Þjóðviljinn - 29.03.1978, Síða 6

Þjóðviljinn - 29.03.1978, Síða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlftvlkudagur 29. mars 1978 MINNING Gudrún Finnsdóttir — Dáin 16. 3. 1978 Fædd 23. 4. 1892 Guðrún Finnsdóttir, fyrrum formaður A.S.B. féíags af- greiðslustúlkna i brauð og mjólk- urbúðum, andaðist að Vifilsstöð- um 16. þ.m. eftir langvarandi veikindi. Meðhenni er fallin i valinn ein úr hópi fyrstu leiðtoga verkalýðs- hreyfingarinnar. Á þriðja og fjórða tug þessarrar aldar voru erfið lífskjör hjá verkafólki. Stúlkur sem unnu i brauð og mjólkurbúðum, bjuggu við sér- lega slæm kjör.enda fór það eftir geðþótta atvinnurekandans hvaða kaup var greitt. Að frumkvæði Laufeyjar Valdi- marsd. og Guðrúnar Finnsdótt- ur var hafist handa um stofnun stéttarfélags þessarra stúlkna og var stofnfundurinn haldinn þann 15. febrúar 1933. Laufey Valdi- marsdóttir var kosin formaður félagsins en Guörún Finnsdóttir varaformaður. Það var enginn barnaleikur að stofna stéttarfélag á þessum ár- um og fá það viöurkennt sem samningsaðila um kaup og kjör umbjóðenda sinna. Það var ekki aðeins atvinnurekandinn sem þurfti að glfma við, heldur einnig fólkið sjálft sem hrætt var um aö missa atvinnuna ef það færi að ganga i stéttarfélag. Forustukoh- urnar þurftu þvi framsýnijkjark og félagsþroska til að ráöast i slíkt fyrirtæki, enda áttu þær þessa eðliskosti i rikum mæli. Guðrún var varaformaður fyrstu árin en tók við formennsku félagsins af Laufeyju Valdimars- dóttur árið 1943 og var formaður þess um 14 ára skeið, en lét þá af þvi starfi að eigin ósk. Það var mikil gæfa fyrir okkur konurnar i A.S.B. að njóta starfs og f orustu Guðrúnar Finnsdóttur. Framlag hennar verður seint fullþakkað. Oft urðu hörð átök i baráttu verkalýðsfélaganna á þessum ár- um. Félögin sömdu hvert fyrir sig, ólíkt þvi sem nú tiðkast er stór samninganefnd gerir rammasamning fyrir allt landið. Mikið var því undir hæfni for- manns og samninganefndar félagsins komið, að ná fram þeim hagstæðustu samningum sem kostur var á hverju sinni Ég dáðist oft að skapstyrk og festu Guðrúnar, enda var hún mjög vel gefin kona, sem ávann sér traust og virðingu þeirra sem henni kynntust. Guðrún Finnsdóttir vann hjá Mjólkursamsölunni frá þvl það fyrirtæki hóf starfsemi sina hinn 15. janúar 1935, fyrst mörg ár i mjólkurbúðinni á Njálsgötu 65 og siðan I mjólkurbúðinni á Berg- þórugötu 23 o.fl. búðum. Hún vann hjá þvi fyrirtæki þar til hún lét af störfum sökum aldurs. Guðrún var ekki heilsuhraust kona, hafði orðið fyrir miklum veikindum á unga aldri og bar þess aldrei bætur. Siðustu æfiárin dvaidi hún á sjúkrahúsum. Að leiðarlokum vil ég þakka Guðrúnu áratuga órjúfandi vin- áttu og samstarf sem mér var ómetanlegt. Ég vil einnig þakka allt hennar starf i þágu þess félags sem hún helgaði svo mjög krafta sina og ég veit að ég mæli einnig fýrir munn þeirra ótal mörgu kvenna sem fyrr eöa siðar nutu góðs af starfi hennar. Birgitta Guðmundsdóttir • Þau falla nú óðum I valinn, sem brautina ruddu og baráttuna háðu þegar hún var hörðust og grimm- ust um brauð og lif alþýðunnar, i trúnni á frelsi hennar og sigur i framtiðinni. Guðrún Finnsdótir kvaddi þann 16. mars sl. með fjögra áratuga baráttu að baki i röðum sósialist- isku verklýðshreyfingarinnar i Reykjavfk. Mér og fjölskyldu minni veittist sú ánægja að kynn- ast þessari ljúfu og tryggu konu strax 1936 er hún vann i mjólkur- og brauðsölubúðinni á horni Njálsgötu og Barónsstigs, er við fluttum á Njálsgötuna, og eignast hana siðan að ógleymanlegum fé- laga i Sósialistafiokknum. Guðrún var ein þeirra af- greiðsiustúikna, sem stofnaði A.S.B. 1938 ásamt Laufeyju Valdimarsdóttur, þeim merka og mikla brautryðjanda, og fleiri . ágætum félögum, og var i stjórn félagsins frá fyrstu tið. 1 þeim hörðu sviptingum, sem áttu sér stað i verkalýðshreyfingunni og utan hennar þann áratug og þá næstu, stóð félag þeirra A.S.B. ætið öruggt vinstra megin í átök- unum. Guðrún Finnsdóttir var einn af stofnendum Sósialistaflokksins, einn fulltrúi vinstra arms Alþýðu- flokksins á stofnþinginu 24. októ- ber 1938, þegar besta baráttulið Alþýðuflokksins undir forustu þeirra Héðins og Sigfúsar tók höndum saman við Kommúnista- flokkinn um myndun Samein- ingarflokks alþýðu^-sóslalista- flokksins. Það var aídrei bilbug að f inna hjá Guðrúnu og félögum hennar i þeim hörðu átökum stéttabaráttunnar, er þá fóru i hönd næstu árin. Og 1943 tók Guð- rún við formennsku A.S.B. af Laufeyju, sem andaðist tveim ár- um siðar, og stýrði Guðrún þvi félagi næstu 14 ár af þeirri festu, tryggð og forsjá, sem henni var lagin. Við islenskir sósialistar kveðj- um i dag Guðrúnú Finnsdóttur og þökkum henni samstarfið öll þessi mörgu ár. Hún helgaöi allt lif sitt baráttunni fyrir rétti þeirra smáu I þjóðfélaginu. Minn- ingin um þennan ljúfa, góða og trygga félaga mun þvi lifa i hjört- um okkar samferðamanna henn- ar, uns þau hætta að slá. Einar Olgcirsson Við fráfall vinkonu minnar, Guðrúnar Finnsdóttur, er að lfta yfir'langan dag liðinn og langan veg genginn, þvi að hún lé?t 86 ára að aldri, hinn 16. marz s.l. á Vífilsstöðum. Guðrún Finnsdóttir var fædd 23. april 1892 að Hlið i Fellssókn i Strandasýslu. Foreldrar hennar voruSigriður Guðmundsdóttir og Finnur Jónsson bóndi. Ung flutt- ist hún með foreldrum sinum til Isafjárðar, en siðar til Reykjavlkur og vann þar eftir það alla sina starfstið, að mestu leyti við afgreiðslustörf. Eftir komuna til Reykjavikur, varð Guðrún fyrir veikindum, sem lömuðu mjög starfsþrek hennar, svo að upp frá þvl mun hún aldrei hafa gengið heil til skógar. A ytra borði lét Guðrún litið bera á erfiðleikum sinum og vann mikil og merkiieg störf utan hins venjulegs vinnudags. Laufey Valdimarsdóttir, er vann mikið að félagsmálum, gekkst fyrir þvi, ásamt Guðrúnu Finnsdóttur og fleirum að stofnað var Félag afgreiðslustúlkna i mjólkur- og brauðabúðum — A.S.B. — hinn 15. febrúar 1933. Laufey var fyrsti formaður félagsins, en Guðrún Finnsdóttir varaformaður. Þegar Laufey lét af störfum, tók Guðrún viö for- mennsku f félaginu. Hún reyndist árvökul og örugg i öllum athöfnum og traust i samningum. Félagsstofnunin varð til þess að gjörbreyta og bæta kjör stéttar- innar. Félagskonur sýndu Guðrúnu margvislegan sóma á merkis- dögum i lifi hennar, meö gjöfum og annarri viðurkenningu og átti hún margar ánægjustundir I hópi þeirra. Við Guðrún vorum báðar i fyrstu stjórn A.S.B. og bar fundum okkar oft saman á þeim dögum og upp frá þvi varð til sú vinátta milli okkar, sem aldrei bar skugga á, meðan báðar lifðu. Ég man glöggt eftir þvi, að fyrst er ég sá Guðrúnu. vakti það eftir- tekt mina, hve frið hún var sýn- um, en alvörugefin og hæglát i framkomu. Fljótt fann ég, hve gáfuð hún var og vel til forustu fallin. Ég eins og sjálfsagt fleiri af þessum ófélagsvönu stúlkum sátum á fundum félagsins og undruðumst, hve velhún var máli farin og hugsun hennar rökföst og frábærlega skýr. Guðrún var mikill sósialisti og mun hafa starfað að málefnum þeirra og hugsjón, eftir þvi sem kraftar leyfðu. Hún átti lika rika réttlætiskennd og hjartahlýju. Má i þvf sambandi geta þess, að eftir- látnar eigur sinar ánafnaði hún liknarfélögum hér i borg. Oft fann ég það, þegar við Guðrýn ræddum saman, hve henni þótti vænt um fólkið sitt, systkini sin og börn þeirra. Hún bar hag þeirra mjög fyrir brjósti og hún gladdist lika með þeim á gleðistundum og hryggðist, ef á móti blés. Systir Guðrúnar, Björg óg börn hennar, reyndust henni mikil stoð og þá best, er sjúk- dómur og elli lögðust að og ganga lifsins varð þungbærari. Að leiðarlokum þakka ég Guðrúnu hjartanlega einlæga góðvildog mikla tryggð frá fyrstu kynnum og bið henni blessunar guðs á brautum eilifðarinnar. Kristin Guðmundsdóttir Frá Landssambandi framhaldsskóla - kennara Skrifstofan er flutt að Grettisgötu 89, Keykjavik. Opin alla virka daga frá kl. 14.30—17.30. Simi 12259. L.S.F.K. Menningartengsl íslands og Rádstjórnarríkjanna: Fyrirlestrar haidnir á vegum MIR i mars- og aprilmánuðum 1978 í MÍR-salnum, Laugavegi 178. 1. Fimmtudaginn 30. mars kl. 20.30: Vladimir K. Vlassof, verslunarfulltrúi, ræðir um: Vift- skipti tslands og Sovétrikjanna. Kvikmynd. 2. LAUGARDAGINN 1. APRIL KL. 15: Mikhai! M. Bobrof.Iþróttaþjálfari, ræðir um: Likamsrækt I Sovétrikjunum og undirbúning 22. Olympiuleikanna I Moiskvu l980.Kvikmynd. 3. FIMMTUDAGINN 6. APRIL KL. 20.30: ólafur Ag. örnólfsson.loftskeytamaður, spjallar um: Sí- beriu fyrr og nú.Kvikmynd. 4. LAUGARDAGINN 8. APRIL KL. 15: Ragnar Björnsson.organisti og hljómsveitarstjóri, ræðir um: Tónleikaferöir til Sovétrlkjanna og kynni af sovésku tónlistariifi. Kvikmynd. 5. LAUGARDAGINN 15. APRIL KL. 15: Alexander M. Jakovléf.dr. juris, ræðir um: Stjórnarskrá Sovétrikjanna. Kvikmynd. Aðganguraðfyrirlestrunum og kvikmyndasýningunum er öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Stjórn MÍR. Tökum að okkur smíði á eldhúsinnréttingum og skápum, bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur um breytingar á innréttingum. Við önn- umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og inni. Verkið unnið af meisturum og vönum mönnum. Trésmíðaverkstæðið Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613 r Herstöðvaandstæðingar á Isafirði: Kvöldvaka 30. mars Herstöðvaandstæðingar á ísafirði efna til kvöldvöku i kjallara Alþýðuhússins fimmtu- daginn 30. mars n.k. kl. 20.30. Dagskrá kvöldvökunnar verður með eftirfarandi hætti: 1. Samantekin dagskrá um hersetu, I söngvum, ljóðum og óbundnu máli. 2. Leikþáttur. Kafli úr Æskuvinum eftir Svövu Jakobsdóttur. 3. Hlé. Kaffi og kökur. 4. Samlestur. Geturöu verið þekktur fyrir að ganga uppréttur? eftir Dag Sigurðarson. 5. Kvikmynd sem tekin var af atburðunum 30. mars 1949. Kvöldvakan er öllum opin.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.