Þjóðviljinn - 18.03.1978, Blaðsíða 8
á
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. mars 1978
AUGLYSING
um styrk til framhaldsnáms i hjúkrunar-
fræði
Alþjóöaheilbrigöismálastofnunin (WHO) býöur fram
stvrk handa Islenskum hjúkrunarfræöingi til aö ljúka
M.Sc. gráöu I hjúkrunarfræöi viö erlendan háskóla. Styrk-
urinn er veittur til tveggja ára frá haustinu 1978.
Umsóknareyöublöö og nánari upplvsingar fást I mennta-
málaráöuneytinu.
Umsóknir þurfa að hafa borist menntamálaráöuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavlk fvrir 14. aprll n.k.
Menntamálaráðuneytinu, 15. mars 1978.
w
Félag
járniðnaðarmanna
FEL AG SFUNDUR
verður haldinn þriðjúdaginn 21. mars 1978
kl. 8.30 e.h. i Félagsheimili Kópavogs,
uppi.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. önnur mál
Mætið vel og stundvislega.
Stjórn
félags járniðnaðarmanna
• Blikkiðjan
Asgarði 7, Garðabæ
Onnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI53468
Blaðberabló
Hafnarbió. Laugardaginn 18. mars kl.
13.00
Gullfjallið „vestri” aðalhlutverk: Lex
Barker.
Hafið samband við afgreiðsluna, ef þið
hafið ekki fengið miða.
Þjóðviljinn Sími 8 13 33
Blaðburdarfólk óskast
Vesturborg: Austurborg:
Melhagi Sogamýri Háteigshverfi (afl.)
Seltjarnarnes: vogar Tún
Skólabraut Skúlagata Miðsvæðis:
DIOBVIUINN Siðumúla 6 simi 8 13 33 Grettisgata
Bækfingur um akstur í hálku
Félag islenskra bifreiðaeig-
enda hefur gefið Ut 28 siðna
bækling um akstur I hálku.
Bæklingurinn er skemmtilega
upp settur með fjörlegum texta
og gamansömum teikningum.
Honum er ætlað það hlutverk að
gefa hugmyndir um hvernig
haga skuli akstri á hálum vegi.
Hússtjórnarnámskeid
vinsæl
Hinn 11. mars var haldinn að
Hótel Esju stjórnarfundur
Kennarafélags Hússtjórnar
með skólastjórum hússtjórnar-
skólanna, fulltrúum hússtjórn-
arkennara i framhaldsskólum
og fleirum til að ræða hUsstjórn-
arfræðslu á framhaldsskóla-
stigum.
I ræðu Vigdisar Jónsdóttur,
skólastjóra HUsstjórnarkenn-
araskólans, kom fram að fyrir-
sjáanlegur er skortur á hús-
stjórnarkennurum við grunn-
skóla og framhaldsskóla. Hús-
stjórnarnám er nú valgrein við
Kennaraháskóla Islands.
1 umræðum á fundinum kom
fram, að aðsókn aö starfarrii
hUsstjórnarskólum er viöast
meiri en þeir geta annað siðan
þeir breyttu um starfshætti og
löguðu sig að aöstæöum á hverj-
um stað. 1 fjölbrautaskóla er
höfuð-vandamálið að finna
vinnustaði fyrir verkþjálfun
nemenda við tækninám i með-
ferð mætvæia, ræstingum og
hússtjórn. Alyktanir vinnuhópa
á fundinum verða lagðar fyrir
aðalfund Hússtjórnar sem
haldinn verður að Hvanneyri 8.
og 9. júni n.k.
Sigga Vigga á bók
BókaUtgáfan BROS hefur gef-
ið Ut fyrsta islenska mynda-
sögusafnið. Það heitir „Sigga
Vigga og tilveran” og er eftir
Gisla J. Astþórsson. Sigga
Vigga er þegar landskunn af
teikningum G JA og hefur hún að
baksviði höfuðatvinnuveg
Islendinga. Skopið er efst á
baugi hjá höfundi,en „ekki þarf
að kafa djUpt á stundum til þess
að finna þar lúmskan „brodd”
eða jafnvel ádeilu”, segja Utgef-
endur. Sögurnar af Siggu Viggu
eru að auki stundum samfelld-
ar, samanber prófkjörsraunir
Gvendar forstjóra í bókinni.
„Sigga Vigga og tilveran” kost-
ar aðeins kr.l20ó.
Fleiri bækur um Siggu Viggu
eru væntanlegar, ef vel tekst
með þessa útgáfutilraun.
Rally um helgina
BifreiðaiþróttaklUbbur
Reykjavíkur gengst fyrir
rallykeppni isamvinnu við bila-
söluna Skeifuna i dag og á
morgun. Fyrsti keppandinn
verður ræstur kl. 23 i kvöld i
Skeifunni 11, en þar verða bilar
til sýnis frá kl. 10 um morgunin,
auk þess sem ekinn verður
hringakstur um Arbæ, Breið-
holt, BUstaðahverfi, miðbæinn
og Voga um tvöleytið.
Rallyleiðin er samtals 587
km. löng. Keppendur koma til
Reykjavíkur á ný um tvö-leytið
ámorgun, sunnudag. Um kvöld-
ið verður Rallyball að Hótel
Loftleiðum og verðlaun veitt
fyrir frammistöðu i keppninni.
Keppendur verða 28.
(“ f-- — ~'"í> >?-*
B'LísíUa
’Fos%*j£St‘! •
oSJa. _ o<> jo
Suw-vuOúMo&eru/M
Oji'n.LíUrtÚHHj
Hettu
MvJuCi OQSS _
Su«WL>Ö.MofcCrUKJ ."1
Mótmæla
glerhölfinni
Islendingar i Þrándheimi
hafa sent blaðinu eftirfarandi
ályktun sem gerð var á fundi
þeirra 28. febrUar: „Við lýsum
furðu okkar á tillögunni um
„Glerhöllina” stóru á Hallæris-
planinu. Enn furðulegra teljum
við að slik tillaga hljóti sam-
þykkt skipulagsnefndar. Að
okkar mati gereyðileggst svipur
miðbæjarins, . ef af þessum
breytingum verður, og mótmæl-
um við þeim harðlega.
Við vonumst til að sjá bæ með
svip Reykjavikur, en ekki
háhýsaborg við heimkomu okk-
ar”.
Baháí-
tónleikar
A morgun, sunnudaginn 19.
mars, heldur fransk-kanadiski
pianóleikarinn Francoise
Rouleau Smith hljómieika i
Norræna hUsinu í Reykjavik.
Frú Smith hefur m.a. á ferli
sinum leikið undir hjá þekktum
alþjóðlegum listamönnum, svo
sem sópransöngkonunni Lois
Marchall og Constance
Lambert, sem nú syngur við
Metrópólitan-óperuna i New
York, svo og fiðluleikaranum
Arthur Leblanc.
Frú Smith er þó kunnust i
Kanada fyrir fjölmarga Ut-
varps- og sjónvarpstónleika.
Þar sem hún játar Bahái-trú,
hefur frú Smith á efnisskrá sinni
verk, sem endurspegla Bahá’i
hugsjónir.
Aætlað er að frU Smith leiki
einnig á Neskaupsstað á meðan
á heimsókn hennar til tslands
stendur.
Safnaöar-
heimilivígt
í Árbæ
Safnaðarheimili Arbæjar-
sóknar verður vigt og tekið i
notkun á morgun, pálmasunnu-
dag. Athöfnin hefst kl. 14. Safn-
aðarheimiliðsem erfyrri áfangi
kirkjubyggingarinnar og safn-
aðarheimilisins i Arbæjar-
prestakalli, er jarðhæð undir
kirkjuskipinu sjálfu, sem siðar
er áformað að reisa. Stærð þess
er um 370 fermetrar að flatar-
máli. I þvl er stór samkomusal-
ur, tvö litil herbergi fyrir sókn-
arfélög, eldhús, skirfstofa sókn-
arprests, snyrtiherbergi, fata-
geymslur og rúmgott andyri.
Bygging safnaðarheimilisins
hefur tekið fjögur ár. Arkitektar
eru þeir Manfreö Vilhjálmsson
og Þorvaldur Þorvaldsson.
Sýning á
,ysmávefnaöi”
Þriðja alþjóðlega sýningin á
smávefnaði „Miniature
Textiles” verður haldin í
Lundúnum i ágúst-september
1978. Breska listiðnaöarmið-
stöðin gengst fyrir sýningunni.
Alþjóðleg dómnefnd starfar á
sýningunni sem er á opnum
samkeppnisgrundvelli. Stærö
verka má vera mest 20 cm á
hvern veg, en efnisvalið er
frjálst. Senda skal til vals sýn-
ingarmuna 8 litskyggnur (35
mm) af fjórum verkum mest.
Spurningalisti i tvlriti með
upplýsingum um höfund þarf að
fylgja skyggnunum. Uppsetning
á meðferð sýningarinnar er á
vegum BBC i LundUnum og hjá
fulltrúum þess i öðrurn löndum
þar sem ráðgert er að sýningin
verði einnig haldinn, þeas.
Portdgal, Austurriki, Sviss,
Noregi, tslandi og Sviþjóð.
Heimilisiðnaöarfélag Islands og
Listiön veita nánari upplýsingar
um sýningu þessa.