Þjóðviljinn - 04.03.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Refsihótanir ríkisvaldsins:
Engin fordæmi á öldinni
Þess eru engin dæmi að
rikissjóður hafi dregið af
kaupi ríkisstarfsmanna
vegna vinnustöðvana
nema einfalda dagvinnu,
ef yfirleitt hefur verið
dregið af kaupi manna.
Ekki var t.d. dregið af ein-
um einasta starfsmanni
rikisins i kvennaverkfall-
inu 24. okt. 1975. Hér fer á
eftir yfirlit um nýjustu
fordæmi af þessu tagi:
Sjúkraþjálfaraverkfallið
27. febrdar 1975 lögðu allir
sjúkraþjálfarar á landinu niöur
vinnu i einn dag tii þess aö inót-
mæla nýlega útgefnu starfsleyfi
til ákveöins aðila.
Unnur Guttormsdóttir, gjald-
keri Félags sjúkraþjálfara.sagði i
samtali við Þjóðviljann i gær, að
rikið hefði ekkert dregið af kaupi
sjúkraþjálfara sem fyrir það
störfuðu fyrir vegna þessa mót-
mælaverkfalls.
Reykjavikurborg dró upphaf-
lega tvöfalda yfirvinnu af sjúkra-
þjálfurum, sem störfuðu á hennar
vegum, en 10 mánuðum siðar var
sá frádráttur allur endurgreiddur
eftir ákvörðun borgarráðs og
borgarstjórnar.
Unnur sagði að Endurhæfinga-
deild Landspitalans, þar sem hún
er yfirsjúkraþjálfari, hefði verið
lokuð 1. og 2. mars i mótmæla-
skyni við afnám verðbóta á laun.
Við höfum enn ekki komist að þvi
hvar þeir drógu þetta ákvæði um
tvöfaldan yfirvinnufrádrátt upp,
sagði Unnur, en tilkynningin um
það hléypti illu blóði i fólk sem
vonlegt er. Þriðjungur mánaðar-
launa vegna mótmæla við brot-
Höskuldur Jónsson, ráduneytisstjóri
Við ráðum refsingunni
Þegar Þjóðviljinn hafði sam-
band við Höskuld Jónsson ráðu-
neytisstjóra i fjármálaráðuneyt-
inu i gær, hafði ráðuneytið þegar
sent út tvær fréttatilkynningar
um þátttöku rikisstarfsmanna i
verkfallinu. 1 báðum tilkynning
unum voru upptalningar á ein-
staka ráðuneytum og stofnunum
og hlutfallslcg mæting starfs-
manna tiunduð. Prósentutölur
segja hins vegar mjög litið þar
sem stofnanirnar eru ákafiega
misstórar, en auk þess var þar
engar upplýsingar að finna um
kennara, sem eru einn fjölmenn-
asti hópur ríkisstarfsmanna.
Höskuldur sagði að nú væri ver-
ið að útbúa nafnalista I öllum
stofnunum rikisins og vænti hann
þess að eftir helgina yrði unnt að
gefa upp nákvæma tölu þeirra
sem ekki mættu. Hann taldi þátt-
tökuna i verkfallinu mjög óveru-
lega.
— Telurðu að niðurfelling um-
burðarbréfsins hafi haft áhrif á
þátttöku rikisstarfsmanna i mót-
mælaaðgerðunum?
— Ég veit það ekki, en ég tel
mjög ósennilegt að svo hafi verið.
Menn gerðu þetta upp hver fyrir
sig, en sums staðar gætti áhrifa
yfirmanna, t.d. var áberandi að
þar sem skólastjórar mættu ekki
til vinnu mættu mun færri kenn-
arar en annars staðar.
Rikisstarfsmenn eru ákaflega
löghlýðnir menn og litil þátttaka
þeirra i verkfallinu sýnir að þeir
hafa i þessu tilviki metið skyldur
sinar meir en ótimabært upp-
hlaup einstakra forystumanna
samtaka sinna.
— Hvers vegna var umburðar-
bréfið numið úr gildi?
— Þegar umburðarbréf-
ið var gefið út 1968 var það
tilraun til samræming-
ar á meðferð fjarvista i rik-
iskerfinu. Eins dags fjarvistir,
aðallega til komnar vegna
áfengisneyslu, voru algengar, en
misjafnlega á þeim tekið i hinum
ýmsu stofnunum, og oft var vægar
tekið á þeim en öðrum fjarvist-
um. Einstaklingum var þvi gefinn
kostur á að velja milli þess að
vinna fjarvistir af sér, láta draga
þær frá sumarleyfi eða þola frá-
drátt af launum.
Þegar hins vegar um verkfall
Framhald á 17. siðu.
lega samninga er ansi stór hlutur,
sérstaklega fyrir þá sem eru i
lægri launaflokkunum.
Kennaraverkfallið
8. nóvember 1976 lögðu kennar-
ar niður vinnu vegna óánægju
með nýlega fallinn kjaradóm, er
hafði i för með sér verulegan
launamismun kennara innan
grunnskólans.
Valgeir Gestsson, formaður
Sambands islenskra barnakenn-
ara, sagði i viðtali við Þjóðviljann
i gær, að kennarar hefðu mætt i
skólana þennan dag, en ekki
kennt, heldur haldið fundi um
kjaramálin.
Þátttaka meðal barnakennara
var yfir 90%, sagði Valgeir, og
eftirað upplýsingar höfðu fengist
úr skólunum um það hverjir
hefðu tekið þátt i fundunum voru
dregin einföld dagvinnulaun af
þeim.
Þess finnast engin dæmi á öld-
inni, sagði Valgeir að húsbændur
hafi hótað vinnandi fólki eins og
nú er gert. Það er fullljóst, að ef
alvara verður gerð úr þessum
hótunum og tvöföld yfirvinna
dregin af fólki, þá verða við-
brögðin mjög harkaleg.
Sjónvarpsverkfallið
17. september 1976 lögðu allir
starfsmcnn sjónvarpsins niður
vinnu I cina viku til að leggja á-
herslu á óánægju sina meö kjara-
málin.
Verkfallinu lyktaði með sam-
komulagi við menntamálaráð-
herra, sem skipaði nefnd sem
kanna átti kjör sambærilegra
starfshópa á Norðurlöndum.
Bjarni Felixson, formaður
Starfsmannafélags sjónvarpsins,
sagði i samtali við Þjóðviljann i
gær, að eftir verkfallið 1976 hefðu
sjónvarpsmenn boðist til að vinna
þennan tima upp i eftirvinnu,
m.a. með þvi að senda út á
fimmtudagskvöldum. Þessu til-
boði var hafnað, en ákveðið að
draga eina viku i dagvinnu af
mönnum.
Verkfall sjónvarpsmanna á
miðvikudaginn var, (á fimmtu-
degi var unnið i sjónvarpinu) var
angi á sama meiði, sagði Bjarni,
og framhald aðgerðanna haustiö
1976. Við fórum i verkfall til að
undirstrika óánægju okkar með
kjaramálin, afnám verðlagsbót-
anna og úrskurð kjaradóms, sem
okkur var birtur fyrir viku siðan.
1 þeim kjaradómi er ekkert tillit
tekið til loforðs sem menntamála-
ráðherra gaf okkur haustið 1976
um samræmingu við starfs-
bræður okkar á Norðurlöndum.
Allir voru sammála um að til ein-
hverra aðgerða þyrfti að gripa,
sagði Bjarni, en skoðanir voru
nokkuð skiptar um það hvaða
leiðir bæri að fara.
Vinnustöðvufi BHM
12. október 1976 lögðu rikis-
starfsmenn i Bandalagi háskóla-
manna niður vinnu eftir hádegið
og liéldu fund um kjaramál sln.
Um 400 manns sóttu fundinn sem
haldinn var til að leggja áherslu á
kröfu BHM um endurskoðun á
samningum, vegna þess að laun
háskólamenntaðra rikisstarfs-
manna væru 30—60% lægri en á
almennum vinnumarkaði.
Ekki var dregið neitt af þeim
400 rikisstarfsmönnum sem fund-
inn sóttu.
15. nóvcmber sama ár hvatti
Framhald á 17. siöu.
Kominn til Islands:
Heimsins fyrsti
fólksbíll með V8-dísilvél
Einnig sýnumvið
nokkraaðra vinsæla GM-bíla
EFFECT- S ÞORGE
IRSSON
Höfum gert bækling á íslenskusem lýsirhinum
mörgu og ótrúlegu nýjungum þessa bíls, ásamt
16000 km reynsluaksturslýsingu hins virta
tímarits Popular Science.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Sími 38900