Þjóðviljinn - 31.03.1978, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 31. mars 1978
Hffl Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar f DAGVISTUN BARNA’ F0RNHAGA 8 S1MI 27277
Lausar stöður forstöðumanna Laus er staða forstöðumanns Dagheimil- isins Hliðarenda og Dagheimilisins Völvu- borgar. Laun samkvæmt kjarasamningi borgarstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til 15. april. Umsóknir skilist til skrifstofu Dagvistunar, Fornhaga 8, en þar eru veittar nánari upplýsingar.
O ÚTBOÐ Tilboð óskast i byggingu heilsugæslu- stöðvar á Seltjarnarnesi. Verkið nær til uppsteypu og lokafrágangs utanhúss. Utboðsgögn eru afhent á skrif- stofu Seltjarnarnesbæjar, Mýrarhúsa- skóla eldri, gegn 50.000.- kr. skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 18. april kl. 11. Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi.
Lögmenn! Munið aðalfund Lögmannafélags Islands að Hótel Loftleiðum, Leifsbúð, i dag kl. 14. Árshóf félagsins i kvöld kl. 19, i Lækjar- hvammi,Hótel Sögu. Stjórnin.
SKRIFTAR- OG
VÉLRITUNAR-
KENNSLA
Skriftar- og vélritunar-námskeið hefjast
miðvikudaginn 5. april.
Upplýsingar i sima: 12907
Ragnhildur Ásgeirsdóttir
skriftar- og vélritunarkennari.
Birgir Stefánsson skrifar:
Fréttabréf frá
Fáskrúðsfirði
Fréttaritari Þjóöviljans á Fá-
skrúðsfiröi, Birgir Stefánsson,
skólastjóri Tunguholtsskóla,
hefur sent Landpósti eftirfar-
andi fréttabréf:
Blómleg útgerð
Útgerð hefur jafnan verið
mikil og öflug frá Fáskrúðsfirði
eða Búöum, eins og kauptúnið
er nefnt í daglegu tali hér um
slóðir. Atvinna fólks byggist
lika fyrst og fremst á útgerðinni
og sjávarafla. Sjómennirnir
færa aflann að landi, fjöldi
verkafólks hefur vinnu við
vinnslu hans, margir iðnaðar-
menn hafa vinnu við smiði og
viðhald atvinnutækja og drjúg-
ur hluti verslunar er tengdur út-
gerðinni og fleira mætti til tina.
Likt er þessu farið i öðrum
sjávarkauptúnum viðsvegar um
landið. Og hér heyrast ekki þær
raddir, sem fordæma kaup á at-
vinnutækjum, svo sem skuttog-
urum og kalla það sóun fjár-
muna og of mikla fjárfestingu i
dreifbýli landsins. Á siðasta ári
komu hinir tveir skuttogarar
Fáskrúðsfiröinga með um 6.000
tonn af fiski að landi og var
brúttóverðmæti þess afla um
550 milj. kr., sem einhverntima
hefði þótt umtalsverður pening-
ur.
Umfangsmesta útgerðin á
Búðum er i höndum Hraðfrysti-
húss Fáskrúðsfirðinga, en
Kaupfélagið er stærsti eignar-
aðili þess. Það á og gerir út tvo
skuttogara, Ljósafell og Hoffell.
Afli þeirra var fremur tregur i
janúar og fram i febrúar, en
hefur glæðst siðan, og að undan-
förnu hafa þeir landað 80—100
tonnum eftir veiðiferðina.
Fjórir stjórir bátar eru gerðir
út frá Búðum. Tveir þeirra,
Hilmir og Guðmundur Kristinn
eru á loðnuveiðum, en hinir
tveir stunda linu- og netaveiðar
héðan að heiman og leggja upp
afla sinn hjá hraðfrystihúsi Pól-
arsildar hf. Sólborg hefur
stundað veiðar með linu og ver-
iö á útilegu, og hefur afli veriö
allgóður. Þorri stundaði dag-
róðra með linu að heiman fram
um miðjan febrúar, en skipti þá
yfir á net.
Auk þess eru gerðir út margir
smærri bátar, bæði þilfarsbátar
og trillur. Eins og menn vita er
veiði ekki stunduö á þessum
bátum yfir háveturinn en veiði-
timi þilfarsbátanna fer að
byrja.
Næg atvinna
A Búðum er næg atvinna fyrir
alla og meira en það, i sum
störf vantar fólk. Nokkuð er um
það, að fólk úr sveitinni vinni i
kauptúninu, og er þar aðallega
um að ræða ungt fólk, sem ekki
er sjálft búandi. En fólk kemur
einnig til atvinnuleitar um
lengri veg en af sveitabæjum
innan fjallahringsins þvi að i
janúar komu 15 stúlkur um hálf-
an hnöttinn til að vinna i hrað-
frystihúsi kaupfélagsins. Eru
þær frá Astraliu, Nýja-Sjálandi
og Suður-Afriku og voru ein-
hverjar þeirra hér i fyrravetur
lika. Þessar stúlkur eru ráðnar
út mai.
Þess má geta, að i febrúar var
tekið upp ákvæðisvinnukerfi eða
bónuskerfi i hraöfrystihúsi
kaupfélagsins til reynslu. Er sá
reynslutimi þrir mánuðir.
Loönan
A Búðum er fiskimjöls- og lýs-
isverksmiðja i eigu Hraöfrysti-
húss Fáskrúðsfirðinga. Fyrsta
loðnan á þessari vertið barst til
hennar 9. febrúar og bræðsla
hófst 14. fefer. Nú hefur verk-
smiðjan tekið á móti um 8.000
tn. en hún bræðir um 250 tn. á
sólarhring með meðalafköstum.
Allmargir bátar hafa landað
hér i það heila og i landlegu fyr-
ir nokkru lágu margir bátar hér
við bryggjur, og minnti það ó-
neitanlega á þá gömlu, góðu
daga, er bátafloti landsmanna
var hér við Austurland, eins og
hann lagði sig.
Af framkvæmdum
A vegum Búðarhrepps og
rikisins er unnið að ýmsum
framkvæmdum, þó að nokkurt
hlé sé reyndar um þessar
mundir, en áætlaðar eru þó
nokkrar framkvæmdir á árinu
við skólabyggingu og hafnar-
gerð, sem hvorttveggja var i
gangi i fyrra einnig.
Skólinn hefur verið lengi i
byggingu og þykir mörgum
heldur slælega hafa verið unniö
af hálfu hreppsnefndarmeiri-
hlutans. En fyrir dyrum stendur
nú vinna við innréttingar, og
ætlunin er að taka hluta hússins
i notkun I haust, en það er mjög
brýnt fyrir skólahald á
staðnum.
1 fyrrahaust var lokið við
fyrsta áfanga nýrrar hafnar-
uppfyllingar og i ár er fyrir-
hugað að ljúka öðrum áfanga
þessa mannvirkis og verður þá
komin góð höfn fyrir smábáta,
en i þriðja og siðasta áfanga
verður dýpkað við þessa nýju
uppfyllingu. Viðlegukantur
verður 60 m.
A þessu ári er einnig ætlunin
að halda áfram gerð iþrótta-
vallar, sem er við aðalveginn
inn úr kauptúninu.
Birglr BtefáBMoa.
Nokkurra ára gamall læknis-
bústaöur er á Búðum. Hefur
neðri hæö hans staðið ófullgerö
og ónotuð til þessa, en að undan-
förnu hefur verið unnið viö að
ganga þar frá ibúö fyrir hjúkr-
unarfræöing, i þeirri von, að þá
fengist einhver slikur á staðinn.
Framlag til byggingar heilsu-
gæslustöðvar er loksins komið á
fjárlög, svo um sé hægt að tala,
10 milj. en ekki hillir undir
neinar framkvæmdir á þessu
ári.
Einnig mun stefnt að þvi að
hefja byggingu 12 ibúða fjöl-
býlishúss, eftir lögunum um
leigu- og söluibúðir sveitar-
félaga.
Geta má þess að lokum, að á
sl. hausti var lögð oliumöl á
nokkurnhluta Skólavegar, en sú
framkvæmd tókst svo óhöndug-
lega, að heita má aö öll oliu-
mölin sé ónýt. Astæðan er fyrst
og fremst sú, að unnið var að
þessari framkvæmd i rigninga-
tið.
Frh.
Birgir Stefánsson
Leikfélag Laxdæla
sýnir Skjaldhamra
Hinn 22. mars s.l. frumsýndi
Leikklúbbur Laxdæla Skjald-
hamra eftir Jónas Arnason i
Búðardal. Húsfyllir var og leik-
stjóranum Guðmundi Magnús-
syni og höfundinum, sem var
viöstaddur, var ákaft fagnað.
önnur sýning var á laugardag-
inn fyrir páska og nú eru fleiri
fyrirhugaðar.
Leikfélag Laxdæla starfar af
miklum krafti og færir upp 1 eða
2 verk á hverju ári. Leikendur i
Skjaldhömrum eru þeir Benóný
Pétursson, sem leikur vita-
vörðinn, Asa Jónsdóttir sem
leikur Katrinu Stonton, Jón
Pétursson i hlutverki Stone
majors, Magnús Guðmundsson
sem korpórallinn, Svavar
Garðarsson sem Pa'll Daniel
Nielsen og Sigrún Sigurðar-
dóttir i hlutverki Birnu. For-
maður Leikklúbbs Laxdæla er
nú Ester Axelsdóttir.
—GFr
Vélaeign bænda
Ekki mun vera til nákvæm skrá um fjölda búvinnuvéla i eigu
bænda. En eftir þvi sem Haraldur Arnason, verkfæraráðunautur
Búnaðarfélags tslands hefur komist næst álitur hann vélaeign
bænda i ársbyrjun 1978 vera nálægt þvi, sem hér greinir:
Hjóladráttarvélar ............................. 12.000
Jarðvegstætarar .................................. 150
Mykjudreifarar ................................. 2.600
Aburðardreifarar ............................... 2.600
Sláttuvélar .................................... 4.800
Sláttutætarar ................................. 300
Múga-og hjólarakstrarvélar...................... 2.000
Snúningsvélar .................................. 4.500
Heybindivélar .................................. 1.280
Heyhleðsluvagnar ............................. 1.300
Mjaltavélar .................................... 1.050
Mjólkurtankar eru nú á flestum býlum sem framleiða sölumjólk.
—mhg
VOf
Umsjón: Magnús H. Gfslason