Þjóðviljinn - 04.03.1978, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. mars 1978
r
sjjónvarp
Kaldi
Luke
„Kaldi Luke” (Cool Hand Luke)
er bandarisk biómynd frá 1967,
sem sýnd verður i sjónvarpinu i
kvöld kl. 21.40. Leikstjóri er Stu-
art Rosenberg. AOalhlutverk
leika Paul Newman, George
Kennedy og Dennis Hopper.
Myndin var sýnd hér á landi fyrir
nokkrum árum viö góOa aösókn.
útvarp
Fjórði þáttur um Vatnajökul:
Rannsóknir og ferðalög
í kvöld kl. 19.35 verður fluttur
siöasti þátturinn af Ijórum um
Va tnajökul og nefnist hann
„Rannsóknir og ferðalög”. í
þættinum verður rætt við Helga
Björnsson, Sigurð Þórarinsson,
Guðmund Jónasson og Pétur Þor-
leifsson. Tómas Einarsson hefur
umsjón með þættinum og lesari
er Valtýr óskarsson.
I bókinni „Landið þitt”, 2.
bindi, eftir Steindór Steindórsson,
segir svo um ferðir á jökulinn:
„Lengi vissu menn lítið um
Vatnajökul og meira að segja var
nafn hans á reiki, og vafasamt,
hvort hann hefur átt nokkurt
sameiginlegt heiti. Oft var hann,
eða a.m.k. hluti af honum, nefnd-
ur Klofajökull, svo er það t.d. á
uppdrætti Þorvalds Thoroddsens.
Þá er hann oft i annálum nefndur
Austurjöklar. Löngum var fáför-
ult um jökulinn. Þjóðsagan um
Grimsvötn gæti þó bent til ein-
hverra mannaferða þangað. Þá
er vist, að norðlenskir vermenn
fóru til sjóróðra suður yfir jökul
til Hornafjarðar og Suðursveitar.
Er þar a.m.k. um tvær leiðir að
velja, og jökulgangan sjálf 20 eða
50 km löng, eftir þvi hvor leiðin
er valin. Talið er, að verferðir að
norðan til Suðursveitar hafi lagst
niður eftir 1575, en þá drukknuðu
þar 93 menn, flest Norðlendingar,
á góuþrælinn. Sagnireru um það,
að Suöursveitungar hafi farið til
grasa norður að Snæfelli, og
skjalfest er, að Skaftafellsbændur
áttu rétt til hrossagöngu i Möðru-
dal, og Möðrudalsmenn skógar-
höggsitak á Skaftafellsskógi.
.... Fyrsta ferð yfir Vatnajökul,
sem fullar heimildir eru um, er
ferð Englendingsins W.L. Watts
1875. Lagði hann upp frá Núpstað
og kom af jökli hjá Kistufelli eftir
12 daga ferð. Skotar tveir, J.H.
Winger og L.S. Muir, fóru næstir
yfir jökulinn. Komu þeir norðan
yfir af Brúarjökli og suður i
Fljótshverfi. Vorið 1912 fór J.P.
Koch, danskur herforingi og land-
könnuður við 5. mann á hestum yf
ir Vatnajökul frá Brúarjökli og
suður i Esjufjöll og sömu leið til
baka. 1919 fóru Sviarnir Hakon
Wadell og E. Ygberg fyrstu eigin-
legu rannsóknarferðina um sunn-
anverðan Vatnajökul. Fundu þeir
þá eldstöðvarnar i Grimsvötnum.
Við þá eru kenndir Sviahnjúkar á
Grimsfjalli. Fyrsta ferð íslend-
inga yfir Vatnajökul var vorið
1926. Fóru hana Hornfirðingarnir
Unnar Benediktsson, Sigurbergur
Árnason og Helgi Guömundsson.
Fóru þeir fram og aftur yfir þver-
an jökulinn.
Arið 1934 verða timamót i sögu
Vatnajökuls. Þá varð eldgos i
Grimsvötnum og fóru þeir fyrstir
til eldstöðvanna Jóhannes As-
kelsson, jarðfræðingur, og Guð-
mundur Einarsson frá Miðdal.
Voru siðan farnar ýmsar ferðir
þangað næstu árin. Vorið 1936 var
gerður út mikill rannsóknarleið-
angur um Vatnajökul undir for-
ystu H.W. Ahlmanns prófessors i
Sviþjóð og Jóns Eyþórssonar
veðurfræðings. Sumarið 1947 stóö
Steinþór Sigurðsson, magister,
fyrir fyrstu vélsleðaferðinni um
Vatnajökul. Haustið 1950 strand-
aði flugvélin Geysir austanhallt á
Bárðarbungu. Voru þá farnar
nokkrar ferðir til að bjarga fólki
og farangri bæði um haustið og
næsta vor. 1 mars 1951 var fransk-
islenskur leiöangur við rannsókn-
ir á Vatnajökli. Voru þá gerðar
þykktarmælingar á jöklinum,
nema austasta hluta hans. Jökla-
rannsóknafélag tslands var stofn-
að 1950. Lét það reisa fjóra skála
á og við Vatnajökul, í Esjufjöll-
um, á Breiðamerkurjökli, i
Tungnárbotnum og á Grimsfjalli.
Siðan 1953 hefur félagið gengist
fyrir fjölda feröa um jökulinn
bæði til rannsókna og skemmt-
unar. Er Vatnajökull nú best
kannaður islenskra stórjökla.”
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 Og
8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Tilkynningar kl. 9.00. Létt
lög milli atriða. óskalög
sjúklinga kl. 9.15: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir,
Barnatími kl. 11.10.: Dýrin
okkar. Stjórnandinn, Jóina
Hafsteinsdóttir spjallar um
fugla. Ingibjörg Agústs-
dóttir segir frá fuglum sem
hún á. Lesið úr þjóðsögum
o.fl.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Vikan framundan.
Sigmar B. Hauksson kynnir
dagskrá útvarps og sjón-
varps.
15.00 Miðdegistónleikar a.
Trió i C-dúr fyrir tvö óbó og
horn op. 87 eftir Ludwig can
Beethoven. Péter Pongrácz
og Lájos Tóth leika á óbó,
Mihály Eisenbacher á horn.
b. Sönglögop. 103 eftir Louis
Spohr, Anneliese Rothen-
berger syngur: Gerd Starke
leikur á klarinettu og Gunt-
her Weissenborn á pianó.
15.40 islenskt mál.Dr. Jakob
Benediktsson flytur þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.20 Vinsælustu popplögin.
Vignir Sveinsson kynnir.
17.00 Enskukennsla (On We
Go) Leiðbeinandi: Bjarni
Gunnarsson.
17.30 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Davið
Copperfield” eftir Charles
Dickens: Anthony Brown
vjó til útvarpsflutnings. (A.
útv. 1964). Þýðandi og leik-
stjóri: Ævar R. Kvarán. —
Fyrsti þáttur. Persónur og
leikendur: Davið / Gisli
Alfreðsson, Frú Pegothy /
Anna Guðmundsdóttir,
Herra Pegothy / Valdimar
Lárusson, Davið sem barn /
Ævar Kvaran yngri, Emelia
litla / Snædis Gunnars-
dóttir, Mamma / Kristbjörg
Kjeld, Herra Murdstone /
Baldvin Halldórsson Ungfrú
Murdstone / Sigrún Björns-
dóttir.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Vatnajökull Fjóröi og
siðasti þáttur: Rannsóknir
og ferðalög. Umsjón:
Tómas Einasson, — Rætt
við Helga Björnsson, Sigurð
Þórarinsson, Guömund
Jónasson og Pétur Þor-
leifsson. Lesari: Valtýr
Óskarsson.
20.05 Hljómskálamúsik
Guðmundur Gilsson kynnir.
20.40 Ljóðaþáttur Jóhann
Hjálmarsson stjórnar
þættinum.
21.00 Walter Klien leikur á
pianósmálög eftir Mozart.
21.20 Tveir á tali Valgeir
Sigurðsson ræðir við Helga
Gislason, bónda i Skógar-
gerði i Fellum.
21.45 Divertimenti fyrir tvö
barytón-selló og selló eftir
HaydnJanos Liebner leikur
á öll hljóðfærin.
22.00 Úr dagbók Högna Jón-
mundar Knútur R.
Magnússon lýkur lestri úr
bókinni „Holdið er veikt”
éftir Harald A. Sigurðsson.
22.20 Lestur Passiusálma Geir
Waage guðfræðinemi les 34.
sálm.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
16.30 iþróttirUmsjónarmaður
Bjarni Felixson.
17.45 Skiðaæfingar(L) Þýskur
myndaflokkur. 2. þáttur.
Þýðandi Eirikur Haralds-
son.
18.15 On We GoEnskukennsla.
Atjándi þáttur endursýnd-
ur.
18.30 Saltkrákan (L) Sænskur
s jón varpsmyndaf lokkur.
Þýðandi Hinrik Bjarnason.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
19.00 Enska knattspyrnan (L)
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Menntaskólar mætast
(L) t þessum þætti eigast
við Menntaskólinn i Kópa-
vogi og Menntaskólinn á
Laugarvatni. A milli spurn-
inga leikur Finnur Kristins-
son á gitar, og Vilberg Vigg-
ósson leikur á pianó. Dóm-
ari Guðmundur Gunnars-
son. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
20.55 Dave Allen lætur móðan
mása (L) Breskur gaman-
þáttur. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
21.40 Kaldi Luke (Cool Hand
Luke) Bandarisk biómynd
frá árinu 1967. Leikstjóri
Stuart Rosenberg. Aðalhlut-
verk Paul Newman, George
Kennedy og Dennis Hooper.
Luke Jackson er dæmdur til
tveggja ára þrælkunarvinnu
fyrir óspektir á almanna-
færi. Hann strokar fanga-
vörðunum og nýtur brátt
mikils álits hinna fanganna.
Myndin er ekki við hæfi
barna. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
23.40 Dagskrárlok
Pétur og vélvnennið eftir Kjartan Arnórsson