Þjóðviljinn - 04.03.1978, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. mars 1978
Tillaga borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins:
Gegn hefndarrádstöfunum
vegna allsherjarverkfalls
Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í fyrrakvöld vakti
Sigurjón Pétursson umræður um hótunarbréf vinnu-
málastjóra borgarinnar, sem sent var öllum forstöðu-
mönnum borgarstofnana vegna yfirvofandi mótmæla-
aðgerða verkalýðsfélaganna.
Sigurjón Pétursson sagði:
„Ég kveð mér hljóðs utan dag-
skrár vegna fréttar i Morgun-
blaðinusl. þriðjudag um bréf sem
vinnumálastjóri borgarinnar hef-
ur sent öllum borgarstofnunum.
Ég hef aflað mér þessa bréfs og
ég verð að segja að ákvörðun um
að senda svona bréf á ekki að
minu mati að vera tekin af ein-
stökum embættismönnum.
Bréfið er svohljóðandi:
„Bandalag starfsmanna rikis
og bæja hefur hvatt opinbera
starfsmenn til að leggja niður
vinnu miðviku- og fimmtudag 1.
og 2. mars n.k. Enda þótt Starfs-
mannafélag Reykjavikurborgar
eigi ekki aðild að áskorun þessari
um verkfall.sem tvimælalaust er
ólöglegt, þykir rétt og skylt að
vekja athygli á reglum borgar-
innar, sem um þetta efni gilda.
í 35.gr.reglugerðarumréttindi
og skyldur starfsmanna Reykja-
vikurborgar segir svo:
„Starfsmanni er skylt að vinna
án endurgjalds yfirvinnuallt að
tvöföldum þeim tima, er hann
hefur verið frá starfi án gildra
forfalla eða hlíta þvi, að dregið
sé frá launum sem þvi nemur.”
Miðað við tveggja daga forföll
getur þetta þýtt launafrádrátt
sem nemur 32 yfirvinnustundum.
Slikur frádráttur nemur miklum
fjárhæðum. (Dæmi: kr. 62.144.- f
13. flokki eftir 6 ár). Er þvf rétt og
sanngjarnt gagnvart starfsmönn-
um að kynna þeim sem best fyrir-
fram þær reglur, sem heimilt er
að beita ef til ólöglegra forfalla
kemur.
Forföll 1. og 2. mars óskast til-
Gestaleikur í
Þjóðleikhúsinu
Alfa-beta
á Litla
svidinu
Um helgina kemur Leikfélag
Akureyrar til Reykjavíkur með
gestaleik og sýnir í Þjóðleikhús-
inu í boði þess. Sýnt verður
breska leikritið ALFA BETA eftir
E'. A. VVhitehead, en leikritið hef-
ur verið sýnt nokkrum sinnum á,
Settur fræðshi-
stjóri fyrir
noröan
kynnt launadeild fyrir hádegi
hvorn dag um sig.
Reykjavik, 27. febrúar 1978
Magnús óskarsson.”
Eins og borgarfulltrúar heyra,
er hér um ódulbúna hótun að ræða
um að svipta starfsfólki sem
svarar 2% mánaðarlauna fyrir
hvern einn klukkutfma sem það
vantar i vinnu.Ekki dreg ég í efa
að rétt sé vitnað i lagagreinar af
hálfu vinnumálastjóra, en hitt
dreg ég i efa að með þessu bréf i sé
hann að túlka vilja borgaryfir-
valda þ.e. kjörinna borgarfull-
trúa.
Kvennaverkfallið
Dæmi um það að fólk hafi lagt
niður vinnu án lögboðins eða um-
samins aðdraganda eru mörg og
af ýmsum toga spunnin. Tvö ný-
leg dæmi eru um að borgarstarfs-
menn hafa með þessum hætti lagt
niður vinnu:
Annað dæmið var hinn frægi
kvennadagur þegar konur i öllum
þjóðfélagshópum lögðu niður
vinnu i einn dag til að leggja
Akureyri við góðar undirtektir.
Þýðingu verksins gerði Kristrún
Eymundsdóttir, leikmynd er eftir
Þráin Karlsson, en leikstjóri er
Brynja Benediktsdóttir.
Leikritið gerist i Liverpool og
spannar 9 ára timabil i lifi hjóna,
sem þau Sigurveig Jónsdóttir og
Erlingur Gislason leika. Verkið
áherslu á mikilvægi vinnufram-
lags sins. Ég hygg að allar starf-
andi konur hjá borginni hafi lagt
niður vinnu þann dag. Aðdrag-
andi og undirbúningur kvenna-
verkfallsins fór ekki fram hjá
nokkrum manni og vafalaust ekki
heldur vinnumálastjóra Reykja-
vikurborgar. Þó varekkertsvona
bréf sent þá. Sömu lög voru þá i
gildi, sömu reglur til að fara eftir
og aðdragandi vinnustöðvunar-
innarenguskemmrien nú. 1 sam-
ræmi við tillögu sem ég flutti i
borgarráði varákveðið að draga i
engu frá launum þess starfefólks
sem lagði niður vinnu á kvenna-
fridaginn. Og þótt örlitilla efa-
semda gætti hjá einstaka manni
um réttmæti þess að ganga svo
langt að draga ekkert frá launum
þeirra eins og tillaga min gerði
ráð fyrir, þá datt ötugglega eng-
um i hug að draga frá launum
tvöfalda yfirvinnu eða lækka
kaup þeirra starfsmanna um 16%
sem lögðu niður vinnu i einn dag
til að leggja áherslu á vinnufram-
lag kvenna.
Sjúkraþjálfarar lögðu
niður vinnu
Hitt dæmið sem ég vil nefna er
þegar sjúkraþjálfarar lögðu niður
vinnu i einn dag i febrúar 1975 i
mótmælaskyni við það að heil-
brigðisráðherra hafði veitt til-
teknum einstaklingi leyfi til að
stunda sjúkraþjálfun.
ingin verður á sunnudagseftir-
miðdag kl. 15, önnur sýning á
þriðjudagskvöld og 3. sýning á
miðvikudagskvöld.
Með þessu starfsleyfi töldu
sjúkraþjálfarar að vegið væri að
starfsmenntun þeirra og starfs-
réttindum og gripu þvi til þessa
ráðs. Verkfall þetta var boðað
meðsólarhrings fyrirvaraog gilti
jafnt fyrir Borgarspitalann sem
aðrar sjúkrastofnanir. Sam-
kvæmt bréfi frá vinnumálastjóra
til borgarráðs um þetta verkfall
sjúkraþjálfara var haft samráð
við rikið um aðgerðir og frádrátt
frá launum. Af borgarinnar hálfu
var siðan beitt þeirri hörðu reglu
að draga frá laun á tvöföldu yfir-
vinnukaupi fyrir þann tima sem
ekki var unnið. Hjá rikinu var
þessari reglu hins vegar ekki
beitt. Þar mun hafa verið beitt
einhverjum frádrætti en ekki
nándar nærri eins ströngum og
gert var hjá borginni. Framhald
þessa máls varð siðan það að i
desember sama ár samþykkti
borgarráð með tveimur atkvæð-
um gegn 1 að endurgreiða sjúkra-
þjálfurum að fullu þau laun sem
frá þeim höfðu verið dregin. Þessi
ákvörðun var siðan staðfest i
borgarstjórn með 8 atkvæðum
gegn 4.
Þetta seinna dæmi sýnir að það
var ekki vilji borgarstjórnar að
beita fyllstu hörku i tilvikum sem
þessum.
Ólög virða menn ekki
Nú hafa launamenn undir for-
ystu heildarsamtaka sinna lagt
niður vinnu i tvo daga án þess að
sú vinnustöðvun hafi verið boðuð
með umsömdum hætti. Astæðan
er hverjum manni það augljós að
óþarfi ætti að vera að rekja hana.
Rikisvaldið hefur með lagaboði
ógilt þá samninga sem það sjálft
stóð að fyrir aðeins örfáum mán-
uðum. Sú spurning leitar nú á
hvern einasta launamann hvort
þessisamningur, loforð eða fýrir-
heit þessarar rikisstjórnar hafi
almennt nokkurt gildi.
Samningar, sem gerðir voru
samkvæmt leikreglum lýðræðis-
þjóðfélags og kostuðu tugþúsund-
ir launþega kostnaðarsama bar-
áttu, eruað engu gerðir af örfáum
einstaklingum á löggjafarsam-
kundu þjóðarinnar.
Það sem launþegar unnu i fórn-
frekri baráttu, hirða innan við 40
alþingismenn af þeim á aðeins
einni viku.
I augum flestra launþega voru
þetta ólög en ekki lög sem sam-
þykkt voru. Og þvi bar að mæta
þeim eins og til var stofnað.
Orðtakið „Með lögum skal land
byggja” er tungutamt ráðamönn-
um þjóðarinnar, nú um þessar
mundir. Þegaréglærði þetta orð-
taki bernsku, þá var það lengra:
„Meðlögum skal land byggja, en
með ólögum eyða.”
Þeir stjórnarherrar, sem beita
ólögum uppskera eins og þeir sá.
1 stað þess að sameina þjóðina
sundra þeir henni. 1 stað þess að
leysa vandamál, skapa þeir ný og
óleysanlegri vandamál.
Islenska þjóðin styðst ekki við
sterkt rikisvald. Löghlýðni og
réttarvitund alls almennings hef-
ur verið mikil og ráðamenn þjóð-
arinnar hafa einnig oftast gætt
þess að misbjóða ekki réttarvit-
Sigurjón Pétursson.
und almennings og þvi hefur lög-
um jafnan verið hlýtt þótt sumum
þeirra hafi verið mótmælt með
ýmsum hætti.
Nú hefur hins vegar verið geng-
iðoflangt. Olög virða menn ekki.
Þjóðfélagið er i upplausn.
Hótunarbréf
t þessu ástandi eru hótunarbréf
ekki likleg til að lægja öldur. Hér
ber að fara að öllu með gát.
Með hliðsjón af þvi sem áöur
hefur verið framkvæmt, þegar
starfsfólk hefur lagt niður vinnu
með sama hætti og nú,virkar bréf
vinnumálastjóra sem hreint hót-
unarbréf til þess, sett fram til að
hræða fólk frá þvi að framkvæma
þær mótmælaaðgerðir sem sam-
viskan býður þvi.
Atvinnuofsóknir og atvinnu-
kúgun eiga að heyra fortiðinni til
alfarið.
Til að undirstrika þá skoðun, vil
ég leggja hér fram tillögu sem er
svohljóðandi: „Vegna bréfs þess,
sem vinnumálastjóri Reykjavik-
urborgarhefur sent forstöðu-
mönnum borgarstofnana vegna
verkfallsaðgerða launþegasam-
takanna dagana 1. og 2. mars,
samþykkir borgarstjórn að ekki
skuli gripið til neinna hefndarráð-
stafana gegn þeim einstakling-
um, sem orðið hafa við áskorun
launþegasamtakanna.”
Nokkrar umræður urðu i fram-
haldi af ræðu Sigurjóns. Einn
borgarfulltrúi ihaldsins, Albert
Guðmundsson, stórkaupmaður,
kallaði allsherjarverkfallið 1. og
2. mars byltingartilraun komm-
únista. Adda Bára Sigfúsdóttir
fordæmdi harðlega hefndarað-
gerðir ihaldsins. Kristján Bene-
diktsson (F) studdi meginstefnu
vinnumálastjóra og meirihlutans,
en við atkvæðagreiðslu studdi
hann þó tillögu um að draga að-
eins einfalt venjulegt kaup frá
vegna verkfallsins; en allar til-
raunir til leiðréttingar urðu
árangurslausar. 10 borgarfulltrú-
ar ihaldsins (þar af einn fram-
sóknarmaður) studdu hefndarað-
gerðir gegn borgarstarfsmönn-
um; 4 borgarfulltrúar Alþýðu-
bandalagsins og Alþýðufiokksins
voru andvígir refsifrádrættinum
vegna verkfallsins.
Grænjaxlar á KjarvaJsstödum
Erlingur Gislason og Sigurveig Jónsdóttir I hlutverkum sinum í
Alfa Beta. Ljósm. Noröurmynd.
Hótun um að taka 2%
mánaðarlauna fyrir hvern
klukkutíma sem fólk var
í allsherjarverkfalli
Menntamálaráðherra hefur
samkvæmt tillögu Fræðsluráðs
Norðurlandsumdæmis eystra sett
Sturlu Kristjánsson, skólasál-
fræðing, fræðslustjóra um eins
árs skeið frá 20. febrúar 1978.
Aðrir sem sóttu um fræðslu-
stjóraembættið i Norðurlands-
kjördæmi eystra voru þessir:
Bjarni Kristjánsson, yfirkenn-
ari, Edda Eiriksdóttir, skóla-
stjóri, Kári Arnórsson, skóla-
stjóri, Indriði tJlfsson, skóla-
stjóri, Kristinn G. Jóhannsson,
skólastjóri. Sigurður H.
Þorsteinsson, skólastjóri.
er i þrem þáttum og á milli þátta
eru sýndar skyggnimyndir úr
fjölskyldualbúum og hefur As-
grimur Agústsson ljósmyndari
séð um þann þátt verksins. Leik-
rit þetta vakti mikla athygli i
London, þegar það var frumsýnt
þar fyrir nokkrum árum, þá með
leikurunum Albert Finney og
Rache Roberts i hlutverkum
hjónanna.
Þetta er i fyrsta skipti sem
Leikfélag Akureyrar sýnir i Þjóð-
leikhúsinu og raunar nýbreytni að
leiksýningar utan af landi séu
sýndar i leikhúsinu. Fyrsta sýn-
Nú eru hafnar sýningar fyrir
almenning á leikriti Þjóðleik-
hússins GRÆNJÖXLUM, en
leikrit þetta hefur verið sýnt
fyrir nemendur framhalds- og
menntaskólanna i vetur við gif-
urlega aðsókn. Hefur verkið
verið sýnt hartnær 40 sinnum
fyrir flesta framhaldsskóla á
höfuðborgarsvæöinu og i ná-
grenni, en litið verið hægt að
fara I lengri ferðir, þrátt fyrir
fjölda fyrirliggjandi pantana.
Sýningin á Grænjöxlum er til
orðin i náinni samvinnu höfund-
ar, flytjenda og leikstjóra, en
aðaitextahöfundur verksins er
Pétur Gunnarsson, rithöfundur.
Tónlistin er eftir Spilverk þjóð-
anna, en leikstjóri er Stefán
Baldursson. Leikmynd og bún-
inga sá Sigurjón Jóhannsson
um. Flytjendur eru átta: leikar-
arnir Helga Jónsdóttir, Sig-
mundur örn Arngrimsson, Þór-
hallur Sigurðsson og Þórunn
Sigurðardóttir og svo Spilverk-
ið, en i þvi eru Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Egill ólafsson, Valgeir
Guðjónsson og Sigurður Bjóla
Garðarsson. — Þess má geta að
Spilverk þjóðanna var á dögun-
um kosin besta hljómsveit árs-
ins 1977 og plata þeirra,
STURLA, besta ídjómplata árs-
in^,en fjölmörg laganna á þeirri
plötu eru einmitt upphaflega
samin fyrir Grænjaxla og flutt i
sýningunni.
Sýningar verða á Kjarvals-
stöðum næsta hálfa mánuðinn
og eru sýningar á sunnudags-,
þriðjudags-, miðvikudags- og
fimmtudagskvöld. Miðasala
verður á Kjarvalsstöðum
tveimur timum fyrir sýningar.