Þjóðviljinn - 29.03.1978, Blaðsíða 1
MOÐVIUINN
Miðvikudagur 29. mars 1978 — 43. árg. 62. tbl.
Þorsk veiðibannið:
Athuga þarf afla
fiölmargra skipa
og það verk mun taka langan tima
Nokkuð langur timi mun liöa
þar tiljjóst verður hvernig þorsk-
veiðibannið um páskana hefur til
tekist. Mjög margir bátar og tog-
arar hafa verið á veiðum meðan á
þorskveiðibanninu stóð og hafa
skipsstjórnarmenn þá sagst vera
að veiða annað en þorsk. t ljós
hcfur þó komið hjá 5 Vcstmanna-
cyjabátum að samsetning aflans
var óiögleg, þegar landhelgis-
gæslumenn fóru um borð i þá sl.
laugardag til að skoða aflasam-
setninguna. Að sögn Jóns Arnalds
ráðuneytisstjóra i sjávarútvegs-
ráðuneytinu verður að skoða afla-
samsetningu hvers einasta skips,
sem til veiða fór meðan á banninu
stóð.
Þaðer þvi ljóst að eftirlitsmenn
ráðuneytisins eiga mjög mikið
verkfyrir höndum. Til að mynda
verður að skoða afla hvers ein-
asta togara, sem var á veiðum
meðan á þorskveiðibanninu stóð,
en nær allir stóru togararnir voru
á karfaveiöum þann tima.
Þá er augljóst af því sem gerð-
ist með Vestmannaeyjabátana
að viöa er pottur brotinn. Hjá
þeim var um 50% aflans þorskur
þegar skoðað var sl. laugardag,
en aðeins var leyfilegt að 15% afl-
ans væri þorskur meöan á bann-
inu stóö.
Mál Eyjabátanna, eða skip-
stjóra þeirra, verður tekið fyrir
nú i vikunni, þegar þeir koma af
sjó, aðsögn Júliusar Björnssonar
fulltrúa bæjarfógetans í Vest-
mannaeyjum.
—S.dór
Loðnuvertíðin:
Gæti teygst eitthvað ennþá
á milli 30 og 40 skip komin á miðin eftir páskafrí
Nær allur loðnuskipaflotinn var
i höfn um páskana, enda mun sjó-
mönnum ekki hafa veitt af eftir
nær 3ja mánaða úthald við loðnu-
veiðarnar.Ognúeru menn að spá
því að loönuvertiðin sé að verða
búin að þessu sinni. Við spuröum
Andrés Finnbogason hjá Loðnu-
nefnd um álit hans á þvi, en hann
er sennilega öllum mönnum
kunnugastur þvi sem að loðnu-
veiöunum lýtur hjá okkur.
..Þaöferekkertá millimála að
„Hörmu-
legt að
gabba
fólk”
— segir landlæknir
um andalækningar á
Filipseyjum
Sjá síðu 3
ólafur ólafsson.
það er farið að styttast i þessu, en
ég hygg að vertiöin sé ekki búin i
orðsins fyllstu merkingu; ég á von
á þvi að það komi á land nokkrir
farmar i viðbót”, sagði Andrés.
Heildar loðnuaflinn er nú um
470 þúsund lestir og sagði Andrés
að það kæmi sér ekki á óvart þótt
heildaraflinn færi yfir hálfa mil-
jón tonna ef veður hamlar ekki
veiðum, en það gerði það i gær-
dag, en þá voru á milli 30 og 40
skip komin á miðin.
—S.dór
Karfa landað úr Ingólfi Arnarsyni I gær. Ljósm. eik.
Karfaveiðarnar
gengu misjafnlega
þó fékk Ingólfur Arnarson RE
270 tonn á 14 dögum
Flestir islensku togaranna
héldu til karfaveiða á Jökul-
tungunni eða á Eldeyjarbanka
meðan á þorskveiðibanninu stóð,
en þvi lauk i gær sem kunnugt er.
Þessir togarar áttu misjöfnu
gengi að fagna, eins og gengur,
allt frá mjög góðum afla og niður
i heldur litla veiði.
fgær var byrjað aö landa karfa
úr Ingólfi Arnarsyni RE i Reykja-
vikurhöfn, en togarinn fékk 270
lestir af karfa á aðeins 14 dögum,
sem er mjög góður afli.
Að sögn Einars Sveinssonar
forstjóra BOR, fóru allir togarar
Bæjarútgerðar Reykjavikur á
karfaveiðar meðan á þorskveiði-
banninu stóð og gekk þeim mis-
jafnlega. Ingólfur var með besta
aflann, en nú i vikunni eru Hjör-
leifur og Snorri Sturluson vænt-
anlegir af karfamiöunum og
Bjarni Benediktsson kemur i
næstu viku. Siðan munu aliir tog-
ararnir halda til þorskveiða á
nýjan leik eftir þetta eina karfa-
úthald.
—S.dór.
Tveir piltar farast
r • r pm r
i snj ofloði
Á páskadag átti sér stað sá
hörmungaratburður, að tveir 18
ára gamlir piltar frá Norðfirði
létu lifið i snjóflóði. Voru þeir á
leiðinni frá Norðfirði yfir i
Mjóafjörð er snjóflóðið féll á þá
i svonefndu Gunnólfsskarði.
Piltarnir tveir, Sævar As-
geirsson og Hólmsteinn Þórar-
insson, sem báðir voru vanir
Skákþing íslands
Helgi og
Haukur
efstir
Sjá sídu 14
íþróttir
Sjá síður 8, 9,
10 og 11
Arafat samþykkir vopnahlé
Yfir 200.000 flóttamenn frá bardagasvædunum
28/3 —Kurt Waldheiin, fram-
kvæmdastjóri Samcinuöu þjóð-
anna, tilkynnti 1 dag að Jasser
Arafat, leiðtogi aöalsamtaka
Palestinumanna (PLO), hefði
orðið við þeim tilmælum Wald-
heims að Palestfnumenn hættu
árásum á innrásarliö Israels I
Libanon. lsraelar lýstu einhliða
yfir vopnahléi fyrir viku, en
Palestinumenn hafa til þessa
lýst þvi yfir, að þeir muni hafa
það að engu og haldið áfram
árásum á tsraela.
Samkvæmt þessu er þess
væntanlega von, aö stríöi Isra-
ela og Palsetinumanna l Liban-
on sé lokið I bráð. Aður hafði
verið haft eftir Ezer Weisman,
varnarmálaráöherra Israels, að
Israelar myndu á ný hefja stór-
felldar hernaöaraðgeröir gegn
Palestinumönnúm, ef þeir létu
ekki af árásum sinum á lsraela
innan 48 klukkustunda.
Giskað er á að yfir 200.000
manns, — álika margir og
Islendingar eru allir — hafi orð-
ið forflótta vegna bardaganna,
og liður þetta fólk eins og nærri
má geta sára nauð. Gifurlegt
manntjón hefur og oröiö meðal
óbreyttra borgara, bæði pal-
estinskra og libanskra, og er
ekkert vitað um það með vissu
hve margir hafa verið drepnir
og særðir i stórskotahriöum og
loftárásum Israela. 1 s.l. viku
sögðu menn i þorpinu Abbasiy-
eh skammt norðaustur af Týr-
us, að 150 þorpsbúar að minnsta
kosti heföu látið lifið i árásum
stórskotaliðs og flugvéla.
fjallgöngum og björgunaræfing-
um, höfðu hugsað sér að kanna
nýja leið yfir i Mjóafjörð. Þeir
lögðu af stað frá Þrastalundi i
Norðfirði um kl. 2 á páskadag, i
góðu veðri, og ætluðu aö ná að
Reykjum i Mjóafirði. Ekki er
þessi leið ýkja löng, en nokkuö
erfið, einkum er bratt að sunn-
anverðu. Ætla mátti, að ferðin
tæki um 4 klst., en þó valt það á
færðinni. Töluverö fönn var á
fjallinu og hafði snjóaö nokkuð
uppi án þess aö menn hefðu veitt
þvi sérstaka eftirtekt.
Er piltarnir höfðu ekki komið
fram um kl. 8 var haft samband
við Hrólf Hraundal hjá Björgun-
arsveitinni og var þá strax haf-
ist handa um leit. Fóru 4 menn
þegar af stað og tókst þeim að
. rekja slóð piltanna, þótt hún
væri nokkuð slitrótt, vegna
skafrennings. Slóðin var rakin
að snjóflóði, 60—70m. breiðu, en
'ekki var auðvelt að gera sér
grein fyrir þvi hvort þaö var
nýtt eða gamalt, þvi snjóflóð
hafði fállið þarna fyrirnokkrum
dögum. Við svo búið snéru þeir
félagar við og sóttu liðsauka.
Urðu leitarmenn u.þ.b. 60 tals-
ins. Leitað var með stöngum i
snjóflóðinu og fundust lik pilt-
anna um 10-leytið á mánudags-
morguninn, nálægt miðju flóðs-
ins á um 2ja m. dýpi.
—mhg