Þjóðviljinn - 11.02.1978, Síða 5
Laugardagur 11. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — 8tÐA 5
Hort og Larsen
menn kvöldsins
þegar þeir tefldu æsispennandi baráttuskák, sem fór í bið
MOes sýndi snilldartaflmennsku
á móti Kuzmin f gærkveldi
Kvennamótið
hófst í
gærkveldl
I gærkveldi hófst Reykjavíkur-
meistaramót kvenna i skák, en
það fer fram á Loftleiðahótelinu,
samhliða Reykjavikurskákmót-
inu. í gærkveldi fór fyrsta umferð
fram og fóru leikar svo, að Guð-
laug Þorsteinsdóttir sigraði Ólöfu
Þráinsdóttur, Jana Hartston, sem
keppir sem gestur, sigraði Sigur-
laugu Friðþjófsdóttur og Aslaug
Kristinsdóttir sigraði Svönu
Samúelsdóttur.
Þessmá geta að Jana Hartston
er tékkneskrar ættar, en búsett i
Englandi og hún er alþjóðlegur
meistari kvenna i skák. -S.dór
Það verður ekki annað sagt en
að þeir Hort og Larsen hafi veriö
menn kvöldsins i gærkveldi þegar
6. umferð Reykjavikurskákinóts-
ins fórfram. Það var ekki bara að
þarna mættust tveir frábærir
stórmeistarar, heldur hitt að þeir
börðust grimmilega og skák
þeirra var æsispennandi baráttu
skák en hún fór i bið kl. 23.00. Var
staðan þá svo flókin að menn
þorðu ekki að spá um úrslit.
Onnur skák vakti einnig at-
hygli, en það var skák þeirra
Helga Ólafssonar og Browne.
Helgi fór mjög geyst af stað pg
galopnaði kóngsvæng sinn fyrir
sóknarmöguleika og um tima
töldu flestir stöðuna gjörtapaöa
hjá Helga, en hann vissi hvaö
hannvar að gera og réttistöðuna
af og vel það. Skákin fór i bið og
ekki vildu menn heldur spá um
úrslit þar. Mjög skemmtileg
skák.
Kuzmin náði snemma betri
stöðu gegn enska stórmeistaran-
um Miles en Englendingurinn
tefldi meistaralega framhaldið,
sneri taflinu sér i vil og sigraði i
51. leik. Þótti taflmennska Miles
snilldarleg.
Lombardi og ögaard tefldu
friðsamlega og svo fór að þeir
sættust á jafntefli og það sama
gerðu þeir Guömundur og
Smejkal, þótt skák þeirra væri
ekki eins friðsamleg og þeirra
ögaards og Lombardys. Þeir
Guðmundur og Smejkal hættu þó
Skák Friðriks
og lóns L.
Þeir Friðrik og Jón L. Arna-
son tefldu æsispennandi skák i
gærkveldi, þá fyrstu sem þessir
kappar tefla saman, þótt ótrú-
legt sé.
Hvitt Friðrik ólafsson
Svart Jón L.
Enski leikurinn
1. c4-e5 n.
2. RC3-RÍ6 18.
3 Rf3-Rc6 19.
4. g3-d5 20.
5. cxd5-Rxd5 21.
6. Bg2-Rb6 22.
7. 0-0-Be7
8. d3-0-0
9. a3-Be6
10. b4-f5
11. Bb2-Bf6
12. e4-f4
13. Re3-fxg3
14. hxg3-a6
15. Hc 1-De8
16. Dd2-Dh5
23.
24.
25.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
32.
Ilc5-Ra4
Rf4-Df7
Hxc6-exf4
Bxf6-bxc6
Be5-fxg3
Bxg3-De8
Rg5-Bd7
f4-h6
RÍ3-C5
f 5-1ÍC8
Re5-Bb5
Rg6-Hf6
Bh4-Hxg6
f xg6-Dxg4
De3-cxb4
axb4-jafntefli
Hort
aldrei á neitt semnamog jafntefli
var samið.
Friðrik og Jón L. hafa aldrei
fyrr en i gærkveldi mæst við
skákborðið og biðu menn spenntir
eftir þeirri viðureign. Hún varð
ekki friðsamleg, þvert á móti,
skákin varö æsispennandi. Frið-
rikfórnaði skiptamun fyrir sókn-
arfæri, en Jón varðist vel, varð þó
að gefa skiptamuninn til baka og
jafntefli var samið, þótt Jón hefði
peði meira.
Polugaevsky beitti enska leikn-
um gegn Margeiri og náði fljót-
Larsen
lega óstöðvandi sókn, sem lauk
þann veg að hann stóð uppi með
mann yfir og þá gaf Margeir
skákina.
Staðan er óljós eftir 6. umferð
vegna 2ja biðskáka en menn geta
séð stöðuna á töflunni hér á sið-
unni. -S.dór.
7.
umferðin
tefld í dag
1 dag kl. 14.00 hefst 7. umferð
Reykjavikurskákmótsins og þá
tefla saman:
ögaard og Larsen
Browne og Lombardy
Jón L. og Helgi
Miles og Friðrik
Polugaevski og Kuzmin
Smejkal og Margeir
llort og Guðmundur.
Friðrik eða Guðmundi
boðið á mót í Sovétr.
hvorugur var tilbúinn til að svara því í
gærkveldi hvort þeir myndu þyggja boðið
1 gærdag barst Skáksambandi
fslands boð frá Skáksambandi
Sovétrikjanna, um að annar hvor
isiensku stórmeistaranna, Frið-
rik eða Guðmundur tæki þátt i
mjög sterku skákmóti i Sovétrikj-
unum, dagana 31. ágúst tii 23.
sept. n.k. en þarna er um að ræða
minningarmót sovéska skák-
meistarans Tschigorin, sem fram
fer i borginni Sotzchi.
Þetta mót verður af sömu
styrkleikagráðu og Reykjavikur-
skákmótið, eða af styrkleika-
gráféu 11 og að sjálfsögðu er það
mikill heiður fyrir þá Friðrik og
Guðmund að fá þetta boð, en eins
og áður segir er aðeins öörum
hvorum þeirra boöiö. 1 boði eru
há verðlaun, 1000 rúblur i fyrstu
verðlaun en 200 rúblur eru lægstu
verðlaun.
Þeir Friðrik og Guðmundur
svöruðu þvi til þegar þeir voru
inntir eftir þvi i gærkveldi hvort
þeir hefðu áhuga á þessu móti að
boðið hefði alveg verið að berast
og þeir heföu fengið að vita það i
gærkveldi meðan á skákunum
stóð, þannig að þeir gætu ekki
svarað þvi ákveðið á þessari
stundu hvort þeir myndu þyggja
boðið.
-S.dór.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 1Ð 11 12 — 13 14 VINN. S.B. n
1 Helgi ðlafsson B & O 'Á Á
2 william Lotiíbardv L w 0 'A X O
3 Rpnt T.ar’spn 7 / n 7 Ö T
4 Vlastimil Hort & / B T i 'Á
5 Leif Ógaard 'A 'A B T 'A 0 O ""X
6 V/alter Brown .... 7 / L K %
7 Jón L. Arnason B O o 'A o / 'A
8 Anthony Miles / 'A / / L 'Á
9 Lev Polugaevsky _ ! Ó / 'A M o L /
10 Jan Sme.ikal 0 'A 0 L B 'Á
11 Margeir Pétursson % 0 / o j
12 Gannedy Kuzmin 0 'L L 'A O o B
13 Friörik ölafsson T* T 'Á / 'A % n
14 Guðmundur Sigur.is, E o ~ L Æ 0 I n
Islendingar
bjóða ekki
í HM ein
vígið í skák
ríkisstjórnin hefur gefið málið frá sér
og þar með er draumurinn búinn
A fundi sem stjórn Skáksam-
bands Islands efndi til i gær,
með þeim aðilum, sem sýnt
hafa áhuga á þvi aö boðið verði i
einvigið um heimsmeistaratitil-
inn i skák, milli þeirra Karpovs
og Kortsnojs, sem fram fer
næsta sumar, kom svar frá
menntamálaráðuneytinu, um
að það myndi ekki senda full-
trúa til þessa fundar. Þetta þýð-
ir i raun, að rikisstjórnin hefur
ákveöið að styðja ekki við bakið
á þeim aðilum, sem bjóða vilja i
mótið og án aöstoðar rikis-
stjórnarinnar er ógerlegt að
bjóða i einvigið, svo dýrt verður
það fyrirtæki.
Það er hinn 16. febrúar nk.
sem tilboð i einvigið eiga að
vera komin til FIDE og það er
ljóst að þar verður ekki islenskt
tilboð.
Fyrir skákunnendur hér á
landi er þetta mikið áfall, þar
sem menn hafa vonað til þessa,
að boðið yrði i mótið, þótt ljóst
væri að Skáksamband tslands
réði ekki eitt við það, en sam-
bandið hafði boðist til að annast
um framkvæmd einvigisins, ef
boðið yrði i það. Þeir aöilar
sem sýnt höfðu málinu áhuga,
voru Ferðamálaráð, Reykja-
vikurborg, Flugleiðir og rikis-
stjórnin haföi gefið ádrátt um að
hún viidi styðja þá sem áhuga
hefðu á þessu máli. En eftir að
ljóst var að svo var ekki, fellur
málið upp fyrir sig eins og áður
segir.
Einar S. Einarsson forseti
Skáksambands tslands, skýrði
frá þessu i gærkveldi. Aðspurð-
ur sagði Einar að honum þætti
það ekki miður að svona fór,
þetta einvigi og kostnaðurinn
við það væri svo mikiö fyrirtæki
að erfitt yrði við það aö eiga, og
ekki sist það ákvæði að skákir
væru ótakmarkaðar. Það atriði
ylli svo mikilli óvissu, að ill-
mögulegt væri fyrir tslendinga
að halda mótið.
Einar sagði það sina skoðun,
að Islendingar ættu frekar að
einbeita sér að þvi að halda ár-
lega sterk skákmót hér á landi,
likt þvi sem nú stendur yfir i
Reykjavik, og eyða frekar tima
og fjármunum i það heldur en
kasta öllu til á HM einvigið.
Þetta er vissulega sjónarmið
útaf fyrir sig en eigi að siður er
það eflaust sárt fyrir margan
skákáhugamanninn að i einvig-
ið skuli ekki boðið, hvort sem
það hefði svo dugað til að fá það
til tslands.
-S.dór.