Þjóðviljinn - 18.03.1978, Blaðsíða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. mars 1978
Linka
Framhald af bls. 1
frumvarp er lagt yrði fram eftir
páska. Ég ók rakleitt frá honum
til Alþingishússins, baö Kjartan
Bergmann skjalavörö aö hætta
viö að dreifa frumvarpi minu og
sagöi honum frá ástæöunum, sem
sé þeim, að viö þingmenn mynd-
um bera fram sameiginlegt
frumvarp. Um hádegisbiliö á
fimmtudag hringdi Ingvar Gisla-
son svo heim til min og kvaöst
ráöleggja mér aö Iáta dreifa
frumvarpinu þvi hann gæti ekki
tryggt mér það að þeir þingmenn
stjórnarflokkanna gætu staöið aö
þvi meö mér eftir páska. >ar
stæöi á Jóni Sólnes, sagöi hann,
sem segöist þurfa til samþykki
þingflokks sins. Eg spuröi þá
Ingvar hvort þeir framsóknar-
mennirnir vildu þá ekki bara
flytja frumvarpið meö mér — og
myndi ég þá að sjálfsögöu breyta
greinargerðinni. A þvi taldi hann
öll tormerki.
Nú lét ég sem sagt dreifa frum-
varpinu og varö þar viö ósk >órs
hafnarbúa þvi ekki mátti það
dragast lengur svo talist gæti ,,á
næstu dögum”f eins og stendur i
bréfi þeirra rituðu 22. febrúar.
Hins vegar er ég enn þeirrar
skoðunar að langbest væri aö viö
fiyttum þetta frumvarp saman
allir þingmenn kjördæmisins. Ef
Ingvar Gislason, sem sæti á i
neðrideild en ég i efri, vill fiytja
frumvarpiö þegar eftir páska er
ég reiðubúinn að afturkalla mitt
frumvarp, og hef umboð til þess
að lýsa yfir þvi, að Lúðvik
Jósepsson er reiöubúinn aö veröa
meöflutningsmaður að þvi af
hálfu Alþýðubandalagsins.
En hvaö þá um rang-
færslurnar og ósannindin sem
Ingvar talar um?
Ég veit þaö ekki. Vona bara
að hann hafi sagt þetta einhvem-
vegin öðruvisi og þarna hafi orðiö
blaðamennskutilhlaup eins og i
fyrirsögn >jóðviljans, sagði
Stefán Jónsson að lokum._____
Hrafn
Framhald af bls. 1
Siguröur A. Magnússon, fulltrúi
Alþýöubandalagsins i útvarps-
ráði, hafði lýst þvi yfir að hann
styddi >orstein Jónsson, kvik-,
myndagerðarmann i starfið.
>órarinn >órarinsson for-
maður útvarpsráðs gerði tillögu
um Agúst Guðmundsson, kvik-
myndaleikstjóra og þarsem ljóst
var að Framsóknaratkvæðin i
ráðinu féllu á hann lýsti Sigurður
A. Magnússon þvi yfir að hann
myndi ekki láta sitt atkvæði falla
dautt, heldur stvðja Agúst Guð-
mundsson.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
þri'r í ráðinu og fulltrúi Alþýðu-
flokksins hafa þvi greitt Hrafni
atkvæði sitt. Starf „dramatúrgs”
er hálft starf við sjónvarpið, og
veitti fjármálaráðherra vilyrði
fyrir þessu nýja starfi án vitn-
eskju eða samráðs við útvarps-
stjóra, að sögn þeirra sem gerst
þekkja,með þvi skilyrði að Hrafn
Gunnlaugsson yrði ráðinn i það.
—ekh
Húsaleiguhneyksli
Framhald af 15. siðu.
Leigjendur meö
börn
Jón minnist á frægasta dæmið
um réttindaleysi islenskra leigj-
enda i dag. Barneignir virðast
höfuðsynd hjá þeim sem ekki eiga
eigið. húsnæði, leigjendur eru
skyldaðir til barnleysis.
f húsaleigulögunum frá 1943
fyrirfinnst ákvæði sem vart er
hægt að misskilja: ,,(.>egar
leigusali leigír út ibúð sina) skal
hann leitast við að leigja hana
fjölskyldu, er hefur á framfæri
sinu börn innan 16 ára aldurs, og
jafnan leita tillagna húsaieigu-
nefndar um ráðstöfun ibúöarinn-
ar, áður en hann leigir hana öðr-
um.”
Eftir þvi sem næst verður kom-
ist, er ekki nein slik ákvæði að
finna i húsaleigulögum annarra
Noröurlanda. Hinsvegar fá
barnafjölskyldur sérstaka fyrir-
greiðslu hvað snertir húsaleigu-
styrki, en um þá veröur fjallaö i
grein varðandi spurninguna hvað
þurfi til að húsaleigulög séu virt.
Á næstunni verður einnig fjall-
að sérstaklega um leigjendur á
tslandi, reynslu þeirra og viðhorf.
Og siðast en ekki sist þurfum viö
að leita svara við þvi, hversvegna
Alþýðufiokkurinn sem átti aðild
að rikisstjórn þegar húsaleigu-
lögin voru afnumin, brást leigj-
endum svo hrapallega.
Heimildir: Lög 39/1943 og
áorðnar breytingar til 1956:
Skýrsla Húsnæðismálastofnunar
rikisins um „Húsaleigumál i ná-
grannalöndum” dags. i júni 1973:
og Vinnan, 1. hefti 1978.
Mön
Framhald af 2 siðu.
hverju er þingið háð undir berum
himni eins og löngum tiðkaðist
áður fyrr, og er það jafnan 5. júli.
tbúar eyjarinnar hafa sina eig-
in útvarpsstöð. Sjónvarp fá þeir
enn frá Bretlandi, en hafa i
hyggju að koma sér upp eigin
sjónvarpsstöð lika. Gefin eru út 5
dagblöð á Mön, sem koma út sitt
hvern daginn og fiytja aðallega
heimafréttir. Aðrar fréttir lesa
menn i breskum blöðum.
Sendinefndarfulltrúarnir höfðu
veriö á >ingvöllum, þegar þeir
ræddu við fréttamenn og fannst
mikið til þess koma. >eir voru
einnig afar hrifnir af þeirri kurt-
eisi og velvilja sem þeir sögðust
hafa mætt hjá tslendingum. Með-
al þess sem var á dagskrá heim-
sóknar þeirra var fundur með
Geir Hallgrimssyni, forsætisráð-
herra, heimsókn i Arnagarð,
Alþingi og >jóðminjasafnið.
Heimsókninni lýkur i dag.
—IGG
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
LANDSPÍTALINN.
Staða AÐSTOÐARLÆKNIS við geð-
deild Barnaspitala Hringsins er laus
til umsóknar.
Staðan veitist til 6 mánaða frá 1.
mai n.k. Umsóknum er greini frá
aldri, menntun og fyrri störfum skal
skilað til skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 19. april n.k.
Upplýsingar veitir yfirlæknir deild-
arinnar i sima 84611.
KLEPPSSPÍTALINN
Staða AÐSTOÐARLÆKNIS við spit-
alann er laus til umsóknar. Um-
sóknum ér greini aldur menntun og
fyrri störf skal skilað til skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 19. april n.k.
Upplýsingar veita yfirlæknar spital-
ans i sima 38160.
LANDSPÍTALINN.
LÆKNARITARI óskast nú þegar á
Kvennadeild spitalans i fullt starf.
Stúdentspróf eða hliðstæð mennt-
un áskilin. ásamt góðri vélritunar-
kunnáttu.
Umsóknir sendist til starfsmanna-
stjóra i siðasta lagi 28. april. Upp-
lýsingar veitir læknafulltrúi deild-
arinnar i sima 29000.
Reykjavik 18. mars 1978.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANþ' .
EIRÍKSGÖTU 5,
Sími 29000
Otför
Svöfu Þórleifsdóttur,
fyrrverandi skólastjóra fer fram frá Fossvogskapellu,
niánudaginn 20. mars kl. 3 síðdegis. Þeim scm vilja minn-
ast hinnar látnu er vinsamlegast bent á Menningar- og
minningarsjóð kvenna.
Vandamenn.
Frænka okkar
Guðrún Finnsdóttir
Stórholti 27
Andaðist í Vifilstaðaspftala 16. mars. Fyrir hönd systkina-
barna og annarra vandamanna.
Frifiþjófur H. Torfason.
#ÞJÓÐLEIKHÚS»
ÖDIPOS KONUNGUR
i kvöld kl. 20.
Fáar sýningar eftir.
ÖSKUBUSKA
sunnudag kl. 15
TÝNDA TESKEIÐIN
sunnudag kl. 20
Sffiasta sinn
KATA EKKJAN
óperetta eftir Franz Lehár I
þýðingu Karls tsfeids.
Þýðing söngtexta: Guð-
mundur Jónsson
Leiktjöld og búningar:
Alistair Powell
Dansar: Yuri Chatal
Hljómsveitarstjóri: Páll P.
Pálsson
Leikstjóri: Benedikt Arnason
Frumsýning miðvikudag kl. 20
2. sýn. skirdag kí. 20
3. sýning annan páskádag kl.
20
Litla sviðið:
FRÖKEN MARGRÉT
sunnudag kl. 20.30.
Miðasala 13.15-20.
Simi 1-1200
leikfElag
RFYKIAVlKUR ÞÞ:
SKJALDHAMRAR
t dag kl. 15. Uppselt.
t kvöld kl. 20,30. Uppselt.
SKALD-RÖSA
Sunnudag. Uppselt.
Skirdag kl. 20,30.
REFIRNIR
5. sýn. þriðjudag. Uppselt.
Gul kort gilda.
SAUMASTOF AN
Miðvikudag kl. 20,30.
Fáar sýningar eftir.
Miðasala i íðnó kl. 14-20,30.
Simi: 16620
BLESSAD BARNALAN
i Austurbæjarbiói miðnætur-
sýning i kvöld kl. 23,30.
KL. 23,30.
Mifiasaia i Austurbæjarbiói ki.
16-23.30. Simi 1-13-84.
Pfpulagnir
Nýlagnir, breytingar,
hitaveitutengingar.
Simi 36929 (milli kl. 12
og 1 og eftir -kl. 7 á
kvöldin).
Loftskeytamaður
óskast til starfa nú þegar eða siðar. Um-
sóknir berist stofnuninni eigi siðar en 31.
mars n.k.
Hafrannsóknastofnunin
HLUTHAFAFUNDUR
Aðalfundur prentsmiðju Þjóðviljans h/f
fyrir árið 1977 verður haldinn fimmtudag-
inn 30. mars n.k. kl. 17 að Grettisgötu 3.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félags-
ins. Reikningar félagsins fyrir árið 1977
liggja frammi á skrifstofunni að Grettis-
götu 3. Fundur sá, sem boðað var til 2.
mars, varð ekki lögmætur.
Stjórnin
UTBOÐ
íslenska járnblendifélagið h/f
óskar eftir tilboðum i innréttingar og loka-
frágang verkstæðishúss á Grundartanga.
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verk-
fræðistofunni h/f,Fellsmúla 26, Reykjavik,
gegn fimmtiu þúsund króna skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð föstudaginn 7. april
1978.
Almenna verkfræðiskrifstofan h/f
Alþýöubandalagiö í Kópavogi
Munið kvöldvökuna i Þinghól á skirdagskvöld. — Nefndin.
Alþýðubandalagiö í Borgarnesi
Skirdagskvöldvaka
Hin árlega skirdagskvöldvaka Alþýðubandalagsins i Borgarnesi og
nærsveitum verður haldin fimmtudaginn 23. næstkomandi. —
Nefndin.
Lítið við á skrifstofunni'!
Alþýðubandalagið I Kópavogi
Skrifstofan að Hamraborg 11 er opin mánudag til föstudags frá kl.
17—19. Félagar — litið inn, þó ekki sé nema til aö lesa blöðin og fá ykkur
kaffiboiía. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið i Hafnarfirði
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn f bæjarmálaráði mánudaginn 2«. mars kl. 20.30
á Skálanum.
Alþýðubandalagið i Kópavogi
Hver eru hugsjónatengsl Alþýðubandalagsins?
Þriðji og sfðasti umræðufundurinn um þróun sósialiskrar hreyfingar á
islandi verður haldinn mánudaginn 20, mars kl. 20.30 i Þinghól,
Ilamraborg 11. Efni fundarins er „Hugsjóiiateugsl Alþýðubandaiags-
ins”, og hefur Þröstur ólafsson framsögu.
— Stjórnin.