Þjóðviljinn - 20.05.1978, Side 5

Þjóðviljinn - 20.05.1978, Side 5
Laugardagur 20. mal 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 >S«. « mmm*' i .mi 1 J4 rj| a ii• ii i mmm Þorbjörn Broddason, borgarfulltrúi: Hvað þuria reykvískir kjósendur að óttast? Sjálfsagt geta menn oröiö sammála um aB stjórn Eeykja- vikurborgar gæti veriB lakari en hún er nú. En þar meO er ekki sagt aö hún sé góB. Þetta vita fulltrúar hins áratuga gamla meirihluta SjálfstæBisflokksins. Þess vegna er sterkasta vopn þeirra i þessum kosningum ekki styrk stjórn borgarinnar heldur ótti kjósenda viB breytingar. Viö Alþýöubandalagsmenn hljótum þvi aö spyrja þá reyk- viska kjósendur, sem hugleiöa að ljá Sjálfstæöisflokknurh fylgi sitt I vor: Ottist þiB aö fela þvi fólki, sem skipar lista minni- hlutaflokkanna stjórn borgar- innar? A iistum minnihlutaflokkanna er aB finna karla og konur, sem þrautþekkja borgarkerfiö og hafa margra ára reynslu af samskiptum viö embættismenn borgarinnar. Þar er einnig aö finna nýtt fólk meö ferskar hug- myndir. Glundroðakenning Sjálf- stæðisflokksmanna byggir á þvi aö minnihlutaflokkarnir séu svo sundraöir aö þeir geti ekki kom- iö sér saman um nokkurn hlut. Ekkert styöur þá skoöun. Full- trúum þessara flokka sýnist vissulega sitt hverjum um ýmis mál, en þeir hafa margsýnt aö þeir geta auöveldlega komiö sér saman um þau mál, sem horfa til hagsældar fyrir Reykvík- inga. Og ég vil spyrja: Halda menn aö aldrei komi upp skoöana- ágreiningur innan meirihlutans sem nú situr? Ég fullyröi aö þar koma upp hin alvarlegustu ágreiningsefni. Munurinn er hins vegar sá, aö i þeim herbúöum eru málin rædd i felum, afgreidd I felum, án þess aö almenningur fái nokkurt Þorbjörn Broddaion. tækifæri til aö fylgjast meö þvl sem fram fer. Síöan þegar kemur aö borgar- stjórnarfundi koma 9 hendur skilvislega á loft i hvert sinn sem merki er gefiö. Samstaöa Sjálfstæöisflokksmanna i borg- arstjórn er ekki vottur um ein- hug og eindrægni, heldur er hún vitnisburöur um aö þar situr fólk sem lætur vel að stjórn. Og i þvi efni er engra breytinga aö vænta vegna þess aö ekki er eitt einasta nýtt andlit aö finna I þeim hópi, sem Sjálfstæöis- flokkurinn getur meö góöu móti búist viö aö koma aö i borgar- stjórn. Slikur er árangur próf- kjörsins margrómaða. Minnihlutaflokkarnir eru ekki sammála um alla hluti og munu ekki veröa þaö. En viö höfum sýnt aö heiöarlegur skoðana- munur hindrar ekki endaniega samstööu. Munurinn er sá, aö viö finnum samstööu okkar fyr- ir opnum tjöldum en ekki á lok- uöum klikufundum kl. 3 eftir há- degi á miðvikudögum. Þeir, sem eru haldnir efa- semdum um getu minnihluta- flokkanna til ábyrgrar stjórnar ættu aö kynna sér tillöguflutn- ing Alþýðubandalagsins i borg- arstjórn undanfarin 4 ár. Þar má nefna tillögu um féi- agslegar húsbyggingar, tillögu um stórbætta starfsemi dag-' vistarheimila, tillögu um vinnu- miölun fatlaBra og rökstudda andstöBu viB skammsýna og ábyrgöarlausa stefnu Sjálf- stæöisflokksins I skipulags- málum. Alþýöubandalagið telur sig hafa mikilvægu hlutverki aö gegna i borgarstjórn. Málsvar- ar meirihlutans, hafa lýst þvi yfir aö Alþýöubandalagið sé höfuðandstæðingur Sjálfstæöis- flokksins. Viö tökum heilshugar undir þaö mat. Viö lýsum okkur reiöubúna til þess aö hafa forystu fyrjr nýjum meirihluta i borgarstjórn. Fari svo aö meiri- hluti vinstriflokkanna náist ekki i þessari lotu, þá mun Alþýöu- bandalagiö ekki liggja á liöi sinu viö aö halda hálfrar aldar göml- um meirihluta Sjálfstæöis- flokksins viö efniö. A hvorn veginn sem fer, væri ómetanlegur styrkur I þvi aö koma 4. manninum á lista AlþýOubandalagsins i fast sæti i borgarstjórn. ViBtæk reynsla og þekking GuOrúnar Helgadóttur, ekki sist á þeim sviBum sem snerta litilmagnann i þjóöfél- aginu, eru mannkostir sem full þörf er aö efla I borgarstjórn Reykjavikur. A ðstoðarframkvœmda stjóri Borgarspítalans Jóhannes Pálmason lögfræö- ingur sem starfaö hefur sem skrifstofustjóri Borgarspitalans frá aprfl 1972hefur veriö skipaöur aöstoöarframkvæmdastjóri spit- alans. Jóhannes lauk prófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1964; cand. juris fra Háskóla ls - lands ’71, stundaöi nám i sjúkra- hússtjórn viö Nordiska Hfllsovárdshögskolan I Gauta- borg 1974-75. Hann var fulltrúi Starfsmanna- ráðs Borgarspitalans i stjórn sjúkrastofnana Reykjavikur- borgar frá janúar 1975. Jóhannes er kvæntur Jóhönnu Arnadóttur og eiga þau 3 dætur. Jóhannes Pálmason Emll Gllels í Háskólabíói Rússneski pianósnillingurinn Emil Gilels heldur tónleika i dag kl. 2.30 i Háskólabiói. Tónleikar þessir eru siöustu tónleikarnir sem Tónlistarfélagiö heldur á þessum starfsvetri, 1977-78. A efnisskrá tónleikanna á laug- ardaginn eru eftirtalinn verk: 4 lög fyrir píanó op. 32 eftir R. Schumann, Sónata nr. 3 op. 28 i c-moll eftir Prokofiev. Einnig veröa fluttar 8 Visons Fugitiveve op. 22 eftir Prokofiev og Preiúdía I c-dúr op. 12. Eftir hlé veröur : flutt Pólónesa i c-moll op. 40 eftir Chopin og Sön- ata nr. 3 i h-moll eftir Chopin. Emil Grigorjewitsch GILELS fæddist i Odessa,og var faðir hans bókhaldari. Hann hóf nám i pianóleik 5 ára gamall, áriö 1922. Fyrsti kennari hans var Yakov Tkach, sem var nemandi hins fræga Raoul Pugno. Gilels hélt fyrstu opinberu tónleika sina 13 ára gamall, og frammistaða hanns varö til þess að hann fékk inngöngu i tónlistarskólann i Odessa. Kennari hans þar var Berta Ringold, en hún var frá Vín og hafði lært þar. Ariö 1933, þá 17 ára gamall, tók Gilels þátt i alþjóðakeppni i pia- nóleik i Moskvu, sem fulltrúi fyrir Úkrainu. Hann lék þrisvar sinn- um, fékk fyrstu verölaun og gat þar meö haldiö áfram námi. Næstu 2 ár stundaði hanri nám hjá hinum' þjóðkunna kennara i Moskvu, Heinrich Neuhaus, sem einnig kenndi Swjatoslaw Richter, sem var einu ári eldri en Gilels. Þá fékk Gilels kennara- stöðu i Moskvu, sem geröi honum kleift aö undirbúa alþjóöaferil Framhald á bis. 18. Emil Gileis IGMS oifími eigendur athugið Erum fluttir af Vesturgötu 11 AUSTURVÖLLUR LANDSSIMA HÚSIO KIRKJUSTRÆTI RAFIÐJAN 1 ÍALÞINGI DÓMKIRKJAN VERSLUNIN Kírkjustræti 8, v/Austurvöll VARAHLUTIR OG VIÐGERÐIR Smiðjuvegi 10 Kópavogi, sími: 76611 RAFIÐJAN --Geymið auglýsinguna-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.