Þjóðviljinn - 24.01.1978, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 24. janúar 1978. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Meöal efnis á Kvöldvökunni:
Þorrablót
í Suðursveit árið 1915
útvarp
Á kvöldvökunni, sem hefst kl.
nfu i kvöld, kennir margra
grasa. Sigurður Björnsson
syngur einsöng, Sigurður ó.
Pálsson skölastjóri les kvæði al-
þýðuskálda á Héraði, Guð-
mundur Þorsteinsson frá Lundi
flytur ferðasögu og Liljukórinn
syngur islensk þjóðlög. Tveir
dagskrárliðir kvöldvökunnar
eru tengdir þorranum. Halldór
Pétursson flytur þátt sem hann
nefnir: Þorranafnið — hvernig
komst það á, og Steinþór
Þórðarson á Hala segir frá
Þorrablóti i Suðursveit 1915.
t bók sinni, „Saga daganna”,
segir Arni Björnsson þjóWiátta-
fræðingur m.a. um þorrann:
„Hann er fjórði mánuður
vetrar að fornislensku tímatali
og hefst með föstudegi I 13. viku
vetrar (19.-25. janúar). Nafnið
kemur fyrst fyrir i Staðarhóls-
bók Grágásar frá 13. öld, en er
einnig i Snorra-Eddu, þar sem
nöfn mánaðanna eru talin upp.
Margir hinna gömlu mánaða
báru fleiri en eitt heiti, en þorri
virðist ekki hafa átt sér neinn
slikan keppinaut.
Svo er að sjá sem það hafi
verið ævagömul venja að hafa
einhvern mannfagnað á heimil-
um fyrsta dag þorra og heilsa
honum með virktum.
Jón Arnason nefnir, að mann-
fagnaður á fyrsta degi þorra
værikallaður þorrablót.Það orð
kemur að fornu aðeins fyrir i
Flateyjarbók seint á 14. öld, þar
sem segir frá fornkonunginum
Þorra! sem var blótmaður mik-
ill og hafði hvert ár blót að miðj-
um vetri. Það kölluðu þeir
Þorrablót. Dóttir Þorra hét
Góa, en annað kóngafólk, sem
fyrir kemur i þessari frásögn,
heitir t.d. Ægir, Logi, Kári,
Frosti og Snær. Ljóst má þvi
vera, að hér eru höfuðskepnurn-
ar og önnur náttúrufyrirbæri
persónugerð. I þvi samfloti sýn-
- ist eðlilegast að lita á Þorra sem
einskonar vetrarvætti eða
veðurguð.
í tengslum við rómantíkina og
sjálfstæðisbaráttuna á 19. öld
virðist sú hugmynd hafa kvikn-
að að efna til þorrablóta „að
fornum sið”. Hafnarstúdentar
sýnast hafa riðið á vaðið eins og
á mörgum öðrum sviðum, og
fyrsta þorrablót i nýjum sið,
sem vitað er um, er haldið i
Kaupmannahöfn 24. janúar
1873.
Næstir taka Akureyringar
upp siðinn á þjóðhátiðarárinu
1874, og virðist hann hafa hald-
istþaróslitið siðan. 1 Reykjavik
sést hinsvegar ekki getið um
þorrablót fyrr en 1880, og er það
á vegum Fornleifafélagsins,
sem þá var nýstofnað. Sumir
guðhræddir menn höfðu horn I
siðu blótanna, og viröist þráöur-
inn hafa verið eitthvað slitrótt-
ari i Reykjavik en á Akureyri.
Á blótum þessum var reynt að
skreyta salarkynnin eftir þeim
hugmyndum sem menn höfðu
um veisluskála fornmanna meö
öndvegissúlur og langelda á
gólfi en skjaldarmerki á veggj-
um. Menn mæltu fyrir, signdu
og drukku full ása og ásynja auk
fósturjarðarinnar og merkra
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 Og
9.05. Fréttir kl. 7.30,8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Þórhallur Sigurðsson
byrjar að lesa söguna „Max
bragðaref” eftir Sven
Wernström i þýðingu Krist-
jáns Guðlaugssonar. Til-
kynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl.9.45. Léttlög milli
atriða. Hin gömlu kynni kl.
10.25: Valborg Bentsdóttir
sérum þáttinn. Morguntón-
leikar kl. 11.00: Henryk
Szeryng og Sinfóniuhljóm-
sveitin I Bamberg leika
Fiðlukonsert nr. 2 i d-moll
op. 22 eftir Henryk Wienia-
wski: Jan Krenz stj. / Fil-
harmoniusveitin I Varsjá
leikur Hljómsveitarkonsert
eftir Witold Lutoslawski:
Witold Rowicki stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna :
Tónleikar.
14.30 Umbælur i húsnæbis-
málum og starfsemi á veg-
um Reykjavíkurborgar
Þáttur um málefni aldraðra
og sjúkra. Umsjón: ólafur
Geirsson.
15.00 Miðdegistónleikar
Yehudi Menuhin, Robert
Masers, Ernst Wallfisch,
Cecil Aronowitz, Maurice
Gendron og Derek Simpson
leika Strengjasextett nr. 2 i
G-dúr op. 36 eftir Brahms.
Benny Goodman og Sinfón-
iuhljómsveitin i Chicago
leika Klarinettukonsert nr.
1 i f-moll op. 73 eftir Weber:
Jean.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.30 Litli barnatiminn Guð-
rún Guðlaugsdóttir sér um
timann.
17.50 Að tafli Guömundur
Arnlaugsson flytur skák-
þátt.
18.20 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
19.35 Molar á borði framtíðar
Séra Arellus Nielsson flytur
erindi um auðlindir Is-
lenskra eyöibyggða.
20.00 Strengjakvartett i
Es-dúr opl 97 eftir Antonin
Dvorák Dvorák-kvartettinn
leikur
Steinþór Þórðarson á Hala segir
frá þorrablóti árið 1915.
samtiðarmanna. Einkum hafa
menn þó drukkiö minni
Asa-Þórs, enda var vinsæl sú
skýringartilraun á nafninu
þorri, að þaö væri gælunafn á
Þór.
Úti i sveitum munu þorrablót
hefjast austur á Fljótsdalshér-
aði 1896 eða 1897, síðan I Eyja-
firði laust eftir aldamót. Smám
saman breiðist siðurinn út um
landið austanvert, en virðist
varla stinga sér niður vestan-
lands fyrr en upp úr 1920. Þó er
óviða um árvissan atburð að
ræða.
Milli 1940-50 taka sum átt-
hagafélög i Reykjavik aö halda
þorrablót, og hafa Eyfiröingar
liklega verið fyrstir til þess. En
það er naumast fyrr en um 1960,
sem þorrablót fara að verða
sjálfsögð athöfni hverri sveit og
kaupstað. Þá kemur og til sög-
unnar orðið þorramatur, sem
a.m.k. mun ekki hafa sést á
prenti fyrr en 1958.”
20.30 Útvarpssagan: „Sagan
af Dafnis og Klói” efUr
Longus Friðrik Þórðarson
þýddi. Óskar Halldórsson
les (4).
21.00 Kvöldvaka
aEinsöngiir:
Sigurður Björnsson syngur
lagaflokkinn „1 lundi ljóðs
og hljóma” eftir Sigurð
Þórðarson við ljóð eftir Da-
viö Stefánsson frá Fagra-
skógi. Guðrún Kristinsdóttir
leikur undir á pianó. b.
Þorranafnið, — hvernig
komst það á? Halldór Pét-
ursson segir frá. c. Þorra-
blót I Suðursveit 1915Stein-
þór Þóröarson á Hala rif jar
upp gaman á góðri stund. d.
Alþýðuskáld á Héraði Sig-
urður ó. Pálsson skólastjóri
les kvæði og segir frá höf-
undum þeirra. e. 1 gegnum
öræfin Guðmundur Þor-
steinsson frá Lundi flytur
ferðasögu frá 1943. f. Kór-
söngur: Liljukórinn syngur
islensk þjóðlög i útsetningu
Jóns Þórarinssonar. Söng-
stjóri: Jón Asgeirsson.
22.20 Lestur Passiusálma (2).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Harmonikulög Kvartett
Karls Grönstedts leikur
23.00 A hIjóðbergi„An Enemy
of Ihe People”, Þjóöniðing-
ur, eftir Henrik Ibsen I leik-
gerð Arthurs Miller. Leik-
arar Lincoln Center leik-
hússins flytja undir stjórn
Jules Irving. Seinni hluti.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Flugsýning i Frakklandi
(L) Sænsk mynd frá
flugsýningu, sem haldin
var á Le Bourget-flugvelli i
fyrrasumar. Sýndar eru
ýmsar tegundir flugvéla,
bæði til hernaðar og
almennra nota. Einnig er
lýst framförum á sviði flug-
og geimtækjabúnaðar. Þýð-
andi og þulur ómar Ragn-
arsson. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið)
21.00 Sjónhending. Erlendar
myndir og málefni.
Umsjónarmaður Sonja
Diego.
21.20 Sautján svipmyndir að
vori. Sovéskur njósna-
myndaflokkur. 10. þáttur.
Efni niunda þáttar:
Pleischner lendir I höndum
Gestapomanna I Bern og
styttir sér aldur. Möller
handtekur Stierlitz. Ket er
sagt, að hún eigi aðeins um
tvennt að velja, annað hvort
segi hún allt af létta um
starfsemi Stierlitz eöa barn-
ið verði tekið af llfi. Helmut,
sem litið hefur eftir barn-
inu, siðan Ket var handtek-
in, þolir ekki að horfa upp á
þaö tekið af lifi og skýtur
SS-manninn, sem stjórnaði
yfirheyrslunum. Þýðandi
Hallveig Thorlacius.
22.25 Dagskrárlok
Leiklistarkennsla
fyrir börn og unglinga
hefst fimmtudaginn 2. febr. 1978 að Fri-
kirkjuvegi 11: upplýsingar gefa Kjuregej
Alexsandra og Sigriður Eyþórsdóttir i
simum 32296 og 29445
Frá
Alliance francaise
i kvöld kl. 20.30 verður kynning á verkum
Boris Vian i Franska bókasafninu Laufás-
veg 12, fyrirlesturinn er á islensku og
öllum heimill aðgangur.
Stjórn Alliance Francaisc
LAN
úr Lifeyrissjóði ASB og BSFÍ
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita lán
úr sjóðnum til sjóðfélaga.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. febrúar
1978.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrif-
stofunni Laugavegi 77 kl. 12-15. Simi 28933.
HELLUVER
Milliveggjaplötur, 5 og 7 centimetra.
Simi 33 5 45