Þjóðviljinn - 20.05.1978, Síða 9
Laugardagur 20. mal 1978 ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 9
„Aðlaðandi kona” merkir yfir-
leitt snotran böggul af þeim
eiginleikum, sem eftirsóttastir
og vinsælastir eru á persónu-
markaðinum — SU kona sem
klæðir sig i há, mjúk leðurstig-
vél,og teddy-bear frakka, hefur
látið klippa sig skv. nýjustu
Parisartisku hjá Per Knudsen,
notar Rexona-spray, Cachet
ilmvatn og Imperial Body
Shampoo til að ilma vel, borðar
Calcin sykúrlaust tyggigúmmi
eftir hverja máltið svohún verði
ekki andfúl, notar Tampax svo
enginn sjái að hún er á túr,
gengur með Feel smokka i tösk-
unni ef hún er frjálslynd i kyn-
ferðismálum og vill vera sexy,
hlýtur að hafa hærra skiptagildi
ámarkaðnum en sú sem gengur
um i viðum rykfrakka frá i
fyrra, bómullarbol með tómat-
sósubletti i og þar að auki oftast
nær með steikingarlykt hárinu
af því að hún vinnur við að
steikja franskar kartöflur og
hefur ekki aðstöðu til að fara I
bað daglega.
Síðari grein
c) Auglýsingar sem beint er
til karla.Þökk sé mikilli auglýs-
ingaherferð, þá eru karlmenn
mun „betri” neytendur heldur
en þeir voru fyrir tiu árum.
Fram að þvi var markaðurinn
fyrir karlmannaföt og snyrti-
vörur ósköp stöðugur- karl-
menn endurnýjuðu jakkafötin
á nokkurra ára fresti og fengu
stundum brúsa af Old Spice
karlalykt frá konunum sinum i
jólagjöf. — Nú hefur hins vegar
ýmislegt unnist i fr jálslyndisátt.
Rök auglýsinganna hafa sýnt
körlum fram á að þeir séu alls
ekkert „kvenlegir” þó þeir
breyti um hárgreiðslu við og
við, noti ilmvötn og þurfi oftar
að endurnýja klæðaskápinn —
þ.e. hlutgerving konunnar er
óðum aö færast yfir á
karlmanninn. — Það er verið að
kennahonum að horfa á sjálfan
sig: i fallegum fötum, velilm-
andi, með nýja klippingu
o.s.frv. Þar með fær hann hlut-
deild i .Jcvenna-komplexun-
um”róttanum við ellina („Livet
begynder ved 40. Insær hvis De
ser ud som var De 30”), við að
missa kynþokkann, annað hvort
vegna þess að þú ert púkalegur
og hallærislegur eða v.þ.a. það
erfýla (likamslykt) af þér.
Nokkur dæmi um slikar karl-
mannaauglýsingar má finna i
blöðunum sem hér eru til um-
fjöllunar, þó þær sé aöallega að
finna I sérstökum karlablöðum,
sem fram hafa komið á siðustu
árum til að fylgja auglýsinga-
herferðinnieftir.
í BB(43) er auglýsing fyrir
karlmannasápuna, IrishSpring.
Myndin sýnir stæltan, brosandi
karlmann á hestbaki, reiðandi
fegurðardis fyrir aftan sig.
Textinn staðhæfir að karl-
maðurinn þurfi á vellyktandi
hressingargjafa að halda m.a.
kynþokkans vegna.
En i þessum blöðum er
algengara að höfðað sé til karl-
manna i auglýsingum fyrir dýr-
ari neysluvörur en sápur, þ.e.
„almennilegar fjárfestingar”
s.s. eins og frystikistu (Afd 124),
sófasett (Afd 43) og sjónvarp
(BB 11). Texti slðastnefndu
auglýsingarinnar er lagður i
munn nafngreindra hjóna á
myndinni, sem hafa valið sér
Philips litsjónvarpstæki. Þó
textinn sé allur i 1. p.flt. (við),
þá er greinilegt af myndinni
hver er fyrirvinnan og átóritetið
á heimilinu. Það er auðvitað
pater familias sem situr gleið-
gosalegur og sjálfumglaður
fremst á myndinni, konan og
börnin brosa litillát að baki hon-
um. — Svipuð uppbygging er á
auglýsingu fyrir Kellogg’s
hveitiklið (Bb 6).
1 blöðunum kemur þannig
fram greinilegur munur á aug-
lýsingum sem höfða til karla
annars vegar og kvenna hins
vegar. Reynt er að höfða til kon-
unnar fyrst og fremst sem kyn-
veru, en einnig sem húsmóður
(þvi hún sér jú um dagleg
innkaup til heimilisins s.s. á
mat og hreinlætisvörum).
Nokkuð er um að höfðað sé til
karlmannsins sem kynveru, en
þó fyrst og fremst sem fyrir-
vinnuog höfuðs f jölskyldunnar,
þess sem tekur ákvarðanir um
stærri fjárútlát.
Auglýsingar, sem beint er
jafnhliða tii beggja kynja, eru
aðallega fyrir lúksus-varning
eins og vín, tóbak, kaffi og sæl-
gæti. — Þessar augl. eiga það
flestar sameiginlegt að sýna
glatt, fallegt og rikt fólk gæða
sér á tilteknum vörum i fritfma
sinum: annað hvort um helgar
eða „after eight”, að loknum
vinnudegi, sbr. piparmyntu-
súkkulaðiauglýsinguna i Afd
(10).
Vinnudagur almennings
verður sifellt lengri og leiðin-
legri. Þvi hlakka allir til helgar-
innar sem á að bæta upp til-
gangsleysi virku daganna. Þá
er timi til að borða góðan mat,
drekka gott vin: hegða sér eins
og almennilegur neytandi. —
Þetta nota framleiðendurnir sér
með þvi að sýna á auglýsingun-
um fallegtfóik ifrii. Þá freistast
hinn almenni neytandi e.t.v, til
að trúa, að hann verði eins
fallegur, hreinn og hamingju-
samur og a.m.k. rikmannlegur
(ef ekki rikur), neyti hann
tiltekinnar vöru.
Lokaorð:
Hugmyndafræðileg
innræting og
heildarmarkmið
vikublaðanna
1 viðtali við Jörgen Ranten,
blaðamann við Rapport, i
desemberhefti Samvirke ”77,
segirhann að ef vikublöð eigi að
skila gróða, verði þau að vera
„samfundsbevarende”, varð-
veita ástandið óskemmt.
Hann kveðst áður hafa barist
fyrir breyttum samfélagshátt-
um i blaðamennsku sinni, en
neyðst til að leggja hugsjónirn-
ar á hilluna:
„Við (blaðamennirnir) urðum
að mæla með óbreyttri þjóðfé-
lagsskipan ef við vildum halda
vinnunni, þvi að vinnuveitand-
inn var ekki á okkar máli. Svo
við gerðum hvert samkomulag-
ið á fætur öðru. En skitt með
það. Við verðum að lifa lika.”
Þessi orð blaðamannsins eru i
fyllsta samræmi við heildar-
áhrifin af lestri þessara blaða
sem við höfum fjallað um. t
þeim fer fram stórfelld innræt-
ing þeirra viðhorfa sem stuðla
að viðhaldi kapitalisks neyslu-
þjóðfélags. Athygli og áhuga
lesandans er stöðugt beint frá
samfélaginu að einstaklingnum
og einkalifinu. 1 stað þess aö
hjálpa honum aö öðlast heillega
mynd af samfélaginu og þeim
öflum sem þvi stjórna, er til-
veran brotin niður i ótal smáar
einingar: kjarnafjölskyldur.
Innan þeirra á að bæta úr öllu
semaflagafer.
Þá stuðla blöðin af alefli að
varðveislu hefðbundinna kyn-
hlutverka. Konur eru metnar
fyrstog fremst eftir útliti sinu.
Þeim er beint inn á heimilin og
innrætt að hægt sé að kaupa sér
nýjan persónuleika, ef þær eru
ekki sáttar við þann gamla, lifs-
fyllingu, ef hinn þröngi heimur
þeirra verður ófullnægjandi.
Þannigeruskapaðar alls kyns
gerviþarfir sem allar stuðla aö
aukinni neyslu. Neyslan verður
siðan að eins konar staögengli
lýðræðisins: frelsi til að velja úr
öllum þeim fjölbreytta varningi
sem á boðstólum er, kemur i
stað frelsis til að ráða einhver ju
um skipan þjóðfélagsins.
Reykjavik. 14. janúar 1978,
Jóhanna Sveinsdóttir
Guðrún Bjartmarsdóttir.
Beinar heimildir fyrir utan
vikublöðinsex: „Söndags-B.T.”
Rapport om en succes,
Gyldendal 1971; Samvirke, 1.
desember 1977; Maria
Bergom-Larsson: „Kvinno-
medvetanda” (Sth 1976)
og tvær greinar byggðar á
henni: „Þú ert svo sæt i...”
(Þjóðv. 26. nóv. ’77) og „Aö
selja draslið” (Þjóðv. 3. des.
’77).
S.A. bjó til prentunar og þýddi
tilvitnanir.
V ortónleikar Sam-
kórs Trésmiðafél.
Samkór Trésmiðafélags sinum nú til hljómleika I annað
Reykjavikur býður velunnurum sinn. Starfsemi kórsins hefur
Ein af myndunum á sýningunni. Hún er tekin á tsafirði,
Ljósmyndasýn-
ing á ísafírði
Félag áhugaljósmyndara stofnað þar
Að undanförnu hefur staðið
yfir ljósmyndasýning fjögurra
Isfirðinga i kjallara Alþýðu-
hússsins á Isafirði. Þetta eru
þeir Leó Jóhannsson, sem er
menntaður ljósmyndari, Jón
Hermannsson, Hörður Krist-
jánsson og Sverrir Jónsson.
Ljósmynd irnar eru bæði i lit
og svarthvitu og flestar teknar á
Isafirði, myndir af mönnum aö
störfum t.d. i fiski og við upp-
skipun, myndir af trillum sem ►
spegla sig i lognkyrrum pollin-
um og endurspeglun i gljáfægð-
um hraðsuðukatli, svo að eitt-
hvað sé nefnt.
Mikill áhugi er á ljósmyndun
á ísafirði, og nýlega var þar
haldinn stofnfundur Félags
áhugaljósmyndara. Var þar
mikill hugur i mönnum aö koma
upp aðstöðu og tækjum til að
framkalla og vinna myndir og
auka fræðslu i meðferð mynda-
véla og ljósmyndun.
aukist mjög og eflst þessi sex ár
sem kórinn hefur starfað.
A þvi starfsári sem nú er að
ljúka ber hæst af viðfangsefnum
kórsins þátttöku i afmælishátið
Landssambands blandaðra kóra i
siðasta mánuði og svo vortónleika
kórsins sem nú standa fyrir dyr-
um.
A tónleikunum verður fjöl-
breytt efnisskrá, sem segja má að
skiptist i þrjá meginkafla:
I islensk kórlög
II þjóðlög frá ýmsum löndum
III útlend klassisk kórlög.
Guðjón Böðvar Jónsson stjórn-
ar kórnum eins og undanfarin ár
og undirleikarar eru Agnes Löve
pianóleikari og Jósef
Magnússon flautuleikari.
Vortónleikar kórsins veröa n.k.
sunnudag 21. mai kl. 16.00 i
Hamrahliðarskóla
Myndlistaskólinn
á Akureyri
Vorsýning
Vorsýningm Myndlista-
skólans á Akureyri verður
opnuð á tveimur stöðum i
dag kl. 15, í húsnæði skóians
að Glerárgötu 34 og I Galerie
Háhól.
A sýningunni eru hátt á
þriðja hundrað verk nem-
enda skólans sem voru ním-
lega 120 i fjórum barnaflokk-
um og fimm flokkum fullorð-
inna. Kennd var teiknun og
málun auk þess efnt til nám-
skeiða i myndvefnaði, tau-
þrykki, hnýtingu og hýbýla-
prýði. Fjórir kennarar voru
við skólann. Skólastjóri er
Helgi Vilberg.
Vorsýning Myndlistaskól-
ans á Akureyri verður opin i
dag og á morgun frá kl. 15 til
22.
Sýning á verk-
um Mary
Bruce Sharon
I dag verður opnuö i Menn-
ingarstofnun Bandarikjanna
að Neshaga 16 sýning á verk-
um listakonunnar Mary
Bruce Sharon. Hún er talin
með betri „naivistum” sem
fram hafa komið i Banda-
rikjunum. Hún lést árið
1961, 83 ára að aldri,
en hóf ekki listasköpun sina
fyrr en hún stóð á sjötugu.
Sýningin á verkum Mary
Bruce Sharon verður opin tfl
9. júni frá 13 til 19 virka daga
og 13 til 18 um helgar.
—GFr