Þjóðviljinn - 24.01.1978, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 24. janúar 1978.
Skipstjóra-
og
stýrimannafélagið
Aldan
Aðalfundur
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins öld-
unnar, verður haldinn n.k. sunnudag, 29.
janúar kl. 14.00 að Hótel Loftleiðum,
Kristalssal.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Stjórnin
Félag
járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 25. janúar
1978 kl. 8.30 e.h. i Lindarbæ, niðri.
Dagskrá
1. Félagsmál.
2. önnur mál.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
HÚSAVIÐGERÐIR
Tökum aðokkur viðhald á húseignum, svo sem járnklæðn-
ingar, gluggaviðgerðir, þéttingar og viðgerðir á stein-
steyptum þakrennum o.fl. Erum umboðsmenn fyrir þétti-
efni á steinþök, asbest þök og þéttiefni I steinsprungur. Við
gerum bindandi tilboð 1 verkefnin. Hagstæðir greiðsluskil-
málar. Verkpantanir i sima 41070.
Frá
/
Fósturfélagi Islands
Atkvæðagreiðsla um breytt starfsheiti
verður föstudaginn 27. janúar og laugar-
daginn 28. janúar nk. á skrifstofu Fóstur-
félagsins að Hverfisgötu 26. Fyrri daginn
verður kosið frá kl. 16-19 en þann siðari frá
kl. 14-18. Á kjörskrá eru aðeins þær fóstrur
sem greitt höfðu ársgjald sitt fyrir árið
1977 á tilskildum tima. Kjörskrá liggur
frammi á skrifstofu félagsins á skrifstofu-
tima. Talning atkvæða fer fram laugar-
daginn 4. febrúar.
Takið afstöðu og kjósið snemma!
Kjörstjórn
nfjÁ lögfræðinga telja
LjCX, IIU fram fyrir yður.
Lögmenn Grettisgötu 8.
Jón Magnússon,
Siguröur Sigurjónsson
Simar: 24940 og 17840.
Togarinn væntanleg-
ur um mánaðamótin
Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Laust fyrir siðustu helgi hafði
Landpóstur tal af Kristni
Jóhannssyni, fréttaritara Þjóð-
viljans á Skagaströnd, og innti
hann almæltra tiðinda þaöan úr
þorpinu. Hafði Kristinn m.a.
þetta að segja:
Saumastofa
Svo bar til tíðinda fyrir jólin,
að stofnuð var ný saumastofa.
Hér var raunar áður rekin
saumastofa af Björgvin Jóns-
syni og konu hans. En svo hættu
þau rekstrinum og seldu. Nýtt
hlutafélag var stofnað, keypti
það saumastofuna og hefur rek-
ið hana siðan. Ég held að sá
rekstur hafi gengið alveg
þokkalega,þótt vera megi að við
einhverja byrjunarerfiðleika sé
að etja, eins og gengur. Heima-
menn eru alveg einir með þenn-
an rekstur, en Álafoss annast
sölu vörunnar.
Gatnagerð
Gatnagerð hefur verið i full-
um gangi hjá okkur. Við undir-
byggðum mikið af götum i
sumar, erum búnir að kaupa á
þær oliumöl sunnan af Suður-
nesjum og fáum hana væntan-
lega i þessum mánuði eða
næsta. Ætlunin er svo að leggja
hana á göturnar i vor, og er þvi
verður bkið þá verðum við bUn-
ir að leggja varanlegt slitlag á
svona 3/4 af gatnakerfinu i bæn-
um.
Byggt við
barnaskólahúsið
Svo var byrjað á viðbyggingu
við barnaskólann i haust. Var
þá grafið fyrir byggingunni og
steyptur sökkull. Er svo ráð
fyrir gert, að þessi bygging
standi yfir i fjögur ár. Ég
veit nú ekki hvort fjár-
veitingin nægir til þess
að gera húsið- fokhelt i
sumar, en æskilegt væri aö þaö
reyndist unnt. Það hafa verið
mjög bagaleg þrengsli i barna-
skólanum. Við höfum verið i
vandræðum með 8. og 9. bekk-
inn. En þegar þessi viðbygging
erkom inupp.þá höfum við feng-
ið aðstöðu fyrir grunnskólann.
Frá UMF
Reykdæla
Yfir standa nú, hjá ung-
mennafélagi Reykdæla, æfingar
á leikriti Jökuls Jakobssonar,
Klukkustrengjum. Guðrún Al-
freðsdóttir annast leikstjórn.
Leikendur eru átta. Að því er
stefnt, að sýningar á leikritinu
geti hafist um næstu mánaða-
mót og verður þá sýnt I félags-
heimilinu Logalandi.
Formaður Ungmennafélags
Reykdæla er nú Kristófer
Kristinsson, kennari i
Reykholti.
—mhg
Togarinn
Togarinn okkar aflaði rúm 3
þús. tonn á árinu. En svo forfall-
aðist hann, eins og kunnugt er,
um miðjan október, og hefur
verið frá veiðum siðan. Hann
fór fyrst I slipp i mán-
aðarklössun og siðan, er
henni var lokið, kvikn-
aði i honum. Við vonumst
til að hann komi úr viðgerðinni
nú um næstu mánaðamót,en þá
er hann búinn að vera úr leik i
fjóra og hálfan mánuð. Af þess-
um sökum hefur að sjálfsögðu
verið atvinnuleysi hjá frysti-
hUsafólkinu; þaö hafði ekki að
öðru að hverfa.
Rækjan
Rækjuveiðarnar eru hér i' full-
um gangi. Eru þaðfimm bátar,
sem stunda þær. Heildarkvót-
inn, sem veiða má hér i Flóan-
um, er 2000 tonn og af honum
höfum við heimild til að veiða
22%. Þetta er ágæt rækja, sem
veiðst hefur. Bátarnir voru bún-
ir að afla um 150 tonn um ára-
mót eða nálægt þriðjung af þvi,
sem við megum veiða.
Ibúðabyggingar
Á siðastliðnuárivorubyggðar
hér fjórar leiguibúðir. Búið er
að selja þrjár þeirra, en
hreppurinn á eina. Flutt hefur
verið i þær allar. Meiningin er
að byrja næst á öðrum fjórum,
helst i vor. Og svo var i haust
byrjað á byggingu ibúða fyrir
aldraða, og hafa fjórar nú verið
gerðar fokheldar. Reynt verður
að þoka þvi verki áfram. Þetta
eru 60 ferm. ibúðir. kj/mhg
Takmarkadar birgöir
nautgripakjöts
A siðastliðnu ári var minna
framboð á nautakjöti en undan-
farin ár og birgðir oft verið i
lágmarki. 1 ársbyrjun 1977
voru til í landinu 1100 lestir af
nautgripakjöti. Salan reyndist
vera um 200 lestir á mánuöi. I
byrjundesember vorubirgöir af
nautgripakjöti 540 lestir, en á
þær gekk að sjálfsögðu i mán-
uðinum. Telja má trúlegt, að
eftirspurn geti orðið nokkru
meira en framboðið, einkum á
ungnautakjöti.
(Heimild: Uppl. þjón. landb.).
—mhg
L
Frá UMF Staf-
holtstungna
1 nóvembermánuði s.l. var á
vegum leikdeildar Ungmenna-
félags Stafholtstungna haldið
leiklistamámskeið. Leiðbein-
endur voru Arnhildur Jónsdóttir
sem m.a. hefur starfað með
Leikfélagi Reykjavikur og
Kópavogs og Kári Halldórsson,
sem kenndi við Leiklistarskóla
rikisins á s.l. ári.
A námskeiðinu var m.a. notað
sem kennsluverkefni einþátt-
ungur eftir Dario Fo. „Nakinn
maður og annar i kjólfötum”.
Breyta þurfti ýmissi stllfærslu á
þessu verki, þar sem karlahlut-
verk eru fleiri, en á námskeið-
inuvorukonurhinsvegari meiri
hluta. Var þvi karl- og kvenhlut-
verkum vixlað og nutu þátttak-
endur við það aðstoðar Kára.
tframhaldiaf þessuhefur svo
leikdeildin haldið áfram æfing-
um á þessum einþáttungi. Auk
þess hafa þeir einnig æft annan
einþáttung, eftir rússann Anton
Tjeckof. Verk þetta er nú
endurþýtt, en hefur áöur gengið
undir nöfnunum „Bónin” og
„Björninn”.
Leikstjóri við uppsetningu
þessara verka er Guðmundur
Magnússon, en æfingar hafa
verið i félagsheimili Bandalags
starfsmanna rikis og bæja i
Munaðarnesi.
Að þvl hefur verið stefnt að
sýningar hefjist i janúar .
Formaður leikdeildarinnar er
Erla Kristjánsdóttir, en þátt-
taka i deildinni er ekki bundin
við aðild að Ungmennafélagi
Stafholtstungna.
—mhg
Umsjón: Magnús H. Gislason