingnefndinni,
að hún og hinir fangarnir þrir
hefðu reynt að fremja sjálfsmorð.
Hún hefur höföaö mál á hendur
„óþekktum persónum”, sem hún
sakarum tilraun til að myrða sig.
sprengju i
V-Evrópu
LONDON 23/1 Reuter — James
Callaghan forsætisráöherra
Breta mun bráðlega svara bréfi
Leonids Bresjnefs forseta Sovét-
rikjanna. 1 bréfinu varar Bresj-
nef vestræna leiðtoga við að taka
nifteindasprengjuna i notkun á
vegum Nato i Vestur-Evrópu.
Cailaghan barst bréfið fyrr i
mánuðinum. Helmut Schmidt
kanslari V-Þýskalands mun einn-
ig hafa fengið bréf þetta ásamt
nokkrum öðrum leiötogum
Nató-rik ja.
Bretland, ásamt öörum
evrópskum bandamönnum
Bandarikjanna, á eftir að taka
ákvörðun um þaö, hvort Nató
skuli leyft að hafa nifteinda-
sprengjur i Vestur-Evrópu. Málið
er til athugunar hjá ráðherrum
Natórikjanna fimmtán.
Sendiherra V-Þýskalands
var rekinn frá Eþiópiu
NAIROBI 23/1 Reuter —- Sendi-
herra Vestur-Þýskalands i
Eþiópiu fór í dag frá Addis Ababa
áleiðis heim til Þýskalands en
stjórnin i Eþiópiu hafði rekið
hann úr landi. Talsmaður vestur
þýska sendiráðsins i Addis sagði
að sendiherrann, dr. Johann
Christian Lankes, færi til Bonn til
skrafs og ráðagerða vegna brott-
rekstursins.
Ákvörðun um brottrekstur
sendiherrans var tekinn eftir að
Marie Schlei, efnahagssamvinnu-
ráöherra Vestur-Þýskalands, til-
kynnti á laugardaginn að stjórnin
i Bonn hefði ákveðið að láta
Sómaliumönnum I té 25 miljón
mörk I efnahagsaðstoð, án nokk-
urra skilyrða.
Vestur-þýskir fjölmiðlar hafa
rætt um það, að Sómaliustjórn
gæti notað þessa fjármuni til
vopnakaupa. Sómaliustjórn hefur
mikla þörf fyrir vopn handa þeim
hersveitum, sem hafa barist við
Eþi'ópiumenn um yfirráð Ogad-
en-eyðimerkurinnar sl. sex mán-
uði.
Þetta er i annað skiptið á einni
viku sem vestur-þýskur sendifull
trúi er rekinn frá Addis Ababa.
Hermálafulltrúa sendiráðsins var
vikið úr landi á þriðjudaginn.
Fyrr i þessum mánuði var
vestur-þýski skólinn i Addis
Ababa hertekinn af Eþiópiu-
mönnum og starfsliö hans rekið
út.
Vestur-Þýskaland hefur reynt
að sýna óhlutdrægni i deilum
Afrikurikja, en vilja nú launa
Sómalfumönnum góða samvinnu
i október sl„ er gislarnir i Luft-
hansavélinni voru frelsaðir á
M ogadis huf lug velli.
-------------------x
Útbreiddasta
uppsláttar-
bókin
ÍSLENSK FYRIRTÆKI er
útbreiddasta tyrirtækjaskrá
landsins, innanlands og utan.
Hún er notuð af stjórnendum og
starfsmönnum fyrirtækja og
öörum sem þurfa að hafa
aðgang að itarlegum og
aðgengilegum upplýsingum
þegar þess gerist þörf
Sláið upp í
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
og finnið svarið.
ISLENSK
FYRIRTÆKI
Ármúla 18.
Símar 82300 og 82302
^_________________J
ÉT~—---——————
TÍZKUBLAÐIÐ Uf
er nær uppselt hjá útgefanda
Örfá eintök eftir sem aðeins verða send til nýrra áskrifenda.
Tízkublaðið Lff þakkar frábærar móttökur og minnir á að blaðið kemur út annan
hvern mánuð.
Til tizkublaðsins Lif Armúla 18
Öská eftir áskrift
1 — 6 frbl. 1978 kr. 2970
2—6 tbl. 1978 kr. 2475
■1----------------
I
j Nafn: __________
I
I-----------------
I
| Heimilisfang:
simi:
TÍ7KTTRLAÐTÐ LÍF — SÍMI 82300