Þjóðviljinn - 18.03.1978, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 18.03.1978, Qupperneq 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. mars 1978 LANDSSAMBAND IÐNAÐARMANNA boðar til fundar um atvinnumál á höfuð- borgarsvæðinu að Hótel Loftleiðum (Kristalsal) sunnudaginn 19. mars kl. 14.00. FUNDAREFNI: 1. Borgarstjórinn i Reykjavik, Birgir Is- leifur Gunnarsson, flytur ræðu um at- vinnumálastefnu sina. 2. Þórður Gröndal, verkfræðingur og GunnarS. Björnsson, húsasmiðameistari, flytja erindi um afstöðu Landssambands iðnaðarmanna til atvinnumála á svæðinu. 3. Almennar umræður. Félagsmenn aðildarfélaga Landssam- bandsins eru hvattir til að mæta á fundinn. Laust embætti er forseti íslands veitir Prófessorsembætti í dönsku i heimspekideild Háskóla Is- lands er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. mai 1978. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsækjendur um embættið skulu láta fylgja umsókn sinni itariega skýrslu um visindastörf, er þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil og störf. Menntamálaráðuneytið, 9. mars 1978. f Lausar stöður Störf ritara, m.a. læknaritara, eru lausar til umsóknar. Starfsreynsla og góð vélrit- unarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum skulu sendar skrifstofu spitalans fyrir 29. mars n.k. Reykjavik, 17. mars 1978. Borgarspitalinn. Lausar stöður Hlutstaða lektors i almennri handlæknisfræði og hluta- staða lektors i lyflæknisfræði við tanniæknadeild Háskóla íslands eru lausar tii umsóknar. Laun samkvæmt iaunakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknum skulu fylgja itarlegar upplýsingar um rit- smiöar og rannsóknir svo og námsferil og störf. Umsóknir skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík fyrir 1. apríl n.k. Menntamálaráðuneytið, 7. mars 1978. Laus staða Staða iektors i félagsfræði við félagsvisindadeild Háskóla Islands er laus til umsóknar. Aðalkennslugreinar að- ferðafræði og/eöa félagslegar kenningar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknum skulu fylgja itarlegar uppiýsingar um rit- smiöar og rannsóknir svo og námsferil og störf. Umsóknir skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik fyrir 1. april n.k. Menntamálaráðuneytinu, 7. mars 1978. Tilkynning frá Reykjavikurhöfn Smábátaeigendur Eigendur allra smábáta, sem hug hafa á að geyma báta sina i Reykjavikurhöfn i sumar, skulu hafa samband við yfirhafn- sögumann fyrir 1. april n.k. vegna niður- röðunar i legupláss og frágangs á legufær- um. Yfirhafnsögumaður r i ■ Frá Tálknafirði: r Utgerð og bygginga- framkvæmdir — Aflabrögð voru nokkuð góð i janúar og febrúar en gæftir afar stirðar, sagði Höskuldur Daviðsson, fréttaritari Þjóðvilj- ans á Tálknafirði i viðtali við Landpóst fyrir nokkru. Útgerð Héðan eru gerðir út þrir stórir bátar, Tungufell og Tálknfirð- ingur á linu og Frigg á net. Frigg er 250 tonna skip, sem Tálkni h.f. hefur nýlega keypt. Nú eru i smíðum fyrir Tálkn- firðinga tvö stór skip. Er annað þeirra skuttogari, smiðaður i Noregi, fyrir Hraðfrystihús Tálknfirðinga tvö stor skip. Er annað þeirra skuttogari, smið- aður i Noregi, fyrir Hraðfrysti- hús Tálknafjarðar en hitt er stórt nótaskip, sem er i smiðum á Akureyri, fyrir Tálkna h.f. Byggingar Byggingaframkvæmdir' eru hér miklar. Má þar fyrst nefna dagheimili, sem tekið var i notkun fyrir nokkru, hin þarf- asta framkvæmd, Rúmar það um 20 börn i einu og er stórkost- leg bót að þvi. Þá má nefna verslunarhús kaupfélagsins, sem opnað var 12. des. Hafin var bygging 16 Ibúða á siðasta ári. Tiðarfar hefur verið nokkuð rysjótt það sem af er árinu en snjólétt samt sem áður. hd/mhg Endurnýjun dreifikerfis Meöal þeirra máia, sem nýaf- “ staöið Búnaöarþing afgreiddi, ■ var eftirfarandi ályktun um raf- I magnsmál: Búnaöarþing telur óumflýjan- | legt, að nú þegar verði hafin ■ endurnýjun á dreifikerfi Raf- I magnsveitna rikisins, ásamt m breytingu á einfasalögnum i ■ þrífasalagnir, þar sem fiutn- “ ingsgeta kerfisins annar ekki m dreifingu á þeirri orku, sem I nauösynlegt er að koma tii ■ þeirra kaupenda, er búa við | ófullnægjandi orkunot viðsveg- ■ ar um landiö, enda þótt orkan sé ■ fyrir hendi. Einnig tii að koma i u veg fyrir þaö gifurlega orkutap, ■ sem nú á sér staði dreifikerfinu. Þingið felur stjórn Búnaðar- Jj félags tslands að hlutast til um I það við Alþingi og rikisstjórn, ■ að gerð verði framkvæmda- | áætlun um endurnýjun dreifi- m kerfisins og veitt það mikið fé til | þessa verkefnis, að þvi verði J lokið á næstu 10-15 árum. rl greinargerð segir: A árinu 1947 var hafist handa um raf- væðingu sveitabýla á Islandi. Var þá tekin sú stefna að koma rafmagni til sem flestra á sem skemmstum tima. Þvi voru lagðar einfasa dreifilinur og notaðir fremur grannir virar. Flutningsgeta dreifikerfisins er þvi viða litil. A siðari árum hefur notkun raforku viö heimilis- og bústörf aukist til stórra muna. 1 fyrstu var þessi notkun nær eingöngu bundin við lýsingu og eldun. Sið- an kemur til, margvisleg önnu? notkun við búrekstur, s.s. súg- þurrkun, mjaltavéiar, mjólkur- tankaro.fi. Enn þarf aukna raf- orku til þessara nota þar sem stórauka þarf súgþurrkun og taka upp rafhitun á lofti i stór- um stil til heyþurrkunar á allra næstu árum. Auk þess hefur notkun raf- orku til heimilisstarfa aukist. Má þar nefna tilkomu margs- konar heimilistækja og húsahit- un með rafmagni, sem stórauka þarf til hagsbóta fyrir þjóðar- heildina. Þvi ber brýna nauðsyn til að nú þegar verði hafist handa um endurnýjun dreifikerfisins á skipulegan hátt, þar sem það annar engan veginn flutningi þeirrar orku, sem nú þegar er þörf fyrir i mörgum héruðum Nokkru fyrir siðustu jól var stofnuð ný saumastofa i Barða- strandahreppi i Vestur-Barða- strandarsýslu. Eru það hrepps- félagið, búnaðarfélagið, kvenfé- lagið og nokkrir einstaklingar, sem lagt hafa fram fé til fyrir- tækisins. Saumastofan verður til húsa i Krossholti. Efnið verö- ur keypt frá Álafossi. Aðallega verða saumaðar peysur, sem Alafoss sér siðan um sölu á. Verð á orku hækkar stöðugt i heiminum og allsstaöar ieggja menn höfuðin i bleyti til þess að nýta sem best orkuna. Svo er aö sjá, sem hérlendis sé einnig far- ið að hugleiða þessi mál af fullri alvöru. 1 fiskiðnaðinum er orkusóunin einna mestog þá ekki hvaö sist i mjölvinnslunni. Mjölverksmiðjan hjá Frosta á Súðavik er litil og vinnur fiskúr- ganginn jafnóðum og hann fell- ur til en safnar honum ekki i hauga. Vinnslutimi hennar er þvi jafn langur og frystihússins landsins og útilokar aukna notk- un rafmagns, sem viða er þó mikil þörf fyrir. Gert er ráð fyrir aö saumastof- an komi til með að sjá 10 manns fyrir atvinnu. Meiningin er að hefja framleiðslu með vorinu. Stjórn saumastofunnar skipa: Kristin Haraldsdóttir, formað- ur, Rósa ívarsdóttir og Guðrún Friöjónsdóttir. Ástæða er til þess að fagna þessu framtaki, sem bæöi mun auka atvinnulifið i sveitinni og stuðla aö fjölbreytni þess.-mhg og hentar þvi vel að nýta varm- ann frá henni til upphitunar. Sigurður Þórðarson hjá Frosta tók sig nú til á dögunum og lagði utan á brennsluhólfið fyrir mjölþurrkarann 40 lengjur af vatnsrörum og steypti yfir með leir. Þar með var kominn, meö litlum tilkostnaði 8-9 fer. ketill, sem tengdur var inn á hitaker hússins. Ljóst er þegar að þetta mun lækka verulega kyndikostnað hússins og greiða niður stofn- kostnaðinn á tveimur til þremur mánuðum. -mhg -mhg Ný saumastofa á Barðaströnd Góð hugmynd

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.