Þjóðviljinn - 04.03.1978, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. mars 1978
Laugardagur 4. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
manns
Fundurinn á Lækjartorgi var mjög fjölmennur, eius u& »» a myndinni. «i,jósmynair: eiks
Otifundur launþegasamtakanna, sem haldinn var á
Lækjartorgi 1. mars til að mótmæla kaupránslögum rík-
isstjórnarinnar, var geysifjölmennur. Ræður fluttu
Snorri Jónsson varaforseti ASI og Kristján Thorlacius
formaður BSRB. Fundarstjórar voru Jónas Sigurðsson
framkvæmdastjóri INSI og Jón Hannesson form. launa-
málaráðs BHM, og flutti Jón ávarp i fundarlok og bar
upp ályktun fundarins, sem samþykkt var samhljóða af
þeim þúsundum launþega sem voru saman komnir á
Lækjartorgi. Fundinum bárust fjölmargar baráttu-
kveðjur frá verkalýðsfélögum, starfsmannahópum og
samtökum um land allt. _ eös
r
Rœöa Snorra Jónssonar varaforseta ASl
SAMSTAÐAN er og
verdur okkar styrkur
Ræða Snorra Jónssonar vara-
forseta Alþýðusambands tslands
á útifundi samtaka launafólks 1.
mars:
Ágætu áheyrendur.
Við erum hér samankomin til
að mótmæla árásum rikisvalds-
ins á kjör okkar og samningsrétt.
Með sólstööusamningum á sið-
asta ári náðist nokkur kjarabót,
þótt ekki tækist að ná þeim kaup-
mætti, sem hæstur var á árinu
1974. Allar efnahagslegar
forsendur hafa batnað frá þvi að
samningar voru geröir, þrátt fyr-
ir þá óstjórn, sem rikt hefur á
efnahagsmálum þjóðarinnar.
Engin nauðsyn knúði þvf rikis-
stjórnina til að leysa efnahags-
vandann á kostnað launafólks.
Kauplækkun sú sem rikisvaldið
og meirihluti Alþingis hefur
samþykkt að skuli taka gildi i dag
er rúmlega 5%, en á næstu 12
mánuðum eykst kjaraskerðingin
ogi árslok þyrfti kaupið aö hækka
um ein 15% til þess að ná þvi sem
óskertir samningar gefa. A einu
ári á að hirða af fólki rúmlega
mánaðarkaup — ekki bæta við
þrettándu mánaðarlaununum,
heldur láta duga að greiða 11
mánaöa kaup fýrir næstu 12 mán-
aöa vinnu.
Þessi sama rikisstjórn og nú
vill lækka kaupið, lýsti samþykki
við kjarasamningana á sl. ári, og
taldi tilefni til að lækka skatta.
Hún samdi við BSRB fyrir 3 mán-
uðum og afgreiddi fjárlög fyrir 2
mánuðum — án þess að hún virt-
ist sjá nokkur kreppumerki.
Hvað snertir BSRB er
óhjákvæmilegt að minna á að
rammasamningur var geröur að
loknu hálfsmánaðar verkfalli.
Rikisstjórnin gaf opinberum
starfsmönnum ekkert færi á þvi
að fá rétt til samningsendurskoö-
unar meö verkfallsrétti ef sett
yrðu lög á samningstimanum
sem breyttu greiðslu verðlags-
bóta. Samningarnir skyldu gilda i
2 ár — þvi rikisstjórnin sagðist
vilja gera varanlega samninga.
— Var ástæðan kannski sú, að þá
þegar hafi þessi kjaraskerðing
veriö ákveöin?
Atvinnurekendur hóta nú ,
starfsfólki sinu. — Rikisstjórnin
hótar opinberum starfsmönnum,
— þeir skulu hræddir til undir-
gefni með sérsmiðuðum hegning-
arreglum.
Launamenn hafa áður mætt
hótunum þegar þeir hafa barist
fyrir kjörum sinum og réttindurn
og ekki látið á sig fá.
í þessari réttinda- og hags-
munabaráttu sem nú stendur yfir
verður að ríkja algjör einhugur. —
Samstaðan er og verður okkar
styrkur.
Kjaraskerðingaraðgerðir rikis-
stjórnarinnar mæta andstöðu frá
öllum ærlegum tslendingum.
Ekki ein rödd úr hópi þeirra þús-
unda sem mætt hafa undanfarið á
fundi samtaka launafólks um allt
land hefur mælt bót kjaraskerð-
ingarleið rfkisstjórnarinnar og
meirihluta Alþingis.
— Enginn hefur reynt að verja
þessar gerðir rikisstjórnarinnar.
— Fólki ofbýöur.
Hámarki nær siðleysisviöhorfið
ef til vill i yfirlýsingu Vinnuveit-
endasambandsins, þar sem allir
þjóðhollir Islendingar eru
áminntir um að kjarasamning-
arnir séui fullu gildi. — Engu hef-
ur verið breytt nema kaupgjalds-
liðum samninganna, segja
atvinnur ekendur.
t samþykkt miðstjórnar
Alþýðusambands Islands frá 10.
febrúar var þvi beint til félag-
anna innan sambandsins, að þau
segðu upp kaupgjaldsákvæðum
kjarasamninganna. — NU hafa
svo til öll verkalýðsfélög innan
ASt tilkynnt atvinnurekendum
uppsögn. — Þessi skjótu viðbrögð
beraþvi ljósan vott, að andstaðan
gegnkjaraskerðingunnier algjör.
Þau samtök sem að þessum
fundi standa hafa starfað náið
saman aö öllum undirbúningi
þeirrar baráttu sem nú er hafin,
og er þetta i fyrsta sinn i sögu
samtaka islensks launafólks, sem
svo breitt samstarf hefur tekist
meö samtökunum.
Þaö er nú sameiginlegt verk-
efni alls launafólks i landinu að
hrinda kjaraskerðingaráformum
rikisstjórnarinnar.
Við látum ekki taka af okkur
mánaðarkaup á næstu 12 mánuö-
um!
Við látum ekki taka af okkur
samningsréttinn!
Aform stjórnvalda eru skýr.
Lögin sem nú hafa verið
samþykkt eru aðeins fyrsta
skrefið.
Veröi árásinni ekki hrundiö
mun meira fylgja á eftir.
Sameinuð stöndum við að þvi
að mótmæla kjaraskerðingunni.
Sameinuð höfum við staöið að
uppsögn kjarasamninganna.
Sameinuð stöndum viö að þess-
um mótmælaaðgerðum um land
allt i dag og á morgun.
Sameinuð verðum við að standa
i þeirri baráttu sem framundan
er.
Leggjum til hliðar þann skoö-
anaágreining sem kann aö vera i
ýmsum málum.
Sameinuð hönd i hönd skulum
við ganga til þeirrar baráttu sem
framundan er, undir kjörorðinu:
SAMNINGANA 1 GILDI'.
Jónas Sigurðsson setti útifundinn.
Jón Hannesson
Rœöa Kristjáns Thorlaciusar formanns BSRB
Hugsjón Péturs Pálssonar
Þríhross ræður ríkjum hjá
ráðamönnum
Hér fer á eftir ræða Kristjáns
Thorlaciusar, formanns Banda-
lags starfsmanna rfkis og bæja, á
útifundi launþegasamtakanna á
Lækjartorgi 1. mars:
Góðir fundarmenn.
1 landi okkar á að rikja lýðræði,
og hluti af þvi lýðræði er frjáls
réttur samtaka launafólks til þess
að semja um launakjör félags-
manna sinna við atvinnurekend-
ur. Þetta er einn af þeim horn-
steinum, sem lýðræði i nútima-
þjóðfélagi byggist á.
Ef þessi frjálsi samningsréttur
er fótum troðinn, kemur mismun-
un þegnanna i stað þess jafnrétt-
is, sem allur þorri manna vill að
rlki i okkar fámenna þjóðfélagi.
Sumir telja sér trú um, að jafn-
rétti riki I okkar landi, en það er
þvi miður rangt, og þróunin geng-
ur ört i þá átt á seinni árum að
færa alræðisvald i hendur þeirra,
sem yfir peningamálum
þjóðfélagsins ráða.
hlutur þjóðartekna, sem um
semst á hverjum tima.
A siðastliðnum tveimur áratug-
um hafa 25 sinnum verið gerðar
efnahagsráðstafanir hér á landi,
ur, sem 'verkálýðssamtökin i
landinu hafa samið um.
landinu hafa samið um.
Fyrir fáum dögum voru sam-
þykkt á Alþingi lög, sem rifta
þeim samningum, sem gerðir
voru við atvinnurekendur á
siðasta ári. Meöal þessara samn-
inga var kjarasamningur sem
rikisstjórnin hafði sjálf gert fyrir
4mánuðum.
Þess vegna erum við öll stödd
hér á þessum fundi nú og þess
vegna hefur allur þorri launafólks
lagt niður vinnu á þessum degi til
þess að mótmla þvi, að stöðugt sé
haldið áfram á þeirri braut að
ógilda gerða kjarasamninga.
- ——— ■
✓
Avarp fundarins:
Islensk verkalýðshreyfing
stendur á krossgötum.
Varnarbarátta launafólks sið-
ustu tuttugu árin hefur verið erfið
og þvi aðeins verið þolanleg fólki
fjárhagslega að nóg vinna er þó
kaupið sé lágt.
Nóbelsskáld Islendinga lætur
Pétur Pálsson Þrihross fá verka-
menn til að lýsa þvi yfir skrif-
lega, að þeir kjósi heldur langa
vinnu i sumar en háan kauptaxta
i vor.
Og það er einmitt þetta sama,
sem klingir i eyrum okkar frá
stjórnvöldunum i dag. Þau segja
við ykkur: „Samþykkið það um-
yrðalaust, launamenn góðir, að
við lækkum kaupið ykkar, þá fáið
þið langa vinnu i sumari’
Hugsjón Péturs Pálssonar Þri-
hross ræður greinilega rikjum hjá
ráðamönnum, ekki siður nú en
fyrr.
Það, sem gerst hefur nú, er
þetta:
Meö nýsettum lögum er samn-
ingum breytt og umsamið kaup
skert um meira en eins mánaðar
laun á tólf mánuðum miðað við
35% aukningu verðbólgunnar.
A næstu mánuðum má búast
við enn meiri kjaraskerðingu með
valdboði. — Þið heyrið hvernig
frystihúsaeigendur hrópa þessa
dagana.
Ekkert nema aukinn máttur
samtaka launafólks — stóraukin
samstaða þess — getur bjargað
frá þvi, að launafólkið — þorri
þjóðarinnar — verði algerlega
undir, fjarhagslega, i viðureign
við sterkt vald atvinnurekenda i
landinu.
I dag gnæfir ein krafa fólks yfir
allt annað:
Heiðarleiki i stjórnmálum og
réttlæti komi i stað þess hrá-
skinnaleiks og þeirrar fjármála-
spillingar sem veður uppi meðal
fámennra forréttindahópa, öllum
þorra manna til tjóns.
Við búum við rangláta skatta-
löggjöf, sem fæst ekki breytt.
Taumlaust fjárfestingarbruðl
kyndir verðbólgubálið, en ekki
laun almennings.
Vaxtaokrið, sem af verðbólg-
unni leiðir, er að færa menn i kaf.
Kristján Thorlacius I ræðustól.
Góðir fundarmenn.
Ég skora á alla þá, sem hér eru
staddir að standa fast saman og
taka virkan þátt I þeirri baráttu,
sem við heyjum nú og framundan
er til þess að treysta samtök
launafólks til baráttu fyrir
heiðarlegra og réttlátara þjóðfé-
lagi á Islandi.
K jarasamnfngana í gildi!
1 skjóli bankavaldsins ráða at-
vinnurekendur þessu landi og
hafa gert um langa hrið, hvaöa
rikisstjórn sem setið hefur við
völd.
Samtök launafólks hafa þaö
hlutverk að gæta hagsmuna
launamanna og heyja baráttu
fyrir þvi að til þeirra komi sá
Ávarp útifundar á vegum ASÍ,
BSRB, Launamálaráðs BHM,
FFSl og INSt á Lækjartorgi 1.
mars 1978:
CJtifundur launþegasamtak-
anna, haldinn á Lækjartorgi 1.
mars 1978, mótmælir harðlega
árás rikisstjórnarinnar á lifs-
kjör launafólks og frjálsan
samningsrétt samtakanna.
Með lögum frá Alþingi stefnir
rikisstjórnin að stórfelldri
kjaraskeröingu, þótt afkoma
þjóðarbúsins og þjóðartekjur
gefi fyllsta tilefni til umsaminna
kjarabóta.
Riftun löglega gerðra kjara-
samninga hefur vakið réttláta
reiði og hefur alþýða landsins
risið upp til mótmæla með
tveggja daga allsherjar vinnu-
stöðvun. Fagna ber þeirri við-
tæku samstöðu sem tekist hefur
með stærstu launþegasamtök-
um landsins, og þeirri einingu
sem rikir um að hrinda kjara-
skerðingunni og tryggja i fram-
tiðinni fullan og óskoraöan rétt
til frjálsra samninga um kaup
og kjör.
Aform rikisstjórnarinnar um
að takmarka samningsréttinn
með skerðingu á visitöluákvæð-
um kjarasamninganna eru til-
ræði við frjálsan samningsrétt
launþegasamtaka á Islandi.
lslensk alþýöa!
Sýnum órofa samstöðu.
Sameinumst öll undir kröfuna:
KJARASAMNINGAN A I
GILDI!