Þjóðviljinn - 20.05.1978, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. mal 1978
Laugardagur 20. mal 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Það er alveg óumdeil-
anlegt að allur fjöldi
iðnverkafólks er
tekjulægsta fólkið i
þjóðfélaginu þó að
mörg störf þess séu
erfið og óþrifaleg og
þeim fylgi mikill há-
vaði.
í Reykjavik er mikill
meirihluti launþega
og það er brýnt hags-
munamál þeirra að i
stjórn borgarinnar og
rikisins sé fólk með
jákvæð viðhorf til
verkafólks.
Verkamaður, sem fær
eina og hálfa miljón
króna i lifeyrissjóðs-
lán til 15 ára, þarf að
borga hálfar árstekjur
sinar i vexti og af-
borganir aðeins af
þessu eina láni.
Viðtal við Guðmund Þ. Jónsson formann Landssambands iðnaðverkafólks sem
„Pólitísk og fagleg barátta fer alltaf saman”
A vinnustööum iðnverkafölks I Reykjavfk þarf mörgu að sinna,og það Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Landssambauds iðnverkafölks
er I verkahring Guðmundar að greiða úr vandamálum sem þar koma
upp. Hér er hann I Gráfeldi h.f.i<Ljósm. Leifur)
Guðmundur Þ. Jónsson for-
maöur Landssambands iðn-
verkafólks er I 5, sæti á
framboðslista Alþýðubandalags-
ins til borgarstjórnarkosninga
sunnudaginn 28. mai. Þjóðviljinn
kom að máli við Guðmund um
daginn til að grennslast svolitið
um uppruna hans,störf og skoðan-
ir.
Strandamaður í húð og hár
— Hvaðan ert þú upprunninn,
Guðmundur?
— Ég er Strandamaður i húö og
hár, fæddur á Gjögri i Arnes-
hreppi i Strandasýslu og alinn þar
upp fram að fermingu.
— Segðu mér svolitið frá for-
eldrum þinum og fjölskyldu?
— Ég er yngstur 12 systkina og
missti föður minn þegar ég var 6
ára gamall. Hann hét Jón
Magnússon og var sjómaður, að-
allega togarasjómaður Móðir
min, Bjarnveig Friðriksdóttir,
átti áfram heima fyrir norðan þar
til ég var 13 ára að við fluttum
suður.
— Þetta hefur verið mjög stórt
heimili?
— Þegar ég man eftir mér voru
eldri systkinin orðin uppkomin og
mörg farin aö heiman svo að hóp-
urinn var farinn að þynnast.
— Hvað um skólagöngu þina?
— Ég átti góða æsku en það var
ekki mikiö skólanám að ræða, að-
eins barnaskólanám. Seinna þeg-
ar ég var orðinn fullorðinn gafst
mér svo kostur á að stunda
tveggja ára nám i verkalýðs-
málaskóla i Sovétrikjunum. Það
var ákaflega gagnlegur og þrosk-
andi timi.
Björn Bjarnason haföi
mikil áhrif á mig.
— Þú hefur þá snemma byrjað
að vinna fulla vinnu7
— Já.straxer ég kom suður
fór ég aö vinna, fyrst i frystihúsi í
Keflavik og siðan almenna verka-
mannavinnu.
— Hvenær byrjaðirðu aö hafa
afskipti af félagsmálum?
— Ætli ég hafi ekki verið svona
16-17 ára þegar ég gekk i Æsku-
lýðsfylkinguna.
— Þú ert kannski af róttæku
heimili?
— Nei, þar var engin róttækni.
Framsóknarflokknum var fylgt
að máli og fyrst og fremst Her-
manni Jónassyni þingmanni kjör-
dæmisins.
— Hvað olli þvi þá að þú varðst
sósialisti?
— Þegar ég fór sem unglingur
að vinna i byggingavinnu lenti ég
þar með ungum mönnum sem
voru i Æskulýðsfylkingunni og
átti lika félagsskap með þeim ut-
an vinnu. Þeir höfðu áhrif á mig.
Tvitugur fór ég að vinna i sápu-
gerðinni Frigg og þá kynntist ég
Birni Bjarnasyni og þaö var fyrst
og fremst vegna áhrifa frá honum
að ég fór að skipta mér stéttarfé -
lagi minu.Sfðan höfum við veriö
samferða á þvi starfi alla tið
siðan. Það hefur verið geysidýr-
mætur skóli fyrir mig að starfa
með Birni með alla sina þekkingu
og reynslu. í vor fór það svo að ég
tók við af honum sem formaður
Landsambands iðnverkafóiks
þegar hann ákvað að hætta.
Ekki er hægt aö una viö hin
lágu laun.
— Hvenær byrjaðir þú að hafa
afskipti af málefnum Iðju?
— Þaö ar árið 1962 sem ég fór
fyrsti framboð til stjórnar félags-
ins á lista vinstri manna. Gisli
Svanbergsson var formannsefni
en ég varaformannsefni. Við náð-
um ekki kjöri. Hins vegar hef ég
verið varaformaður núna i 9 ár
en hafði áður verið meðstjórnar-
maður i 3 ár.
— Hefur þér fundist brýnt að
berjast fyrir málefnum iðnverka-
fólks?
— Ég hef frá fyrstu tið verið
þannig að upplagi að ég hef viljað
skipta rnér af hlutunum, ekki vera
hlutlaus áhorfandi. Það er alveg
óumdeilanlegt að allur fjöldi iðn-
verkafólks er tekjulægsta fólkið i
þjóðfélaginu þó að mörg störf
þess séu erfið og óþrifaleg og
þeim fylgi mikill hávaði. Til þess
að þetta breytist þarf hugarfars-
breytingu og brýnt er að hver ein-
asti félagsmaður hafi afskipti af
stéttarbaráttunni. Ekki er hægt
að una við hin lágu laun. Ef ein-
hver gróska á að vera i iðnaði
verður að vera hægt að launa
starfsmenn hans i samræmi við
aðrar stéttir. Þar starfar mikiö af
góðu fólki sem kann vel til verka
og framleiðir góða vöru.
Eftir því sem f leirí fulltrú-
ar verkafólks sitjá á al-
þingi og f sveitarstjórnum
léttir þaö baráttuna.
— Nú ert þú i framboði til
stjórnar Reykjavikurborgar.
Heldurðu að þú getir þokað þess-
um málum eitthvað fram á veg á
þeim vettvangi?
— Alveg vafalaust. Pólitisk og
fagleg barátta fara alltaf saman.
Eftir þvi sem fleiri fulltrúar
verkafólks sitja á alþingi og
sveitarstjórnum léttir það barátt-
una. Ef annar meirihluti væri i
Reykjavik nú, þá hefði hann
kannski staðið við samninga um
fuilar visitölubætur. í staðinn
ræður þessi fjandsamlegi meiri-
hluti sem ætlaði að beita sér fyrir
þvi að draga 32% af launum sem
hefnd vegna verkfallsdaganna
tveggja i byrjun mars en þorði að
visu ekki að framkvæma það. 1
Borgarnesi og Neskaupstað hafa
sveitarstjórnirnar ákveðið aö
borga fullar visitölubætur. Hvers
vegna er það ekki alveg eins hægt
i Reykjavlk? Það er vafalaust að i
Reykjavik er mikill meirihluti
launþega og það er brýnt hags-
munamál þeirra að i stjórn borg-
arinnar og rikisins sé fólk með
jákvæð viðhorf til verkafólks.
Illgerlegt fyrir venjulegt
launafólk að koma sér upp
eigin húsnæði
— Eru einhver sérstök áhuga-
mál sem þú vildir beita þér
fyrir I stjórn borgarinnar frekar
en önnur?
— Ef ég mundi eiga kost á að
starfa i borgarst jórn — sem verð-
ur kannski ekki að þessu sinni —
mun ég fyrst og fremst lita á mig
sem fulltrúa verkafólks en það
eru sjálfsagt mjög mörg mál tek-
in fyrir sem varða lif þess. Ég get
nefnt húsnæöismálin sem eru orð-
in þannig núna aö það er illger-
legt fyrir venjulegt launafólk að
koma sér upp eigin húsnæði Sem
dæmi má taka að maður sem fær
eina og hálfa miljón króna i
lifeyrissjóöslán til 15 ára þarf að
borga hálfar árstekjur sinar i af-
borganir og vexti aðeins af þessu
eina láni. Húsnæðisvandamálið
verður að leysa á félagslegum
grundvelli og þá með byggingu
leiguibúða sem borgin byggir og
efla mjög byggingu verkamanna-
bústaða.
Gera þarf stórátak í
fegrun og hreinlæti á
vinnustöðum.
í framhaldi af þessu vil ég
nefna annað. Þótt við leggjum
auðvitað mikla áherslu á þokka-
legt húsnæði, sem er brýnt fyrir
hverja fjölskyldu að hafa, verð-
um við lika að hafa góða vinnu-
staöi þar sem menn eyða meiri-
hluta vökutima sins. Við viljum
hafa allt fint og fágað heima hjá
okkur en á mörgum vinnustööum
_er ekki sinnt að hafa þá eins og
íög og reglugerðir segja til um.
Þarna þarf að gera stórátak bæði
i fegrun og hreinlæti.
— Er ástandið almennt mjög
slæmt?
— Mörg fyrirtæki eru i gömlu
húsnæði sem alls ekki er byggt yf-
ir þá starfsemi sem nú er I þvi og
oft er það mjög slæmt, En það er
ástæðulaust að gleyma þvi sem
vel er gert. Ýmis fyrirtæki hafa
byggt yfir sig og þar hefur i
mörgum tilfellum verið tekið
myndarlega á öllum aðbúnaðar-
málum.
— Hvernig gæti borgin gripið
þarna inn i?
— Hún gæti gert stórátak bæði
með þvi að ganga á undan með
góðu fordærm eins og með þvi að
efla heilbrigðiseftirlitið. Þar held
ég að starfi nú aðeins 2 menn og
hafi eftirlit með öllum vinnustöð-
um i borginni fyrir utan matvæla-
framleiðsluna. Ef maður biður
um að fyrirtæki sé skoðað vill
heilbrigðiseftirlitið stundum
verða. ærið seinvirkt. Þeir sem
þar starfa hafa ekki nógu góöar
aðstæöur og þeir eru ekki nógu
margir
I 10 mannanefndinni.
— tJr þvi að þú minnist á þetta.
I hverju er starf þitt fólgið sem
starfsmaður Iðju?
— Það er mjög fjölbreytt og
margt sem kemur upp i dagleg-
um önnum félagsins. Ég þarf að
fara á vinnustaði, gefa upplýs-
ingar og margt, margt fleira.
Núna þessa daga starfa ég i 10
manna nefnd ASI i samningavið-
ræðum en það fylgir formennsku i
landsambandinu að sitja i þeirri
•nefnd.
— Hvernig leggjast samning-
arnir i þig?
— Það er erfitt að segja. Ekki
er hægt að búast við miklu af
mönnum sem gera samninga og
svikja þá siðan. Og eiber vist. Ef
styrkur stjórnarflokkanna verður
sá sami eftir kosningar láta þeir
ekki við svo búið sitja i kaupráns-
stefnu sinni. Þá fylgir annað
verra.
Ég er bjartsýnn.
— Að lokum. Hvernig býstu viö
að úrslit borgarstjórnarkosning-
anna verði?
— Eg er bjartsýnn. öll skilyrði
ættu að vera til þess að Alþýöu-
bandalagið geti bætt við sig
manni. Við bjóðum uppá mjög
vinsæla og ágæta manneskju i
fjórða sæti, en það er Guörún
Helgadóttir sem hefur getið sér
hið besta orð i tryggingamálum.
Eg er bjartsýnn — kannski
barnalega bjartsýnn. —GFr.
skipar 5. sæti á lista Alþýðubandalagsins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík
Ef styrkur stjómar-
flokkanna verður sá
sami eftir kosningar
láta þeir ekki við svo
búið sitja i kaupráns-
stefnu sinni. Þá fylgir
annað og verra.
Húsnæðismálin eru
orðin þannig núna að
það er illgerlegt fyrir
venjulegtlaunafólk að
koma sér upp húsnæði.
Lýðræðis-
ást meiri-
hlutans
í verki
\
Svipmynd frá borgarstjórnarfundinum: þarna sjást 7 af Öhöndum meirihlutans á lofti. Tillagan er felld.
Felldu tillögu um lýðræðislegra og
opnara stjórnkerfi borgarinnar
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins i
borgarstjórn sýndi lýöræðisást
sina i verki á sfðasta fundi
borgarstjórnar á þessu kjörtima-
biíi. Þeir vlsuðu frá tillögu frá
Þorbirni Broddasyni um leiðir til
þess að örva þátttöku og áhuga
Reykvikinga á stjórnun borg-
arinnar.
Ekki er að efa aö 4rði liður til-
lögunnar hefur stungið þá sárast,
en hann fjallaöi um að banna
skyldi lokaða fundi meirihluta
borgarfulltrúa, en silka fundi
halda borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisf lokksins fyrir hvern
borgarstjórnarfund og ákveða
þar hvernig málum skuli ráðið i
krafti atkvæöanna 9.
Tillaga Þorbjörns var svo-
hljóöandi:
Til þess að örva áhuga og þátt-
töku Reykvikinga i störfum
kjörinna fulltrúa sinna og
embættismanna sinna gerir borg-
arstjórn eftirfarandi samþykkt:
1. Borgarstjórn Reykjavikur
þiggur vald sitt frá Reyk-
vikingum og starfar eingöngu I
þágu borgarbúa. Til að tryggja
þetta meginsjónarmið er
nauðsynlegt, að borgarstjórn
starfi fyrir opnum tjöldum og
taki ákvarðanir og ihugi mál,
er almenning varöar, fyrir
opnum tjöldum. Þess vegna
skulu fundir hennar, stjórna,
nefnda og ráða borgarinnar og
embættisrnanna hennar vera
opnir almenningi og fjöl-
miðlum.
2. Fundi borgarstjórnar skal
ávallt auglýsa rækilega með
minnst tveggja daga fyrirvara
i fjölmiðlum, þar meö taldir
rikisfjölmiölar. Almenningi
skal gefinn kostur á áskrift aö
fundargerðum nefnda og ráða
borgarinnar.
3. Akvæöi 1. mg. 10. gr.
Samþykktar um stjórn Reykja-
vikurborgar skulu endurskoðuð
með þeim hætti, að þar verði
að finna tæmandi upptalningu.
Skulu ákvæði greinarinnar
einnig taka til kjörinna stjórna,
nefnda og ráða borgarinnar
eftir þvi sem við á.
4. Óheimilt skal að halda lokaða
meirihlutafundi fulltrúa i
borgarstjórn eða kjörnum
stjórnum, nefndum og ráðum
borgarstjórnar, þar sem mál,
er varða aimenning, eru rædd
og ákvarðanir kunna að vera
teknar.
5. Allir fundir, sem haldnir eru og
brjóta i bága við 1.-4. liö þess-
arar samþykktar, skulu
ómerktir og ógildir.
6. Borgarstjórn beinir þeim til-
mælum til Alþingis, aö sveitar-
stjórnarlögum verði breytt til
samræmis við samþykkt
þessa og að tryggt verði að
almenningur geti ieitaö til
dómstóla til að koma i veg fyrir
leynd, ef nauðsyn krefur.
I framsöguræöu sinni fyrir tíl-
lögunni sagði Þorbjörn að sér
hefði einkum lærst tvennt á setu
sinni i borgarstjórn s.l. 4 ár.:
Hið fyrra er að borgarstjórn
hefur ætið til meðferðar mál af
þvi tagi, að þau varða allan
alinenning mjög miklu, mál sem
fjöldi fólks hefur gildar ástæður
tilað fylgjast með og hafa áhrif á.
Hitt^em ég lærði, var að starfs-
hættir á borgarstjórnarfundum
miðuðust ekki viö það að taka
málefni borgarbúa til efnislegrar
ihugunar og meöferðar, heldur
varþað hlutverk þeirra að lcggja
formlega blessun yfir ákvaröanir
sem þegar höfðu verið teknar á
öðrum vettvangi og af aöila, sem
hvergi er að finna i samþykktum
um stjórn Reykjavlkur, og er þvi
ekki til frá laga- eða stjórnsýslu-
sjónarmiði.
Þessi aðili lætur sig þó ekki
muna um að afgreiða öll málsem
minnihlutaflokkarnir bera fram i
borgarstjórnjog senda ákvarðanir
sinar nánast i formi tilkynninga
inn á fundi borgartjórnar.
Rökstuðningur sem fylgir þessum
tilkynningum er oft slikt sam-
bland af valdahroka og virðingar-
leysi fyrir málefnalegum vinnu-
brögðum að maður hefði frekar
óskað þess að honum hefði verið
sleppt með öllu.
Ákvarðanir teknar
á lokuðum
meirihlutafundi
Þvi skal ekki neitað að form-
legum kröfum um lýðræðisleg
vinnubrögö hefur verið fullnægt.
Sveitarstjórnarlögin leggja þá
eina skyldu á heröar borgar-
stjórnar Reykjavlkur aö fundir
hennar séu haldnir i heyrenda
hljóði. Sjáifstæðisflokknum hefur
hins vegar tekist að afskræma
Meiri-
hlutinn vill
fá að halda
áfram
sínum lok-
uðufundum
og ráða
málum
borgarbúa
á þeim
þessa sjálfsögðu reglu I skjóli
áratuga meirihlutavalds sins.
Umræður og efnisleg afgreiðsla
mála er tekin úr þessari
lýðræðislegu opnu málstofu inn á
lokaðan klikufund sem almenn-
ingur fær engan aðgang að.
Arangurinn er sá aö Reykavik-
ingar eru lögnu afvanir þvi að
fylgjast með umræðum i borgar-
stjórn. Um þaö vitna tómar
bekkjaraðir yfir þessum sal,
sem glotta við fundarstjóra og
ræðumanni, idag sem endranær.
Ég er ekki i neinum vafa um að
Sjálfstæðisflokksmenn eru mjög
sáttir við afskipta- og áhugaleysi
alnennings. A fjögurra ára festi
er kjósendum siðan hótað óút-
skýrðum, en þó skelfilegum
hrellingum ef þeir standi ekki
vörð um gamla meirihlutann.
Litilsviröing Sjálfstæöisflokks-
manna á þessari málstofu sem
við sitjum nú I er að minu viti einn
ljótasti bletturinn á flokknum. En
afnám ákvarðandi klikufunda
meirihlutans myndi eitt sér ekki
ráða málum endanlega til betri
vegar. Mjög mikil málefnaleg
umræða fer fram I hinum ýmsu
stjórnum, nefndum og ráðum
borgarinnar. En störf þessara
nefnda eru hulin sjónum
almennings nema þaö sem fram
kemur i fundargerðum þeirra
sem er næsta snubbótt, eins og
kunnugt er.
Hvaö tryggir
lýðræðisleg
vinnubrögð
Þegar allt kemur til alls eru það
þó ekki formsatriðin sem tryggja
lýðræðið heldur pólitiskur þroski
þeirra sem settir eru til að fram-
fylgja þvi. Samþykkt þessarar
tillögu myndi skapa grundvöll
sem byggja má á ný og lýðræðis-
leg vinnubrögð.
Davið Oddsson mælti gegn til-
lögunni af hálfu borgarfulltrúa
Sjálfstæöisflokksins. Þvi miður
var ræða Daviös þvilikt saman-
safn skætings og hroka að hún er
ekki eftir hafandi. Hann klykkti
út með að lýsa tillögu Þorbjörns
óraunsæislega, ólýöræðislega og
út i bláinn og vildi þvi visa henni
frá.
Framhald á 18. siðu.
Kristján Guömundsson við verk sem er gert með sjálfblekungi á þerripappir. (Ljósm.
Leifur).
Gallerí SÚM:
Kristján Gudmundsson
opnar sýningu í dag
1 dag opnar Kristján Guöntundsson mynd-
listarsýningu iGalleriiSGMen sú sýning var
á tsafirði um hvitasunnuhelgina. A henni eru
9 verk unnin á árunum 1972-77, ijóð,
teikningar og bækur.
Þetta er 15. einkasýning Kristjáns, en þar
af sú sjöunda hér á landi, og auk þess hefur
hann tekið þátt i fjölda samsýninga á Islandi
og erlendis. Kristján hefur undanfarin ár
verið á föstum launum hjá riki og bæ i Hol-
landi gegn þvi að láta af hendi verk sin til að
setja upp á opinberum stöðum.
Sýningin in i Galleri SÚM er opin daglega
frá kl. 4 til 8 og stendur til 1. júni n.k.
Aðgangur er ókeypis. —GFr