Þjóðviljinn - 09.05.1978, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 9. mal 1978.
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Berg-
mann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein-
ar Karl Haraldsson. Umsjón með sunnudagsblaði: Arni Bergmann.
Au^lýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiðsla auglýs-
ingar: Siðumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaðaprent hf.
Umhverfismái
eru stjórnmái
Náttúruverndarþing, hið þriðja i röðinni, var háð
nú skömmu eftir sumarkomu. Vel fer á þvi að halda
slikar samkomur þegar náttúran tekur að vakna af
dvala okkar norðlæga vetrar. Þá eru skilningarvit
manna opnari en ella fyrir tengslum mannlifsins
við allt það er grær og vex af lifrænu afli. Vissulega
er það stolt mannsins og megin einkenni hans sem
tegundar að gera náttúruna sér undirgefna og
sækja i hennar sjóð. Jafnframt er ljóst orðið að
þetta getur maðurinn þvi aðeins gert sér til lang-
varandi ábata, að hann taki fullt tillit til þeirra lög-
mála er gilda i riki náttúrunnar. Þar er það enn sem
fyrr dauðasök að láta stjórnast af fýsnum of-
metnaðar og græðgi.
Margar ályktanir komu frá nátturuverndarþingi,
og verða þær stefnumarkandi fyrir náttúruverndar-
ráð á komandi starfstimabili þess og einnig leið-
beinandi fyrir önnur stjórnvöld. Þingið taldi að
áfram skuli unnið að friðun einstakara náttúru-
fyrirbrigða og friðlýsingu landsvæða. Markmiðið
með slikum friðunaraðgerðum er bæði að varðveita
landið og opna það, gera það aðgengilegt og bein-
linis auka notagildi þess fyrir almenning.
Mengunarmál: Ályktað var jöfnum höndum um
einstaka mengunarvalda, svo sem oliu og sorp, og
um heila atvinnugrein, iðnaðinn. Þingið krafðist
fullkominna mengunarvarna i iðnfyrirtækjum og
vinnslustöðvum, og hafnaði þeim iðnaði sem ekki
ræður við mengunarvandamál sin.. Þetta snýr jafnt
að stóriðju á sviði efnaiðnaðar og málmvinnslu,
sem úrvinnslu úr hráefnum sjávarútvegs og land-
búnaðar. Skipulagsmál: Það var þvi álit náttúru-
verndarþings að vinna þyrfti að samræmdu skipu-
lagi landnýtingar fyrir landið allt, þéttbýli, strjál-
býli og óbyggðir. Með þvi einu móti yrði tryggð hóf-
leg auðlindanýting að teknu fullu tilliti til félags-
legra og menningarlegra þátta umhverfisins.
Hér er komið að þvi máli, að andspænis efnahags-
skipan nútimans, sem með vélvæðingu leitast við að
ná hámarks nýtingu allra framleiðsluþátta — bæði
mannlegs vinnuafls og þeirra auðlinda sem landið
og náttúran láta i té — dugar ekki lengur viðhorf
eintrjánungslegrar náttúruverndar. f staðinn þarf
að koma allsherjar auðlinda- og umhverfisvernd,
þar sem maðurinn sjálfur er i þungamiðju,
maðurinn i sinum vistfræðilegu tenglsum við lif-
kerfið i heild. Þannig skoðað er landhelgismálið eitt
stærsta náttúruverndarmál íslendinga, þótt það
heyri engan veginn undir náttúruverndarráð.
Hér er löng leið fyrir stafni, en á náttúruverndar-
þingi mátti þó greina hreyfingu i áttina. í fyrsta
sinn á slikri samkomu leituðu menn frá landi til
hafs: vöruðu við áhrifum oliuborana á fiskinn i
sjónum, bentu á að okkur ber að hafa vakandi auga
með stofnum sjávarspendýra. Einnig var vikið að
atvinnu-umhverfi manna: iðjuverin mega ekki
menga ytra umhverfi sitt, en þau mega ekki heldur
stofna heilbrigði þeirra i hættu sem við þau vinna.
Viðtæk auðlinda- og umhverfisverndarstefna
felur i sér hóflega nýtingu framleiðsluþátta til
hámarks hagsældar allra. Slik samfélagsskipan er
eins og draumsýn i þvi þjóðfélagi sem einkennist af
vinnuþrælkun, brengluðu gildismati, misskiptingu
auðs, tekna og valda. Við skulum samt varðveita þá
draumsýn i pólitisku amstri hversdagsins.
—h
Með banni
Verkalýðsfélag Vestmanna-
eyja heldur úti fréttabréfi af
miklum myndarskap. I 1-mai
hefti f réttabréfsins ritar
Runólfur Gislason, varafor-
maður félagsins eftirfarandi
grein.
„Ýmsum hefur þótt kindugt
að fylgjast með framkomu
Karls Steinars Guðnasonar,
varaformanns Verkamanna-
sambands Islands og formanns
Verkamanna- og sjómanna-
félags Keflavikur og nágrennis,
i sambandi við ákvörðun VMSI
um útflutningsbann.
Fyrst eftir að aðgerð þessi var
ákveðin, á fundi framkvæmda-
stjórnar Verkamannasam-
bandsins 3. april, kom Karl
Steinar fram i fjölmiðlum sem
gallharður málsvari útflutn-
ingsbannsins. Að visu fór hann
með það i f jölmiðla þvert ofan i
það sem ákveðið hafði verið á
fundinum, en kom sem sagt
framsem eindreginn stuðnings-
maður aðgerðanna:
Karl Steinar
bands verkafólks, hefur áhyggj-
ur af atvinnuleysi. Sennilega
eru einmitt þær áhyggjur sam-
eiginlegar hverjum einasta
formanni verkalýðsfélags á
landinu.
Ný sannindi
„Verkamannasambandið
mun halda þessu útflutnings-
banni áfram þangað til jákvæð
viðbrögð fást hjá atvinnu-
rekendum og alvöru viðræður
geta hafist. Hingað til hafa þeir
ekki viljað ræða við okkur i al-
vöru”... „Við ætlum að stöðva
útflutning, bæði áls, fisks og
búvara, nema hjá þeim at-
vinnurekendum sem greiða full-
ar verðbætur,” segir Karl
Steinar Guðnason i viðtali við
En þar sem Karl Steinar var
nú orðinn hræddur um að
útskipunarbann gæti komið sér
illa á Suðurnesjum og haft skað-
vænleg áhrif á vinnumöguleika,
hver eru þá úrræði hans? Til
hvaða aðgerða vill hann þá
taka, til að tryggja hvort
tveggja i senn: Fulla atvinnu og
mótaðgerðir gegn kjararáns-
lögunum ? Þau ráðeru vissulega
til:
,,Ég varaði við þessari að-
ið og hvers vegna skyldi hann ■
hafa verið hunsaður?
Gildi !
allsherjarverkfalls
Jú á 10 manna-nefndarfundi,
sem haldinn var að beiðni Karls
St Cfyrir hönd Suðurnesja-
manna, en hann mætti einn
fulltrúa á þann fund) bar hann
fram tillögu, sem hann kvað
vera frá Suðurnesjaformönnun-
um öllum. Þessi tillaga hljdðaði
upp á allsherjarverkfall. Mönn-
um er auðvitað fyllilega heimilt
að velta því fyrir sér á hvern
hátt aUsherjarverkfall tryggir
betur fulla atvinnu á Suðurnesj-
um en útflutningsbann, en þeirri
spurðingu verður ekki svarað
hér, þar sem höfundur þessara
orða kannekkivarvið henni. Og
raunar hefur Karl St. ekki feng-
ist til að svara henni heldur,
þegar beðið hefur verið um slika
skýringu.
Aftur á móti vissi Karl St
fyrir mörgum mánuðum, að úti-
lokað var að fá samstöðu um
allsherjarverkfall, þar sem ljóst
er, að atvinnuástand innan
margra iðngreina er þannig, að
atvinnurekendur innan þeirra
myndu þakka fyrir ef verkfall
skylli á. Málm- og skipasmiða-
iðnaðurinn er þarna gott dæmi
og sama er raunar að segja um
rafiðnað og byggingariðnað.
Hins vegar var þvi lýst yfir fyrir
jafnmörgum mánuðum, að
þessi sambönd, — og öll önnur
landssambönd myndu gripa til
að gerða til stuðnings útflutn-
ingsbanninu (og VMSI þá um
leið) þegar það væri skollið á.
Þetta var á vitorði Karls fyrir
langa löngu.
Runóifur Gisiason* varafomadur
Verkaiýdsf él ag s Vestmann aey ja:
Furtíuleg framkoma
varaformanns Verka-
mannasambandsi ns
Dagbiaðinu boðaði svo Verka-
mannasambandið til blaðamanné
fundar, þar sem aðgerðir sam-
bandsins voru formlega boðaö-
__ar. Þá var skyndilega komið
blaðamann Dagblaðsins 4,april
sl.
Daginn eftir að þessi skorin-
orða yfirlýsing birtist i Dag-
blaðinu boðaði svo
Verkamannasambandið til
blaðamannafundar þar sem að-
gerðir sambandsins voru form-
lega boðaðar. Þá var skyndilega
komið annað hljóð i strokk
varaformannsins, hverjir sem
haft hafa áhrif á hann í þá átt, á
þessum stutta tima:
„Ég hef þann fyrirvara á
stuðningi við fyrirhugaðar að-
gerðir Verkamannasambands-
ins, að um þær náist viðtæk
samstaða og góð. Þá tel ég of
mörg veigamikil mál i sam-
bandi við aðgerðirnar litt eða
ekki rædd i forystu sambands-
ins og taldi þvi ekki timabært að
boða til fréttamannafundar í
morgun til að kynna málið”,
segir sá sami Karl Steinar við
Alþýðublaðið 6. april, tveim
dögum eftir að hann hafði sjálf-
ur haft forystu i að kynna málið
fjölmiðlum.
En það er meira blóð i kúnni,
og i sama viðtali gefur Karl
Steinar upp ástæðuna fyrir
þessari afstöðu sinni:
„Fullyrða má að hér á
Suðurnesjum sé rikjandi veru-
legur ótti fólks við atvinnuleysi,
— meira atvinnuleysi en hér
hefur verið tilþessa...”
Það er auðvitað ekki nema
virðingarvert, þegar formaður
verkalýðsfélags, sem auk þess
er varaformaður landssam-
gerð á öllum umræðustigum
málsins og taldi hana ekki nógu
markvissa og að hún myndi
skapa andstæðingum verka-
lýðshreyfingarinnar betri vopn
en þeir eiga skilið. Ég skýrði
frá, hvernig ástandið væri hjá
minu fólki á Suðurnesjum, þar
sem rikt hefur erfitt atvinnu-
ástand, sem skapast hefur af
aflabresti...” ,,...ég vildi...
ganga úr skugga um hvort ekki
væri unnt að ná fullri samstöðu
innan Alþýðusambands Islands
um sameiginlegar aðgerðir,
eins og félagar minir i verka-
lýðsfélögunum á Suðurnesjum
hafa alltaf viljað. Ef vilji heföi
verið fyrir slikri samstöðu inn-
an ASl, hefðu Suðurnes að sjálf-
sögðu verið með. Nú hefur á
þetta reynt og i ljós komið, að
það er ekki sem stendur vilji
fyrir þvi innan ASÍ að efna tíl
sameiginlegra aðgerða...”
Þetta er haft orðrétt eftír Karli
Steinari i hádegisfréttum Rikis-
útvarpsins 12. april. Sú full-
yrðing Karls St. að hann hafi
varað viðþessari aðgerð á öllum
stigum er að visu ný sannindi
fyrir samstarfsmenn hans, enda
lýsir Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður VMSl þvi yfir i
viðtali að Karl Steinar Guðna-
son hafi greitt útflutningsbann-
inu atkvæði á öllum fundum þar
sem um það var fjallað. En
hvað sem þvi -h'ður, þá kemur
þarna fram, að vilji Karls St.
hefur verið hunsaður innan ASI.
Hver skyldi þá sá vilji hafa ver-
Skipt
um forsendur
Það er leiðinlegt að þurfa að
segja það, um félaga sinn i
verkalýðshreyfingunni, en þvi
verður ekki hjá komist, að engu
likara eren að Karl Steinar hafi
hreinlega verið að skipta um
forsendur fyrir þátttöku sinni i
útskipunarbanninu til að
komast hjá því að taka þá
ákvörðun að vera með.
Fyrst segir hann (Alþýðubl. 6.
april) að alger samstaða verði
að nást innan VMSl. Hún náðist,
þvi aðeins eitt félag felldi
útskipunarbann,
Þegar það lá fyrir, var þraut-
ráðið að krefjast aðgerða sem
hann vissi að ekki var möguleiki
að ná fram, — allsherjarverk-
falls — þrátt fyrir að hann vissi
að slikt var útilokað.
Karl St. sagði i viðtali þvi við
útvarpið, sem vitað er til hér að
ofan, að útflutningsbannið
færi óvinum verkalýðshreyf-
ingarinnar óverðskulduð vopn i
hendur. Menn hafa auðvitað
fullt leyfi til aö vera ósammála
um hvað sem er, — en það er
sannfæring þess, sem þessi orð
ritar, að aldrei hafi and-
stæðingar hreyfingarinnar ver-
ið eins vel vopnaðir og eftir að
þeir fengu i hendur yfirlýsingu
Karls Steinars Guðnasonar
varaformanns VMSI.” — ekh.