Þjóðviljinn - 11.02.1978, Síða 1

Þjóðviljinn - 11.02.1978, Síða 1
MOWIUINN F uUtrúaráðsfundur Fundur verður haldinn i fulltrúaráði Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik fimmtudaginn 16. febrúar. Hefst fundurinn kl. 20.30 i Tjarnarbúð Dagskrá: Skýrt frá störfum kjörnefndar vegna framboðs til borgarstjórnar. — Kosin kjörnefnd vegna framboðs til alþingis. — önn- ur mál. — Stjórnin. Laugardagur 11. febrúar 1978—43. árg. 35. tbl. Verkalýössamtökin svara kaupránsfrumvarpinu: Uppsögn kjarasamninga fynr 1. mars segir í ályktun miöstjórnar ASÍ. BSRB og ASÍ lýsayfir aö samtökin munu hafa samstarf og samráö Miðstjórn Alþýðusambands ts- lands og stjórn Bandalags starfs- manna rikis og bæja sendu frá sér i gær harðorðar yfirlýsingar vegna kaupránsfrumvarps rikis- stjórnarinnar. Þjóðviljinn birtir þessar yfirlýsingar I heild á 3. siðu. Uppsögn kaupliða allra kjarasamninga t ályktun miðstjórnar Alþýðu- sambands tslands er fjallað almennt um ráðstafanir rikis- stjórnarinnar, en siðan segir: „Við þær aðstæður sem nú hafa skapast eiga verkalýðssamtökin þann kost einan að hefja nú þegar öflugan undirbúning baráttu fyrir rétti sinum og hagsmunum, fyrir fullu eildi kiarasamninga sinna. Sem fyrsta skref i þá átt ber þeg- ar í stað að segja upp kaupliðum allra kjarasamninga frá 22.6.’77 Lúövík Jósepsson á alþingi i gœr: 10—12% kjaraskeiðing Kaupránsfrumvarp ríkis- stjórnarinnar kom til meðferðar á alþingi i gær. Lúðvik Jósepsson formaður Alþýðubandalagsin flutti yfirgripsmikla ræðu þar sem hann gagnrýndi stefnu rikis- stjórnarinnar i efnahagsmálum og sagði að kaupránsfrumvarpið heföi i för með sér 11% kjara- skerðingu frá þvi sem kjara- samningarnir frá siðasta ári gerðu ráð fyrir. Nánar segir frá ræðu Lúðviks Jósepssonar á þingsiöunni, siðu 6. Fundir stóðu á aiþingi fram á nótt og var fjallað um frumvarp- ið. Lúðvik Jósepsson og beinir miðstjórnin þvi til allra sambandsfélaga sinna að bregða skjótt við og ganga frá uppsögn- inni svo snemma að hún verði alls staðar tilkynnt fyrir 1. mars. Um allar frekari aðgerðir I þeirri baráttu sem nú er óhjákvæmileg mun miðstjórnin beita sér fyrir nauðsynlegu samráði við og milli aðildarsamtakanna og við Bandalag starfsmanna rikis og bæja”. bá lýsir miðstjórnin þvi yfir að félagsmenn I verkalýðs- félögunum séu óbundnir af þeim ólögum sem rikisvaldið hyggst setja. Allsherjarbarátta Stjórn BSRB lýsir þvi yfir að „samtök launafólks eigi þann kost einan að hefja nú þegar und- irbúning allsherjarkjarabaráttu fyrir varðveislu grundvallarrétt- ar sins og tilveru samtakanna. Stjórn bandalagsins ákveður að leita samráðs við Alþýðusam- band íslands i þessu stórmáli. Stjórn BSRB lýsir stuðningi við þá ákvörðun formanns banda- lagsins að kalla saman for- mannaráðstefnu BSRB þegar i byrjun næstu viku til þess að fjalla um viðbrögð samtakanna við þeim samningsrofum, sem verið er aö undirbúa af hálfu stjórnvalda”. Kjararánsfrumvarp rikis- stjórnarinnar hefur kallað fram þau viðbrögð af hálfu verkalýðs- samtakanna sem við er að búast: Miðstjórn ASt hvetur til aðgerða og uppsagnar kaupliða allra kjarasamninga fyrir 1. mars og stjórn BSRB hvetur til aðgerða. Stjórnir beggja samtakanna lýsa þvi yfir að þau muni hafa sam- starf og samráö um aögerðir. ÓVICKntWUDI UHFERtl UGVÉLA-STÆÐIC BDNNU Jón Sólncs fiaug til Akureyrar i gær. bessi mynd var tekin af honum á flugveliinum. Ekki tókst að ná til þingmannsins i gær, en Dagblaðiö staöfestir fyrri fréttir um að hann sé einn stærsti innistæðueigandinn i Finansbanken. / 1 T/ miljón Finansbanken Hvað gera stjórnarvöld? Jón G. Sólnes alþingismaöur átti á fjórðu miljón Islenskra króna á reikningi i Finansbanken. Kona Jóns átti i sama banka einn- ig á fjórðu miljón króna I árslok 1975. Frá þessu skýrir Dagblaöið i gær og er frétt þess staðfesting á þeim fréttum sem hafa komið fram i bjóðviljanum um þetta efni. bjóðviljinn reyndi í gær að ná tali af Jóni G. Sólnes en hann var á flótta undan blaðinu og náð- ist ekki til hans. Upplýsingar Dagblaðsins i gær eru enn mikilvægur rökstuðning- ur fyrir þvi að nafnalistinn frá Finansbanken veröi birtur og að forysta Sjálfstæöisflokksins geri grein fyrir þvi hvaöa skoöun hún hefur á gjaldeyrisreikningum þingmannsins. Samtals nemur inneign þeirra hjóna i Finansbanken um 8 mil- jónum króna. Augljóst, segir Eðvarð Sigurðs- sonformaður Dagsbrúnar: Tafarlaus uppsögn Aðeins eitt ráð að hrinda árásinni: Eövarft Haraldur Mér þykir augljóst aö samn- ingum verður tafarlaust sagt upp, sagöi Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar þegar bjóðviljinn haföi samband viö hann um frumvarp rikisstjórn- arinnar i efnahagsmálum i gær. bað er fyrst og fremst vegna þess að með þessu er verið að ráðast á kjarasamningana frá i sumar og það i þeim sem við töldum hvað allra mikiivægast þe. verðbólguákvæðið. Ætlunin er aö rýra kaupmátt launa verulega svo að segja má að árangri kauphækkana frá i sumar sé að verulegu ieyti tek- inn aftur. bað blasir við að kaupgjaldsskeröingin verður ekki undir 10-12%. Með þessari gengisfellingu og kjaraskerðingu er verið að loka öllum leiöum til þeL^ að hægt sé aö taka á verðbólguvandanum, sagði Eðvarð, þvi það er aug- ljóst mál aö verkalýðshreyfing- in mun leita ráða til aö vinna upp kjaraskerðinguna. Ríkis- stjórnin er með stefnu sinni og ráöstöfunum að stofna til átaka á vinnumarkaðinum. I þessu frumvarpi er svo ákvæði um aö allir óbeinir skattar hafi ekki áhrif á verð- bólguákvæði kjarasamninga. betta á að gerast um næstu ára- mót. Mér er þaö aldeilis óskilj- anlegt hvaða erindi það á inn I þessar bráðabirgðaráðstafanir nú. Ég vil leggja sérstaka áherslu á að með þessu er rikis- stjórnin að marka framtiöar- stefnu i kjarasamningamálum. 6g sé ekki annaö en með þessu skerðingarákvæöi gæti rikis- stjórnin ónýtt geröa samninga umsvifalaust með hækkun óbeinna skatta sem engar verö- bætur kæmu fyrír. bar er fyrst og fremst um að ræða neyslu- skatta. Hugsanlegar kauphækk- anir væru að engu geröar á svipstundu. Svona stefnumótun er raunar áskorun til alls launafólks að Ijá ekki þeim pólitisku öflum fylgi sitt sem aö henni standa, sagði EÖvarð að lokum. —GFr segir Haraldur Steinþórsson, varaformaður BSRB börfin á samstöðu opinberra starfsmanna og verkalýðs- hreyfingarinnar er augljós og ég leyfi mér að vænta þess að þeim takist með samstilitu átaki að hrinda þeirri árás sem nú er gerö á samninga þeirra og samningsrétt, sagði Haraldur Steinþórsson, varaformaður BSRB, I samtali við bjóðviljann i gær. Ég tel að þau vinnubrögð rikisstjórnarinnar að gera kjarasamninga við BSRB fyrir 3 mánuöum síðan en rifta honum siðan séu alveg forkastanleg, sagöi Haraldur. Eitt þeirra ákvæða sem var hampaö hvað mest af hálfu viðsemjanda okk- ar i kjarasamningunum var aö vísitölubætur væru nú betri en nokkru sinni áður. Nú er þeirri dýrð svipt i burtu þvi að það eru einmitt þessi visitöluákvæöi sem eru gerð ógild. Ég hef ekki haft aðstöðu til að reikna kaupmáttarskeröingu opinberra starfsmanna en hún er áreiðanlega sist minni en annarra. Þaö atriöi að kippa úr samn- ingum áhrifum óbeinna skatta á verðbótavisitölu felur i sér geig- vænlega möguleika til kjara- skerðingar. Rikisstjórnin er að búa sér til tæki til að skammta launafólki starfskjör á þennan máta og svipta stéttarfélögin samningsrétti um kaup og kjör. GFr

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.