Þjóðviljinn - 18.03.1978, Blaðsíða 7
Laugardagur 18. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
JAlþýðubandalagið og verkalýðshreyfingin verða að
geta boöið fram trúverðugt svar við efnahagsstefnu
auðvaldsins, svar sem hefur þá yfirburði að vera
rökstutt af skynsamlegu viti en ekki með ævintýrum
Vésteinn
olason
Ævintýri eða
skynsamleg stefna
Eitt af meginviðhorfum
sósialista er að samfélagið sé
skiljanlegt að við getum skilið
og ráðið við það sem gerist á
ýmsum sviðum þess ekki sist
þvi efnahagslega. Hér greinir
sósialismann mjö'g á við
borgaralega hugmyndafræði
þar sem svo er litið á að efna-
hagslifið stjórni sér að verulegu
leyti sjálft samkvæmt lögmál-
um sem séu hliðstæð náttóru-
lögmálum. Þessi hugmynda-
fræði kemur sér auðvitað vel
fyrir rikjandi stétt þegar al-
þýðan verður harðast úti. Þá er
enginn sekur nema efnahags-
lögmálin og alþýðan verður að
bjargast sem best hún getur.
Þegar'fólk hefur ánetjast
borgaralegri hugmyndafræði
taka viðburöir efnahagslifsins á
sig þá mynd að þar sé á ferðinni
örlagabundinn leikur goð-
kenndra afla. Túlkun borgara-
legra blaða á efnahagsmálum
er i rauninni ekki annað en dul-
búin goðsögn eöa ævintýri sem
virðist endurtaka sig i sifellu. 1
upphafi ævintýrsins er einhvers
konar jafnvægi rikjandi i Mann-
heimum sem lýsir sér i þvi að
kóngurinn i rikinu (Atvinnu-
vegur) hefur hjá sér prinsinn
(Rekstrargrundvöll) en þá
kemur tröllskessan Verkalýðs-
hreyfing með skálmina Verkfall
i krumlu sinni, rænir Rekstrar-
grundvelli frá Atvinnuvegi og
flytur með sér i Jötunheima
(botnlausa pyngju launafólks).
Þá kemur til skjalanna vinkona
Rekstrargrundvallar, Rikis-
stjórn karlsdóttir (afkvæmi al-
þýðunnar, kosin af henni) og
leggur af stað til Jötunheima.
Hún hefur i fórum sinum örvar
sem eru mestu þarfaþing og
nefnast Ráðstafanir. Þær eru
allar þeirrar náttúru að koma
aftur i örvamælinn þegar þær
hafa hitt i mark. Ýmsum nöfn-
um heita þær.en best dugir jafn-
an sú sem mest er og glæstust,
Gengisfelling. Með henni hæfir
Rikisstjórn Verkalýðshreyfingu
i augað og getur nú fært
Rekstrargrundvöll prins heim
til föður sins i Mannheimum.
Hér lýkur ævintýrinu og borg-
arabarnið sem vá hlýðir getur
andað léttar i bili. Reyndar veit
það að Verkalýðshreyfing mun
gróa sára sinna og sagan endur-
taka sig, en alltaf fer hún vel að
lokum.
Það er auðséö hvert er hlut-
verk þessarar goðsögu: hún
færir efnahagsmálin af sviði
þess skiljanlega yfir á svið hins
dularfulla og óviðráðanlega
sem stöðugt endurtekur sig eins
og árstiðirnar og festir þannig i
sessi tvær áhrifamiklar bábilj-
ur: 1) það er sama hver er i
stjórn, arðurinn, rekstrar-
grundvöllurinn verður að vera
kyrr hjá eigendum framleiðslu-
tækjanna ef ekki á illa að fara:
2) þetta bjargast allt einhvern
veginn.
Það er engin furða þótt þetta
séu eftirlætiskenningar hægri
flokkanna sem nú sitja i rikis-
stjórn og samtaka atvinnurek-
enda. Þær létta af þeim allri
ábyrgð á herfilegri óstjórn i
efnahagsmálum og stuðla að
sinnuleysi og doða almennings
sem nennir ekki að hugsa fyrir
kosningar en venst þeim sárs-
auka sem ráðstafanirnar valda
og sættir sig við hann.
Nú þarf auðvitað ekki að
brýna pólitiskt vakandi vinstri
menn i landinu að risa gegn
efnahagsstefnu rikisstjórnar-
innar i orði og verki. Þar á
meðal i kjörklefanum. En það
verður llka að leggja á ráöin um
hyggileg og áhrifarik vinnu-
brögð. Ein meginforsenda þess
að átökin sem fram undan eru
um þjóðfélagsmálin skili laun-
þegum varanlegum árangri er
miklu vandaðri málflutningur,
rækilegriog betur rökstuddur, á
sviði efnahagsmála af hálfu
launþegahreyfingar og Alþýðu-
bandalagsins. Það er ekki nóg
að skipta um hlutverk 1 goðsögn
ihaldsins, gera Verkalýðs-
hreyfingu að þeirri hetju sem
með verkfallsvopn i hönd færir
Alþýðu Mannsæmandi lifskjör
ósfrv. Hvaða sannleikskjarni
sem kann aö vera i slikum
goðsögnum og hvaða
uppörvunargildi sem þær kunna
að hafa i hita baráttunnar duga
þær ekki i ,nútimanum. Ef
vinstri hreyfingin beitir of mikl-
um einföldunum i málflutningi
sinum hefur hún i rauninni
gengist inn á baráttuskilmála
ihaldsins og afsalaö sér þeim
vopnum sem best munu duga
henni: þekkingu og skynsam-
legu viti. Þegar helstu skýring-
ar efnahagsmála eru móthverf-
ar goðsagnir verður það endan-
lega til þess einsað ýta undir til-
hneigingu til að lita á umræðuna
sem leik er lúti sinum eigin lög-
málum án tengsla viö efnahags-
legan veruleika sem á meðan
þessileikur fer fram, stjórni sér
sjálfur.
Nú skal ég játa að ég er
sjálfur farinn að einfalda hlut-
ina. Mér dettur ekki i hug að
neita þvi. að Þjóöviljinn og eins
stakir forystumenn Alþýðu-’
bandalagsins eða launþegasam-
taka hafiofthaft uppi tilburöi til
skynsamlegrar umræðu um
efnahagsmál. Mætti þar nefna
sem dæmi framlag Ragnars
Arnalds til umræðu um skatta-
mál fyrirtækja. En við þurfum
að fá miklu meiri og betri upp-
lýsingar um þá hluti sem hrær-
ast undir yfirborði efnahagslifs-
ins, lika þegar niðurstöður at-
hugana sýna fram á veikleika i
opinberri vinstri stefnu. Það
væri ekki ófróðlegt að fá t.d. vel
unna athugun á eignamyndun i
sjávarútvegi á siöasta áratug á
fjárfestingarpólitik á tekju-
skiptingu með sérstöku tilliti til
láglaunavandamála osfrv.,
osfr. Og það má ekkihorfa iþað
þótt niöurstöður hrófluðu stund-
um við okkar eigin goðsögnum á
vinstri vængnum.
Verkefni eins og þau sem ég
hef hér lýst eru fyrst og fremst
verkefni fýrir sérfræðinga og
blaðamenn, en til þess að þau
skili árangri þurfa þau auðvitað
að haldast i hendur við stefnu-
mótun. Alþýðubandalagið og
verkalýðshreyfingin verða að
geta boðið fram trúverðugt svar
við efnahagsstefnu auðvaldsins,
svar sem hefur þá yfirburði að
vera rökstutt af skynsamlegu
viti en ekki með ævintýrum.
Eysteinn Helgason framkvæmdastjóri Samvinnuferöa ásamt T.
Davies, einum af framkvæmdastjórum bresku ferðaskrifstofunnar
Thomas Cook.
Samvinnuferöir
Bætt þjónusta og
fleiri feröamenn
Samvinnuferðir hafa tekið að
sér einkaumboö á tslandi fyrir,
bresku ferðaskrifstofuna Thomas
Cook. Þetta hefur það i för með
sér, að Samvinnuferðir geta boðið
islenzkum ferðamönnum bætta
þjónustu I feröum til útlanda. ís-
lendingum stendur nú til boða að
notfæra sér trausta feröaþjónustu
Thomas Cook, en fyrirtækið hefur
870 ferðaskrifstofur og umboðs-
menn um allan heim.
Ennfremur mun Thomas Cook
eins og áður standa fyrir ferðum
útlendinga til Islands. Innan-
landsdeild Samvinnuferða mun
skipuleggja dvöl erlendu ferða-
mannanna hér á landi. Hefur
Thomas Cook mikinn áhuga á þvi
að auka verulega ferðir útlend-
inga til landsins og þá fyrst og
fremst Breta. Samvinnuferðir
binda miklar vonir við þetta sam-
starf og það er trú ferðaskrifstof-
unnar, að samstarfið verði til
þessaðauka feröamannastraum-
inn til tslands.
Thomas Cook var stofnað 1841
og er sem kunnugt er ein elsta og
virtasta ferðaskrifstofa i heimi.
Þrátt fyrir háan aldur er þetta si-
ungt fyrirtæki, og meðal við-
skiptavina fyrirtækisins eru Sam-
einuðu Þjóöirnar og stórfyrirtæk-
in Ford og IBM. Auk starfsem-
innar i Bretlandi eru rekin fyrir-
tæki með sama nafni i Bandaríkj-
unum, Afriku, Astraliu og viðar.
Á siöustu árum hafa verið gerðar
miklar skipulagsbreytingar á
fyrirtækinu. Aöalstöövar þess
voru nýlega fluttar út fyrir Lon-
don og starfa þar um 1500 manns.
Auk ferðaskrifstofurekstur(s
annast fyrirtækiö viðamiklá
ferðatékkaútgáfu og eru þessir
feröatékkar álitnir meö þeim
traustustu sinnar tegundar i
heiminum i dag. Er áformað aö
aö sala á feröatékkum frá Cook
hefjist hérlendis innan skamms
til hagræöis fyrir islenska ferða-
menn.
1 tilefni af þessu nýja samstarfi
Samvinnuferða og Thomas Cook
er einn af framkvæmdastjórum
hins breska fyrirtækis, Mr. T.
Davies, kominn hingað til lands.
Mun hann eiga viðræður viö for-
ráöamenn Samvinnuferöa og
framámenn I Islenskum feröa-
málum.
Ráöstefna Alþýðubandalagsins um skólamál:
Hvada erindi
eiga iðnnemar
þangað?
Stutt spjall við Jónas Sigurðsson
starfsmann INSl
Dagana 31. mars til 2. april
n.k. efnir Alþýðubandalagið til
ráöstefnu um skólamál I Þing-
hól i Kópavogi og er hún opin
öllum. Þjóðviljinn átti stutt
spjall við Jónas Sigurðsson
starfsmanna Iðnnemasam-
bands tslands og innti hann eftir
þvi hvaða erindi iðnnemar ættu
á ráðstefnuna.
Mitt álit á þessari ráðstefnu,
sagði Jónas, er að þar verði tek-
in fyrir hin ýmsu grundvallar-
atriði I skólamálum sem ekki
eru mikið við höfð i almennri
umræðu um þau þannig að i
raun og veru eigi hún erindi til
allra i þjóðfélaginu.
Ráðstefnan er áhugaverð
A haustmánuðum 1976 fiutti
einn af þingmönnum Alþýöu-
flokksins, Sighvatur Björgvins-
son, fyrrv. ritstjóri Alþýðublaðs-
ins, þingsálytkunartillögu sem fól
það i sér ma. að þingmenn mættu
ekki þliggja gjafir eða þekkjast
boð hagsmunaaðilja.
Tillagan var send i nefnd og
sofnaði þar og hefur enn ekki
verið uppvakin.
gagnvart iönnemum sjálfum
vegna þess að það er baráttu-
mál þeirra að litiö verði á iðn-
nám sem hluta hins almenna
skólakerfis og þá sjálfa sem
hvert annað skólafólk. Þarna
verða tekin fyrir undirstööuatr-
iði hvaða skóla sem er, svo sem
eðli kennslu og náms og staða
nemandans i skólakerfinu hvort
sem um er að ræða langskóla-
nám eða styttra nám.
Miklar breytingar eru fyrir-
hugaðar á framhaldskólakerf-
inu almennt og þ.á.m. iönnámi
með færslu verklegs náms inn I
skólana. Þess vegna þarf um-
ræða og skoðanaskipti um hin
ýmsu grundvallaratriöi skólans
að tengjast einstökum náms-
greinum eöa námsbrautum.
Til þess að frétta af þessari
þingsályktunartillögu reyndi
bíaðið að ná tali af alþingismann-
inum. Tókst það ekki. Hann var
staddur erlendis, og samkvæmt
upplýsingum formanns þing-
flokks Alþl., Gylfa Þ. Gislasonar,
mun Sighvatur vera i Bandarikj-
unum, i boði einhverra, en hverra
vissi Gylfi ekki.
—úþ
Jónas Sigurðsson
Dagskrá
Föstudagur 31. mars.
Kl. 20:30 Framlag hópa og
einstaklinga sem f jallað hafa
um viðfangsefni ráöstefn-
unnar.
Laugardagur 1. april
Kl. 9:30-15:00 Hópumræður.
Kl. 15:00-17:00 Framhald á
framlögum hópa og ein-
staklinga og niðurstöður
hópumræðna eftir þvi sem
tilefni gefst.
Sunnudagur 2. aprfl.
Kl. 13:30. Almennar um-
ræður. Niðurstöður hópum-
ræðna dregnar saman.
—GFr
Hvað líður samþykkt
tillögu um að þingmenn
megi ekki þiggja gjafír?