Þjóðviljinn - 11.02.1978, Side 7

Þjóðviljinn - 11.02.1978, Side 7
Laugardagur 11. febrúar 1978 l^ÓÐVILJINN — SIÐA 7 r A móti kemur svo hinn vandinn sem varðar skilníng og framsetníngu á orðafari, þar sem aðgát í stafsetningu kemur ótvírætt við sögu; um þann vanda er skylt að hirða. Poi sleinn frá Hamri: Stafsetning og saumaskapur „Útkoma og afleiðing þessar- ar þvingunar er upplausn, likt og þvaður okkar og kjánaleg fyndnikringum z-una er frábært dæmi um upplausn og það ráð- leysi, sem rikir i islensku þjóð- félagi.” Guðbergur Bergsson, i Kompu Þjóðv. 15. jan. Sama dag og þessi orð voru birt f Þjóðviljanum yrti Magniis Kjartansson á mig i þvi blaði og hafði i frammi sina ögnina af hverju um stafsetningu og ýmislegt annað. Hann eykur si- fellt við þekkingu sina, er nú kominn úti saumaskap og hefur á reiðum höndum aðskiljanleg- ar tegundir hannyrða. Ekki veit ég i hvaða uppsláttarbók hann hefur þarna komizt. Að þessu sinni er það vist ekki Bibliu- kjarninn. Ég veit ekki hvort ég er i nokkurri megingrein ósammála Magnúsi um stafsetningarmál: en hann hefur sjálfsagt velt þeim meira fyrir sér, sem von .er til, i öllu þvi moldviðri sem geisað hefur af þessum sökum innan og utan þingsala. Ég þekki hann illa ef honum hefur ekki einhverntima þótt það skoplegt. Hinsvegar gerir hann mér upp það álit að stafsetning sé „ómerkilegt atriði”; hann segir einnig að ég virðist hald- inn kreddu, og lýsir yfir vin- samlegri afstöðu sinni til hljóð- villtra manna. Slik afstaða er sjálfsögð, en á ekki skylt við þá spurningu hvort hljóðvilla er æskileg eða ekki. Ég fyrir mitt leyti er heldur andvigur hljóð- villu. önnur kredda er kannski sú að einusinni skrifaði ég nafn mitt á lista til stuðnings z. Sá listi þykir mér nú léttvægt plagg, en sjálfurnota ég z og hef einga löngun til að hætta þvi, mér er þetta tákn tamt frá fornu fari og sé i þvi eingan alls- herjarvoða einsog mér virðist vægast sagt sumt fólk ala á; að ég nú ekki tali um þá tilfinn- íngalegu afstöðu sumra manna að stafurinn sé svo ljótur til- sýndar, sem er litiö betri en sú kynlega speki hinna, að i z sé fólgið hvorki meira né minna en varðveizla túngunnar. 1 post scriptum segist Magnús Kjartansson telja eðlilega meg- inreglu i stafsetningu eiga rætur hjá Konráði Gislasyni: ,,Ég hef hinsvegar aldrei notað hana af mannúðarástæðum. Ég vann i aldarfjórðung meö prenturum og prófarkalesurum og vil sist af öllu valda þeim ágætu mönn- um erfiðleikum,” skrifar hann. Þetta er að visu ekki fyllilega nákvæmt. Grundvallarskoðanir Konráðs á stafsetningu tóku stakkaskiptum: framanaf Fjölnisárum sinum leit hann á framburð sem einkareglu staf- setningar og færði réttritun svo nærri framburði sem hann sá sér fært, enda stóð ekki á þvi að „eldri menn signdu sig og beiddu guð að varðveita sig firir slikum biltingamönnum ” (B.M.Ólsen). Frá þessu hvarf hann siðan að yfirveguöu máli og hefur verið tahnn frumkvöð- ull skólastafsetningar á Islandi. En úr þvi að Magnús minnist svo hlýlega prentara. og próf- arkalesara, þykist ég greina aö hann eigi við hina eldri reglu Konráðs — og fleiri kunna aö vilja reynast göfuglyndir i garð prentara og prófarkalesara en Magnús Kjartansson. Ég hef lagt stund á prófarkalestur og oft orðið vitni að þolraunum setjara varðandi texta. í þvi starfi hefur mér verið stoð i að taka mið af reglu, hafi henni veriö fylgt af höfundum. En oft heíur mér reynzt öröugt að styðjast við handrit höfunda og gera mér ljóst hvort þeir notuðu z og þá hvernig, og svipað er um margt annað. Höfundum hand- rita er misjafnlega sýnt um að brjóta heilann um yfirborðs- kreddur þegar þeir eru jafn- framt önnum kafnir við að vanda hugsun og stil. 1 annarra hlut fellur oft aö striða við þessa ytriannmarka og greina á milli villu og persónulegrar siðvenju. Þessi óvissa með allskyns tvi- skinnúngi hefur færzt i vöxt ef eitthvað er, siðan z-þrasið kom upp. Stutt er siðan ég lagði hönd að útgáfú tveggja bóka sem ætlaðar voru börnum og úng- lingum. Ég áleit þvi kurteisi að fylgja settum reglum og notaði þar ekki z, þótt sjálfum sé mér hún töm — og á meðan glumdi i eyrum, oft skrýtilega grund- vöiluð, krafan um að leiða z-una i lög aftur. Magnús skrifar i grein sinni: „Mikið mega menn f agna þvi að réttritunarreglur voru engar til á Islandi til skamms tima. Ég sé einnig þegar ég les texta fyrri alda að menn kunnu þá og not- uðu tungu sina miklu betur en nú, og éger ekki i nokkrum vafa um það, að auk breyttra þjóð- félagshátta bera kreddu- meistarar i stafsetningu mesta sök á þvi. Þeir hafa komið inn ógeði á tungunni hjá stærstum hluta nemenda sinna og þar aö auki vanmetakennd”. Þetta hygg égrétt vera. A móti kemur svo hinn vandinn sem varðar skilning og fram setni'ngu á orðafari, þarsem aðgát i staf- setningu kemur ótvirætt við sögu; um þann vanda er skylt að hirða. Slik aðgát stuðlar að þvf að merkfng fari ekki for- görðum, hvort heldur er i fram- buröi eða ritun máls. Nýlega kom úngiingur með þá lausn á skriflegu Islandssöguprófi, að ákveðin persóna hafi komið austan úr „ranga ringi”. Hann fékkgott fýrir, svarið talið rétt, þó aö nemandinn hafi vart haft hugmynd um hvað hann var að skrifa. Hvað og hvar er ranga ring? Þarna skiptir máli að barniö skilji orðið og samsetn- ingu þess. En skólinn virðist ekki ýta undir skilning þess, heldur gefa hugsanaletinni und- ir fótinn, láta drasla hvortbarn- ið veit eitthvað eða ekki neitt um það sem það hafði laklega lesið eða rángheyrt og augsýni- lega vanskilið. Og þetta finnst mér brýnna mál en ófrjótt stagl útaf z og öðrum stafatáknum sem eingum teljandi misskiln- ingi valda þótt fólk beiti þeim eftir eigin lyst og geðþótta, (ef það hugsar jafnframt mannúð- legatil prentara og prófarkales- ara). Sunnudagurinn 15. janúar var hreinasta afbrigði annarra daga. Guðbergur Bergsson skrifar þá i Kompu Þjóðviljans um þvaðrið og fyndnina kring- um z-una. Magnús Kjartansson hefst jafnframt handa um að skrifa um stafsetningarmál, en er áður en hann veit af kominn úti saumaskap og bróderingar ásamt hugmyndum um mis- munandi kýlatizku fyrir stéttir þjóðfélagsins. Samdægurs flyt- ur dagblaðið Timinn ábúðar- fulla grein um skaðvænleg áhrif aðskorinnar fatatizku á kynfær- in. Blöðin hættu sér útá hálan is þennan dag. Sýnt er aö z-striðið kann að færast yfir á hin ýmsu svið. Lér konúngur getur fyrr en varir birzt aftur með friðu föru- neyti og allirtryllzt i blöðunum. Þorsteinn frá Hamri. Veiði vex í Mývatni Veiði er nú að aukast i Mývatni en hún hefur verið fremur litil undanfarin ár. Sigurður Þórisson á Gænavanti sagði að veiðin heföi farið að auk- astifyrrasumaroghefði þá mátt heita góð þótt silungurinn væri ekki stór. — Eg held nú að silung- urinn iiafi verið ofveiddur og þurrðin hafi m .a. stafað af þvi, en um það eru sjálfsagt ekki allir á einu máli. Fleiri orsakir geta að sjálfsögðueinnig komið til og i þvi sambandi hefur verið talað um mengun. Annars hafa alltaf verið nokkrar sveiflur i veiðinni, klak getur farið illa eitt árið o.s.frv. —-Ég veit ekki betur en það sé bara mikil veiði i þau net, sem hafa verið lögð núna frá 1. febrú- ar, sagði Sigurður. En það er náttúrlega áriðandi að lofa sil- ungnum að vaxa, drepa hann ekki of ungan. Þaö er og aðgæt- andi að mý og æti var meira i vatninu i sumarenundanfarin ár. Það er margt, sem þarna getur haft áhrif, m.a. stiflan, sem sprengd var i Laxá. Annars veit enginn hvað hér gerist. I Mývatnseldunum fýrir 250 árum hækkaði botninn i vatn- inu norðanverðu og veiðin hvarf. Hannhefurnú reyndar likahækk- að þar núna um 30—50 sm og þvi stendur það óeðlilega hátt hér að sunnanverðu. —mhg Arsrit Útivistar 1977 komið út Út er komið ársrit Útivistar fyrir 1977. Þar er að finna ýtar- lega grein eftir Sigurð Lindal, sem nefnist Útilifsréttur — um landssvæði á Islandi. Fjallar hún eignarétt á landi og réttindi þeirra sem engar jarðir eiga, til umferðar um lönd bænda og ann- arra jarðeigenda. Næst er Brandsrima Jörundssonar eftir Hallgrim Jónasson og segir þar frá frækilegri för valins hóps manna á bilum um Vestfiröi 1952. Er þar jnörg góð hringhendan og fornar Kenmngar hvergi sparað- ar. Sverrir Pálsson ritar grein um Hraunsvatn og slóðir Jónasar Hallgrimssonar. Ólafur B. Guðmundsson skrifar um ýmsar jurtategundir og Andrés Davlðs- sop um Látrabjarg. Hallgrimur Jónasson segir frá vorflóðum i Héraðsvötnum og loks er skýrt frá félagsmálum. Margt mynda er I ritinu Auglýsið í Þjóðviljanum Þeir árrisulustu að morgni sunnudagsins, frá vinstri Jóhann, Baidur leiðbeinandi, Guðmundur, Kári, Björn, Hörður, Guðrún, Sigurður, Sigurleif og Hannes. (Ljósm; Július Júliusson) Alþýðubandalagið 1 Siglufirði: F élagsmálanámskeið Dagana 27.—29. janúar s.I. var haldinn i Siglufirði fyrri hluti f éla gs m á la ná m skeiös, sem Alþýðubandaiagið á staönum gekkst fyrir, og var þátttaka mik- il. Námskeiðið hófst að kvöldi föstudagsins 27. og stóð siðan mest allan laugardaginn og end- aði með þátttöku i fjölsóttum, almennum fundi sem Alþýöu- bandalagið boðaði til i Siglufirði sunnudaginn 29. Þátttakendur i námskeiðinu voru 16 talsins þau: Kristján S. Eliasson, Sigurleif Þorsteinsdótt- ir, Guðmundur Láursson, Björn J. Hannesson, ólafur Kárason, Jóhann G. Jónsson, Arnþór Þórs- son, Hörður Júliusson, Kári Eðvarðsson, Einar M. Alberts- son, Þórunn Guðmúndsdóttir, Hannes Baldvinsson, Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, Sigurður Hlöðversson, Hinrik Aðalsteins- son og Guðrún Arnadóttir. Þau luku öll upp einum rómi um ágæti og gágnsemi nám- skeiðsins og er ráðgert að siðari hluti þessi fari fram eftir nokkrar vikur. Leiðbeinandi i þessum fyrri hluta var Baldur Óskarsson, starfsmaður Alþýðubandalagsins en i seinni hluta mun Rúnar Bachmann, rafvirki, annast leið- sögn. Allan undirbúning varðandi framkvæmd námskeiðsins ann- aðist Sigurður Hlöðversson, formaður Alþýðubandalagsins i Siglufirði.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.