Þjóðviljinn - 09.06.1978, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 09.06.1978, Qupperneq 5
Föstudagur 9. júni 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Þór Vigfússon borgarfulltrúi spuröur álits um hvernig fólk á að vera búið í Keflavíkurgöngu Þór Vigfússon borgarfulltrúi er mikill göngugarpur og hefur ekki aðeins tekið þátt i Keflavikur- göngum heldur gengið um island þvert og endilangt. Það þótti þvi við hæfi að leita til hans og fá upp- lýsingar um hvernig fólk ætti helst að vera búið i Keflavikur- gönguna á morgun. „Meginmálið eru góðir skór”, svaraði Þór að bragði. er alltaf öðru hverju að sjá ráðleggingar ferðamanna i blöð- um hvernig fólk á að búa sig á gönguferðum og er þar alltaf ein- hver munur á skoðunum, sagði Þór. Sjálfur er ég alltaf i ullar- sokkum mér nær og oftasti klossum með þykkum sólum. Keflavikurvegurinn er harður og þess vegna betra að hafa þykka sóla undir. Fólká allsekkiað fara inyjum skóm i svona langa göngu heldur skóm sem það er vant. Stundum geng ég i háum striga- skóm með þykkum og góðum sól- Þór Vigfússon borgarfulltrúi hef- ur verið fánaberi i fyrri göngum Hvilst I Kúagerði I Keflavikurgöngu 1976; fótabúnaður er mikilvægur en sjálfsagt er að hafa nóg af plástrum með ef illa fer um en sumir eru i stigvélum sem geta gefið góða raun. Ef fólk er i vandræðum er til i dæminu að hafa varaskó með sér. Hægt er að geyma þá i rútunni sem fylgir göngunni eftir. Það getur verið góð hvild i að skipta um skó. Ef ekki er eindreginn þurrkur þarf regnmussuog sjálfsagt er að hafapeysu. Ef ekkierhlýtt iveðri getur verið gott að vera i föður- landsbuxum. Min reynsla er sú, aðþærhitiekkisvomjögá göngu. — Að lokum, Þór. Hvernig leggst gangan i þig? — Hún leggst vel i mig. Það verður margt fólk þvi að það er búið að átta sig á hvað er gaman i svona göngum. —GFr. Meginmálið eru góðir skór Deilur vegna nýbyggingar Listasafns Kjallari L.I. er fastur í kerfínu Fjármálaráöherra sakar byggingar- nefnd um lögbrot Gamli Glaumbær, sem áður hét fshúsið Herðubreið, var byggöur árið 1912og þar geymt freðkjötog beitisild. Nú á að geyma þar i framtiðinni iistaverk Listasafns Islands og byggja nýbyggingu fyrir safnið á lóð- inni bak við húsið. Verið er að vinna að endurbótum á loftinu í hinu nýja húsnæði Lista- safns tslands. ,,Bygginganefnd safnsins er einhuga um að það sé fráleitt að nýta ekki þann möguleika að byggja kjallara undir hina væntanlegu nýbyggingu. Hins vegar hefur málið staðið algjör- lega fast I kerfinu á annað ár, þar til nefndin tók ákvörðun um að bjóða út jarðvinnuna fyrir kjall- arann. Þá fékk ég bréf frá fjár- málaráðherra, þar sem hann seg- ir byggingarnefnd hafa framið lögbrot með þessu og nú stendur málið aftur fast”, sagði Guð- mundur G. Þórarinsson, formað- ur bygginganefndar Listasafns islands, en i gær voru opnuð til- boð i jarðvinnu við gerð kjallara við nýbyggingu, sem réisa á bak við Glaumbæ. Hefur menntamálaráðherra lýstsig samþykkanþvi að kjallari verði i húsinu, en nefnd sú sem fjallar um opinberar fram- kvæmdir lýst sig mótfallna kjall- aranum. Sagði Guðmundur, að ekki hefði tekist að fá fjármála- ráðherra til að gefa endanlegt svar um þetta og þvi verið ákveð- iðaðbjóða jarðvinnuna úttilað fá einhver viðbrögð i málinu. Stóð ekki á þeim, og sagði Guðmundur að nú væri ekkert hægt að aðhaf- ast frekar og væri bygginga- nefndin forviða á framgangi þessa máls. Guðmundur sagði, að nauðsyn- legt væri að gera ráð fyrir að safnið stækkaði, en lóðarrýmið bak við Glaumbæ er mjög tak- markað. Er gert ráð fyrir að i kjallaranum verði salur, þar sem unnt verður að halda fyrirlestra og kynna starfsemi safnsins, að- staða til viðgerða á málverkum, geymsla, o.fl. Endurbætur standa ennfremur yfir á gamla húsinu, en allt útlit er fyrir að enn verði bið á þvi að unnt verði að hefjast handa við nýbygginguna, þar til úr þvi verður skorið, hvort leyfi fæst fyrir kjallaranum. þs Frá Flensborgar skóla Frestur til að skila umsóknum um skóla- vist næsta vetur rennur út 10. júni næst- komandi. 1 skólanum verða starfrækt eft- irfarandi námssvið næsta skólaár: 1. Almennt bóknámssvið (menntaskóla- nám). 2. Viðskiptasvið. 3. Heilsugæslusvið. 4. Uppeldissvið. 5. Fiskvinnslusvið. 6. Fornám. Nemendur sem ekki hafa sótt um skóla- vist i tæka tið eiga á hættu að fá ekki skólavist á haustönn. Skólameistari. FRÁ TIALDMIÐSTÖÐINNI Á LAUGARVATNI Tjaldmiðstöðin og tjaldsvæðin verða opn- uðföstudaginn9. júni. Á boðstólum verður allur venjulegur ferðavarningur. ÖLVUN BÖNNUÐ. Tjaldmiðstöðin Laugavatni. BIFVÉLAVIRKIAR Þjónustumiðstöð Sambandsins, Höfða- bakka 9, óskar að ráða bifvélavirkja sem fyrst. Nánari upplýsingar gefur Jóhannes Jó- hannesson, þjónustustjóri, á staðnum. SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA . phyT’ÍS snyrtivörurnar 1 verða _ sífellt vinsælli. P phy^TÍS er húðsnyrting ' I og hörundsfegrun með hjálp » blóma og jurtaseyða | ; r ' ^ phyTÍS f yrir viðkvsema húð I phyrris fyrir al|ar húðgerðir Fæst í heistu snyrtivöruversi- unum og apótekum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.