Þjóðviljinn - 18.03.1978, Síða 20

Þjóðviljinn - 18.03.1978, Síða 20
DJÚÐVIUINN Laugardagur 18. mars 1978 Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heitna- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans I sima- skrá. Forstjórinn var ekkert aö berjast viö menn i návigi, en gaf fyrirskipun um aö kaffi skyidi framreitt. Verlcamenn I Sundaskála I gærmorgun. Ljósm. —eik. ...— Vinnum ekki — sögðu hafnarverka- mennirnir í gærmorgun Þegar Þjóövil jamenn bar aö í Sundaskála á tíunda tímanum í gærmorgun var kaffi- stofan þéttsetin, enda hafði öll vinna legið niðri frá þvi klukkan 8 um morguninn. Menn sátu, spiluðu á spil, röbbuðu saman og drukku kaffi. Við settumst við eitt borð- ið og ræddum við Pétur Lárusson, Jóhann Geirharðsson, Guðjón Friðbjörnsson, Óskar Björnsson, Sigurð H. Sigurðsson og fleiri yfir kaf f inu. óttarr Möller á heiöurinn af þvi, að hér var lagað kaffi i morgun.sagði Pétur. Undirtylla hjá honum hafði bannaö það og strákarnir voru búnir að kaupa gos og slá saman I meölæti þegar forstjórinn kom og gaf fyrirskipun um aö kaffi skyldi lagað. Okkur telst svo til, að eftir kaupránslög rikisstjórnarinnar vinnum viö hér tvo tima kaup- Pétur Lárusson: 1 júni fjölgar þeim timum sem viö fáum ekki borgaða. Nú eru þeir tveir, þá verða þeir fjórir. Ljósm. — eik. laust á viku. Hér erum við búnir að sitja siðan klukkan 8 og för- um ekki að vinna fyrr en klukkan 10. Við viðurkennum ekki annaö kaup en það sem samningar okkar óskertir kveða á um. Kjörorðið er: „Samningana i gildi. Viö viljum vekja athygli, — ekki bara á þeirri skerðingu sem þegar hefur verið framkvæmd, heldur lika þeirri sem yfirvofandi er. Núna eru það tveir timar á viku,og i júni verður það komið upp i fjóra tima á viku,sem stolið er af okk- ur með þessum lögum. Ef þetta verður ekki leiðrétt förum við að athuga okkar gang með yfirvinnuna, þvi þar er hlutfallið það sama. Þetta er bara dagvinnan. Oft hefur það verið slæmt, en aldrei sem nú. Nýjar verðhækk- anir dynja yfir nær daglega. Heildsalar heimta að fá að leggja á vörulagerinn sem þeir eiga, og sama er uppi annars staðar. Skipafélögin eru búin að fá 30% hækkun á uppskipunar- kostnaði og 15% á fraktina. Við förum ekki að vinna tvo tima kauplaust i hverri viku fram á sumar undir þessum kringum- stæðum. Við vinnum hér eftir samn- ingum, sem eru lögverndaðir i vinnulöggjöfinni. Við brjótum ekki þá samninga eða vinnum undir þeim taxta sem verka- lýðsfélag okkar hefur barist fyrir og náði með verkfalli á sið- asta ári. Við verðum einhuga i þessu og fullvissir um sigur i þessari bar- áttu.sögðu þeir félagar að lok- um. Eins og sjá má af þessum orðræöum var engan bilbug á mannskapnum að finna. Hafnarverkamenn i Reykjavik hafa löngum verið lifæðin i ströngustu stéttaátökum i land- inu og þar hafa þeir alitaf farið með sigur af hólmi. A dreifi- miðanum sem á borðum lá stóð skýru letri: „Hverju tapar þú?” Þetta er spurning sem hver einasti launþegi veltir fyrir sér um þessar mundir, og viðbrögð hafnarverkamanna i Reykjavik hljóta að teljast eðlileg. Þeir voru sigurvissir i gærmorgun,og sannfærðir um að kaupránslög rikisst jórnarinnar verði brotin á bak aftur gengum við Þjóðviljamenn út á hafnarbakk- ann, þar sem ekkert lif var að sjá. —AI. Kemur mér ekki á óvart — sagði Guðmundur J. Guðmundsson Þetta kemur mér ekki á óvart, sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands lslands. Ég hef orðið var við þá miklu gremju sem situr i mönnum eft- ir að kaupránslögin voru samþykkt og sú gremja hefur farið vaxandi upp á siðkastið vegna sifelidra verðhækkana sem yfir menn dynja. Menn skyldu heldur ekki vera undrandi á þvi að hafnarverka- menn riði á vaðið með mótmæli sem þessi. Mismunurinn á út- gefnum töxtum Dagsbrúnar og útgreiddum launum þeirra er 2 timar og 5 minútum betur. Þetta er og hefur ætið verið skeleggasti hópurinn i allri verkalýðsbaráttu i landinu og hafnarverkamenn hafa knúið fram mjög mikilvæg atriði i kjarasamningum með sam- stöðu sinni og hörku. Þessi gremja sem nú sýður i fólki og krafan um aö samn- ingarnir verði i gildi er aðalum- ræðuefnið á öllum vinnustöðum, ekki aðeins við höfnina, heldur um allan bæ. Það er þvi engin furða að þaö brjótist út á ein-' hvern hátt,og menn skyldu ekki ætla aö lifið á vinnustöðunum gangi snurðulaust fyrir sig þegar þannig er ástatt. —AI. r Utgerðar-og hraðfrystistöðinÞór h.f. Greiðir fuDar verðbætur — Eitt fyrirtæki hér hefur ákveðið að greiða samkvæmt auglýstum kauptaxta verka- mannafélagsins Arvakurs, sagði Hrafnkell Jónsson, fréttaritari blaðsins á Eskifirði okkur. Það er útgerðar- og saltfiskverkunar- stöðin Þór s.f. Framkvæmdastjórinn, Ingvar Gunnarsson, sagði mér áðan, mælti Hrafnkell, — að hann teldi vera ráðist á garðinn þar sem hann væri lægstur með þvi að skerða kaup verkafólks i framleiðslugreinunum. Nær væri að skera eitthvað niður i skrif- stofubákninu en reyna heldur að borga verkafólki mannsæmandi laun. Hrafnkell A. Jonsson sagðist hafa reynt að kanna viðhorf til þessara mála hjá öðrum fyrir- tækjum á staðnum. Þar er greitt samkvæmt taxta Vinnuveitenda- sambandsins. En glöggt er, að það, sem ræður þeirri afstöðu, er sú vissa, að ef þau greiði samkvæmt löglegum samning- um, þá verði þau beitt hefndar- ráðstöfunum af hálfu banka og rikisstjórnar. HerstödvaandstædingarSuöurnesjum Baráttu- og skemmti- fundur Herstöðvaandstæðingar. Munið baráttu- og skemmti- fundinn I Félagsbiói i Keflavik kl. 14 I dag. Sætaferðir frá Umferðarmið- stöðinni i Reykjavik kl. 13. Við- koma I Hafnarfirði. Ræður og ávörp: Jón Böövars- son skólameistari, Sigriður Jó- hannesdóttir, kennari, Sigurður J. Sigurðsson og Jóhann Geirdal kennari. Kynnir: Pétur Gunnarsson, rit- höfundur. Skemmtikraftar: GIsli Rúnar, Arnar Jónsson, Sigurður Pálsson, Hjördis Bergsdóttir, Megas, söngsveitin Bóbó og kór Alþýðu- menningar. A fundinum verður lesið úr skýrslu um afleiðingar kjarn- orkuárásar á Keflavikurflugvöll. Herstöövaandstæöingar í Köpavogi 30. mars fundur í dag t dag kl. 15.30 hefst I Þinghól við Hamraborg i Kópavogi fundur sem helgaður er 30. mars 1949. Fjölbreytt dagskrá. Menningar- og skemmtiefni. Andri Isaksson, prófessor, flytur aðalræðu fundarins. Gott siðdegiskaffi á boðstólnum. Fjölmennum. Hverfahópur Samtaka her- stöðvaandstæðinga i Kópavogi Andri isaksson Æskulýösnefnd Alþýðubandalagsins og SUS Kappræða á Akur- eyri 1 dag i dag kl. 14 hefst i Sjálfstæðis- húsinu á Akureyri kappræða um höfuðágreining islenskra stjórn- mála milli Æskulýðsnefndar Alþýðubandalagsins og Sam- bands ungra Sjálfstæðismanna. Ræðumenn Alþýðubandalags- ins eru Helgi Guðmundsson, Erlingur Sigurðarson og Ottar Proppé. Ræðumenn SUS eru Sigurður J. Sigurösson, Haraldur Blöndal og Friðrik Sóphusson. Fundarstjórar eru Kristin A Olafsdóttir og Björn Jósef Arn- viðarson Kappræða í Eyjum á morgun A morgun sunnudaginn 19. mars hefst kl. 14 i Samkomuhús- inu I Vestmannaeyjum kappræöa milli Æskulýðsnefndar Alþýðu- bandalagsins og Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Umræðuefnið er höfuðágreiningur islenskra stjórnmála. Ræðumenn Alþýðubandalags- ins eru Baldur óskarsson Rúnar Armann Arthúrsson og Björn Bergsson. Ræðumenn SUS eru Hreinn Loftsson, Jón Magnússon og Arni Johnsen. Fundarstjórar eru Ragnar Óskarsson og Sigurður Jónsson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.