Þjóðviljinn - 04.03.1978, Blaðsíða 1
PIODVIUINN
Laugardagur 4. mars 1978—43. árg. 47. tbl.
Aðeins 1/3 kom til vinnu
Samkvæmt skrá um fjarvistir
rikisstarfsmanna 1. og 2. mars
frá fjármálaráöuneytinu voru
fjarvistir einna mestar á Lögbirt-
ingablaöinu/Stjórnartiöindum. —
Samkvæmt prósentuútreikningi
mætti aöeins þriöji hver starfs-
maöur, en starfsmenn eru einmitt
3.
Skárra var ástandið hjá Skil-
orðseftirliti rikisins þar sem ann-
ar hver starfsmaður mætti, en
þeir eru þrir komma þrjátiu og
þrir.
Hjá Umferöarráöi mætti helm-
ingur starfsfólks 1. mars og 75%
2. mars. Starfsmenn eru fjórir.
Hjá sakadómara i ávana- og
fikniefnamálum var hinsvegar
100% mæting. Þar eru starfs-
menn tveir.
— ekh
r
Snorri Jónsson, varaforseti ASI, um verkfallsþátttöku Alþýðusambandsfélaga:
28-30 þúsund þátttakendur
— Mér þykir aðgerðirn-
ar hafa tekist framar öll-
um vonum miðað við að-
stæður og ég tel að þær haf i
náð tilgangi sínum, sagði
Snorri Jónsson, forseti ASI
þegar blaðamaður spurði
hann álits á árangri og
þátttöku í verkfallinu lsta
og 2an mars.
Sagði Snorri, að starfsmenn Al-
þýðusambandsins hefðu komist
að þvi eftir gaumgæfilega athug-
un að 28 til 30 þúsund félagar i Al-
Greiða
fullar
verð-
bætur
á laun
Nokkur fyrirtæki hafa ákveöiö
aö greiöa starfsmönnum slnum
fullar verölagsbætur á laun
áfram, þrátt fyrir þá ákvöröun
rikisstjórnarinnar, aö aöeins
helmingur verðbóta skuli greidd-
ur.
Eitt þessara fyrirtækja er
Borgarplast hf. i Borgarnesi.
Halldór Brynjúlfsson hjá Borgar-
plasti sagði i viðtali við Þjóðvilj-
ann i gær, að ákvörðun þessi hefði
verið tekin skömmu fyrir mán-
aðamótin. „Astæðan er fyrst og
fremst sú, ” sagði Halldór, ,,að
við höfðum skrifað undir samning
sem gerði ráð fyrir þessum verð-
lagsbótum og við töldum ekki
ástæðu til að rifta þeim samningi.
Afkoma fyrirtækisins hefur verið
þokkaleg að undanförnu og hér
vinna aðeins menn i lægstu launa-
flokkum, sem mættu tæpast við
þvi að missa þessar bætur.”
Sjö manns starfa hjá Borgar-
plasti hf. Halldór sagðist hafa
heyrt um nokkur fyrirtæki i Borg-
arnesi og á Snæfellsnesi, sem
hugleiddu nú að greiða fullar
verðbætur til starfsmanna sinna.
Birgir Halldórsson, sem rek-
ur verslanirnar Búsáhöld og
gjafavörur i Glæsibæ og Miðbæ
við Háaleitisbraut i Reykjavik,
sagði það rétt vera, að hann
hyggðist greiða fullar verðbætur
á laun starfsmanna i verslunun-
um. Hann sagðist ekki telja laun-
in það mikil, að ástæða væri til að
klipa af þeim. Hjá Birgi vinna 5
manns, sem allir taka laun eftir 7.
og hæsta flokki verslunarmanna-
samninganna, en það eru versl-
unarstjóralaun.
Á stjórnarfundi i Félagsstofnun
stúdenta 1. mars var samþykkt
ályktun þess efnis, að greiða full-
ar visitölubætur á laun starfsfólks
Félagsstofnunar 1. mars. „Með
þvi vill stjórnin sýna andstöðu
sina við aðgerðir rikisstjórnar-
innar og samstöðu með launafólki
landsins,” segir i ályktuninni.
Jóhann Scheving fram-
kvæmdastjóri Félagsstofnunar
sagði að starfsmenn stofnunar-
innar væru 42, flestir i stéttar-
félögum innan ASI.
þýðusambandinu hefðu tekið þátt
i verkfallinu, og er það um 60%
allra félagsmanna ASÍ.
Þegar blaðið hafði samband við
Snorra hafði ASI aðeins borist ein
tilkynning um uppsögn launþega
vegna þátttökuhans i verkfallinu.
Sagði Snorri að Alþýðusambandið
mundi i samráði við fagfélag við-
komandi leggja höfuðáherslu á að
halda fram rétti þessa launþega.
— úþ
Einróma
andstaða
gegn
ólögunum
á úti-
fundinum
Myndin er tekin þegar fundar-
menn á útifundi ASl, BSRB,
FFSÍ, launamálaráös BHM og
INSl greiddu atkvæöi ineö
ályktuninni gegn ólögum rikis-
stjórnarinnar sem borin var upp
I fundarlok. Taliö var að frá 7-10
þúsund manns heföu veriö á
fundinum. — Ljósm. eik.
Sjá 8,9,10 og 11
Haraldur Steinþórsson, varaformaður BSRB:
Helmingur félagsmanna
tók þátt í verkfallinu
—Eftir þeim gögnum,
sem við höfum tóku um
eða yfir helmingur BSRB
félaga þátt í verkfallinu,
aðrir en þeir, sem eru i
öryggisgæslu eða starfa
innan heilbrigðisstéttanna,
trúlega 3—4 þúsund
manns, sagði Haraldur
Steinþórsson, varaformað-
ur Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja um þátttöku
BSRB -fólks i verkfallsað-
gerðunum.
Haraldur sagöist vera ánægður
með þátttökuna með tilliti til þess
að gerð var tilraun til þess að
draga úr henni bæði með hótun-
um um refsifrádrátt á launum
svo og með almennu húsbónda-
valdi.
Þá benti Haraldur á, að nokkur
félög innan BSRB hefðu skorast
undan þátttöku i aðgerðum þess-
um, og einnig að stjórn BSRB
hefði ekki haft neitt vald til að
knýja á um lokun vinnustaða.
Með tilliti til alls þessa sagði Har-
aldur að íþátttakan hefði verið
furðu góð.
„Hver og einn félagsmaður
BSRB, sem þátt tók i þessum að-
gerðum gerði það sem einstakl-
ingur, og það er mikil ákvörðun
hjá hverjúm og einum,” sagði
Haraldur að lokum.
I gær var haldinn stjórnarfund-
ur hjá BSRB. Þar lá fyrir tillaga
um að beina þvi til aðild-
arfélaganna að tilnefna menn i
samninganefnd. Sú nefnd tekur
siðar afstöðu til þess hvort krefj-
ast beri endurskoðunar launalið-
ar samningsins, en i samningi
BSRB og rikisins er gert ráð fyrir
slikum möguleika og þá, að sátta-
semjari rikisins komi inn i við-
ræðurnar, ef launalið samnings-
ins yrði sagt upp.
—óþ
Tek fjarvistartölurnar meö fyrirvara
— segir Kristján Thorlacius, form. BSRB
É g tel f yllstu ástæðu til
þess að taka allarupplýs-
ingar um fjarvistir sem
f jármálaráðuneytinu
hafa borist með fyrir-
vara, sagði Kristján
Thorlacius formaður
BSRB í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Sem betur fer eru
margir forstöðumenn
ríkisstofnana mildari en
stjórnin i landinu og
gangast ekki inn á vinnu-
brögð sem þessi. Því tel
ég fullvíst að ekki komi
allar fjarvistir manna
fram í skýrslum sem for-
stöðumennirnir hafa ver-
ið skyldaðir til að gefa.
Hefndaraðgerðir af þessu tagi
hafa ekki þekkst i samskiptum
atvinnurekenda og launþega
áratugum saman, og engu er
likara en upp hafi verið vakinn
draugur frá þvi fyrir strið. Með
þvi að beita tvöföldum yfir-
vinnufrádrætti er verið að
svipta menn fyrirvaralaust
hluta af ráðningarkjörum
þeirra. 1 umburðarbréfinu, sem
rikisstjórnin nam úr gildi, felst
ákveðinn valkostur, þ.e. mönn-
um er gefinn kostur á að vinna
af sér fjarvistir eða láta draga
þær frá kaupi eða sumarleyfi.
Þetta eru þau kjör sem menn
eru ráðnir upp á, og þvi eölilegt
að menn telji sig vera i rétti sin-
um.
Hvað hefð varðar, þá hefur
þessu ákvæði aldrei verið beltt
af rikinu. Þar má minna á
kvennafridaginn, verkföll kenn-
arasamtakanna, sjúkraþjálfara
sjónvarpsmanna og BHM. I
engu þessara tilfella var dregið
meira en sem nam einfaldri
dagvinnu af fólki.enda eru áhöld
um það hvort túlka megi 30.
grein laga um réttindi og skyld-
ur opinberra starfsmanna
þannig að fjárvistir beri að
greiða með tvöföldu yfirvinnu-
kaupi.
—eos