Þjóðviljinn - 29.03.1978, Side 16
DJOÐVIUINN
Mi&vikudagur 29. mars 1978
A&alsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tlma er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn bla&sins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
L 81333
Einnig skai bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans I slma-'
skrá.
Garöari Viborg, ábyrgðarmanni
Nýs lands, afhentar 243 þús.
Stjórn Málfrelsissjó&s hefur
ákveðið aö verða við beiðni
Garðars Viborgs, ábyrgðar-
manns Nýs lands, um f járhagsaö-
stoð vegna málaferla sem VL-
ingar höfðuðu gegn honum og
blaðinu. Stjórnin hefur afhent
honum kr. 243,755, og er þetta I
annað sinn sem úthlutað er úr
sjóðnum. Guðsteinn Þengilsson,
Glóralaus bylur fyrir
nordan og vestan
Fjölmargir páskaferöalangar veöurtepptir
Undanfarna daga hefur geisað
nor&anátt með fannkomu allt frá
Vestfjörðum og austur á land.
Heiðar allar voru lokaöar á þessu
svæði i gærdag, og þá var ekkert
fiogið til Vestfjarða og Nor&ur-
lands. Fjölmargir páskaferða-
langar eru veðurtepptir og aðeins
til og frá Vestfjörðum biða nú um
1000 manns eftir flugi.
Hjörleifur Olafsson hjá
Vegagerð rikisins sagði i
samtali viö Þjóöviljann aö ekki
heföi verið gerö tilraun til að
ryðja Holtavöröuheiöi og Oxna-
dalsheiöi Igær.en i fyrradag kom-
ust bilalestir þar yfir meö herkj-
um. Til Siglufjaröar hefur ekki
verið hægt aö moka siöan fyrir
páska. Allir vegir eru meira eöa
minna ófærir á Vestfjörðum og
flestar heiðar á Austurlandi. 1
mynni Fnjóskadals féll snjóflóö I
gærmorgun og voru bilstjórar
varaöir við frekari snjóflóða-
hættu á þeim slóðum i útvarpi i
gær.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
blaðafulltrúa Flugleiöá haföi
siödegis i gær aöeins veriö hægt
að fara 3 ferðir til Egiisstaöa, 2 til
Vestmannaeyja og 1 til Horna-
fjaröar. útlit var fyrir aö ekki
tækist að fljúga norður og vestur i
gærkvöldi.
í fyrradag voru farnar 4 þotu-
ferðir til Akureyrar, 5 ferðir til
Húsavikur, 3 tii Egilsstaða og 2til
Vestmannaeyja. Ef flugveöur
verður i dag er ætlunin aö farnar
veröi þotuferöir til Akureyrar svo
Bærinn Ljárskógar
i Dalasýslu brann
Húsfreyjan
lést i
brunanum
Bærinn Ljárskógar i Dalasýslu
brann til kaldra kola aðfararnótt
páskadags. llúsfreyjan á bænum,
Astriöur Hansdóttir, lét lifið I
brunanum.
Hún var ein á bænum er eldur-
inn kom upp. Hans varð fyrst vart
á bænum Hólum I Hvammshreppi
um sex leytið aö morgni páska-
dags. Þegar slökkviliöiö i Búöar-
dal kom ó vettvang, en aö Ljár-
skógum er um 5 kilómetra leiö,
var ibúöarhúsið aielda.
Ljárskógar voru steinhús meö
timburgólfum, kjallari, hæð og
ris, byggt um 1930. Astriöur
Hansdóttir var fimmtug að aldri,
ekkja Guðmundar Jónssonar,
bónda i Ljárskógum. Hún lætur
eftir sig þrjú uppkomin börn.
að minni vélarnar farieingöngu á
aðra staði.
Þeir sem biöa nú eftir að
komast vestur, suöur eöa noröur
hvort heldur sem er meö Flug-
leiðum, smærri flugfélögunum
eða bilum, skipta nú sennilega
þúsundum. —GFr.
læknir, var sá fyrsti sem naut
Málfrelsissjó&s, einnig vegna VL-
stefnu og dóma.
1 frétt frá stjórn Málfrelsissjóös
um úthlutunina til Garöars Vi-
borgs segir svo:
1 tveimur tölublööum Nýs lands
i janúar 1974 var i ritstjórnar- og
fréttagreinum vikið aö undir-
skriftasöfnun Varins lands, sem
þá stóð yfir. Af þvi tilefni stefndu
tólf forgöngumenn þeirra
samtaka Garðar; Viborg,
ábyrgöarmanni Nýs lands, fyrir
meiðyrði. Tilgreindu þeir i grein-
unum og fyrirsögnum þeirra alls
sex ummæli er þeir töldu æru-
meiðandi. Kröfðust þeir miska-
bóta og þyngstu refsingar fyrir
ummælin, auk ómerkingar
þeirra.
Héraösdómur taldi engin um-
mælanna refsiverð og hratt kröf-
um um miskabætur, en þrenn
■ ummælin voru dæmd dauð og
ómerk og stefnendum tildæmdar
kr. 25.000 i málskostnaö.
Þessum héraösdómi áfrýjaði
Jóhann Hannesson, form, stjórnar Málfrelsissjóðs, afhendir Gar&ari
Viborg upphæðina sem honum var úthlutað úr sjó&num til þess að
standa straum af málskostnaði vegna stefnumála VL-inga.
Garðar Viborg. t dómi sinum 25.
nóvember 1976 dæmdi Hæstirétt-
ur tvenn ummæianna dauð og
ómerk og gerði Garðari aö greiða
gagnáfreyjendum kr. 60.000 i
málskostnað fyrir báöum réttum.
Fórst í Lúxemborg
Vilhjálmur Vilhjálmsson,
flugmaður og söngvari, fórst i
bílslysi rétt utan við borgarmörk
Luxemborgar i fyrrakvöld.
Hann var einn sins liös i bifreiö
sem fór út af veginum. Taliö er aö
hann hafi látist samstundis.
Vilhjálmur var á vegum Arnar-
flugs i Luxemborg og átti *ð
greiöa fyrir islenskum
feröamannahópi á leiö frá tsrael
til Islands.
Vilhjálmur var 32 ára gamall,
Hann lætur eftir sig konu og þrjú
börn.
30. MARS
E* samkoma í
Ll Háskólabíói
Kristbjörg.
Arni
Sigurður
Samkoman hefst kl. 21.
Ávarp miðnefndar
Þursaflokkurinn leikur
lög
Hann skipa;
nokkur
Egiil Ölafsson
Þórður Árnason
Tómas Tómasson
Ásgeir óskarsson
Rúnar Vilbergsson
Ávörp: Helgi Guðmundsson
Þórhildur Þorleifsdóttir
Gunnar Stefánsson les úr verk-
um Snorra Hjartarsonar
Kaflar úr islandsklukkunni
Flytjendur; Jón Hjartarson
Baldvin Halldórsson
Hjalti Rögnvaldsson
Kvintett úr Tónlistarskólanum
Hann skipa: ólafur Flosason
Rúnar Viibergsson
Þorkell Jóelsson
Freyr Sigurjónsson
Björn Leifsson
Ræðumaður: Tryggvi Gíslason
Land til sölu. Leikþáttur eftir
Flosa Ólafsson
Flytjendur: Flosi Ólafsson
Sigurður Skúlason
Kristbjörg Kjeid
Helga Jónsdóttir
Arni Björnsson stjórnar fjölda
söng, undirleikari Elías
Davíðsson
Kynnir er Bergtjót
Kristjánsdóttir.
Samtök herstöðvaandstæðinga.
Gunnar
Flosi
Tryggvi
Helga
Jón
Ellas
Baldvin
Helgi
Egíll
Hjalti
Önnur úthlutun
úr Málfrelsissjóöi