Þjóðviljinn - 04.03.1978, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. mars 1978
Stórleikur Kristjáns
dugði ekki gegn KR
og Valur tapaði fyrir KR í l.deild 70:69. Kristján
✓
Agústsson átti stórleik og skoraði 29 stig. Andrew
Piazza skoraði 23 stig fyrir KR
KR-ingar tryggðu stöðu
sína á toppi 1. deildar í
körfuknattleik verulega á
f immtudagskvöldið er þeir
sigruðu gott Valslið með 70
stigum gegn 69 í æsispenn-
andi leik f Hagaskóla.
Staðan i leikhléi var 45:36
Val i vil.
Leikur þessi var vel leikinn af
beggja hálfu og mátti vart á milli
sjá hvort liðið léki betur.
Valsmenn byrjuðu með miklum
látum og komust i 23:12 i byrjun
leiksins og voru þeir mun ákveðn-
ari en KR-ingar i fyrri hálfleik.
Staðan varð siðan 27:14 og enn
siðar 49:23 og munaöi þar mestu
um stórkostlegan leik Kristjáns
Ágústssonar og Rick Hockensos,
en þessir tveir leikmenn báru höf-
uð og herðar vfir aðra leikmenn
hjá Val að þessu sinni. 1 fyrri
hálfleik skoruðu Valsmenn 45 stig
og þar af gerðu þeir tveir 38 sem
talar sinu máli.
En KR-ingar mættu tviefldir til
leiks i siðari hálfleik og tóku að
saxa á forskot Vals, og þegar
leiknar höfðu verið sjö minútur af
siðari hálfleik komust þeir yfir i
fyrsta skipti i leiknum, 54:53.
Eftir það var leikurinn i járn-
um, og skiptust liðin á að hafa
eins stigs forskot eða þar til undir
lokin að KR náði þriggja stiga
forskoti, og það var meira en
Valsmenn réðu við, og leiknum
lauk þvi eins og áður sagði með
sigri KR 70:69.
Maður hafði það á tilfinning-
unni i fyrri hálfleik að Valur
myndi vinna stórsigur að þessu
sinni. KR-ingarnir fóru að láta
dómarana fara i taugarnar i sér
og slikt kann aldrei góðri lukku að
stýra. En þeir áttuðu sig á hlutun-
um i seinni hálfleik, og þá var allt
annað aö sjá til liðsins. Þá lék
gamla góða KR mjög vel, og er
ekki hægt að tala um heppnissig-
ur að þessu sinni. Lið sem vinnur
upp 16 stiga forskot á timabili i
siðari hálfleik með fjóra af sinum
bestu leikmönnum með 4 villuri
það lið hlýtur að vera gott lið.
Kristinn Stefánsson var bestur
KR-inga að þessu sinni, hreint
ótrúlega sterkur i vörninni, og
var oft gaman að sjá hann gnæfa
einan yfir aðra leikmenn á vellin-
um og hirða fráköstin með látum.
Einnig var Andrew Piazza góður,
en hann sagði eftirfarandi um
Kristinn að leik loknum: „Það
var unaðslegt að sjá Kristin, i sið-
ari hálfleik sérstaklega. Þá var
það hvað eftir annað sem hann
gnæfði með höfuð og herðar yfir
aðra leikmenn og hirti fráköstin
sem tröll væri. Hann lék stórkost-
lega.”
Þá má ekki gleyma Jóni Sig-
urðssyni, en hann lék mjög vel að
vanda.
Piazza var stigahæstur að
þessu sinni með 23 stig, en Jón
skoraði 18.
Það var greinilegt að vonbrigði
Valsmanna eftir leikinn voru
mikil. Þeir léku mjög vel i fyrri
hálfleik en I þeim siðari var sem
allur botn dytti úr leik liðsins.
Kristján Ágústsson var bestur að
þessu sihni og lék sinn besta leik
fyrir Val.
Einnig var Rick Hockenos góð-
ur, en það sem gerði gæfumuninn
fyrir Valsmenn að þessu sinni var
það, að liðið byggðist of mikið á
tveimur leikmönnum þ.e.a.s.
þeim Kristjáni og Rick. Aðrir
Framhald á 17. siðu.
Ekkert óvænt
í bikarnum
Fram sigraði KR, Víkingur
Ármann og Valur Fylki
í verkfallinu þann 1. og 2. mars
fóru fram þrir leikir i Bikar-
keppni HSI, og urðu úrslit þau, að
Valur sigraði Fylki, 26:14, og var
greinilegt að leikmenn Fylkis
tóku lifinu með ró, þvi þeir eiga
mikilvægan leik fyrir höndum —
gegn Leikni i dag, og ef þeir sigra
þá hafa þeir tryggt sér 1. deildar
sæti að ári. Það var þvi skiljan-
legt að Fylkismenn tækju lifinu
rólega gegn Val.
Þá sigraði Fram KR auðveld-
lega i miklum markaleik með 28
mörkum gegn 22. Munaði þar
mestu fyrir Framara aö Guðjón
Einarsson varði mark Fram vel
eftir langa fjarveru, og einnig að
Gústaf Björnsson var i miklum
ham og skoraði 10 mörk fyrir
Fram. Þá lék Birgir Jóhannsson
vel. Simon Unndórsson skoraði
mest fyrir KR eöa sex mörk.
Vikingar léku gegn Ármanni og
náðu góðri stöðu i byrjun 8:2, en
þá fór allt úr skorðum og Ar-
menningar náðu að minnkamun-
inn niður i eitt mark i siðari hálf-
leik 13:12, en þá vöknuðu Viking-
ar til lifsins á ný, og leiknum lauk
með öruggum sigri þeirra, 21:14.
SK.
Um helgina...
Mikiö verður um að vera fyrir
islenska iþróttaunnendur um
helgina, en það helsta er þetta:
Kl. 14.00 i dag fer fram úrslita-
leikur tslandsmótsins i blaki og
eigast þar við lið ÍS og Þróttar. Er
um hreinan úrslitaleik að ræða,
oger fólk hvatt til að láta sigekki
vanta i Hagaskólann, þvi þar
verður hart barist og örugglega
hörkuleikur.
Islandsmótið i júdói ferfram á
morgun, fyrri hluti, og verður
glimt i iþróttahúsi kennarahá-
skóla og hefst keppnin kl. 14.30.
Þá fer fram i dag einn af Ur-
slitaleikjum íslandsmótsins i
handknattleik, en þá leiöa saman
hesta sina lið FH og Vikings.
Verður þar um hörkuleik að ræða
og hefst hann i Laugardalshöll kl.
15.30.
ÍR-ingar fá þaö skemmtilega
verkefni i dag að bregða sér i
ljónagryfjuna i Njarövikum og
leika gegn heimamönnum i 1.
deildinni i körfuknattleik. Þá
leika IS og Armann i Hagaskóla á
morgun og hefst leikurinn kl.
14.30.
Tekst Fylki að vinna sæti i 1.
deild i handboltanum i dag? Svar-
ið verður að finna i Laugardals-
höll strax og leik Vikings.og FH
loknum.
SK.
Stefán Reykj avíkurmeistari
og Ármann Reykjanesmeist.
BRIOGE
Umv'or '
QÍáfuf. Ldi isson
Frá
Reykjavíkurmótinu
Þá er Reykjavikurmótinu i
sveitakeppni 1978 lokið og bar
sveit Stefáns Guðjohnsens sigur
úr býtum.
Geysihörð keppni var á milli
þeirra og sveit Jóns Ásbjörns-
sonar. Sveit Jóns sigraði alla
sina leiki, og hafði forystu allt
mótið, þar til sveit Stefáns seig
framúrá lokasprettinum. Þess-
ar sveitir voru i sérflokki. Röð
sveita varð þessi:
stig
1. Sv. Stefáns Guðjohns* 104
2. Sv. Jóns Ásbjörnss. 102
3. Sv. Sigurj. Tryggvas. 71
4. Sv. Hjalta Eliass. 66
5. Sv. Dagbj. Grimss. 55
7.Sv. Jóns Hjaltas. 36
1 sigursveitinni eru: Stefán
Guðjohnsen, Jóhann Jónsson,
Hörður Arnþórsson og Þórarinn
Sigþórsson.
í sveit Jóns Á., eru auk hans:
Simon Simonarson, Jón G.
Jónsson, Ólafur Haukur Ólafs-
son, Helgi Jónsson og Helgi Sig-
urðsson.
Jafnframt keppni i M. f 1., var
keppt i 1. flokki. Sex sveitir
kepptu þar um 4 laus sæti til
þátttöku I undankeppni Islands-
móts, sem hefst i lok mars.
Úrslit I 1. flokki uröu þessi:
stig
1. Sv. Páls Valdimarss. 94
2. Sv. Guðm.T. Gislas. 76
3.Sv.Sig. B.Þorsteinss. 64
4. Sv. Esterar Jakobsd. 29
5. Sv. Steingr. Jónass. 26
6. Sv. Eiðs Guðjohns. 0
1 sveit Páls eru: Páll Valdi-
marsson, Valur Sigurðsson,
Tryggvi Bjarnason, Daniel
Gunnarsson og Steinberg Rik-
harðsson.
Keppnisstjórn var I höndum
Guðmundar Kr. Sigurössonar.
Frá
Reykjanesmótinu
Reykjanesmótinu i sveita-
keppni 1978 er lokið. Sveit Ar-
manns J. Lárussonar úr Kópa-
vogi bar sigur úr býtum. Sveitin
sigraði örugglega i mótinu.
Sveit Armanns sigraöi einnig i
mótinu 1976, en tapaði naum-
lega i fyrra, fyrir sveit Björns
Eyst., úr Hafnarfirði. Að þessu
sinni, var sveitin skipuö: Ár-
mann J. Lárusson fyrirl., Sævin
Bjarnason, Vilhjálmur Sigurðs-
son, Jón Páll Sigurjónsson og
Guðbrandur Sigurbergsson.
Er þetta stórglæsilegt hjá
„kónginum” úr Kópavogi, en
sveitin er einnig nv. bikarmeist-
ari BSt.
Smá leiðindamál skaut upp
kollinum I lokaumferð mótsins,
en stendur vonandi til bóta, er
þetta er skrifað. 5 efstu sveitir
unnu sér rétt til þátttöku i und-
ankeppni tsl,- mótsins, sem
hefjast i lok mars. Einnig á
svæðið rétt á 2. varasveit i rnót-
ið.
Röð efstu sveita (með fýrir-
vara) varð þessi:
1.SveitÁrmanns J.Lárussonar
Kópavogi
2. Sveit Alberts Þorsteinssonar
Hafnarfirði.
3. Sveit Gisla Torfasonar Kefla-
vik
4. Sveit Björns Eysteinssonar
Hafnarfirði
5. Sveit Guðmundar Pálssonar
Kópavogi
6. Sveit Jónatans Lindals Kópa-
vogi.
Auk þessa, spilaði sveit Arnar
Vigfússonar frá Selfossi, sem
gestir I mótinu. Þeir eru Suöurl.
meist.
Stjórn BRU þakkar þeim
þátttökuna.
Og að lokum, fyrirhugað er aö
hefja undankeppni fyrir tvi-
menninginn um aðra helgi.
Spilarar eru beðnir um aö láta
skrá sig hið fyrsta hjá sinum
félögum. Nánari keppnistimi og
staöur veröur auglýstur siðar.
Raðað verður i 3 riöla fyrri dag-
inn, og raöaö siðan þversum
seinni daginn. Ólafur Lárusson
mun sjá um tvimenninginn.
Fulltrúar i stj. BRU, munu gefa
allar upplýsingar um keppnina,
og skrá þá sem hyggja á þátt-
töku. Svæðið á rétt á 10 pörum
inn I tslandsmót i tvim. 1978., og
munu 19 pör komast áfram úr
undankeppni auk meistara frá
fyrra ári, Lárusar Hermanns-
sonar og Sævins Bjarnasonar.
Ariðandi er, að menn láti skrá'
sig strax.
Frá BR
Lokið er svokallaðri
Board-a-match keppni félags-
ins. Þátttaka var 14 sveitir og
spiluð voru 10 spil milli sveita.
Keppt var um bikar, sem Valur
Fannar hefur gefið, I þessa ár-
legu keppni.
Einnig var keppt um eitt laust
sæti, til þátttökp i M.fl., sveita-
keppni BR 1978. Mikil barátta
var um sæti þetta og stóð slag-
urinn milli sveita Sigurðar, Páls
og Guðmundar H.
Sveit Sigurðar hafði leitt mót-
iðsvo til, og henni tókst að halda
réttinum, en sveit Stefáns Guð-
johnsens sigraði með einu stigi
ofar.
Er þetta þriðji sigurinn i röð
hjá sveit Stefáns og virðist
sveitin vera komin á gott skriö.
Röð efstu svéita varð þessi:
stig
1. Sv. Stefáns Guðjohns. 151
2. Sv. Sig. B.Þorsteinsss. 150
3. Sv. Páls Valdimarss. 148
4. Sv. Guðm. Hermannss. 143
5. Sv. Simonar Simonars. 138
6. Sv. Jóns Gislas. 134
7. Sv. Guðm.T. Gislas. 133
Um helgina verður spilað I
Boðsmóti BR, en það er tvi-
menningskeppni 28 para meö
þátttöku EM-meistarana
Göthe-Morath frá Sviþjóö. Spil-
að er á Loftleiðum og hefst
keppni á laugardag. Fólk er
hvatt til aö koma og sjá Sviana
að „verki”.
Og næsta miðvikudag hefst
svo meistaratvimennings-
keppni BR og spilaö er i M.fl og
1. fl.Eru 16 pör i hvorum flokki.
8 pör eiga rétt i M. fl„ úr tvi-
menningskeppni fyrr I vetur og
önnur 8 pör (i M.fl.) ráðast af
samtölu meistarastiga þeirra
para, sem sækja um þátttöku I
keppninni.
r
Frá Asunum
Nú er lokiö 10 umferðum (2
kvöldum) af 29, i Baromet-
er-keppni félagsins. Forystuna
hafa tekið ungir og efnilegir
spilarar, og er gott bil i næstu
pör. Staða efstu para er þessi:
1. Hrólfur Hjaltason —
Runólfur Pálsson 1053 stig
2. Bjarni Sveinsson —
Jón G unnar Pálsson 996 stig
3. Asmundur Pálsson —
Þórarinn Sigþórsson 970 stig
4. Haukur Ingason —
Þorlákur Jónsson 956 stig
5. Óli Andreasson —
Sæ vin Bj ar na son 924 stig
6. Jón Hilmarsson —
OddurHjaltason 919 stig
7. Armann J. Lárusson —
Sverrir Armannsson 915stig
8. Guðbr. Sigurbergsson —
JónPállSigurj.s. 912stig
Meöalskorer 840 stig
Næstu umferöir veröa spilaö-
ar n.k. mánudag.