Þjóðviljinn - 09.05.1978, Side 5

Þjóðviljinn - 09.05.1978, Side 5
Þriðjudagur 9. mal 1978. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5 Lúövík Jósepsson í umrœðum um Kröfluskýrslu: Ríkisstjórnin ætlar aö hlaupast frá framkvæmdum eftir ad hafa lagt i þær um 8 miljarða Umræður um skyrslu Gunnars Thoroddsen, orkumálaráðherra, um Kröfluframkvæmdir hófust á Alþingi seint á föstudagskvöidi og stóðu langt fram yfir miðnætti. Eins og kunnugt er þá var um tima talið ólíklegt aö skýrslan yrði rædd á Alþingi vegna fjar- veru ráðherrans. Mikill fjöldi fólks fylgdist með umræðum þessum á pöllum Alþingis. Sighvatur vanbúinn aö ræda skýrsluna Gunnar Thoroddsen, tók fyrst- ur til máls og geröi grein fyrir efni skýrslunnar. Meginhluti ræðu hans fór þó i það að svara ummælum Sighvats Björgvins- sonar utan dagskrár á Alþingi i siðustu viku. Lagði orkumálaráð- herra á það áherslu að skýrslunni hefði ekki verið lokið fyrr en 20. april og þvi hefðu ekki verið tök á þvi að leggja hana fyrr fram á Al- þingi. Um utanför sina sagði ráð- herra, að hún hefði verið ákveðin með löngum fyrirvara. Hann heföi þurft að fara á aðalfund Is- lenska járnblendifélagsins 26. april og þvi hefði hann óskað eftir þvi að skýrslan yrði sett á dag- skrá þann 25. april svo hann gæti mælt fyrir henni. Sighvatur Björgvinsson hefði hins vegar tal- iðsig vanbúinn aö ræða skýrsluna og þvi óskað að hún yrði tekin af dagskrá sem var og gert. Július ekki óhlutdrægur Sighvatur Björgvinsson, tók næstur til máls Hann rakti fyrsti löngu máli forsögu Kröflufram- kvæmda. Síöan fjallaði hann um Kröfluskýrsluna og gagnrýndi hana mjög. Hann benti á að Július Sólnes, höfúndur skýrslunnar, væri langt i frá að vera óhlut- drægur aðili málsins. Július væri sjálfur tengdur Kröflumálinu, hann hefði starfað um tima sem yfirverkfræöingur Kröflunefnd- ar. Það væri áberandi i skýrsl- unni að höfundur hennar vildi skrifa öll mistökin viö Kröflu á Orkustofnun, en bæri hins vegar sérstaktlof á Kröflunefnd og verk hennar. Sighvatur sagði að sá sem gengið hefði frá Kröfluskýrslu hefði breytt álitsgerö Orkustofn- unar á þann veg aö hlutur Orku- stofnunar yrði sem verstur. Þannig væru birtir þeir kaflar úr áliti Orkustofnunar sem hentuðu höfundi. Sagöi Sighvatur að sum- ar orðalagsbreytingar jöðruðu við falsanir. þingsjá Skýrslan rædd á síöasta degi þings Lúðvik Jósepsson tók til máls að lokinni ræöu Sighvats. Lúðvik gagnrýndi vinnubrögö i sambandi við skýrsluna og benti á að nú væru liðnir meir en 6 mánuðir sið- an þingmenn heföu óskað eftir þvi að skýrsla um Kröflu yrði lögð fram. Jafnframt hefðu þingmenn óskað eftir þvi að skýrslan yrði lögð fram það timanlegaaðnægur timi gæfist til að ræða hana, en nú væri hún rædd á siðasta degi þings ins. Lúðvik minnti á aö vorið 1974 hefðu allir þingmenn verið sam- mála um að heimila virkjun við Kröflu, enda allt bent til að hér væri um hagkvæma virkjun að ræða. Hins vegar væri ljóst að þær ákvarðanir sem teknar voru snemma árs 1975 um að hraöa öll- um framkvæmdum hefðu verið hæpnar og menn treyst að lukkan væri með þeim. Sagði Lúðvlk að vart þyrfti um það aö deila að mikið skipulagsleysi hefði rikt við þessar framkvæmdir og væri það að rekja fyrst og fremst til Iðnað- arráðuneytisins. Búiö ad verja 7-8 miljörðum Lúðvik benti á að nú væri búiö að verja milli 7—8 miljörðum króna i Kröfluframkvæmdir og talið væriaö Kröfluvirkjun myndi kosta fullbúin yfir 11 miljaröa. Sú upphæð væri þó verulega hærri á G-listi á 30stöðum r A fimmtán stöðum á Alþýðubanda- lagið ennfremur aðild að lista eða veitir ákveðnum listaframboðum stuðning Við sveitarstjórnarkosningarn- ar 28. mai er Alþýöubandalagið með framboö á vegum flokksins og hefur þvi G-lista á eftirtöldum stöðum: Reykjavik, Kópavogi, Garöabæ, Hafnarfirði, Grindavik, Keflavik, Njarðvik, Akranesi, Borgarnesi, Hellissandi, Grundarfiröi, Stykkishólmi, Suðureyrarhreppi, Isafirði, Skagaströnd, Sauðárkróki, Siglufiröi, Dalvik, Akureyri, Raufarhöfn, Egilsstöð- um, Seyðisfirði, Neskaupstað, Eskifiröi, Reyðarfirði, Fáskrúðs- firði, Höfn i Hornafirði, Vestmannaeyjum, Selfossi, Hverageröi. verðlagi dagsins i dag. Um slö- ustu áramót hefði rikisstjórnin á- kveðið viö gerð fjárlaga að veita ekki meira fjármagn til gufuöfl- unar sem þýddi stöðvun fram- kvæmda við Kröflu. En það væri ekki aðeins veriö aö stöðva Kröfluframkvæmdir, heldur llka Orkustofnun. Rikisstjórnina hefði nú ákveðið aö ráðstafa 180 miljón um króna af framkvæmdafé Orkustofnunar til að greiða ó- reiðuskuldir vegna Kröflufram- kvæmda. Lúðvik sagði að þeir sem töl- uðu mest um Kröflu reyndu að finna einn sekan aðila og vildu hengja hann sem fyrst, og oftast væri sökudólgurinn orkumála- ráðherra. Hann áliti hins vegar að málið væri miklu stærri en svo að hann treysti sér til aö sakfella einn aðila. I reynd væri þaö öll rikisstjórnin sem bæri ábyrgð á Kröflumálinu. Rikisstjórninni bæri skylda til að halda áfram að leita gufu og fráleitt væri að hlaupa nú frá verkinu, sagði Lúövik aö lokum. Engin gagnrýni frá Alþýduflokknum 1974 Jón G. Sólnes ræddi þá bjart- sýni sem rlkti um Kröflufram- kvæmdir vorið 1974 og minnti á að engin gagnrýni heföi komiö fram á það að hefja virkjun við Kröflu, ekki heldur frá Alþýðuflokknum. Síðan svaraði Jón gagnrýni sem komiö hafði fram á Kröflunefnd i ræðu Sighvats. Lærum af mistökum Steingrimur Hermannsson, sagöist hafa fagnað þvi að ráöist var I Kröfluvirkjun 1974 og hann fagnaöi þvi enn. Varðandi Kröflu- skýrslu sagðist hann hafa orðið fyrir vonbrigðum með skýrsluna sem væri hlutdræg. Steingrimur sagði að menn yröu aö læra af þeim mistökum, sem gerð voru við Kröflu t.d. það aö ráðast aldrei i framkvæmdir fyrr en endanlegum rannsóknum sé lok- ið. Orkustofnun ber ábyrgö á mistökunum Ingvar Gislason sagði að Kröfluskýrslan væri góð og hefði hatin engu við hana aö bæta. Sagöist hann vilja leggja áherslu á að mistökin við Kröflu yrðu aö skrifast fyrst og fremst á ábyrgð Orkustofnunar, sem hefði ekki ráöiö við verkefni sitt. Sagðist hann ásaka sjálfan sig fyrir að hafa treyst skýrslum Orkustofn- unar i blindni. I öðrum sveitarfélögum á Alþýðubandalagiö aðild að eöa styður eftirtalda lista: Seltjarnarnesi H-listann vinstri menn Gerðahreppi I-listann/iháðir borgarar Mosfellshreppi H-listann,óháöir borgarar Ólafsvik H-listann,almennir borgarar Patreksfirði I-listann, framfarasinnaðir kjósendur Suðurfjaröarheppi K-listann,óháðir kjósendur Þingeyri V-listann,vinstri menn Framhald á 18. siöu CITROÉNA' TÆKNILEG FULLKOMNUN CITROÉN^CX LUXUSBÍLL SÉRFLOKKI CITROÉN^GS DRAUMABILL FJÖLSKYLDUNNAR ÞEGAR ÁKVEÐIN ERU BÍLAKAUP ER NAUÐSYNLEGT AÐ VITA HVAÐ FÆST FYRIR PENINGANA ------HVAÐ BÝÐUR CITROÉN^ YÐUR?-------- 1. 2. 3. 5. Báðir bílarnir hafa verið valdir bílar ársins. Fullkomið straumlínulag gerir bílinn stöðugri og minnkar bensíneyðslu. Framhjóladrifið, sem CITROÉN byrjaði fyrstur með skapar öryggi í akstri við allar að- stæður. Vökvastýri, (CX) með þeim eiginleikum að átakið þyngist, því hraðar sem er ekið. Vökvafjöðrun (aðeins á CITROÉN) skaþar eiginleika og öryggi sem enginn annar bíll get- ur boðið upp á. T.d. hvellspringi á miklum hraða er það hættulaust, enda má keyra bílinn á þrem hjólum. 6. Vökvahemlar sem vinna þannig að hemlunin færist jafnt á hjólin eftir hleðslu. 7. Þrjár mismunandi hæðarstillingar, með einu handtaki, gerir bilinn sérstaklega hentugan við íslenskar aðstæður, t.d. i snjó og öðrum tor- færum. 8. Samkvæmt sænskum skýrslum reyndist CITROÉN einn af fjórum endingarbestu bílum þar í landi. 9. CITROÉN er sérstaklega sparneytinn. 10. Miðað við allan tæknibúnað er verðið á CITROÉN mjög hagkvæmt. SAMA HÆÐ ÓHÁÐ HLEÐSLU SAMA STAÐA ÓHÁÐ ÓJÖFNUM G/obus? LAGMULI 5. SIMIÖ1555 J

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.