Þjóðviljinn - 09.05.1978, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 9. mal 1978.
Benedikt Gröndal
I innanflokksbréfi Alþýduflokksins:
viöurkennir
aö Alþýðuflokkurinn þiggi erlenda
fjárhagsaðstoð
I Iok aprflmánaöar þegar
frumvarp um að banna erlenda
fjárhagsaðstoð við islenskai
stjórnmálafloka var til umræðu á
Alþingi, flutti Jón Arm. Héðins-
son ræðu þar sem hann m.a. fjall-
aði um andstöðu þá sem væri I
Alþýðuflokknum gegn samþykkt
frumvarpsins. Jón las m.a. úr
dreifibréfi Alþýðuflokksins frá
13. mars s.I. sem hann sagði
Benedikt Gröndal for«
mann flokksins hafa samið og
sent flokksmönnum. 1 bréfi þessu
er viðurkennt að Alþýðuflokkur-
inn þiggi erlent fjármagn til
starfsemi sinnar, en reynt er að
réttlæta það auk þess sem hafðar
eru í frammi barnalegar lygar
um fjármál Þjóðviljans. Hér á
eftir fara kaflar úr bréfi þessu.
Fyrst er gerð grein fyrir aðstoð-
inni og sagt:
þingsjá
Benedikt játar
„Aðstoðin er tviþætt. Vorið
1976 stofnaði framkvæmdastjórn
flokksins Norrænan fræðslusjóð
og hafa jafnaðarmannaflokkar
hinna Norðurlandanna lagt nokk-
uð fé i hann, greitt i reikning hjá
Landsbankanum. Um siðustu
áramót stóðum við andspænis þvi
að leggja Alþýðublaðið niður. Þá
bauð norræna A-pressan, sem
alþýðusamböndin eru aðaleig-
endur að, okkur bráðabirgða-
hjálp. Vonandi dugir hún til að
fresta örlagaákvöröun um blaðið
fram yfir kosningar. Oðrum kosti
hefðum við orðið að safna stór-
skuldum til að halda blaðinu úti.
Alþýðuflokkurinn hefur þegiö
boð um norræna aðstoð fyrir opn-
um tjöldum, engu leynt og I öllu
farið að lögum”.
Fjármál Þjóðviljans
Siðan eru i bréfinu dylgjur um
fjármál Þjóðviljans auk þess sem
Benedikt lætur i ljós ótta um að
hann lendi i fangelsi:
„Þaö er útilokaö annað en
Þjóðviljinn fái erlenda aðstoð.
Hann tapaði 26 milljónum 1976 og
miklu meira 1977. Á sama tima
var byggt glæsilegt blaðhús fyrir
Frumvarp um bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra
aðila við íslenska stjórnmálaflokka:
Samþykkt mótat
kvæðalaust
Frumvarp um bann við
fjárhagslegum stuðningi erlendra
aðila við islenska stjórnmála-
flokka var samþykkt sem lög frá
Alþingi á siðasta degi þingsins.
Flutningsmenn þessa frumvarps
voru Stefán Jónsson, Oddur
Ólafsson, Steingrimur
Hermannsson og Jón Arm.
Héðinsson.
Frumvarpið kom til 2. umræðu
i neðri deild s.l. föstudag, og urðu
þá miklar umræður um málið. 1
þeim umræðum lögðu Lúðvik
Jósepsson, Jónas Arnason,
Ingvar Gislason, Karvel Pálma-
son og Páll Pétursson mikla
áherslu á að frumvarpið yrði
samþykkt. Sighvatur Björgvins-
son var andvigur samþykkt
frumvarpsins og lagði til að þvi
yrði visað til rikisstjórnarinnar.
Ingólfur Jónsson taldi að athuga
þyrfti þetta frumvarp betur og
vildi visa þvi til rikisstjórnarinn-
ar.
Við þessa umræðu fluttu
Sighvatur Björgvinsson og
Guðmundur H. Garðarsson
breytingartillögu við frumvarpið.
Lögðu þeir til að aftan við 1. gr.
bættist: „þá er erlendum sendi-
ráðum á tslandi óheimilt að kosta
eða styrkjablaðaútgáfu i landinu.
Þá lögðu þeir til að aftan við 2. gr.
bættist: ,,og einnig til blaða eða
timarita, sem út eru gefin á veg-
um einstaklinga eða félagasam-
taka.” Báðar þessar breytingar-
tillögur voru samþykktar og var
frumvarpið siðan samþykkt til
3ju umræðu mótatkvæðalaust,
eða með 34 samhljóða atkvæðum.
Við 3ju umræðu kom frávis-
unartillaga Sighvats til atkvæða
og var hún felld með 27 atkvæðum
gegn 5. Þar eð frumvarpið hafði
tekið breytingum varð að senda
það á ný til efri deildar og kom
það til umræðu i deildinni næsta
dag, laugardag.
Við umræðu um frumvarpið i
efri deild sagðist Einar Agústs-
son, utanríkisráöherra, vilja
benda á að ákvæði frumvarpsin?
um sendiráðin tiðkuðust ekki
erlendis og túlka mætti lögin á
þann veg að verið væri að banna
sendiráðum útgáfustarfsemi t.d.
útgáfu upplýsingarita. Sagðist
hann vona að lögunum yrði beitt
af varfærni, þannig að þau fælu
ekki i sér skerðingu á prentfrelsi.
Frumvarpið var siðan samþykkt
með 16 samhljóða atkvæðum og
afgreitt sem lög frá Alþingi.
Lögbrot aö þiggja
tjármagn erlendis frá
til stjórnmálastarfsemi og blaöaútgáfu
Eins og greint er annars stað-
ar frá hér á siöunni þá var
samþykkt á siöasta degi þings-
ins lagafrumvarp um bann við
fjárhagslegum stuðningi
erlendra aðila við islenska
stjórnmálaflokka og blaðaút-
gáfu erlendra sendiráða á
islandi. Hin nýju lög eru birt hér
i heild á eftir:
l.gr.
Islenskum stjórnmálaflokk-
um er óheimilt að taka við
gjafafé eða öðrum fjárhagsleg-
um stuðningi til starfsemi sinn-
ar hérlendis frá erlendum aðil-
um. Þá er erlendum sendiráð-
um á tslandi óheimilt að styrkja
blaðaútgáfu i landinu.
2. gr.
Lög þessi taka til stjórnmála-
flokka og félagasamtaka þeirra,
svo og til hvers konar stofnana,
sem starfa á þeirra vegum,
beint eða óbeint, þ.á.m. blaða og
einnig til blaða og tímarita, sem
út eru gefin á vegum einstak-
linga eða félagasamtaka.
3. gr.
Bann það, sem felst i 1. gr.
þessara laga, nær til hvers
konar stuðnings, sem metinn
verður til fjár, þ.á.m. til
greiðslu launa starfsmanna eöa
gjafa i formi vörusendinga.
4. gr.
Erlendir aðilar teljast i lögum
þessum sérhverjar stofnanir
eða einstaklingar, sem hafa
erlent rikisfang, hvort sem þeir
eru búsettir hér á iandi eða ekki.
5. gr.
Brot gegn lögum þessum
varða sektum allt að tiu milljón-
um króna.
Fjármagn, sem af hendi er
látið i trássi við lög þessi, skal
gert upptækt og rennur til rikis-
sjóðs.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Tillaga um z ekki afgreidd
Eins og kunnugt er þá lögðu 10
þingmenn fram i vetur tillögu um
íslenska stafsetningu sem fól i sér
aö teknar væru upp að nýju þær
reglur sem giltu á árunum
1929—73, þ.á.m.aðinnleiðazá ný.
Tillaga þessi kom til 2.umræðu
s.l. föstudag og var framhaldið á
laugardag. Um fjögurleytiö á
laugardag iýsti forseti sameinaðs
Alþingis þvi yfir að ekki væri
hægt að afgreiöa málið á þessu
þingi, þareð 8 menn væru ennþá á
mælendaskrá, en fyrirhugaö væri
að slíta Alþingi kl. 5. Var málið
þvi tekið af dagskrá.
Lárus Jónssonmælti fyrir áliti
meirihluta allsherjarnefndar
Sameinaðs Alþingis sem lagði til
aö tillagan yrði samþykkt og
Framhald á 18. siöu
Benedikt Gröndal: Neitar að trúa
þvi að samtakamáttur Islenskrar
alþýðu sé slíkur að hún geti reist
hús yfir Þjóðviljann.
tugi milljóna. Það stendur aldrei '
á greiðslum Þjóðviljans, t.d. fyrir
prentun. Er þetta fjársöfnun frá
islenskri alþýðu — eða hvað?
Hafa þeir ekki i áratugi fengið
stórfellda aðstoð, ólöglega og
leynilega?
Fjórir þingmenn (Stefán Jóns-
son, Steingrimur Hermannsson,
Oddur ólafsson og Jón Ármann
Héðinsson) hafa flutt frumvarp
um að banna erlenda aðstoð við
stjórnmalaflokka. Ef þetta frum-
varp væri i dag lög á Islandi (en
til þess eru frumvörp flutt) væri
formaður Alþýðuflokksins i varð-
haldi og flokkurinn sektaður um
milljónir.
Slíkt bann væri auðvitað ófram-
kvæmanlegt eins og kommarnir
hafa sýnt og sanna. Þeir mundu
sleppa, en við hinir, sem fylgjum
gjaldeyrislögum en brjótum þau
ekki, sem segjum þjóðinni satt
en ljúgum ekki að henni , mund-
um hljóta refsingu."
(Millifyrirsagnir eru blaðsins
en undirstrikanir eru Benedikts).
Stjórnar-
skrár-
nefnd
skipuð
eftir
kosningar
Alþingi samþykkti s.I. laugar-
dag tillögu frá formönnum allra
stjórnmálaflokkanna þess efnis
að ný stjórnarskránefnd verði
skipuö eftir kosningar.
Tillaga þessi var breytingartil-
laga við svipaða tillögu sem alls-
herjarnefnd sameinaðs Alþingis
lagði fram fyrir nokkrum dögum.
Tillagan sem samþykkt var
hljóðar svo:
„Alþingi ályktar, að þar sem 6
ár eru liðin siðan stjórnarskrár-
nefnd var kosin, og það er lengri
timi en venjulegur kjörtimi þing-
kjörinna nefnda og ráða, skuli að
loknum kosningum til Alþingis
tilnefna að nýju 9 menn i
stjórnarskrárnefnd af hálfu
þeirra stjórnmálaflokka, sem
fulltrúa eiga á nýkjörnu Alþingi,
og i hlutfalli við þingmannatölu
þeirra. Skal hin nýja nefnd skila
innan tveggja ára álitsgerð og til-
lögum um um endurskoðun
stjórnarskrárinnar og taka sér-
staklega til meðferðar kjör-
dæmaskipun, kosningaákvæði
stjórnskipunarlaga, skipulag
og starfshætti Alþingis og
kosningalög.”
36 nýir ríkisborgarar
Nokkru fyrir þingslit var 36
mönnum veittur isienskur rikis-
borgararéttur með lögum. Sam-
kvæmt þessum lögum skal sá sem
fær isienskt rikisfang taka sér
islenskt fornafn. Börn hans skulu
taka sér islensk nöfn samkvæmt
lögum um mannanöfn.
Hér á eftir fer listi yfir þá sem
fengu Islenskan rikisborgara-
rétt með lögum i siðustu viku:
1. Anna Aðalsteinsdóttir, barn á
Akureyri, f. i Suður-Kóreu 10.
janúar 1977.
2. Beers, Christa, gjaldkeri i
Reykjavik, f. i Þýskalandi 8.
mars 1924.
3. Calatayud, Miguel Casanova,
verkamaður I Mosfellssveit, f.
á Spáni 16. september 1928.
4. Druzina, Alevtina Valerye-
vna, cand mag., Kópavogi, f. i
Ráðstjórnarrikjunum 18.
nóvember 1938.
5. Falkvard, Eydna Sólbrún,
húsmóðir i Hafnarfirði, f. i
Færeyjum 22. september 1938.
6. Fannberg, Yrsa Roca, barn I
Reykjavik, f. á íslandi 22.
nóvember 1973.
7. Gicheva, Evgenia Peneva,
arkitekt i Reykjavík, f. I
Búlgariu 22. mars 1947.
8. Haagensen, John, málari í
Reykjavik, f. i Danmörku 1.
október 1946.
9. Hansen, Anges, kennari i
Hveragerði, f. á Islandi 13.
júni 1954.
10. Honkanen, Anja Iris
Katarina, húsmóðir i Kópa- .
vogi, f. i Finnlandi 19. janúar
1933.
11. Hiibner, Herdis Magnea,
gjaldkeri á Isafirði, f. á
Islandi 22. janúar 1954.
12. Kankam, Kankaew, húsmóðir
i Kópavogi, f. i Thailandi 8.
júli 1953. Fær réttinn 10. júli
1978.
13. Kim Hyun Jin, barn I Mos-
fellssveit, f. I Suður-Kóreu 25.
april 1977.
14. Koo Man Suk, barn á Hólma-
vik, f. i Suður-Kóreu 27.
desember 1973.
15. Loebell, Maja, kennari i
Keflavik, f. i Þýskalandi 25.
nóvember 1949.
16. Marti, Maria Teresa,
húsmóðir I Reykjavik, f. á
Spáni 17. april 1950.
17. Mekkinó Björnsson,
flugmaður i- Reykjvik, f. á
Islandi 20. mars 1953.
18. McGinley, Eleanor Beatrice,
húsmóðir i Reykjavik, f. i
Skotlandi 6. nóvember 1930.
19. Newman, Jón Róbert,
verkamaður i Keflavik f. á
Islandi 5. febrúar 1954.
20. Nielsen, Meinert Johannes,
hafnarvörður i Njarðvik, f. i
Færeyjum 23. ágúst 1922.
21. Niemenen, Laila Björt,
barn i Reykjavik, f. i Suður-
Kóreu 6. april 1977.
Danmörku 24. april 1943.
22. Odfield, Richard, nemandi I
Sandgerði, f. i Englandi 5.
nóvember 1959.
23. Ólöf Viktorsdóttir, barn I
Reykjavik, f. i Danmörku 28.
febrúar 1977.
24. Ómar Þorsteinn Arnason,
barn á Akureyri, f. i Suður-
Kóreu 17. marz 1976.
25. Pedersen, Else Lilian,
húsmóðir i Kópavogi, f. i Dan-
mörku 26. ágúst 1937.
26. Poulsen, Johanne Sofie,
húsmóðir i Keflavlk, f. I
Fæeyrjum 19 júli 1942.
27. Ramos, Ernesto Hilmar, barn
i Reykjavik, f. á Kúbu 13. júli
1975.
28. Sunna Björk Gylfadóttir,
barn I Reykjavik, f. i Suður-
Kóreu 6. april 1977.
29. Tegeder, Edda, húsmóðir I
Vestmannaeyjum, f. i
Þýskalandi 7. april 1939.
30. Veronika Sigriður Bjarnardótt
ir, barn i Reykjavik, f. i Suður-
Kóreu 23. september 1973.
31. Vignir Már Runólfsson, barn I
Grundarfirði, f. i Suður-Kóreu
24. desember 1976.
32. Vinther, Jóhanna Birgitta,
húsmóðir á Akureyri, f. i
Færeyjum 25. april 1932.
33. Yamagata, Nobuyasu,
verkamaður i Borgarnesi, f. i
Japan 11. október 1950.
34. Yoo, Jin-Sung, barn á
Akranesi, f. i Suður-Kóreu 24.
april 1977.
35. Zharova, Tayana Borisovna,
barn I Kópavogi, f. i
Ráðstjórnarrikjunum 8.
september 1966.
36. Þórunn Gisladóttir, húmóðir i
Sandgerði, f. á íslandi 24. april
1918.