Þjóðviljinn - 24.01.1978, Side 5
Þriðjudagur 24. janúar 1978. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA S
Náttúruverndarráö andvígt virkjun Fjallfoss
STEFNIR AÐ FRIÐUN FOSSINS
Náttúruverndarráð hefur lýst
sig andvigt virkjun Dynjandisár
úr Eyjavatni i Dynjandisvog i
Arnarfirði, vegna þess gildis sem
Fjallfoss og umhverfi hans hefur
fyrir landsmenn og Vestfirðinga
sérstaklega.
I greinargerð um afstöðu ráðs-
ins segir svo um gildi fossins:
„Það mun samdóma álit
manna, að Fjallfoss sé einn af
5—10 fegurstu fossum á íslandi.
Myndir af honum hafa viða birst
og frægð hans flogið með þeim.
Fossaröðin, (Fjallfoss, Hunda-
foss, Strokkur, Göngumannafoss,
Hrisvaðsfoss og Sjóarfoss) i
Dynjandi er ein hin sérkennileg-
asta og tilkomumesta sem þekk-
ist á blágrýtissvæðum landsins .
Útsýni til fossins fyrir botni Dynj-
andisvogs af þjóðleiðinni norðan
Arnarfjarðar gerir hann að eftir-
minnilegu náttúrufyrirbæri
hverjum þeim sem þá leið fara.
Fagurt umhverfi hans eykur enn
á reisn fossins. Hugsanleg skerð-
ing þessa vatnsfalls og umhverfis
hans er þvi augljóslega mikið tjón
fyrir alla sem unna náttúru
landsins og þeim dýrgripum sem
hún geymir.
Vestfirðingar hafa löngum litið
á Fjallfoss sem eitt merkilegasta
og fegursta náttúruvætti sins
landshluta og var hann strax sett-
ur á náttúruminjaskrá m.a. að
beiðni þeirra.
Gildi fossins er þannig fyrst og
fremst fegurðargildi fyrir landið
i heild og fyrir Vestfirði sérstak-
lega. Hann er i tölu ómælanlegra
þjóðarverðmæta með svipuðum
hætti og helgustu söguslóðir
landsins, listaverk okkar mestu
snillinga i myndlistum og bók-
menntum og þær byggingar sem
öðlast hafa þann sess í sögu þjóð-
arinnar að við viljum ekki án
vera.
Skerðing hans yrði þvi spjöll á
helgi landsins og óbætanlegt tjón.
Þjóðin verður að hafa efni á þvi
að eiga slik verðmæti óskemmd,
þótt fjárhagslegur ávinningur
kunni að vera i boði”.
I niðurstöðum greinargerðar
Náttúruverndarráðs segir, að
Fjallfoss sé einn af fegurstu og
best þekktu einkennum islenskr-
ar náttúru. Slika staði muni Nátt-
úruverndarráð reyna að vernda i
lengstu lög og telji ekki rétt að
fórna nema brýn nauðsyn eða öllu
heldur neyð komi til og engir aðr-
ir viðunandi kostir séu fyrir
hendi.
Þá segir, að i umræðum um
málið hafi það verið upplýst að á-
ætlaður stofnkostnaður á aflein-
ingu og framleiðslukostnaði orku
frá umræddri virkjun sé hár mið-
að við ýmsa aðra kosti til virkjun-
ar i landinu. Jafnframt sé talið
fljótvirkara og fullt eins öruggt að
útvega Vestfirðingafjórðungi raf-
orku með öðrum hætti, þ.e. teng-
ingu við landskerfið með linu frá
Hrútafirði til orkuveitusvæðis
Mjólkárvirkjunar.
Náttúruverndarráð telur full-
vist, að heimamenn hafi ekkert
kapp lagt á að fá þessa virkjun og
segir, að flestir sem hafi tjáð sig
um málið hafi talið óhæft að taka
fossinn til virkjunar.
I greinargerð ráðsins segir að
lokum, að Náttúruverndarráð
telji að verndargildi Fjallfoss og
þýðing hans sem náttúruvættis sé
meiri en hugsanlegur efnahags-
legur ávinningur af yirkjun hans.
Telur ráðið að Islendingar hljóti
að hafa efni á að friða hann og
leggja hann i hendur afkomend-
um til ráðstöfunar i samræmi við
þá lifsskoðun eða þá nauðsyn sem
siðar kann að rikja. Fyrir sitt
leyti stefni Náttúruverndarráð að
friðun fossins.
—eös
Fjallfoss í Dynjandi — „Þjóöin
verður að hafa efni á þvi að eiga
slík verðmæti óskemmd, þótt
fjárhagslegur ávinningur kunni
að vera i boði”.
Ný Sam-
bands-
verk-
smidja
Um siðastliðin áramót urðu eft-
irfarandi skipulagsbreytingar hjá
Iðnaðardeild Sambandsins á
Akureyri:
Bergþór Konráðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri, mun fram-
vegis hafa með höndum yfirstjórn
sölumála á vegum verksmiðja
Iðnaðardeildar. Frá sama tima
mun Jón Arnþórsson, sem verið
hefur sölustjóri útflutnings, taka
við nýju starfi hjá deildinni.
Iðnaðardeildin vill leggja sér-
staka áherslu á mikilvægi þess,
að nýta sem hægt er fullsútuð
,,mokka”-lambskinn frá skinna-
verksmiðjunni Iðunni, til fata-
gerðar fyrir innanlandsmarkað
og útflutning. Af þvi tilefni hefur
verið ákveðið að stofna sjálfstæða
verksmiþju, sem i byrjun verður
að uppistöðu til fyrri skinnadeild
Heklu.
Verksmiðjustjóri verður Jón
Arnþórsson og mun hann sjá um
daglega framkvæmdastjórn hins
nýja fyrirtækis.
—mhg
Pípulagnir
Nýlagnir/ breyting
ar, hitaveitutenging-
ar.
Sími 36929 (milli kl.
12 og 1 og ettir kl. 7 á
kvöldin)
JÖFUR
HF.
AUÓBREKKU 44-4Í - KÓPAVOGI - SÍMI 42ÓCX3
SKODA AMIGO 120 L kostar nú aðeins kr. 1.095.000-
AMIGO Vegna sölumets á síöasta ári,náðust samningar viö söluaöila
um sérstaklega lágt veró á takmörkuðum fjölda bíla.
Næsta sending hækkar verulega.
AMIGO 5 manna — 4ra dyra.
AMIGO Sparar yóur tugÞúsundir árlega.
(Bensíneyósla aóeins7,6á100km.)
það er góð fjárfesting að panta sér AMIGO strax
---því ekki er vitað, hversu lengi okkur tekst, að halda veröbólgunni í skefjum-
V
10 102 J