Þjóðviljinn - 04.03.1978, Qupperneq 13
Laugardagur 4. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Else Marie Lauvanger (t.v.) og Martje Hoogstad INorræna húsinu meö „Opinberunina" á millisín.
ekki alvarlega vegna þess efnis-
vals og efnismeðferöar sem viö
notum, kalla þetta bara handa-
vinnu og kvennadiítl. En aðal-
atriðið er vitanlega að maöur
komi á framfæri þvi sem maður
vill segja.” Við siðukonur urð-
um lika varar við þetta viðhorf
hjá nokkrum sýningargestum.
Einn sagði að honum þætti það
mest um vert að stúlkunum
þætti nú bersýnilega gaman að
þessu. Þær Else og Martje sögð-
ust ekki óvanar svona ummæl-
um ög oft brygðist fólk mjög
harkalega við þeirri ádeilu sem
kæmi fram i verkum þeirra.
T.d. væri sú skoðun enn rikjandi
að aðeins ætti að gera myndir af
fallegum konum, og reyndar
ættu konur fyrst og fremst að
vera fallegar.
Þrátt fyrir þá einhliða mynd
sem samfélagið dregur upp af
konum, og stafar að miklu leyti
af mismunandi uppeldi stráka
ogstelpna, þá lögðu þær Martje
og Else áherslu á að það væri
siður en svo lausn að konur
gengju beint inn i hlutverk og
hegðunarvenjur karla, jafnvel
þótt það gæti veitt konum ein-
hvern frama innan karlasamfé-
lagsins. „Allt i einu máttum við
ekki hafa ánægju af matseld og
handavinnu, við áttum að hegða
okkur einsog karlar”, en karla-
samfélagið getur ekki sagt kon-
um hvernig þær eigi að öðlast
nýja sjálfsvitund, heldur verða
þær að byggja á eigin reynslu,
læra að sjá sig eins og þær eru
enekkiþá glansmynd sem sam-
félagið treður upp á þær.
„Versta kúgunin er sú að ætlast
til að allir passi inn i ákveðiö
munstur. Allir eiga rétt á að
finna s jálfan sig, finna hæfileika
sina og þróa þá eftir getu. Við
segjum allt of sjaldan: Mér
þykir vænt um þig eins og þú
ert, þótt mér misliki stundum
það sem þú gerir og segir.”
Ilin mikla móðir á gallabuxum.
Hjónabandiö er heitiö á þessari mynd og önnur var á sýningunni er
nefndist Skilnaöur.
Bindisgæjar heitir þessi mynd.
Togstreitan milli þessarrar
kröfu samfélagsins og veruleik-
ans er aðalviðfangsefni þeirra
Elseog Martje. Hvorug sagðist
vera dugleg viö að taka þátt i
kröfugöngum eöa öðrum slikum
mótmælaaðgeröum. Þær heföu
valið sér myndlistina sem tján-
ingarform og jafnframt bar-
áttutæki. Um árangurinn af
erfiðinu höfðu þær þaö að segja
aö stundum fyndist þeim sem
ekkert hefði áunnist; ungar
stelpur virtust ekki vita neitt
meira um lifið og tilveruna en
þær gerðu þegar þær voru ung-
ar, en jafnframt gætu þær ekki
vænst þess að upplifa sjálfar
þær breytingar sem framsækin
Íist vinnur aö.
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða
í lögsagnarumdæmi
Reykiavíkur í marsmánuði
1978
Um aðalskoðun bifreiða i lögsagnarum-
dæmi Reykjavikur i marsmánuði 1978.
Miövikudagur 1. mars R-2801 til R-3200
Kimmtudagur 2 mars R-3201 tilR-3600
Föstudagur 3. mars R-3601 til R-4000
Mánudagur 6. mars R-4001 til R-4400
Þriðjudagur 7. mars R-4401 til R-4800
Miðvikudagur 8. mars R-4801 til R-5200
Fimmtudagur 9. mars R-5201 til R-5600
Föstudagur 10. mars R-5601 til R-6000
Mánudagur 13. mars R-6001 til R-6400
Þriðjudagur 14. mars R-6401 til R-6800
Miðvikudagur 15. mars R-6801 til R-7200
Fimmtudagur 16. inars R-7201 til R-7600
Föstudagur 17. mars R-7601 til R-8000
Mánudagur 20. mars R-8001 til R-8400
Þriðjudagur 21. mars R-8401 til R-8800
Miðvikudagur 22. mars R-8801 til R-9200
Þriðjudagur 28. mars R-9201 til R-9600
Miðvikudagur 29. mars R-9601 til R-10000
Fimmtudagur 30. mars R-10001 til R-10400
Föstudagur 31. mars R-10401 til R-10800
Skoðað verður að Bildshöfða 8, alla virka
daga, nema laugardaga, frá kl. 8.00 til
16.00.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Bilds-
höfða 8,og verður skoðun framkvæmd þar
alla virka daga kl. 08.00-16.00.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvL að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi, að skráningar-
númer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að
máli.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
24. febrúar 1978
Sigurjón Sigurðsson