Þjóðviljinn - 09.05.1978, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 09.05.1978, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 9. mai 1978. íslandsmótið í fimleikum: Siguröur T. igurðs^op sést hér i uppáhaldsæfingunní sinni, hringjunum. Hann sigraöi meö yfirburöum i karlaflokki og hefur verið i sérflokki hér um langt skeiö. Hann er þó aðeins 21 árs. Segir Sigurður T. Sigurðsson skemmtilegastir af öllum grein- unum.” Og þú heldur áfram I fimleikun- um? „Já það er alveg öruggt. Ég er ekki nema 21 árs og á meðan ég hef gaman af þessu sé ég ekki ástæðu til að hætta” sagði Sigurð- ur. Hann vildi að lokum geta þess að þetta íslandsmót hefði verið erfiðara og strangara en önnur mót sem hann hefði tekið þátt i enda hefði nú verið keppt eftir alþjóðareglum i fyrsta sinn. SK „Ég þakka aðeins einum manni, Inga Sigurðssyni þjálfar- anum minum, þennan góða árangur sem ég náði á þessu íslandsmóti”, sagði tslands- meistarinn i karlaflokki eftir að hann hafði hoppað á verðlauna- pall i sex skipti og sótt gull i öllum tilfellum. „Ég hef oft æft betur en fyrir þetta íslandsmót. Ég byrjaði að æfa tveimur mánuðum fyrir mót- ið og er þetta þar af leiðandi nokkuð góður árangur að þessu sinni þrátt fyrir það að betur hefði mátt gera.” Nú sigrar þú I öllum grein- unum. Hver þeirra finnst þér vera skemmtilegust? „Mér finnast hringirnir lang- ,,Ég hef æft mjög vel að undan- förnu og á hverjum degi siðast- liðna 14 daga. Þetta hefur verið gifurlega erfitt en með iafn frábærum þjálfurum og þær Margrét Bjarnadóttir og Dana Jónsson eru, verður þetta allt auðvelt og skemmtilegt.” Og hér sjáiö þiö íslands- meistarann i kvennaflokki Berglindi Pétursdóttur. Þessi mynd var tekin af henni i gólfæf- ingunum. „Jú. Ég sigraði á Meistaramót- inu '75 og ’77 og svo núna i ár. Nú ert þú fjölhæf fimleikakona. Hvaða grein fimleikanna finnst þér skemmtilegust? / „Það er mér gersamlega ómögulegt að gera upp á milli einstakra greina. Þetta er allt jafn skemmtilegt” sagöi Berglind Pétursdóttir að lokum. SK er hættur Cruyff Einn mesti snillingur knattspyrnunnar, Johan Cruyff,gaf um helgina út þá yfirlýsingu að hann væri hættur að ieika knattspyrnu. „Ég mun hvorki leika i Argentinu, Bandarikjunum, Hollandi né neins staðar annarsstaðar, sagði Gruyff að leik Barcelona, spænska liðsins sem hann ieikur mefy og Valencia loknum. Leikn- um lauk með sigri Barcelona 1:0. Johan Cruyff hefur um nokkurra ára skeið verið viöurkenndur sem mesti knattspyrnumaður sam- timans. Frægð hans og snilli reis hvað hæst i Heimsmeistarakeppninni i Þýskalandi er hann sýndi hluti sem aldrei áður höfðu sést á knattspyrnuvellinum. Ýmsirvilja þó halda fram að þessi yfirlýsing Cruyffs sé einungis auglýsingabrella af hans hálfu. Piltur þykir ansi klókur i peningamálunum og svifst oft einskis til að ná þvi fram sem hann viU. Ekki er óliklegt að frægustu og rikustu knattspyrnulið heims geri 'nú tilboð i hollenska goðiö. Berglind og Slgurður T. meistarar islandsmótið i Fimleikum var luiö um helgina. Mótiö fór fram i íþróttahúsi Kennaraskólans og fór þaö vel fram i aUa staði. Var keppt samkvæmt alþjóðareglum i tyrsta skipti. íslandsmeistarar uröu þau Berglind Pétursdóttir úr Gerplu og Sigurður T. Sigurösson úr KR. Þaö var greinilegtá þessu móti aö fimleikafólk okkar er i mikilli framför. Flestar eru stúlkurnar ungaraöárum en eiga framtiðina fyrir sér. Annað verður þó aö segja um drengina. Margir þeirra eru þó elnilegir en það sem háir þeim mest, er hversu fáir þeir eru, til að mynda voru aðeins fimm drengir sem tóku þátt i íslands- mótinu að þessu sinni. En áður en lengra er haldið, skulum við fara yfir úrslitin i kvennaflokknum: 1 stökki yfir hest sigraði Berg- lind Pétursdóttir og hlaut fyrir það 18.10 stig. önnur varð Gunn- hildur úlfarsdóttir með 16.30 stig og þriðja Gyða Tryggvadóttir með 16.15 stig. Berglind Pétursdóttir hafði mikla yfirburði á tvislánni og sigraði með 15.55 stig. önnur varð Björk ólafsdóttir og hlaut hún 13.60 stig. Systir Berglindar, Jó- dis Pétursdóttir, hafnaði siðan i þriðja sæti með 13.05 stig.Ein var sú grein, sem Berglind Péturs- dóttur tókst ekki að sigra i og það var á jafnvægisslánni. Þar sigr- aði hin bráðefnilega Karólina Valtýsdóttir og hlaust fyrir það 17.45 stig. Islandsmeistarinn i samanlögðu, það er Bergþnd Pét- Gullkóngur og Gulldrottning sannarlega ástæðu til þess. ursdóttir, kom þó ekki langt á eft- ir með 14.40 stig. 1 þriðja sæti hafnaði Vilborg Nielsen með 14.90 stig. I gólfæfingunum var Berglind sigurvegari og hlaut einkunnina 18.50 fyrir. í öðru sæti varð Karó- lina Valtýsdóttir með 17.80 stig og þriðja Þóra Guðiónsen. sem að- islandsmótsins sjást hér kyssast skrautlega. Þau höfðu svo „Allt jafn skemmtilegt” Segir Berglind Pétursdóttir Islandsmeistarinn i kvenna- flokknum er Berglind Péturs- dóttir úr Gerplu. Eftir að hún hafði ásamt Sigurði tekið við öll- um sinum verðlaunum teymdum við hana varlega út i horn og gættum þess að ekkert af gullinu félli i gólfið. Varð hún góðfúslega við þvi að svara nokkrum spurn- ingum. Við spurðum hana fyrst að þvi hverju hún vildi þakka þennan mikla árangur sem hún náði á þessu móti? Þetta er ekki i fyrsta skipti áem þú sigrar á móti i fimleikum, er það ekki rétt? eins er 10 ára gömul, og hlaut hún 16.75 stig. Berglind Pétursdóttir er þvi ís- landsmeistari i fimleikum 1978 með samanlagt 69.55 stig i öðru sæti varð Vilborg Nielsen með 59.50 stig og þriðja Karólina Val- týsdóttir með 59.05 stig. Það vareins og áður segir gam- an að fylgjast með mótinu að þessu sinni. Greinilegt er að fim- leikastelpurnar eru i mikilli framför og stærsti kostur þeirra er hversu ungar þær eru. Það er mikil ábyrgð sem á Fimleikasambandi Islands hvilir. Nú má engan veginn láta staðar numið heldur halda áfram á þeirri traustu braut sem farin hefur verið að undanförnu. En vindum okkur þá i karla- greinarnar. Þar voru aðeins fimm keppendur. Meiri uppgang- ur virðist vera hjá stelpunum i fimleikunum en þó er engin á- stæða til svartsýni hjá drengjun- um, þrátt fyrir fæðina. Sigurður T. Sigurðsson var i al- gjörum sérflokki. Hann sigraði i öllum atriðum sem drengirnir tóku þátt i. Og þrátt fyrir það að honum mistækist i tveimur þeirra og þó aðallega á tvislánni, þar sem hann varð að byrja aftur á æfingunnienkomst þó frá henni á sómasamlegan hátt. Sá er veitti Sigurði mesta keppni var Jónas Tryggvason. Hanner greinilega sá,er við veldi Sigurðar tekur. Það er einnig greinilegt að hann hefur mikið lært af góðri vinkonu sinni, sem er enginn önnur en Berglind Pét- ursdóttir Islandsmeistari. Sigurður T. Sigurðsson KR hlaut samanlagt 101.85 stig og Jónas Tryggvason Ármanni i öðru sæti með91.55 stig og Heimir Gunnarsson Armanni varð þriðji með 87.90 stig. Að loknum öllum greinum mótsins voru verðlaun afhent og var ekki laust við að þau Sigurður og Berglind væru gulli likust er verðlaunaafhendingu lauk. Mótinu var siðan slitið af Ast- björgu Gunnarsdóttur formanni Fimleikasambands íslands. SK. »fitt mÁt?? viV13°8 ei iiii mui

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.