Þjóðviljinn - 11.02.1978, Síða 13
Laugardagur 11. febrúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Loðnu-
yeidin
er að
glæðast
Um miðjan dag i gær höfðu 20
loðnuveiðiskip tilkynnt um afla
samtals 8.850 lestir, og næsta sól-
arhring þar á undan tilkynntu 22
skip um samtals 10.300 lesta afla.
Þegar Þjóðviljinn hafði tal af
Andreái Finnbogasyni hjá
Loðnunefnd i gær var ekki búið að
ákveða um löndun einstakra
skipa, en hann sagðist búast við
að það yrði allt frá Siglufirði og
suður á Fáskrúðsf jörð eða
Sötöðvarfjörð.
Mestan afla var Narfi með,1000
lestir. Hin skipin voru með þetta
200—700 lestir, yfirleitt fullfermi.
Heildarafli á loðnuvertiðinni er
nú orðinn eitthvað á annað hundr-
að þúsund lestir, sem er töluvert
minna en á sama tima i fyrra.
Ágætisveður hefur verið á mið-
unum siðustu dagana.
—IGG
Athugasemd
við
athugasemd
Tekið skal fram, vegna athuga-
semdar Gisla Gestssonar kvik-
myndagerðarmanns i Þjóðvilj-
anum i gær, að ekki var haft eftir
honum i' viðtali á miðvikudag aö
„ýmis framkvæmdamistök viö
Kvikmyndahátið ’78 væru fram-
kvæmdastjóra Listahátiðar og
hennar að kenna.” í viðtalinu var
rætt um eitt ákveðið tilvik, þ.e.
ástæður þess að myndin „Kona
undir áhrifum” var ókomin til
landsins. Var þá haft eftir Gisla,
að þarna hefði orðið misskiln-
ingur milli framkvæmdastjóra
Kvikmyndahátiðar og dreifingar-
aðila myndarinnar i Bandarikj-
unum. Hér var ekki rétt með
farið, þvi vegna misskilnings var
starfsmaður Kvikmyndahátiðar
og ritari undirbúningsnefndar
kallaður framk væmdastjóri
hátfðarinnar. Allsekki var átt við
framkvæmdastjóra Listahátiðar,
sem Kvikmyndahátið heyrir
undir. Þetta leiðréttist hérmeð og
er nú vonast til að öllum misskiln-
ingi linni.
—eös
'-SIMI
ÞJOÐ VILJAN
81333
Ferðaóœtlun
1978
O
Ferðaskrifstofa
KJARTANS HELGASONAR
Um þessar mundir er Bilanaust
h.f., Siðumúla 7—9, Reykjavlk, að
gefa út vörulista sem er 154 siður.
Vörulisti þessi er nýjung hér á
landi og ætti að koma sér vel fyrir
hinn almenna bifreiðareig-inda. 1
listanum má finna flestar þær
vörur sem Bilanaust h.f. verslar
með, bæði varahlulí, aukahluti,
verkfæri og fleira. Til að auð-
velda notkun á listanum, eru
skýringarmyndir af öllum hlut-
um. Efnisyfirlit fremst i listanum
visar á réttar blaðsiöur, þegar
leitað er að sérstökum hlutum
sem eru skrá&ir ákveðnu númeri,
'jafnframt er bifreiðaskrá sem
einnig visar á ákveðin númer fyr-
ir hverja bifreiðagerð. Er þvi
auðvelt að finna listanum rétta
númerið á þeim hlut sem menn
vilja fá og geta gefið afgreiðslu-
mönnum það upp og þannig flýtt
fyrir afgreiðslu þegar kaupa skal
varahluti eða fylgihluti.
Jafnframt þessu er i vörulist-
anum skrá sem hægt er að nota
við athugun á bilun i bilnum.
Þannig getur^bifreiðareigandi elt
uppi þá bilun sem hann leitar að.
Teikningar af alternator-tenging-
um eru einnig i vörulistanum.
Samkvæmt upplýsingum frá
forráðmönnum Bilanausts h.f.,er
upplag vörulistans takmarkað og
mönnum þvi bent á að tryggja sér
eintak i tima. Verðið er kr. 600.-
eintakið.
Norðuriönd — vikulega — frá miðjum mai
Bretland — vikulega — a'lt árið
Búlgaria — 3 vikur — 3/07, 22/07, 12/07, 2/09
Júgóslavia — vikulcga — frá miöjum mai
Grikkland — vikulega frá miðjum mai
Portúgal — vikulega — frá miðjum mai
Kina — 2 og 3 vikur — 27/06, 1/06, 31/08, 16/10.
Sovétrikin — 1, 2, 3 vikur — 25/06, 16/07, 28/08, 15/10, 5/11
Siglingar — um Atlantshaf — 24/02, 4/06, 24/06, 9/09.
Miðjarðarhaf o.fl.
Farmiðar i Smyril.
Onnumst alla almenna þjónustu — Útvegum
flugtarmiða, járnbrautar- og ferjumiða,
hótel íbúðir og sumarhús. Bílaleiga o.fl.
Otrúlega lágt verð vegna hagkvæmra samn-
inga.
Reynið viðskiptin — hringið — skrifið — allar
nánari upplýsingar gefnar á skrifstofunni.
Opið 8-5 alla virka daga nema laugardaga og
Skólavörðustíg 13A, Sími 29211
VARAHLUTIR-AUKAHLUTIR
Flest til viöhalds bifreiöarinnar
Mat CIA:
Oliuframleidslugeta
OPEC miklu minni
en talid hefur verid
Washington Reuter — Banda-
riska blaðið Washington Post
skýrir svo frá, að bandariska
leyniþjónustan CIA telji oliu-
framleiðslumöguleika Saúdi-Ara-
biu og annarra rikja i sambandi
oliuútflutningsrikja (OPEC)
miklu minni en til þessa hefur
verið gengið út frá. Að sögn
blaðsins telur CIA að Saúdi-Ara-
bia geti nú aðeins framleitt 8.8
miljónir tunna af oliu á dag, en
s.l. ár taldi leyniþjónustan að
dagframleiðsla Saúdi- Arabiu
væri 11.5 miljónir tunna.
CIA telur nú, gð söpi Post, að
OPEC-rikin geti i mesta lagi
framleitt 2.5 miljónir tunna á dag
íviðbót, en i fyrra taldi leyniþjón-
ustan að riki þessi gætu framleitt
9.4 miljónir tunna á dag umfram
það sem þau gerðu. Afleiðingin af
þessu er sögð verða sú, að for-
ustumenn Saúdi-Arabiu muni i
vaxandi mæli hallast að þvi. að
mikilsverðara sé fyrir þá að
draga úr oliuframleiðslunni til
þess að olian endist lengur, en að
framleiða hana sem hraðast fyrir
Vesturlandamarkað.
Nýjung frá
Bílanausti
VÖRULISTI
1978