Þjóðviljinn - 18.03.1978, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 18.03.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 18. mars 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 Sambandid stofnsetur nýja kexverksmiðju Stefnt að fjöl- breyttu úrvali Um þessar myndir eru að koma á markaðinn i kaupfélagsbúðum og öðrum matvöruverslunum um land aiit þrjár nýjar tegundir af kexi. Þetta kex er fyrsta framieiðsla rtýrrar kexverk- smiðju, Kexverksmiðjunnar llolts sem tekið hefur til starfa á vegum sambandsins i hinum nýju húsakynnum þess I Holtagörðum. Vélarnar i verksmiðjuna voru keyptar frá irlandi og komu til landsins á siðasta ári. Það tók hálfan þriðja mánuð að setja vélarnar niður og undanfarið hef- ur verið unnið að prófun vélasam- stæðunnar, en rækilega þurfti að rey na öll tæki og allar uppskriftir, áður en fyrsta framleiðslan var send á markaðinn. Verksmiðjusalurinn er einir 86 Verksmiöjustjórinn f kexverksmiöjunni Holti, örnólfur Ólafsson. /"0 81333 Félag áhugamanna um heimspeki Fyrirlestur í Lögbergi Félag áhugamanna um heimspeki gengst fyrir fyrirlestri iLögbergi, húsi Lagadeildar H.t., sunnudaginn 19. mars kl. 14.30. Frummælandi er dr. Arnór Hannibalsson og reifar efnið: „Fyrirbærafræði og raunhyggja” Fundurinn er öllum opinn. Sýning Styrktarfélags vangefinna að Kjarvalsstöðum 18.-27. mars „Vfljinn í verid” Dagana 18..- 27. mars veröur haldin sýning að Kjarvalsstööum, sem hlotiö hefur nafnið „Viljinn I verki”. Tilgangur sýningarinnar er að sýna þróun á málefnum vangefinna i máli og myndum, vinnu vistfólks á heimilum vangefinna og kynna að öðru leyti málefnið, sem ekki virðist vanþörf á. Að sýningunni standa öll heimili vangefinna i landinu svo og öskjuhliðarskóli, Þroska- þjálfaskóli Islands og Landssam- tökin Þroskahjálp. málefnið og sýndar kvikmyndir, innlendar og erlendar. Þá munu ýmsir listamenn koma fram meðan á sýningunni stendur. Þetta er fyrsta sýning sinnar tegundar hér á landi og er þvi von þeirra sem vinna að málefnum vanginna og standa að þessari sýningu að hún veki athygli sýn- ingargesta og veki þá umfram allt til umhugsunar um þessi mál. 1 afmælisnefndinni eiga sæti: Halldóra Sigurgeirsdóttir, formaður, Gréta Bachmann, Hrefna Haraldsdóttir, Hörður Sýning þessi er haldin i tilefni 20 ára afmælis Styrktarfélags vangefinna i Reykjavik, en það var stofnað 23. mars 1958 og var fyrsta félag, er stofnað var i land- inu til styrktar vangefnum. Innan félagsins hefur starfað afmælisnefnd, sem m.a. hefur haft það verkefni að undirbúa þessa sýningu. Varð hún sam- mála um að nota skyldi afmælis- áriö til kynningar á málefninu meðal almennings. Auk sýningar á vinnu vangef- inna verða kynntar bækur um Sigþórsson og Tómas Sturlaugs- son. Mikill fjöldi fólks hefur starfað með nefndinni að uppsetningu sýningarinnar, foreldrar, starfs- fólk stofnana og annað áhugafólk. Hönnuöur sýningarinnar er Gunnar Barnason, leiktjalda- málari. Sýningin verður opin frá kl. 17:00 til kl. 22:00 nú á laugardag- inn og siðan alla daga frá kl. 14:00 til kl. 22.00, nema páskadag frá kl. 15:00 til 22:00 og lokað veröur á föstudaginn langa. (Ljósm: —eik) Munir unnir af vistfólki i Bjarkarási Unnið aö pökkun á kexinu. metrar að lengd, málaöur i hólf og gólf, og er afar snyrtilegt um að litast. öðru megin i salnum er heljar- langur bakarofn, hvorki meira né minna en 56 metrar aö lengd og tekur það u.þ.b. 7—8 minútur frá' þvi að deigið fer i vélarsamstæö- una og þar til kökurnar eru pakk- aðar. Þarna eru löguö 400 kiló af deigi i einu i stórri þar til gerðri hrærivél. Allt frá þvi að deiginu er komið i vélina og þar til kemur að pökkun er um sjálfvirka starf- semi að ræða. Fyrst er sléttað úr deiginu siðan mótaðar kökurnar, þá fara þær i bakarofninn og þaðan á heljarlangt færiband til kælingar áður en kemur að pökkun. Þáð var danskur kexverk- smiðjustjóri sem aðstoðaði við uppbyggingu verksmiöjunnar, Georg Engstrup, en hann hefur starfað sem kexverksmiðjustjóri hjá FDB i Danmörku i 40 ár. Hann kvaðst vera mjög ánægður með kexiö sem hér er nú framleitt i þessum vélum. Stjórnandi verksmiðjunnar er örnólfur Ólafsson bakara- meistari, en hann hefur verið bæði i Irlandi og Danmörku til að kynna sér þessa starfsemi. Við framleiösluna vinna nú 12 manns og er starfsliðið að sögn örnólfs óðum að ná fullum tökum á öllum stigum framleiðslunnar. Miðað við 6—7 stunda vinnudag er áætlað að i verksmiðjunni verði bökuð um 2 tonn af kexi á dag. Nú þegar eru framleiddar þrjár tegundir af kexi eins og áður seg- ir, en þær eru vanillukex, mjólkurkex og kornkex. En ætl- unin er að bæta við þremur nýjum tegundum á næstunni og koma með samtals sex tegundir af kexi á markaðinn á þessu ári. Hinar þrjár tegundirnar verða væntan- lega kremkex, súkkulaðihúðað kornkex og hafrakex. —IGG Áskorun frá Verkamanna- sambandi íslands Gerið ráðn- ingar- samning Af gefnu tilefni vill Verka- mannasamband lslands minna allt verkafólk, sem vinnur við fiskvinnslu, á það ákvæði gr. 16.1.1. i samningum VMSl við samtök atvinnurekenda, að frá og með 1. mars s.l. fjölgaöi kauptryggingardögúm um einn og eru þeir nú 5 i hverri viku, þ.e. full vinnuvika. Þá vill VMSI skora mjög eindregiö á allt verkafólk i fisk- vinnslu að nota þann rétt, sem samningar veita til þess að gera ráðningarsamning og losna á þann hátt m.a. við erfiðleika i sambandi við atvinnuleysis- bætur, en samkvæmt ákvörðun stjórnar atvinnuleysistrygginga- sjóðs ber ekki að greiða atvinnu- leysisbætur fyrir þá daga sem viðkomandi hefði átt rétt á laun- um samkvæmt kauptryggingar- samningi. ÚTI ER VETUR - HJfl OKKUR ER VOR >lvnla í: “ ':j Mrara ý,Elv|ilái ''Vy Sniii'i*;i Við bjóðum BLÓMALÍNURNAR frá HAGA i nýjum og fjölbreyttari búningi. HAGI nr Glerárgötu 26 Akureyri simi 96 21507 Suðurlandsbraut 6 Reykjavik simi 91 84585 0

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.