Þjóðviljinn - 04.03.1978, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 04.03.1978, Blaðsíða 11
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. mars 1978 Laugardagur 4. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 manns Fundurinn á Lækjartorgi var mjög fjölmennur, eius u& »» a myndinni. «i,jósmynair: eiks Otifundur launþegasamtakanna, sem haldinn var á Lækjartorgi 1. mars til að mótmæla kaupránslögum rík- isstjórnarinnar, var geysifjölmennur. Ræður fluttu Snorri Jónsson varaforseti ASI og Kristján Thorlacius formaður BSRB. Fundarstjórar voru Jónas Sigurðsson framkvæmdastjóri INSI og Jón Hannesson form. launa- málaráðs BHM, og flutti Jón ávarp i fundarlok og bar upp ályktun fundarins, sem samþykkt var samhljóða af þeim þúsundum launþega sem voru saman komnir á Lækjartorgi. Fundinum bárust fjölmargar baráttu- kveðjur frá verkalýðsfélögum, starfsmannahópum og samtökum um land allt. _ eös r Rœöa Snorra Jónssonar varaforseta ASl SAMSTAÐAN er og verdur okkar styrkur Ræða Snorra Jónssonar vara- forseta Alþýðusambands tslands á útifundi samtaka launafólks 1. mars: Ágætu áheyrendur. Við erum hér samankomin til að mótmæla árásum rikisvalds- ins á kjör okkar og samningsrétt. Með sólstööusamningum á sið- asta ári náðist nokkur kjarabót, þótt ekki tækist að ná þeim kaup- mætti, sem hæstur var á árinu 1974. Allar efnahagslegar forsendur hafa batnað frá þvi að samningar voru geröir, þrátt fyr- ir þá óstjórn, sem rikt hefur á efnahagsmálum þjóðarinnar. Engin nauðsyn knúði þvf rikis- stjórnina til að leysa efnahags- vandann á kostnað launafólks. Kauplækkun sú sem rikisvaldið og meirihluti Alþingis hefur samþykkt að skuli taka gildi i dag er rúmlega 5%, en á næstu 12 mánuðum eykst kjaraskerðingin ogi árslok þyrfti kaupið aö hækka um ein 15% til þess að ná þvi sem óskertir samningar gefa. A einu ári á að hirða af fólki rúmlega mánaðarkaup — ekki bæta við þrettándu mánaðarlaununum, heldur láta duga að greiða 11 mánaöa kaup fýrir næstu 12 mán- aöa vinnu. Þessi sama rikisstjórn og nú vill lækka kaupið, lýsti samþykki við kjarasamningana á sl. ári, og taldi tilefni til að lækka skatta. Hún samdi við BSRB fyrir 3 mán- uðum og afgreiddi fjárlög fyrir 2 mánuðum — án þess að hún virt- ist sjá nokkur kreppumerki. Hvað snertir BSRB er óhjákvæmilegt að minna á að rammasamningur var geröur að loknu hálfsmánaðar verkfalli. Rikisstjórnin gaf opinberum starfsmönnum ekkert færi á þvi að fá rétt til samningsendurskoö- unar meö verkfallsrétti ef sett yrðu lög á samningstimanum sem breyttu greiðslu verðlags- bóta. Samningarnir skyldu gilda i 2 ár — þvi rikisstjórnin sagðist vilja gera varanlega samninga. — Var ástæðan kannski sú, að þá þegar hafi þessi kjaraskerðing veriö ákveöin? Atvinnurekendur hóta nú , starfsfólki sinu. — Rikisstjórnin hótar opinberum starfsmönnum, — þeir skulu hræddir til undir- gefni með sérsmiðuðum hegning- arreglum. Launamenn hafa áður mætt hótunum þegar þeir hafa barist fyrir kjörum sinum og réttindurn og ekki látið á sig fá. í þessari réttinda- og hags- munabaráttu sem nú stendur yfir verður að ríkja algjör einhugur. — Samstaðan er og verður okkar styrkur. Kjaraskerðingaraðgerðir rikis- stjórnarinnar mæta andstöðu frá öllum ærlegum tslendingum. Ekki ein rödd úr hópi þeirra þús- unda sem mætt hafa undanfarið á fundi samtaka launafólks um allt land hefur mælt bót kjaraskerð- ingarleið rfkisstjórnarinnar og meirihluta Alþingis. — Enginn hefur reynt að verja þessar gerðir rikisstjórnarinnar. — Fólki ofbýöur. Hámarki nær siðleysisviöhorfið ef til vill i yfirlýsingu Vinnuveit- endasambandsins, þar sem allir þjóðhollir Islendingar eru áminntir um að kjarasamning- arnir séui fullu gildi. — Engu hef- ur verið breytt nema kaupgjalds- liðum samninganna, segja atvinnur ekendur. t samþykkt miðstjórnar Alþýðusambands Islands frá 10. febrúar var þvi beint til félag- anna innan sambandsins, að þau segðu upp kaupgjaldsákvæðum kjarasamninganna. — NU hafa svo til öll verkalýðsfélög innan ASt tilkynnt atvinnurekendum uppsögn. — Þessi skjótu viðbrögð beraþvi ljósan vott, að andstaðan gegnkjaraskerðingunnier algjör. Þau samtök sem að þessum fundi standa hafa starfað náið saman aö öllum undirbúningi þeirrar baráttu sem nú er hafin, og er þetta i fyrsta sinn i sögu samtaka islensks launafólks, sem svo breitt samstarf hefur tekist meö samtökunum. Þaö er nú sameiginlegt verk- efni alls launafólks i landinu að hrinda kjaraskerðingaráformum rikisstjórnarinnar. Við látum ekki taka af okkur mánaðarkaup á næstu 12 mánuö- um! Við látum ekki taka af okkur samningsréttinn! Aform stjórnvalda eru skýr. Lögin sem nú hafa verið samþykkt eru aðeins fyrsta skrefið. Veröi árásinni ekki hrundiö mun meira fylgja á eftir. Sameinuð stöndum við að þvi að mótmæla kjaraskerðingunni. Sameinuð höfum við staöið að uppsögn kjarasamninganna. Sameinuð stöndum viö að þess- um mótmælaaðgerðum um land allt i dag og á morgun. Sameinuð verðum við að standa i þeirri baráttu sem framundan er. Leggjum til hliðar þann skoö- anaágreining sem kann aö vera i ýmsum málum. Sameinuð hönd i hönd skulum við ganga til þeirrar baráttu sem framundan er, undir kjörorðinu: SAMNINGANA 1 GILDI'. Jónas Sigurðsson setti útifundinn. Jón Hannesson Rœöa Kristjáns Thorlaciusar formanns BSRB Hugsjón Péturs Pálssonar Þríhross ræður ríkjum hjá ráðamönnum Hér fer á eftir ræða Kristjáns Thorlaciusar, formanns Banda- lags starfsmanna rfkis og bæja, á útifundi launþegasamtakanna á Lækjartorgi 1. mars: Góðir fundarmenn. 1 landi okkar á að rikja lýðræði, og hluti af þvi lýðræði er frjáls réttur samtaka launafólks til þess að semja um launakjör félags- manna sinna við atvinnurekend- ur. Þetta er einn af þeim horn- steinum, sem lýðræði i nútima- þjóðfélagi byggist á. Ef þessi frjálsi samningsréttur er fótum troðinn, kemur mismun- un þegnanna i stað þess jafnrétt- is, sem allur þorri manna vill að rlki i okkar fámenna þjóðfélagi. Sumir telja sér trú um, að jafn- rétti riki I okkar landi, en það er þvi miður rangt, og þróunin geng- ur ört i þá átt á seinni árum að færa alræðisvald i hendur þeirra, sem yfir peningamálum þjóðfélagsins ráða. hlutur þjóðartekna, sem um semst á hverjum tima. A siðastliðnum tveimur áratug- um hafa 25 sinnum verið gerðar efnahagsráðstafanir hér á landi, ur, sem 'verkálýðssamtökin i landinu hafa samið um. landinu hafa samið um. Fyrir fáum dögum voru sam- þykkt á Alþingi lög, sem rifta þeim samningum, sem gerðir voru við atvinnurekendur á siðasta ári. Meöal þessara samn- inga var kjarasamningur sem rikisstjórnin hafði sjálf gert fyrir 4mánuðum. Þess vegna erum við öll stödd hér á þessum fundi nú og þess vegna hefur allur þorri launafólks lagt niður vinnu á þessum degi til þess að mótmla þvi, að stöðugt sé haldið áfram á þeirri braut að ógilda gerða kjarasamninga. - ——— ■ ✓ Avarp fundarins: Islensk verkalýðshreyfing stendur á krossgötum. Varnarbarátta launafólks sið- ustu tuttugu árin hefur verið erfið og þvi aðeins verið þolanleg fólki fjárhagslega að nóg vinna er þó kaupið sé lágt. Nóbelsskáld Islendinga lætur Pétur Pálsson Þrihross fá verka- menn til að lýsa þvi yfir skrif- lega, að þeir kjósi heldur langa vinnu i sumar en háan kauptaxta i vor. Og það er einmitt þetta sama, sem klingir i eyrum okkar frá stjórnvöldunum i dag. Þau segja við ykkur: „Samþykkið það um- yrðalaust, launamenn góðir, að við lækkum kaupið ykkar, þá fáið þið langa vinnu i sumari’ Hugsjón Péturs Pálssonar Þri- hross ræður greinilega rikjum hjá ráðamönnum, ekki siður nú en fyrr. Það, sem gerst hefur nú, er þetta: Meö nýsettum lögum er samn- ingum breytt og umsamið kaup skert um meira en eins mánaðar laun á tólf mánuðum miðað við 35% aukningu verðbólgunnar. A næstu mánuðum má búast við enn meiri kjaraskerðingu með valdboði. — Þið heyrið hvernig frystihúsaeigendur hrópa þessa dagana. Ekkert nema aukinn máttur samtaka launafólks — stóraukin samstaða þess — getur bjargað frá þvi, að launafólkið — þorri þjóðarinnar — verði algerlega undir, fjarhagslega, i viðureign við sterkt vald atvinnurekenda i landinu. I dag gnæfir ein krafa fólks yfir allt annað: Heiðarleiki i stjórnmálum og réttlæti komi i stað þess hrá- skinnaleiks og þeirrar fjármála- spillingar sem veður uppi meðal fámennra forréttindahópa, öllum þorra manna til tjóns. Við búum við rangláta skatta- löggjöf, sem fæst ekki breytt. Taumlaust fjárfestingarbruðl kyndir verðbólgubálið, en ekki laun almennings. Vaxtaokrið, sem af verðbólg- unni leiðir, er að færa menn i kaf. Kristján Thorlacius I ræðustól. Góðir fundarmenn. Ég skora á alla þá, sem hér eru staddir að standa fast saman og taka virkan þátt I þeirri baráttu, sem við heyjum nú og framundan er til þess að treysta samtök launafólks til baráttu fyrir heiðarlegra og réttlátara þjóðfé- lagi á Islandi. K jarasamnfngana í gildi! 1 skjóli bankavaldsins ráða at- vinnurekendur þessu landi og hafa gert um langa hrið, hvaöa rikisstjórn sem setið hefur við völd. Samtök launafólks hafa þaö hlutverk að gæta hagsmuna launamanna og heyja baráttu fyrir þvi að til þeirra komi sá Ávarp útifundar á vegum ASÍ, BSRB, Launamálaráðs BHM, FFSl og INSt á Lækjartorgi 1. mars 1978: CJtifundur launþegasamtak- anna, haldinn á Lækjartorgi 1. mars 1978, mótmælir harðlega árás rikisstjórnarinnar á lifs- kjör launafólks og frjálsan samningsrétt samtakanna. Með lögum frá Alþingi stefnir rikisstjórnin að stórfelldri kjaraskeröingu, þótt afkoma þjóðarbúsins og þjóðartekjur gefi fyllsta tilefni til umsaminna kjarabóta. Riftun löglega gerðra kjara- samninga hefur vakið réttláta reiði og hefur alþýða landsins risið upp til mótmæla með tveggja daga allsherjar vinnu- stöðvun. Fagna ber þeirri við- tæku samstöðu sem tekist hefur með stærstu launþegasamtök- um landsins, og þeirri einingu sem rikir um að hrinda kjara- skerðingunni og tryggja i fram- tiðinni fullan og óskoraöan rétt til frjálsra samninga um kaup og kjör. Aform rikisstjórnarinnar um að takmarka samningsréttinn með skerðingu á visitöluákvæð- um kjarasamninganna eru til- ræði við frjálsan samningsrétt launþegasamtaka á Islandi. lslensk alþýöa! Sýnum órofa samstöðu. Sameinumst öll undir kröfuna: KJARASAMNINGAN A I GILDI!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.