Þjóðviljinn - 04.03.1978, Blaðsíða 5
Laugardagur 4. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Alþýdubandalagið á Akranesi
Lrslit liggja nú fyrir i forvali
sem Alþýðubandalagið á Akra-
nesi gekkst fyrir til að ákveða 5
' efstu sætin á lista flokksins til
bæjarstjórnarkosninga. Þau eru
þannig skipuð: 1. Jóhann Ársæls-
son, bæjarfulltrúi, 2. Engilbert
Guðmundsson, hagfræðingur, 3.
Guðlaugur Ketilsson, vélvirki. 4.
Sigrún Gunnlaugsdóttir, kennari,
og 5. Sigrún Clausen, verkakona.
Forvalið fór fram I tveimur
Jóhann Arsælsson
umferðum, að fýrirmynd Alþýðu-
bandalagsmanna á Suðurnesjum.
t fyrri umferðinni tilnefndu kjós-
endur 5 nöfn I 5 efstu sætin. t
seinni umferðinni var siðan þeim
5efstu i fyrri umferðinni, þ.e.a.s.
þeim sem gáfu kost á sér, raðað
innbyrðis. Allir félagar i Alþýðu-
bandalagsfélaginu á Akranesi
höfði atkvæðisrétt og um 90%
þeirra neyttu réttar sins.
Engilbert Guömundsson
Úrslit forvals
Leiðtogar Alþýöutlokks
aö störfum í verkfallinu
Mjög lítil kennsla var i
skólum landsins í allsherj-
arverkfallinu 1. og 2. mars.
Grunnskólar stöðvuðust al-
veg eða nær alveg, og
framhaldsskólar á höfuð-
borgarsvæðinu voru yfir- Gylfason, og hann lét verk-
leitt ekki í gangi. Þó var fallsboðun sem vind um
kennt í AAenntaskólanum í eyru þjóta og kenndi eins
Reykjavík. Þar starfar og sjá má á meðfylgjandi
einn leiðtoga Alþýðu- mynd sem Ijósmyndari
flokksins Vilmundur Þjóðviljans tók 2. mars.
Fjármálaráðherra:
35 milj-
ónir til
LÍN
Fjármálaráðuneytið hefur
ákveðið að veita 35% miljón-
um króna til Lánasjóðs is-
lenskra námsmanna til aö
bæta námsmönnum erlendis
upp gengisfellinguna á dög-
unum.
Bragi Guðbrandsson, for-
maður SÍNE og fulltrúi sam-
bandsins i stjórn LIN, sagði i
samtali við Þjóðviljann i
gær, að StNE hefði tilkynnt
félögum sinum um gengis-
fellinguna með skeyti strax
og hún var gerð.
Gengisfellingin og gengis-
sigið frá áramótum nemur
um 20%, sagði Bragúog rýrir
þvi raungildi námslánanna
mjög mikið. Þar við bætist
að framfærslutölur, sem I
hinum ýmsu löndum sem
hafðar eru til viðmiðunar,
standast ekki i öllum tilfell-
um, þar sem verðbólga er i
nágrannalöndum okkar, þó
ekki séhún eins mikil og hér.
Námsmenn erlendis sáu
þvi fram á geysilega kjara-
skerðingu af völdum gengis-
fellingarinnar og mótmælun-
um rigndi yfir okkur, einkum
frá stærstu deildunum á
Norðurlöndunum. Stjórn
Lánasjóðsins samþykkti að
fara fram á 50miljónir króna
til þess að bæta námsmönn-
um erlendis gengisfelling-
una, og sendi fjármálaráð-
herra og menntamálaráð-
herra bréf þess efnis. Fjár-
málaráðuneytið veitti siöan
35 miljónum til þessa, og er
það um 70% af útreiknaðri
þörf.
Raungildi námslána til
námsmanna erlendis minnk-
ar þvi um 5%, sagði Bragi,
og ekki sakar að minna á að
þetta eru ein óhagstæðustu
lán sem hægt er að taka, þar
sem þau eru visitölubundin.
Útborgun almennra lána
til námsmanna erlendis mun
væntanlega hefjast nú i vik-
unni, eins og áætlað hafði
verið.
— AI.
Ein af myndunum á sýningunni, klippimynd eftir William Heinesen.
Samsýning norrænna myndlistarmanna
Den Nordiske 1978
Islensku þátttakendurnir eru
Tryggvi Ólafsson og Óskar
Magnússon
tdag, laugardaginn 4. mars, kl.
15:00 verður opnuð I Norræna
húsinu DEN NORDISKE 1978,
sem er samsýning listamanna frá
öllum Norðurlöndunum. Þar sýna
20 listamenn, málverk, högg-
myndir, vefnað, teikningar,
klippimyndir og grafik.
„Den Nordiske” eru sýninga-
samtök 17 myndlistarmarina frá
Noregi, Sviþjóð, Danmörku,
Finnlandi, Færeyjum og Islandi.
Fulltrúar Islands i samtökunum
eru þau Tryggvi Ólafsson og Ólöf
Pálsdóttir, en hún tekur ekki þátt
I sýningunni i ár. Að þessu sinni
eru það 15 félagar úr samtökun-
um sem sýna verk sin og 5 gestir.
Einn þessarra gesta er islenski
vefarinn óskar Magnússon.
„Den Nordiske” hefur haldið
sýningar i Kaupmannahöfn ann-
að hvert ár, siðan 1970. Arið 1974
sýndi hópurinn einnig i Norræna
húsinu, og hlaut þá góðar viðtök-
ur.
I ár hófst sýningaríerðin I sýn-
ingarsal „Den Frie” i Kaup-
mannahöfn, hinn 28. janúar s.l.,
og hlaut þar góðar viðtökur.
Islensku þátttakendurnir i
þessari sýningu, Tryggvi Ólafs-
son og Oskar Magnússon, hafa
fengið mjög lofsamlega dóma I
dönskum dagblöðum. I „Politik-
en” segir að sýning samtakanna
sé i greinilegri framför og að
þarna sé um að ræða góðan hóp
sem þrifist á innbyrðis vinsemd
og deili sýningarsölum bróður-
lega milli sin. Gagnrýnandinn tel-
ur að meira beri á norrænum tón
en á þjóðlegum séreinkennum og
segir hópinn bera nafn með rentu.
Um Tryggva Ölafsson segir hann
að athuganir hans, sem fjalli um
lif nútimans, ihugandi og háðskar
I senn, sú þungvægar i heild sýn-
ingarinnar. Vefarinn Óskar
Magnússon er rúsinan I pylsuend-
anum. Veggteppi hans, undir
áhrifum tslendingasagna, eru
þess virði að þeim sé gaumur gef-
inn, segir ennfremur og i blaðinu
„Land og fólk” segir að báðir séu
þeir, Óskar og Tryggvi góðir full-
trúar fyrir hvort>heldur sem er,
islenska eða norræna list.
Að lokinni sýningunni i Nor-
ræna húsinu veröur húnsettupp i
Færeyjum, og i Sviþjóð. Tryggvi
Ólafssonog danski málarinn Jens
V. Rasmussen koma með sýning-
una hingaö frá Danmörku, setja
hana upp og hafa umsjón með
henni.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 14:00 — 19:00 fram til 19.
mars.
RYMINGARSALA
á gólfteppum og bútum
AFSLATTUR
Við erum aðeins \.
að rýma fyrír nýjum
V birgðum /
Stendur i nokkra daga
Grensásvegi 13
Símar 83577 og 83430